Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Page 2
i6 sauðárkrókur
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996 DV
Afmælisnefnd Sauðárkróksbæjar undirbýr mikla dagskrá til 20. júlí á næsta ári:
Sækjum kraft og þor í fortíðina
til ai byggja upp framtíðina
segir Páll Brynjarsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar
1857 Sáudárkrókur fœr verslunarleyfi.
1871 Byggð hefst á Sauðárkróki.
1876 Fyrsta leiksýning sett á svið á Sauðárkróki.
1888 Leikfélag Sauðárkróks stofnað, það fyrsta á íslandi.
, 1892 Kirkja byggð á Sauðárkróki.
1895 Kvenfélag stofnað, eitt það fyrsta á íslandi.
1906 Sjúkrahús byggt, símstöð tekur til starfa og gamla bryggjan
fullgerð.
1907 Sauðárkrókur verður sérstakt sveitarfélag og Ungmennafélagið
Tindástóll stofnað.
'
1937 Hafin bygging hafnargarðs á Eyrinni.
1947 Sauðárkrókur verður kaupstaður og barnaskólahúsið tekið í
notkun.
1953 Hitaveita Sauðárkróks tekur til starfa.
1957 Sundlaug komið upp á Sauðárkróki.
1961 Sjúkrahúsið tekið í notkun.
1967 Útgerðarfélag Skagfirðinga stofnað.
1969 Sútunarverksraiðjan Loðsl
1971 s. <
haldið á Król
1 isl
i
i
... iauöárkrók
notkun.
1979 Fjölbrautaski
1980 i iygging íþróttahúss hefst, opnað fjórum árura síðar.
1985 Ste inullarverksmiðjan hefur starfsemi sína.
1994 Bóknámshús Fjölbrautaskólans tekið í m
1996 Upphaf afmœlisárs.
'llur, tekinn í
Bæjarstjórn Sauðárkróks var
faliö það verkefni á síðasta ári að
skipa afmælisnefnd til að undirbúa
hátíð í tilefni af því að Sauðárkrók-
ur fagnar í ár og á því næsta fem-
um tímamótum í sögu bæjarins. Um
leið og tímamótum er fagnað stend-
ur til að gera átak í að efla mannlíf
og styrkja stöðu Sauðárkróks.
Bæjarstjórnin valdi fimm i nefnd-
ina, þau Árna Ragnarsson, sem er
formaður hennar, Brynjar Pálsson,
Elsu Jónsdóttur, Guðmund Guð-
mundsson og Ómar Braga Stefáns-
son. Framkvæmdastjóri nefndarinn-
ar var ráðinn um síðustu áramót en
það er Páll Brynjarsson stjómmála-
fræðingur.
125 ára búseta
Á þessu ári eru 125 ár liðin frá
því að byggð hófst á Sauðárkróki en
árið 1871 reisti fyrsti íbúinn, Árni
klénsmiður Árnason, sér hús þar
sem nú er Lindargata 7.
140 ára verslun
Árið 1997 verða 140 ár liðin frá
því Sauðárkrókur varð verslunar-
staður en fyrir baráttu skagfirskra
bænda löggilti Friðrik sjöundi
Danakonungur Sauðárkrók sem
verslunarstað árið 1857.
90 ára sveitarfélag
Á næsta ári verða 90 ár liðin frá
því að Sauðárkrókur varð sérstakt
sveitarfélag en árið 1907 var Sauðár-
hreppi skipt upp í Skarðshrepp og
Sauðárkrókshrepp. Um það leyti
voru um 500 íbúar á Sauðárkróki.
50 ára kaupstaður
Loks verða liðin 50 ár á næsta ári
frá því að Sauðárkrókur varð kaup-
staður en réttindin fékk bærinn
árið 1947, þá með tæplega 1.000 íbúa.
í dag er íbúafjöldinn í kringum
2.800. Loks eiga fjöldamörg félög í
bænum stofhafmæli á þessu ári og
því næsta.
Páll Brynjarsson sagði í samtali
við DV að afmælisnefnd hefði strax
hafiö störf á síðasta ári.
„Mitt fyrsta verkefni var að leita
eftir samstarfi við fjölmarga aðila í
bænum og utan hans. Samstarf var
hafið við nefndir bæjarins og áhugi
fyrirtækja og félagasamtaka kann-
aður. Þetta tók sinn tíma en sam-
starfið hefur skilað töluverðum ár-
angri. Meðal annars hefur verið
ákveðið að gefa út sérstakt dagatal á
afmælisárinu. Þar verður dagskráin
kynnt auk þess sem dagarnir verða
tengdir sögu bæjarins,“ sagði Páll.
Páll sagði að í upphafi hafi afmæl-
isnefndin sett sér það markmið að
tengja fortíð bæjarins við nútíðina
og framtíðina, nauðsynlegt sé að
bæjarbúar þekki söguna þegar
framtíðin sé mótuð á hinum ýmsu
sviðum. „Við ætlum að sækja kraft
og þor í fortíðina til þess að geta
byggt upp framtíðina.“
Eitt af því sem gert hefur verið í
tilefni tímamótanna er að skrá sögu
þeirra Dana sem settust að á Sauð-
árkróki í lok 19. aldar og í byrjun
þeirrar tuttugustu. Jón Ormar
Ormsson hefur séð um það verk auk
þess að skrá svokallaða merkis-
menn í sögu Sauðárkróks. Frá
þessu starfi er greint á öðrum stað í
aukablaði DV.
Ræðuklúbbur
endurvakinn
Annað sem afmælisnefndin hefur
ákveðið að gera er að endurvekja
Ræðuklúbb Sauðárkróks sem starf-
aði á árunum 1894-1902. Þá komu
bæjarbúar saman á fundum
nokkrum sinnum á ári og ræddu
hin ýmsu mál. Lengi vel var saga
klúbbsins týnd og mönnum hulin en
árið 1980 fannst fundargerðarbók
klúbbsins þegar gamla hafnarhúsið
var rifið. Að sögn Páls hefur verið
ákveðið að gefa út fundargerðarbók-
ina og endurvekja ræðuklúbbinn nú
21. júlí næstkomandi.
„í fundargerðarbókum ræðu-
kúbbsins má lesa skemmtilegt
dæmi um hvemig Danir
aðlöguðust bæjarlífinu.
Á einum fundanna var
að frumkvæði' Guð-
mundar Hannessonar
læknis ákveðið að taka
fyrir að banna kossa á
almannafæri þar sem
þetta væru smitberar.
Þá stóð Christian
Popp, danskur
kaupmaður, upp
og spurði hvort
þetta væri ekki
séríslenskt fyrir-
bæri og góður ís-
lenskur siður.
Þannig var hætt
við að banna
kossana,“ sagði
Páll.
Afmælis-
nefndin hefur
skipað ritnefnd
til að sjá um
skráningu
Afmælisnefnd Sauöárkróks samankomin fyrir utan stjórnsýsluhús bæjarins.
Því miöur var formaöur nefndarinnar, Árni Ragnarsson, staddur erlendis þegar
myndin var tekin. Standandi frá vinstri eru Ómar Bragi Stefánsson, Guömund-
ur Guömundsson og Brynjar Pálsson og fyrir framan þá situr Elsa Jónsdóttir.
söguannáls Sauðárkróksbæjar frá
árinu 1947 til 1997. Formaður nefnd-
arinnar er Sölvi Sveinsson og sögu-
annállin mun koma út á bók á
næsta ári.
Þá hefur afmælisnefndin í sam-
starfi við muna- og minjanefnd
bæjarins unnið að því að
Sauðárkróksbær komi upp
húsnæði fyrir safn gamalla
muna sem tengjast sögu
bæjarins og héraðsins.
Sömuleiðis hefur nefndin
stutt Iðnaðar-
mannafélag
Sauðárkróks
við að koma
upp safni
úr
eldsmiðju
Ingi-
mundar
Bjama-
sonar
járn-
smiðs.
Frá því
er
Páll Brynjarsson, framkvæmdastjóri afmælisnefndar Sauöárkróks. Fyrir framan
hann á borðinu eru mismunandi útgáfur af afmælismerkinu sem Snorri Sveinn
Friöriksson var látinn gera en hann hannaöi einnig kaupstaöarmerkiö á sínum
tíma. Útgáfan sem valin var sést á forsíöu aukablaðssins. DV-myndir PÖK
greint á öðrum stað 1 blaðinu.
Afmælisnefnd hefur lagt fram
ýmsar tillögur sem miða að því að
fegra og bæta umhverfi staðarins.
Má þar nefna frekari gerð göngu-
stíga, snyrtingu opinna svæða, gróð-
ursetningu og gerð lítillar tjarnar
við Sauðána.
Fjórar ráðstefnur
„Nefndin hefur ákveðið að standa
fyrir íjórum ráðstefnum og sýning-
um á þessum timamótum. Fyrst er
að telja ráðstefnu um sveitarstjórn-
armál og flokkapólitík sem haldin
verður i lok ágúst nk. í samráði við
Félag stjómmálafræðinga. Þá verð-
ur ráðstefna í haust i samvinnu við
atvinnumálanefnd bæjarins um at-
vinnumál, vonandi með þátttöku
vinabæja Sauðárkróks á Norður-
löndunum. Einnig stendur til á
næsta ári að halda ráöstefnu um
heilsuvemd og heilbrigða lífshætti
með þátttöku Sjúkrahúss Skagfirð-
inga og Náttúrulækningafélags ís-
lands, sem var í upphafi stofnað á
Sauðárkróki árið 1937 af Jónasi
Kristjánssyni lækni. Loks ætlar at-
vinnumálanefnd bæjarins að standa
fyrir ráðstefnu um fjárfestingar í at-
vinnulífinu á svæðinu næsta sumar
og um leið að halda vömsýningu
með þátttöku framleiðslu- og þjón-
ustufyrirtækja í Skagafirði," sagði
Páll en ýmislegt fleira stendur til að
gera á afmælisárinu. Má þar nefna
svokallaða danska viku í haust.
Eins og kemur fram annars stað-
ar í blaðinu hefst hátíðin á Sauðár-
króki um næstu helgi. Margt verður
á dagskránni sem ætti að gleðja
augu og eym bæjarbúa sem ferða-
manna. Með sama hætti er ætlunin
að ljúka afmælis- og átaksárinu
helgina 19.-20. júlí á næsta ári, sem
í raun er hápunktur afmælisársins.
-bjb