Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Blaðsíða 11
11
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
Fréttir
Frumvarp f] ármálaráöherra um breytingar á þungaskattslögum:
Utlendingum mismunað
Erlendir feröamenn skulu greiöa 90% hærri þungaskatt en íslendingar
Samkvæmt frumvarpi um breyt-
ingar á lögum um þungaskatt af
dísilbilum, sem nú er í meðfórum
alþingis, er erlendum ferðamönn-
um, sem ferðast um ísland á eigin
fólksbíl með dísilvél, gert að greiða
um 90% meira í þungaskatt en is-
lenskum eigendum sams konar bíla,
verði frumvarpið að lögum.
Samkvæmt frumvarpinu verður
erlendum ferðamanni á dísilbil, sem
vegur á milli eitt og tvö tonn, gert
að greiða fyrir hverja byrjaða viku
kr. 4.035 en íslendingur, sem á sams
konar bíl og greiðir þungaskattinn
samkvæmt fastagjaldi, greiðir rúm-
lega 132 þúsund krónur á ári eða
2.540 kr. á viku. Munurinn nemur
rúmum 92 af hundraði, útlendingn-
um i óhag.
„Samkvæmt almennri jafnræðis-
reglu laga þá má ekki mismuna
mönnum eftir þjóðerni," segir Ragn-
ar Aðalsteinsson hæstaréttarlög-
maður. Ragnar segir að á hinn bóg-
inn séu fjölmörg undanþáguákvæði
Þær vinna hjá sparisjóðnum. Frá vinstri: Ingigerður Arnijótsdóttir, Brynja
Ingólfsdóttir, Arnfríður Jónsdóttir og Anna Dóra Snæbjörnsdóttir í nýja hús-
næðinu. DV-mynd Finnur
Sparisjóður Mývetninga flytur
DV, Mývatnssveit:
Nýtt húsnæði Sparisjóðs Mývetn-
inga var opnað 9. apríl í fé- lags-
heimilinu Skjólbrekku. Sparisjóður-
inn var áður að Helluvaði en þar
hefur hann verið til húsa frá stofn-
un hans árið 1945. Sparisjóðsstjóri
er Kristján Hjelm. í Reykjahlíð er
útibú frá sparisjóðnum. -FB
Þriðji togari Sigl-
firðings á veiðar
DV, Fljótnm:
Svalbarði SI 302, þriðji togari
Siglfirðings á Siglufírði, heldur til
veiða í næstu viku en að undan-
förnu hefur togarinn verið í Reykja-
vík til breytinga. Þar var meðal
annars settur upp lausfrystibúnað-
ur í lest skipsins.
Svalbarði hét áður Svalbakur og
var í eigu Útgerðarfélags Akureyr-
inga. Siglfirðingur hf. keypti togar-
ann fyrr í vetur og áformar að gera
hann út á rækjuveiðar.
Að sögn Runólfs Birgissonar,
framkvæmdastjóra Siglfirðings, var
skipið keypt án veiðiheimilda. Sval-
barði fer á Flæmska hattinn til að
byrja með. Fyrir á Siglfirðingur tog-
arana Sigli, sem er eitt stærsta flski-
skip íslendinga, og Siglfirðing SI
150. -ÖÞ
£*sr.
í sambandi við EES-löggjöfina og
þurfi að rannsaka hvort um eitt-
hvert slíkt geti verið að ræða í
þessu tilviki áður en fullyrt verði
um hvort ákvæði frumvarpsins um
akstur ferðamanna hér á eigin dísil-
bílum stríði gegn gildandi lögum.
Hermann Jónasson, lögfræðingur
í fjármálaráðuneytinu og einn höf-
unda frumvarpsins, segir að þessar
tölur séu teknar nánast beint úr
þeirri reglugerð sem farið hefur ver-
ið eftir hingað til. „Við í fjármála-
ráðuneytinu tökum enga afstöðu til
þess hvort þetta standist. Við kom-
um tölunum á framfæri til að menn
sjái þær svart á hvítu. Það verður
öruggleg einhver umræða um þetta.
Aðspurður hvort ekki sé verið að
leggja til gríðarlega mismunun seg-
ir Hermann: „Við erum alveg sam-
mála því en þetta hefur verið svona.
Ástæðan til að við setjum þetta í
frumvarpið er að við erum að vekja
athygli á þessari gjaldtöku. Hún hef-
ur verið með þessum hætti á grund-
velli lagaheimildar. Við viljum að
alþingi skoði hvað það vill gera
varðandi þessa gjaldtöku. Það er
erfitt fyrir ráðuneytið að lækka
gjöld á hinu og þessu án þess að al-
þingi hafi neitt um það að segja.“
-SÁ
Smásagnakeppni um
Tígra í umferðinni
*
Tígri er um þessar mundir að Iæra umferðarreglurnar. Hvernig ætli honum gangi að fara yfir
götumar, ætli hann kunni á umferðarljósin? Skyldi hann eiga reiðhjól og endurskinsmerki?
Það er margt sem getur komið fyrirTígra í umferðinni ef hann fer ekki varlega.
Ef þú ert 12 ára eða yngri getur þú tekið þátt í því að skrifa smásögu um
Tígra í umferðinni.
Allir sem senda inn sögur fá að gjöf teinaglit á reiðhjólið
50 sögur verða valdar og gefhar út í einni
bók, Tígrabókinni. Þeir sem eiga sögur í
bókinni eiga möguleika á að vinna vegleg
verðlaun. r
Komið verður upp Tígrahorni í
Kringlunni dagana 9.-14. apríl
ar sem þú getur fengið öll
átttökugögn.
Þú getur einnig haft samband við
Krakkaklúbb DV, Þverholti 11,105
Reykjavík, eða Umferðarráð, Borgartúni
33,105 Reykjavík, og við sendum
þér gögnin. Skilafrestur er til
6. maí.
Það er leikur að skrifa um
Tígra í umferðinni.
ettdk'
W&M
í samstarfi við yUNTERÐAR Qg
lögregluna
UMKBÆKUR
handa fóikt sem kann
að meta ualdar bækur
Ótrúlega ódýrar og
ennþá ódýrari í áskrift
sogur
im m ainm
ÍtðM&NTÍISK S4BA BR
funfmtm
550 5000
I—aBÆKUR
SANNKALLAÐAR
ÚRVALSBÆKUR