Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Qupperneq 13
JL*'\F MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
sauðárkrókur
ELDHUSIIMNRETTINGAR
BAÐINNRÉTTINGAR
FATASKÁPAR
Feróamenn, jafnt íslenskir sem útlenskir, hafa kunnað vel að meta skag-
firska matseðilinn á Kaffi Krók. Hér fá matargestir kaffisopa frá þjóninum
Láru Einarsdóttur að lokinni góðri máltíð. DV-mynd ÞÖK
Kaffi Krókur með skagfirskan matseðil:
Útlendingar orðnir
leiðir á skyndibitunum
- fjölbreytt dagskrá um næstu helgi
„Það er reynsla okkar, nú eftir
tveggja ára starf, að útlendingar eru
upp til hópa orðnir leiðir á útlend-
um skyndibitum sem nær eingöngu
er boðið uppá við þjóðveginn. Þeir
hafa í æ ríkara mæli óskað eftir því
sérstaklega að fá íslenskan mat og
þá sérstaklega fisk. Þetta hefur okk-
ur þótt skemmtileg þróun og því
höfum við ákveðið að svara með
sérstökum íslenskum matseðli,"
segir María Björk Ingvadóttir, fyrr-
um sjónvarpsþula, sem rekur veit-
inga- og skemmtistaðinn Kaffi Krók
og á hann ásamt eiginmanni sínum,
Ómari Braga Stefánssyni.
Kaffi Krókur tók að bjóða upp á
skagfirskan matseðil í sumar þar
sem allt hráefni kemur frá matvæla-
framleiðendum á Sauðárkróki og í
Skagafirði. Matseðillinn saman-
stendur m.a. af tvíreyktu hráu
hangikjöti með melónusósu, sykur-
steiktum silungi með íslenskum
kartöflum og smjöri, hvítvínsmar-
ineruðum úthafsrækjum og sælgæt-
isskyri.
María segir að í sumar hafi mat-
seðillinn fengið góðar viðtökur,
ekki síst hjá útlendingum sem hafa
vel getað hugsað sér eitthvað annað
en hamborgara, franskar, pitsur og
pasta.
Kaffi Krókur býður ekki ein-
göngu upp' á mat og drykk. Staður-
inn hefur aðstöðu fyrir dansleiki,
myndlistarsýningar, leiksýningar
og ýmsa aðra gjörninga. Hefur Mar-
ía verið dugleg að bjóða upp á lands-
ins bestu listamenn auk snillinga í
liði heimamanna.
Fjölbreytt dagskrá verður á Kaffi
Krók um næstu helgi í tilefni af af-
mælishátíðinni. Á föstudagskvöldið
verður dansleikur með hljórrisveit-
inni Hunangi úr Reykjavík. Á laug-
ardaginn verður opnuð sýning á
málverkum Páls Sigurðssonar. Páll
er nú prófessor í lögfræði við Há-
skóla íslands en hann er fæddur og
uppalinn á Sauðárkróki. Frá
bernsku hefur hann notað frístund-
ir sínar m.a. til að teikna og mála.
Um kvöldið verður slegið upp balli
með hljómsveit Magga Kjartans. Á
sunnudaginn verður boðið upp á lif-
andi tónlist fyrir gesti staðarins.
-bjb
TRÉSMIÐJAN
Leitið tilboða
Sérsmíðum allar gerðir innréttinga
Borgarmýri 1 • 550 Sauðárkrókur • sími 453 5170
VEISTU...?
Að þú getur keypt TOYOTA bifreið
í Bókabúð Brynjars
og við getum fært þér TOYOTUNA
alla leið heim í hlað.
TOYOTA
Tákn um gæði
Söluumboð fyrir Norðurland vestra er í
BÓKABÚÐ
BRYNJARS
Suðurgötu 1 • 550 Sauðárkrókur
Sími 453 5950 • Fax 453 5661