Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Síða 19
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
27
LR tilbúið að
endurskoða lög
félagsins
„Eins og fram hefur komið eru
viðræður hafnar milli fulltrúa
Reykjavíkurborgar og Leikfélags
Reykjavíkur um endurskoðun
samkomulags um rekstur Borgar-
leikhúss. í þvi sambandi tekur
Leikfélag Reykjavíkur fram að
það er reiðubúið til að endur-
skoða lög félagsins, m.a. til að
taka af hugsanlega vafa sem upp
gæti komið við túlkun og fram-
kvæmd þeirra,“ segir Sigurður
Karlsson, formaður Leikfélags
Reykjavíkur, m.a. í athugasemd
sem hann hefur sent frá sér fyrir
hönd félagsins vegna greinar-
gerðar Hjörleifs Kvaran og Örn-
ólfs Thorssonar um málefni Borg-
arleikhússins.
í athugasemdinni mótmælir
Sigurður þeirri staðhæfingu í
greinargerðinni að gert hafi verið
ráð fyrir því að starfsemi LR í
Borgarleikhúsinu yrkin rekin án
styrkja. Þvert á móti hafi forráða-
menn LR og Reykjavikurborgar á
sínum tíma gert sér ljóst að opin-
ber framlög myndu hækka ef LR
færi í stærra húsnæði.
-bjb
Vigdís Gríms á
málþingi
Rithöfund-
arnir sem til-
nefndir voru
til Bókmennta-
verðlauna
Norðurlanda-
ráðs á þessu
ári koma sam-
an á málþingi í
Biskups Arnö
í Máleren,
skammt frá
Stokkhólmi i Svíþjóð, helgina 10,-
12. maí nk. I þeim hópi verður
Vigdís Grímsdóttir en hún var
tilnefnd fyrir skáldsöguna
Grandavegur 7. Þýðandi bókar-
innar á sænsku, Inge Knutsson,
verður einnig á málþinginu en
hún hefur að auki þýtt verk Ein-
ars Más Guðmundssonar.
Aðrir verðlaunakandídatar á
málþinginu verða Torgny Lind-
gren frá Svíþjóð, Ib Michael frá
Danmörku, Johan Bargum frá
Finnlandi og Lars Amund Vaage
frá Noregi. -bjb
Búkolla, eitt verka Ásgríms
Jónssonar, er á skólasýningunni
í Safni Ásgríms. Teikninguna
gerði Ásgrímur árið 1949 um
samnefnda þjóðsögu.
Skólasýning í
Safni Ásgríms
Jónssonar
Árleg skólasýning hefur verið
opnuð í Safni Ásgríms Jónssonar
að Bergsstaðastræti í Reykjavík.
Að venju er sýndar myndir sem
tengjast þjóðsögum og ævintýr-
um. Auk mynda Ásgríms eru að
þessu sinni einnig verk eftir Guð-
mund Thorsteinsson, Jóhannes
S. Kjarval og Jón Stefánsson sem
öll eru í eigu Listasafns íslands.
Skólasýningin ber yfirskriftina
Úr hugarheimi.
Verkin tengjast sögum og æv-
intýrum bæði beint og óbeint og
er með vali þeirra reynt að sýna
mismunandi sýn listamannanna
á viðfangsefnið. Sýningin stendur
til 19. maí og er opin laugardaga
og sunnudaga kl. 13.30-16, en
skóláhópar geta pantað heim-
sóknartíma á virkum dögum í
'síma 562-1000 og 551-3644.
Menning
Samlestur á óperunni Galdra-Lofti eftir Jón Ásgeirsson hófst hjá íslensku óperunni í vikunni. Óperan verður frum-
sýnd á Listahátið í Reykjavík 1. júní nk. og í kjölfarið koma fimm sýningar. Leikstjóri er Halldór E. Laxness og hljóm-
sveitarstjóri Garðar Cortes. Söngvarar eru Þorgeir J. Andrésson, Elín Ósk Óskarsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Bergþór
Pálsson, Loftur Erlingsson og Bjarni Thor Kristinsson. Óperan er byggð á samnefndu leikriti Jóhanns Sigurjónsson-
ar. Þetta er önnur óperan sem Jón Ásgeirsson semur en sú fyrsta, Þrymskviða, var flutt í Þjóðleikhúsinu fyrir 22
árum. Fremst á myndinni er Garðar Cortes en með honum eru m.a. Þorgeir Andrésson, sem fer með hlutverk Galdra-
Lofts, og Halldór leikstjóri. -bjb/DV-mynd GS
Dagur íslenskrar
tungu í undir-
búningi
Menntamálaráðherra hefur
skipað sérstaka nefnd til að undir-
búa Dag íslenskrar tungu sem
haldinn verði ár hvert þann 16.
nóvember, fæðingardag Jónasar
Hallgrímssonar, í fyrsta sinn ó
þessu ári. Nefndina skipa Krist-
ján Árnason, prófessor og formað-
ur íslenskrar málnefndar, Njörð-
ur P. Njarðvík prófessor, Ólafur
Oddsson menntaskólakennari,
Sigmundur Ernir Rúnarsson
fréttamaður og Þorgeir Ólafsson,
deildarstjóri í menntamálaráðu-
neytinu. Verkefnisstjóri er Jón-
mundur Guðmarsson. í tengslum
við daginn mun menntamálaráðu-
neytið beita sér fyrir átaki í þágu
móðurmálsins. Ætlunin er að
leiða ýmsa aðila saman í þessu
skyni, s.s. fjölmiðla, skóla, félagá-
samtök, fyrirtæki og stofnanir.
Leiklistarblaðið
komið út
Fyrsta tölublað 23. árgangs
Leiklistarblaðsins er komið út á
vegum Bandalags íslenskra leikfé-
laga. Ritstjóri er Bjarni Guömars-
son en blaðið kemur út 3-4 sinn-
um á ári. Ritnefnd skipa Egill
Ingibergsson, Hörðm’ Sigurðar-
son, Sævar Sigurgeirsson og Þor-
geir Tryggvason.
f blaðinu eru birt viðtöl og
greinar sem tengjast leiklistinni.
Einnig er haldið áfram að birta
nýja íslenska einþáttunga. í þetta
sinn er birtur einþáttungurinn
Efri árin eftir Sigurbjörn Sævar
Grétarsson. Forsíðuna prýðir
mynd af leikhópnum Snúði og
snældu í uppfærslu sinni á leik-
ritinu Veðrið kl. 18 eftir Henning
Nielsen í leikstjóm Sigrúnar Val-
bergsdóttur. Lokaorðin í blaðinu
á Guðmundur Andri Thorsson rit-
höfundur.
Ný ritröð um
uppeldi og
menntun
Útgáfufyrirtækið Hf. Uppi hef-
ur hleypt af stokkunum nýrri ís-
lenskri ritröð um uppeldi og
menntun. Fyrsta bókin í ritröð-
inni hefur verið gefin út en það er
Þroskamat eftir Einar Guðmunds-
son sálfræðing. -bjb
Handritin heim frá Danmörku:
- hátíöarsamkoma í Háskólabíói á sunnudag
Söngljóð Auð-
uns Braga á bók
Auöunn
Bragi Sveins-
son kennari
hefur gefið út
bók með hátt í
120 söngljóð
við vinsæl og
þekkt lög, inn-
lend sem er-
lend frá ýms-
um tímum.
Textarnir eru
flestir eftir
Auðunn. Auðunn segist hafa frá
unga aldri haft mikinn áhuga á
ljóðum og lögum. Hann hafi lesið
og lært alla þá sönglagatexta sern
hann sá í blöðum og tímaritum.
„Ég keypti ritið Útvarpstíðindi
á æskuárum, enda þótti eigi væri
útvarpstæki á heimili mínu. Þar
birtust margir þeir textar, sem
sungnir voru við vinsæl lög í út-
varpinu á þeim tíma, og nefndust
„Danslag kvöldsins“. Þar minnist
ég vel textans, sem Skafti Sigþórs-
son, er nefndi sig Náttfara, samdi
við hið kunna ameríska lag
„South of the Border" og ber heit-
iö „Suður um höfin“. Og fleiri
textar komu fram. Þeir sem
sömdu íslenska texta við hin er-
lendu lög hafa unnið íslenskri
tungu mikið gagn,“ segir Auðunn
Bragi m.a. í inngangi bókarinnar.
Ljóðin í bókinni eru einkum
frumort við lög sem Auðunn hef-
ur hrifist af í gegnum tíðina. Fá-
ein eru þýdd og nokkur ort á
dönsku.
komu hingað til lands eftir að
danska þjóðþingið hafði tekið þá
sögulegu ákvörðun árið 1965 að
koma til móts við óskir íslendinga
um afhendu íslenskra handrita úr
dönskum söfnum. Danir fluttu
handritin á eftirlitsskipinu Vædd-
eren hingað til lands og nefnd
danskra ráðherra og þingmanna
fylgdi þeim í hlað. Að morgni síð-
asta vetrardags, 21. apríl 1971, sigldi
skipið inn á Reykjavíkurhöfn í
björtu veðri og fagurri fjallasýn og
lagðist þar að bryggju. Þúsundir
manna söfnuðust saman á hafnar-
bakkanum, enda höfðu skólar gefið
frí og vinna víða felld niður. Sjón-
varpið var með sína fyrstu beinu út-
sendingu frá atburði líðandi stund-
ar og varla sást nokkur maður á
ferli í mörgum kaupstöðum og
kauptúnum meðan útsendingin stóð
yfir.
Síðdegis þennan dag voru hand-
ritin afhent við hátíðlega athöfn í
Háskólabíói. Þar tölu menntamála-
ráðherra Danmerkur og íslands,
Helge Larsen og Gylfi Þ. Að athöfn
lokinni voru handritin flutt í Árna-
garð og komið þar fyrir í geymslu
Handritastofnunar íslands. Ári síð-
ar, 1972, voru sett lög um Stofnun
Árna Magnússonar á íslandi sem
hefur varðveitt handritin síðan.
-bjb
Um helgina, nánar tiltekið á
sunnudag, verða nákvæmlega 25 ár
liðin frá viðtöku fyrstu íslensku
handritanna frá Danmörku. Hátíð-
arsamkoma á vegum menntamála-
ráðuneytisins og Stofnunar Árna
Magnússonar verður í Háskólabíói,
sal 2, kl. 14. Þar munu m.a. flytja
ávörp Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra, Ole Vig Jensen,
menntamálaráðherra Dana, og Gylfi
Þ. Gíslason, sem var menntamála-
ráðherra þegar handritin komu.
Tónlist verður flutt af Gunnari
Kvaran á selló og Halldóri Haralds-
syni á píanó. Samkoman er öllum
opin og verður að auki útvarpað
beint.
Konungsbók eddukvæða og Flat-
eyjarbók voru fyrstu handritin sem
Frá komu handritanna frá Danmerkur til íslands, 21. apríl 1971. Danskir
sjóliðar á Vædderen með Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók undir
höndum. Næstkomandi sunnudag eru 25 ár liðin frá þessum atburði.
DV-mynd Bragi Guðmundsson
Friðrik Karlsson, gítarleikari Mezzoforte:
Leikur undir hjá
Carreras á BBC
Friðrik Karlsson, gitarleikari
Mezzoforte, hefur þekkst boð sjón-
varpsstöðvar BBC í Bretlandi um að
koma fram í hinum vinsæla lottó-
þætti BBC annað kvöld með tenórn-
um heimsfræga, José Carreras, og
12 manna strengjasveit. Hundruðir
milljóna manna sjá þennan þátt að
jafnaði. BBC hafði úr fjölmörgum
gítarleikurum að velja en kaus að fá
Friðrik, sem starfað hefur í London
að undanfórnu sem gítarleikari.
Friðrik er nú á tónleikaferðalagi
með Mezzoforte í Eystrasaltsríkjun-
um. Hann flýgur sérstaklega á
Friðrik
Karlsson.
José Carreras.
morgun frá Ríga í Lettlandi til
London að koma fram í þættinum
með Carreras. Carreras, eitt þríst-
irnanna ásamt Domingo og
Pavarotti, mun syngja verk eftir
Rodriguez sem í er langt gitarsóló.
„Friðrik er orðinn mjög vel
kynntur í London, bæði sem klass-
iskur gítarleikari og rafmagnsgítar-
leikari, sem er mjög sjaldgæft í dag.
Það er mikill heiður fyrir hann að
vera valinn en sýnir hvað hann er
góður,“ sagði Jónatan Garðarsson
hjá Spori sem er umboðsaðili
Mezzoforte. -bjb
25 ár frá komu
fyrstu handrita