Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 24
‘32 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 Sviðsljós Alanis trónir ein á tindinum Kanadíska söngkonan Alanis Morissette trónir ein á tindi popplistanna vestanhafs og hef- ur gert það í níu vikur. Segja má að hún hafi ekki fengið neina samkeppni að undanförnu en það kann þó að breytast með nýju plötunum frá Rage Against the Machine og Hootie & the Blowfish, enda þar um að ræða einhverjar vinsælustu hljóm- sveitir undangenginna mánaða og missera. Emma Thomp- son í hesta- mennskuna Emma Thompson stendur í samningaviðræðum um að leika á móti Robert Redford í kvik- myndinni The Horse Whisperer, sem gerð verður eftir sam- nefndri metsölubók. HeimUdar- menn segja að Emma sé að bíða eftir umritun á handritinu sem væntanleg er eftir viku. Skáld- sagan, og þá væntanlega mynd- in, fjallar um unga stúlku sem slasast þegar hún er í útreiðar- túr og ástarævintýri móður hennar og manns sem er ótrú- lega snjall að meðhöndla hross. Eric Roberts er hér með Gregory Harrison sem leikur með honum í mynd- inni Veislan mín. Þar segir frá alnæmissjúkum manni sem heldur rokna kveðjupartí áður en hann drepur sig. Anthony Hopkins er hér í góðum félagsskap þeirra Jodie Foster og Kate Burton. Þau voru að skoða frumraun Hopkins sem leikstjóra, myndina Ágúst, sem byggð er á leikriti Tsjekovs, Vanja frænda. Leikarinn Eric Roberts vonast til að endurheimta fyrri frægð og virðingu: Reynir að brjótast út úr skugga Juliu litlu systur „Enginn lýsir mér þannig í mín eyru að ég sé stóri bróðirinn henn- ar Juliu Roberts. En það væri svo sem allt í lagi. Ég er reglulega stolt- ur af henni. Þetta er stelpa sem hef- ur ekki hlotið neina þjálfun en hún var full metnaðar og er núna fremsta kvikmyndastjarnan í heim- inum. Það verður að virða hana fyr- ir það,“ segir leikarinn Eric Roberts sem um þessar mundir gerir sér vonir um að brjótast út úr skugga litlu systur sinnar og endurheimta þá frægð sem hann sjálfur varð að- njótandi í upphafí ferils síns, þegar hann var rúmlega tvítugur. Á þeim árum fékk hann lofsverð ummæli fyrir hvert hlutverkið sem hann lék á fætur öðru en gallinn á gjöf Njarðar var bara sá að mynd- irnar nutu lítilia vinsælda meðal áhorfenda. „Jafnvel þótt ég hefði fengið þrjár Golden Globe tilnefningar og eina óskarstilnefningu virtist sem öllum stæði á sama. Ég ákvað þvi að láta gæðin lönd og leið og einbeita mér að magninu. Á árimum 1986 til 1996 lék ég í þrjátíu kvikmyndum og margar þeirra eru alveg ömurleg- ar,“ segir Eric. En nú á þetta sem sé allt að breyt- ast. Og myndin sem á að gera Eric Roberts að alvöruleikara í alvöru- myndum er Veislan mín, sem var frumsýnd í síðasta mánuði. Þar leikur hann samkynhneigðan mann með alnæmi sem heldur tveggja daga kveðjuveislu eftir að hann tók þá ákvörðun að svipta sig lífi í stað þess að deyja hægt og á kvalafullan hátt. En aftur að fjölskyidumálunum. Þótt Eric sé stoltur af systur sinni er ekki þar með sagt að þau talist við. Reyndar talast ekkert þeirra við, ekki hann, ekki systur hans og ekki foreldrarnir. Um samband sitt við Juliu, segir Eric: „Við erum ekki sammála um nokkur grundvallarfjölskyldumál, eins og gerist í hverri einustu fjöl- skyldu, en af þvi að við erum fræg erum við undir smásjánni og því magnast allt upp. Þetta er bara leið- indahlutur sem fylgir pakkanum," segir Eric Roberts. Aukablað um SUMAR- Miðvikudaginn 24. apríl nk. mun aukablað um sumarbústabi fylgja DV. Mebal efiiis: Vibtöl vibfóUt sem eybir tniklum tíma í sumarbústabnum, hvab á ab taka meb í bústabinn, tómstundir og vibhald. Þeir sem áhuga hafa á ab koma efni í blabib hafi samband vib Ingibjórgu Obinsdóttur, ritstjórn DV, í síma 567 6993. ATH.! Bréfasími ritstjórnar er 550 5999. Þeir sem liafa áhuga á ab auglýsa í þessu aukablabi vinsamlega hafi samband vib Selmu Rut í síma 550 5720 eba Gubna Geir í síma 550 5722 hib fyrsta. Vinsamlega athugib ab síbasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 18. apríl. Auglýsingar Síini 550 5000, bréfasiími 550-5727. Pamela Anderson á fleira sameiginlegt með henni Madonnu en að vera svokölluð kynbomba og kyntákn, eins og þessi mynd ber greinilega með sér. Þær eru báðar ófrískar að sínu fyrsta barni, hafandi gert allmargar til- raunir, og eru bara kátar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.