Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Síða 26
34 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 Afmæli Jón R. Árnason Jón Rosenkranz Arnason lækn- ir, Sörlaskjóli 19, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Jón fæddist i Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1947, lauk námi í læknisfræði við HÍ 1955, stundaði framhaldsnám og vaf aðstoðarlæknir á Blekingeláns Sanatorium í Fur í Svíþjóð 1955-56, á Centrallasarettet í Karl- skrona 1956-57, á Lanslasarettet í Karlskoga 1957-58, í Lasarettet í SáSle 1959-60 og 1962, í Lasarettet í Finspáng 1960-61 og á Lánslasar- ettet í Kristinehamn 1961-62. Hann öðlaðist almennt lækninga- leyfi í Svíþjóð 1959 og á íslandi 1963. Jón var sjúkrahúslæknir á Fjórðungssjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 1962-64 og jafnframt staðgengill héraðslæknisins i Nes- héraði 1963-64, var starfandi læknir í Reykjavík 1964-74, stað- gengill aðstoðarlæknis á Slysa- varðstofu Reykjavíkur 1964, að- stoðarlæknir á Kleppsspítala sama ár, sjúkrahúslæknir í Stykk- ishólmi 1968-69 og á ísafirði 1970 og 1972, yfirlæknir á skurðdeild Sjúkrahúss Vestmannaeyja 1974-75 og læknir við heiisugæslu- stöð Hafnarfjarðar og Sjúkrasam- lags Hafnarfjarðar og Garðabæjar 1976-94. Þá var hann skólalæknir í Lækjarskóla í Hafnarfirði 1976-77. Jón hefur starfað innan Oddfell- owhreyfíngarinnar í Reykjavík frá 1966. Jón R. Arnason. Fjölskylda Jón kvæntist 7.7. 1951 Marlies Andlát Karl Oluf Bang Karl Oluf Bang, Dalbraut 21, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Reykjavík þann 9.4. sl. Útför hans var gerð frá Áskirkju í gær. Fjölskylda Karl Oluf fæddist í Kaupmanna- höfn 23.5. 1906 en ólst upp í Ár- múla við ísafjarðardjúp. Hann kvæntist 15.10. 1938 Guðríði Guð- mundsdóttur Bang, f. 1.5. 1912, d. 16.3.1991, húsmóður, en hún var dóttir Guðmundar Sigurðssonar, klæðskera í Reykjavik, og Svan- hildar Benediktsdóttur húsmóður. Synir Karls Olufs og Guðríðar eru Erling Gunnar Bang, f. 1.10. 1939, húsasmíðameistari, kvæntur Dagnýju Karlsdóttur og eiga þau þrjá syni: Guðmundur Árni Bang, f. 16.6.1941, laxaræktarstjóri, kvæntur Gerðu Guðjónsdóttur og eiga þau þrjár dætur; Karl Finnur, f. 8.11. 1945, d. 15.9. 1946. Hálfsystkini Karls Olufs, sam- mæðra, eru Snæbjörn Sigvaldason Kaldalóns, látinn; Sigvaldi Þórður Kaldalóns, látinn; Selma S. Kaldal- óns, látin. Hálfsystkini Karls Oluf, sam- feðra, er Palle Bang og Stig Bang. Stjúpfaðir Karls Olufs var Sig- valdi Kaldalóns, f. 13.1. 1881, d. 28.7. 1946, læknir og tónskáld. Móð- ir Karls Olufs var Karen Margar- ethe Kaldalóns (f. Mengel Thom- sen), d. 17.4. 1958, læknisfrú. Eliese Martha Arnason, f. Wilke, f. 18.1. 1931, húsmóður. Hún er dóttir Erwin Wilke, f. 7.5. 1904, d. 4.8.1968, stjórnarembættismanns í Lúbeck í Þýskalandi, og k.h., Hild- egard Wilke, f. Kurth, f. 26.7. 1909, d. 8.4. 1982, húsmóður. Börn Jóns og Eliese Mörthu eru Árni Erwin, f. 19.2.1955, nemi í tölvufræði og viðskiptafræði í Sví- þjóð en kona hans er Guðrún Hjörleifsdóttir; Katrín Hildegard, f. 3.4.1956, tækniteiknari og fata- hönnuður í Reykjavík; Gunnar Pétur, f. 11.9.1958, múrarameist- ari í Kópavogi en kona hans er Erna Valdimarsdóttir; Þórarinn Axel, f. 14.6. 1966, trésmíðameist- ari í Vesjmannaeyjum en kona hans er Elín Helga Magnúsdóttir; Þórunn Hólmfríður, f. 20.7.1968, tækniteiknari i Reykjavík. Systur Jóns eru Þórunn, f. 19.6. 1929, húsmóðir á Álftanesi; Hólm- fríður Rósenkranz, f. 15.2. 1939, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Jóns: Árni Magnús Pétursson, f. 2.6. 1899, d. 31.7. 1953, læknir í Reykjavík, og k.h., Katrín Ólafsdóttir, f. 21.11.1904, húsmóðir. Ætt Árni var sonur Péturs Þórðar- sonar, verslunarmanns í Ólafsvik, og k.h., Þóru Þórarinsdóttur hús- móður. Foreldrar Katrínar voru Ólafur Ólafsson, afgreiðslumaður og sjó- maður í Reykjavík, og k.h., Vil- borg Jónsdóttir húsmóðir. Þau hjónin verða að heiman á afmælisdaginn. Ul hamingju með afmælið 19. apríl Karl Oluf Bang 85 ára 40 ára Elise Eiríksson, Eyrarvík, Glæsibæjarhreppi. 60 ára Steinar Baldursson, Áshlíð 14, Akureyri. Þuríður Guðnadóttir, Grófarseli 17, Reykjavík. Hólmfríður Þ. Guðmundsdóttir, Fannarfelli 6, Reykjavík. Ásmundur K. Jónsson, Hofsstöðum, Skútustaðahreppi. Jón Fornason, Haga I, Aðaldælahreppi. 50 ára Jón Pálmi Þórðarson, Ásabraut 15, Sandgerði. Þórdís Sigurðardóttir, Tunguseli 10, Reykjavík. Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir, Steintúni 3, Dalvík. Erna Kristjánsdóttir, Kleifarvegi 11, Reykjavík. Kolbrún Valvesdóttir, Brautarholti 13, Ólafsvík. Ámi Þórður Jónsson, Grettisgötu 13, Reykjavík. Valtýr Georgsson, Foldahrauni 1, Vestmannaeyjum. Eva Bryndis Magnúsdóttir, Hjarðarslóð 2 D, Dalvík. Kristín Hannesdóttir, Tjamarbóli 10, Seltjarnamesi. Magnús Rúnar Magnússon, Smiðjuvegi 23, Kópavogi. Sunneva Hafsteinsdóttir, Bollagörðum 16, Seltjamarnesi. Gylfi Skúlason, Krosshömrum 15, Reykjavík: María Valgeirsdóttir, Hlíðargötu 57, Fáskrúðsfirði. Sigríður J. Valdimarsdóttir, Miklubraut 46, Reykjavík. Fréttir Smátjarnirnar slysagildrur: Þrettán börn drukkn- uðu á tíu ára tímabili 198^1993 þar sem ekki er hægt að fylgjast með börnunum frá þeim. Þau eru óvitar og allt of ung til að vera ein úti. Það er því .ekki skrýtið að þetta endi stundum illa. Það er einkenn- andi í allri rannsókninni - tilfelli þar sem börnin em ein eða í umsjón ungra systkina. Foreldrar gera sér ekki grein fyrir að bömin em svo miklir óvitar að þau geta ekki pass- að sig á vatninu. Vatnið hefur mik- ið aðdráttarafl, einkum er nýtt vatn sem ekki hefur verið þar áður kjör- ið leiksvæði, finnst börnunum. Það er eins og segulstál sem dregur bömin til sín og þessu verða for- eldrar að passa sig á. Ef vatn er í næsta nágrenni við hús verða bæj- arfélögin að þurrka það upp. Meðan slíkt er ekki gert mega foreldrar ekki láta böm út nema vera með þeim. Það var mjög áberandi í rann- sókninni að 70% tilvikanna gerast á landsbyggðinni. Það er vegna þess að fólk telur að það búi við svo mik- ið öryggi. Fólkið treystir því að um- hverfið sé öruggt en svo eru bara aðrar slysahættur þar en umferð- in,“ sagði Herdis. -ÆMK DY Suðurnesjum: „Þetta er sá tími þegar vatn safn- ast fyrir og fólk áttar sig ekki á að það geti verið hættulegt. Það þarf ekki nema örfáa sentímetra vatns til að hættuástand sé fyrir böm, tveggja ára og yngri. Þau geta drukknað og það fer mikið eftir því hvemig þau detta í vatnið,“ sagði Herdís Storgaard, hjá Slysavarnafé- lagi íslands, í samtali við DV. Eins og skýrt var frá í DV var 2ja ára dreng bjargað frá drukknun í Sandgerði en áður hafði eins árs barni verið bjargað á sama stað. Að sögn Herdísar voru rannsókn- ir 1984-1993 þar sem kannaðar voru drukknanir bama frá fæðingu til 14 ára aldurs. Tölulegu niðurstöður voru að 48 böm drukknuðu eða nær drukknuðu á tímabilinu. Skilgrein- ing á nær drakknun er þegar bam kemst í lífshættu en er bjargað á síöustu stundu og lifir slysið af. Herdís segir að á þessu tímabili hafi 13 börn dáið - 11 drengir og 2 stúlk- ur. 35 börn liföu þetta af og eru þrjú þeirra heilaskemmd, 2 drengir og ein stúlka. 32 böm náðu sér alveg. Herdís Storgaard. DV-mynd GVA „Böm í aldurshópnum frá fæð- ingu til 4 ára em að drukkna í tjöm- um eins og þeirri sem var í Sánd- gerði. Oftast mjög gmnnt vatn og oft innan við 200 metra frá heimilum Alþýðusambandið: ítarleg greinargerð með mótmælum Alþýðusamband íslands hefur mótmælt frumvarpi félagsmála- ráðherra um stéttarfélög og vinnu- deilur, send með þeim ályktun og greinargerð upp á 34 blaðsíður A 4 til félagsmálanefndar Alþingis. Þar er þess krafist að frumvarpið verði dregið til baka. Hér er um afar ítarlega greinargerð að ræða með almennum athugasemdum og einnig athugasemdum við einstak- ar greinar frumvarpsins. í lok ályktunarinnar segir með- al annars: „Miðstjórn ASÍ telur að með samþykkt fyrirliggjandi frum- varps væru unnin stórkostleg skemmdarverk á íslenskum vinnumarkaði..." -S.dór íse PS giftinsarhugleiðinsum? Fyrirtæki, sem er að undirbúa markaðsátak, óskar eftir að komast í samband við ungt par sem ætlar að stofna heimili og ganga í hjónaband í sumar. Þarf að vera fólk sem á eftir að verða sér úti um meginhluta búslóðar. í boði eru 300 þúsund krónur! Þau sem hafa áhuga á að kynna sér þetta tilboð nánar og uppfylla framan- greind skilyrði sendi bréf, merkt „Markaðsátak", til auglýsinga- deildar DV fyrir 26. apríl n.k. Æskilegt er að mynd fylgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.