Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Page 14
28
uðárkrókur
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996 DV
Fyrsta námskeiði Útflutningsskólans að Ijúka:
Góð hugmynd að
vera með skólann hér
r
- segir Sigurður Agúst Jensson verkefnisstjóri
„Aðstaðan hér á Sauðárkróki er
mjög góð, kennsluaðstaðan er til
fyrirmyndar og það er mikill styrk-
ur af því kennslulega að hafa nem-
endurna svona mikið saman utan
skólatímans. Þeir eru hér til að
sinna þessu námi og gera ekkert á
meðan. Þannig að hugmyndin að
vera með skólann hér er góð,“ segir
Sigurður Ágúst Jensson, verkefnis-
stjóri Útflutningsskólans á Sauðár-
króki, sem hóf starfsemi i fyrsta
sinn 10. júní sl. og námskeiðum lýk-
ur um næstu helgi. Kennsla fór
fram í nýju og glæsilegu bóknáms-
húsi Fjölbrautaskólans.
Skólinn er starfræktur í sam-
starfi við Danska útflutningsskól-
ann en hugmyndin upphaflega er
komin frá Þórólfl Gíslasyni kaupfé-
lagsstjóra, Þorsteini Sigfússyni pró-
fessor og Vilhjálmi Egilssyni þing-
manni. Fengu þeir bróður Þor-
steins, Þór Sigfússon hagfræðing, í
lið með sér að koma hugmyndinni í
framkvæmd.
Sigurður Ágúst segir það mikinn
styrk að vera í samstarfí við Dan-
ina. Þeir séu þekktir fyrir hæfni
sína í markaðssetningu, mark-
aðsvinnu og sölumennsku.
Upphaflega var áætlunin að vera
með stærri skóla og bjóða upp á
lengra nám, að sögn Sigurðar. Hins
vegar hafl fleiri aðilar í landinu, s.s.
Endurmenntunardeild Háskólans
Siguröur Ágúst Jensson, verkefnis-
stjóri Útflutningsskólans á Sauðár-
króki, sem iýkur fyrsta námskeiöi
sínu um næstu helgi. DV-myndir ÞÁ
og Útflutningsráð, farið af stað með
námskeið í útflutningsfræðum og
framboð af slíku námi hafi skyndi-
lega verið meira.
„Samkeppnin er kannski miklu
meiri en hún var þegar þessari hug-
mynd var hrint af stað. Við erum í
stöðugt aukinni samkeppni með
okkar útflutning. Það er ekki bara
samkeppni milli íslenskra útflutn-
ingsfyrirtækja heldur líka á hinum
erlenda markaði," segir Sigurður
sem er viðskiptafræðingur að
mennt og hefur starfað í mörg ár
við markaðssetningu og markaðs-
fræðslu. -ÞÁ
zsömu- og herrafatnoður
.r/lóalgölu 4 - S: 453 5965 J
Jreyjajónsdóltir hs: 453 6695
Daglegar ferðir
Reykjavík - Sauðárkrókur
Afgreiðsla í Reykjavík:
Vöruflutningamiðstöðin
Borgartúni 21, sími 551-0440
íim
VÖRUMIÐLUNÍ
Borgarflöt 5, Sauöárkrókur
Sími: 453 5622
Líf og leikur
Söluaukning hjá sútunarverksmiðjunni Loðskinni:
r
Astralskar gærur halda
fyrirtækinu við efnið
- getum ekki kvartað, segir Birgir Bjarnason framkvæmdastjóri
„Við getum ekki kvartað. Það
sem af er árinu hefur orðið 30 pró-
senta aukning á sölu, miðað við sið-
asta ár. Áætlanir okkar fyrir þetta
ár gera ráð fyrir 50 prósenta sölu-
aukningu þannig að söluverðmætið
ætti að verða um 300 milljónir
króna. Innflutningurinn á gærum
frá Ástralíu er farinn að skila sér,
og það mun betur en við reiknuðum
með,“ sagði Birgir Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri sútunarverksmiðj-
unnar Loðskinns, við DV.
Loðskinn hóf í fyrra innflutning á
gærum frá Ástralíu til vinnslu eftir
að hráefni innanlands brást. Birgir
segir það borga sig að flytja inn
gærurnar alla þess leið, þær fari
sútaðar einkum í austurátt til baka,
þ.e. til Asíulanda. Á síöasta ári
flutti fyrirtækið inn 75 þúsund gær-
ur frá Ástralíu og búist er við svip-
uðu magni í ár. Gærur sem
Loðskinn fær af íslensku sauðkind-
inni eru um 110-120 þúsund á ári.
Afgangurinn, um 440 þúsund gærur,
fara til sútunar á Akureyri.
„í raun erum við að auka fram-
leiðsluna í landinu um 13 til 15 pró-
sent,“ sagði Birgir. Markaðir fyrir
sútaðar gærur Loðskinns eru um
allan heim. Mest fer til Bandaríkj-
anna, Norðurlanda og Asíu.
Ekkert sumarstopp
Starfsmenn I fyrirtækinu eru nú
í kringum 70 og hefur fjölgað um
10 að undanförnu. í fyrsta sinn í
mörg ár verður ekkert um sumar-
stopp á framleiðslunni, þannig að
sumarafleysingafólk fær vinnu hjá
Loðskinni. Núna er enginn skort-
ur á hráefni, þökk sé Ástralíugær-
unum. Birgir segir að fyrirtækið
sé ekki eins háð sveiflum í íslensk-
um landbúnaði og áður.
Skuggi á annars góðri velgengni
Loðskinns um þessar mundir eru
miklar skuldir frá fyrri tíð. Birgir
sagði að verið væri að greiða
skuldirnar niður og það gengi vel.
„Horfurnar eru góðar. Við von-
um að ' söluaukningin haldi
áfram," sagði Birgir, fullur bjart-
sýni með rekstur þessa eins
stærsta iðnfyrirtækis á Sauðár-
Forráöamenn Loöskinns og Sjávarleöurs hafa ástæöu til að brosa þessa
dagana. Friörik Jónsson, framleiöslustjóri Sjávarleöurs, er lengst til vinstri
á myndinni meö sútuö fiskroö fyrir framan sig. Næstur kemur Birgir Bjarna-
son, framkvæmdastjóri Loðskinns og Sjávarleöurs, meö gærur af bæöi
áströlsku og íslensku sauöfé fyrir framan sig og loks kemur Karl Bjarnason,
framleiöslustjóri Loöskinns. DV-mynd ÞÖK
króki sem sett var á laggirnar fyr-
ir 27 árum.
Sútað fiskroð gefur
góða raun
Fyrir tveimur árum stofnaði
Loðskinn dótturfyrirtæki sem
nefnist Sjávárleður hf. Þar er sút-
að fiskroð af hlýra og laxi og til-
raunir standa nú yfir með roð af
þorski, sem ganga mjög vel. Sútað
fiskroð er einkum selt hér innan-
lands og til Norðurlandanna. Roð-
ið er notað í töskur, veski og fatn-
að af ýmsu tagi.
„Reksturinn á Sjávarleðri geng-
ur vel og hráefnið hefur vakið
mikla athygli, ekki sist hérna
heima. Við hófum framleiðslu í
ársbyrjun 1994. Smátt og smátt
erum við að stækka markaðssvæð-
ið eftir því sem framleiðslan eykst.
Við reynum að dreifa okkur ekki
of hratt," sagði Birgir en í dag
starfa 8 manns hjá Sjávarleðri.
Framleiðslustjóri er Friðrik Jóns-
son en Birgir er jafnframt fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
-bjb
Bömunum á Sauðárkróki stend-
ur ýmislegt til boða í leik og starfi.
Þar á meðal er Líf & leikur - starfs-
námskeið sem Ungmennafélagið
Tindastóll og íþrótta- og tómstunda-
ráð Sauðárkróks hafa staðið fyrir í
nokkur sumur og hafa notið mikilla
vinsælda.
Um vikunámskeið er að ræða þar
sem boðið er upp á ýmsa leiki, núna
undanfarið hafa t.d. svokallaðir
ólympíleikir verið vinsælir, enda
stutt í þá leika og Króksarar standa
vitaskuld með sínum manni þar. í
Líf & leik er farið í fjalla- og sveita-
ferð, hjólreiðaferð, veiði- og fjöru-
ferð, lautarferð í Litlaskóg, bátsferö
niður Sauðána og síðast en ekki síst
dagsferð í leit að ævintýrum en þá
bera alltaf eitthvað óvænt við. Áð
sjálfsögðu er farið í sund, golf og í
róður á Áshildarholtsvatninu. Þá
eru vinnustaðir í bænum heimsótt-
ir eins og t.d. í síðustu viku þegar
farið var í Steinullarverksmiðjuna,
á lögreglustöðina og slökkvistöðina.
Síðasta dag Lífs & leiks er ætíð
farið í svonefnda óvissuferð og nám-
skeiðið endar síðan með hjólreiða-
þrautum og grillveislu. Gleðin skein
úr hverju andliti þegar blaðamaður
DV hitti krakkana í Líf & leik á
Króknum. ÞÁ
Líf og fjör í sundlauginni