Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnariormaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftan/erð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Hagkvæmnin gleymdist Þeir sem feröast hafa um nálæg Evrópulönd hafa tek- iö eftir því að dísilknúnir einkabílar eru algengir á göt- unum. Þeir eru af öllum stærðum og gerðum. Algengir eru smábílar með dísilvélum. Fólk velur þessa bíla frem- ur en bensínbíla og það af mörgum ástæðum. Þessu er þveröfugt farið hérlendis. Það heyrir til und- antekninga að fólksbílar hér séu dísilknúnir. Það eru helst leigubílar og stærri jeppar auk vöru- og fólksflutn- ingabíla sem eru með dísilvélum. Skattareglur ráða því að óhagkvæmt er að reka dísilknúna fólksbíla. Dísilbílar menga minna og nota minna af eldsneyti en bensínbílar. Þeir slíta vegakerfinu rétt eins og þeir bens- ínknúnu. Dísilolía er ódýrari í innkaupi en bensín auk þess sem hún er hættuminni í meðfórum. Flest mælir því með því að nota fólksbíla með dísilvél- um fremur en bensínbíla. Það er hagkvæmara fyrir ein- staklinginn og einnig fyrir samfélagið. Mengun af völd- um bíla er alvarlegt áhyggjuefni. Dísilbílar menga en þeir menga minna en bensínbílar. Stjórnvöld hafa hins vegar sett þær reglur að fólksbílar með dísilvél eru alls ekki valkostur fyrir almenning. í vor voru samþykkt lög um innheimtu olíugjalds af dísilolíu fyrir bíla. Tilgangurinn var meðal annars að koma í veg fyrir mismun á skattlagningu á notkun bens- ín- og dísilbíla. Dísilbíllinn átti að verða jafngóður kost- ur og bensínbíllinn. Þá átti um leið að bæta innheimtu vegaskatta af dísilbílum. í lögunum var gert ráð fyrir undanþágum og endur- greiðslukerfi. Fljótt þótti sýnt að það kerfi væri illfram- kvæmanlegt. Því var gildistöku laganna frestað. Fjár- málaráðherra hefur lagt fram nýtt frumvarp sem kveður á um gjaldtöku af dísilbílum. Þar hefði mátt búast við því að hugað væri að hagkvæmni dísilknúinna smábíla. Svo er þó alls ekki. Fjármálaráðuneytið viðurkennir að í frumvarpinu, sem þegar hefur verið tekið til fyrstu umræðu, hafi hreinlega gleymst að gera dísilknúna smá- bíla jafngildan kost fyrir almenning og bensínbílar eru. Framkvæmdastjóri Félags íslenkra bifreiðaeigenda telur þetta forkastanlegt og er varla hægt að lá honum það. Talsmaður íj ármálaráðuneytis ins getur ekki skýrt glappaskotið en gerir þó fastlega ráð fyrir því að þetta verði lagfært í meðferð þingsins. Það verða hinir hag- sýnu að vona. Það gengur ekki upp að stjómvöld stýri þessum málum á þann hátt að kostnaður við ekinn kíló- metra smábíls með bensínvél sé tæplega 9 krónur en 12-13 krónur ef sambærilegur bíll er með dísilvél. Samt eyðir dísilbíllinn færri lítrum. Danir hafa farið þá leið að löggilda búnað sem litar olíu sem fer á bensínstöðvar. Olía sem fer til húshitunar, á vinnuvélar og skip er hins vegar ólituð. Þetta kerfi auð- veldar eftirlit og á að koma í veg fyrir misnotkun. Þama gætum við lært af frændum okkar. Einkabíllinn er drjúg tekjulind fyrir ríkisvaldið. Stór hluti bílverðs rennur beint til ríkisins. Bíleigendum er og gert að greiða skatta af bílum sínum auk þess sem eldsneytið er skattlagt sérstaklega. Bíleigendur hafa látið þetta yfir sig ganga. Bíllinn veg- ur því þungt í rekstri hvers heimilis. Athygli vekur einn- ig að lífsnauðsynleg öryggistæki í bíla, sem fram hafa komið undanfarin ár, t.d. svokallaðar ABS-öryggisbrems- ur og loftpúðar fyrir bílstjóra og farþega í framsæti, em skattlögð að fullu í bílverðinu. Það ætti að vera þveröf- ugt. Yfirvöld ættu að stuðla að því að gera þennan örygg- isbúnað sem ódýrastan og um leið sjálfsagðan. Jónas Haraldsson Samkvæmt 1. gr. laga um stjórn fiskveiða eru allir nytja- stofnar á íslandsmiðum sam- eign íslensku þjóðarinnar og út- hlutun veiðiheimilda myndar ekki eignarrétt eða óafturkall- anlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. Samkvæmt orðanna hljóðan ætti einstaklingum eða félögum ekki að vera heimilt að selja, leigja, veðsetja eða beinlínis erfa veiðiheimildir (kvóta). Þjóðin á auðlindina, hún hefur ekki lögformlega afsalað sér eignarrétti nytjastofna við ís- landsstrendur til „kvótaeig- enda“ þótt staðreyndin sé sú að um 90% þjóðarinnar hafa ekki lengur neinn aðgang að auðlind- inni og ekki verður heldur séð hvemig hún getur endurheimt hana þar sem búið er að veð- setja veiðiheimildir langt fram á næstu öld. „Veit þjóðin að á Aþingi íslendinga sitja þingmenn og ráðherra sem eiga gíf- urlegra hagsmuna að gæta sem kvótaeigendur og erfingjar upp á hundruð milljóna?" spyr greinarhöfundur m.a. Framkvæmd fisk- veiðistjórnunar - persónuleg hagsmunatengsl Ahugaleysi kjósenda Þrátt fyrir allt ber þó hinn al- menni kjósandi í landinu ákveðna ábyrgð á þessari mestu eignatil- færslu íslandssögunnar með því að kjósa Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokkinn sem bera stjórnar- farslega höfuðábyrgð á úthlutun og meðferð veiðiheimilda og öllu því braski og sjóðasukki sem því hefur fylgt. Ókunnugleiki og áhugaleysi kjósenda gagnvart sinni langverð- mætustu auðlind (70-80% af út- ílutningi þjóðarinnar) auðveldar „kvótakóngum" að leggja undir sig fiskveiðilandhelgina. Mótmæli smábátaeigenda mega sín þar lítils gegn blekkingum og áróðri stjórn- ar LÍÚ um að núverandi fiskveiði- stjórnun sé þjóðhagslega hagstæð og að arðsemi fyrirtækja byggist á frjálsu framsali veiðiheimilda. Þjóðin verður að kynna sér vel framkvæmd fískveiðistjórnunar í landinu; þessi sameign þjóðarinn- ar hefur að mestu verið afhent bótalaust til nokkurra útgerðar- fyrirtækja með stuðningi LÍÚ og fyrr- og núverandi sjávarútvegs- ráðherra, þeirra Þorsteins Páls- sonar og Halldórs Ásgrímssonar. Veit þjóðin? Veit þjóðin að sameign hennar (kvótinn) hefur verið veðsett fyrir um 70-80 milljarða? Veit þjóðin að eignarkvóti sex stærstu útgerðar- fyrirtækja landsins er um 15 millj- arðar? Veit þjóðin að þessi sömu fyrirtæki eru með hundruð báta tii veiða fyrir sig sem fá aðeins í sinn hlut um 20% af verðmæti landaðs afla? 80% fá kvótaeigend- ur án nokkurs tilkostnaðar. Veit þjóðin að samkv. frum- varpi sem lagt verður fram verða Kjallarinn Kristján Pétursson fyrrv. deildarstjóri rannsóknastofnunar og fiskimála- stjóri? Veit þjóðin að á Alþingi íslend- inga sitja þingmenn og ráðherra sem eiga gífurlegra hagsmuna að gæta sem kvótaeigendur og erf- ingjar upp á hundruð milljóna? Persónuleg hagsmunatengsl Hefur engum alþingismanni dottið i hug að kanna þessi mál; hvort um gæti verið að ræða óæskileg og persónuleg hagsmuna- tengsl sem ekki samrýmast starfs- háttum löggjafarvaldsins? Ef dóm- arar teljast vanhæfir til að dæma í málum vegna laga sem þeim hefur verið falið að semja, hvert er þá vanhæfi þingmanna og ráðherra sem kvótaeigenda og erfingja til að fjalla um sín persónulegu hags- „Ef dómarar teljast vanhæfir til aö dæma í málum vegna laga sem þeim hefur verið faliö að semja, hvert er þá vanhæfi þing- manna og ráðherra sem kvótaeigenda og erfingja til að fjalla um sín persónulegu hagsmunamál innan Alþingis?" leyfilegir sóknardagar á ári hjá handfærabátum 84 en hjá línubát- um 55? Veit þjóðin þá afleiðingu kvótakerfisins að miklu magni af fiski, sem ekki nær sökum stærð- ar og gæða því markaðsverði sem þarf til að standa undir okurkvóta- leigu, er hent í hafið eða reynt að landa fram hjá vikt? Veit þjóðin að í fimm manna stjórn Hafrann- sóknastofnunar eru tveir stjórnar- menn LÍÚ, tveir starfsmenn Haf- munamál innan Alþingis? Mark- mið þjóðarinnar er að endur- heimta eignarrétt sinn á nýtingu auðlindarinnar og það verður best gert með auðlindaskatti og afnámi kvótans. Ef við viðhöldum kvóta- kerfinu missir þjóðin endanlega eignar- og umráðarétt sinn á fisk- veiðilandhelginni. Augljós stað- reynd sem allir eiga að geta skilið. Kristján Pétursson Skoðanir annarra Upplýsingafrelsið „Reglugerð fjármálaráðuneytis um meðferð upp- lýsinga úr álagningaskrám er afkáraleg en um leið sumpart skiljanleg. Fjölmiðlar verða að sætta sig við þá staðreynd og horfast í augu við hana, að þeir hafa misnotað þær upplýsingar sem álagningarskráin veitir með alvarlegum hætti... . Upplýsingafrelsi er óhjákvæmilegur og nauðsynlegur þáttur nútíma samfélags. Án þess þrífast til að mynda ekki frjáls viðskipti né heldur frjáls, fordómalaus umræða og skoðanaskipti." Úr forystugrein Viðskiptablaðsins 17. apríl. Yfirfærsla grunnskólans „Sú þróun sem virðist ætla að verða reglan hér, að sveitarfélög sameinist um skólarekstur þar sem þess er þörf, eykur möguleikana og hlýtur að draga úr áhyggjum skólamanna um að niðurstaðan verði verri skóli í fámennari byggðum. . . . Yfirfærsla grunnskólans gefur á hinn bóginn ijölmörg sóknar- færi og ekki er við öðru að búast en að nú, þegar þetta ferli er komið á beinu brautina, verði þau nýtt skólastarfi í landinu til heilla." Úr forystugrein Tímans 18. apríl. Alþjóðleg samkeppni á heimamarkaði „Fyrirkomulag þjónustu og stuðningsaðgerða við uppbyggingu atvinnulífs hér á landi er tiltölulega flókið og ekki mjög gagnsætt fyrir þá sem þurfa að nota þjónustuna. . . . Aukin samkeppni og alþjóða- væðing eru þau atriði sem mikilvægt er að vera vak- andi fyrir. Alþjóðavæðingin kemur ekki einungis fram i að fyrirtæki eigi að ráðast í útflutning, held- ur er það aukin alþjóðleg samkeppni hér á heima- markaði sem þarf að svara.“ Hallgrímur Jónasson í Púlsinum, fréttablaði Iðntæknistofnunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.