Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Qupperneq 16
30 sauðárkrókur MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996 531^ Kaupfélag Skagfirðinga, stærsti vinnuveitandinn á Sauðárkróki: Verðum að aðlagast nýjum aðstæðum segir Þórólfur Gíslason kaupfálagsstjóri „Síðustu ár höfum við lagt áherslu á að kanna hvernig við get- um orðið sveitunum að liði eftir verulegan samdrátt í sauðfjárbú- skapnum. Við tókum greinargerð saman í vor um stöðu landbúnaðar í Skagafirði. Þar kemur fram að framleiðsluverðmæti sauðfjárbúa er mjög lágt í Skagafirði. Þeir 135 bændur sem við flokkuðum sem hreina sauðfjárbændur hafa ekki framleiðslutekjur nema upp á 1,5 milljónir hver. Það segir sig sjálft að þarna er mikill vandi á ferðum. Til samanburðar þá eru mjólkur- framleiðendur í Skagafirði með að meðaltali 5-6 milljóna króna fram- leiðslutekjur á ári,“ segir Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfé- lags Skagfirðinga, í samtali við DV. Kaupfélagið er eitt það öflugasta á landinu, kemur næst á eftir KEA, og stærsti vinnuveitandinn á Sauðár- króki og í Skagafirði, ef dótturfyrir- tækin í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði eru talin með. Ársvelta fé- lagsins er í kringum 5,5 milljarðar króna og starfsmenn um 500 talsins. í samstarfi við Búnaðarsamband Skagafjarðar og Byggðastofnun hef- ur kaupfélagið verið að finna leiðir til úrbóta fyrir sauðfjárbændur í Skagafirði. Það fyrsta sem gert hef- ur verið er að koma loðdýrabúskap í gang aftur og nýta þær byggingar sem reistar höfðu verið á sínum tíma fyrir loðdýrarækt. Heldur hef- ur rofað til í loðdýraræktinni og á þessu ári munu 10 bændur fara af stað að nýju í loðdýrabúskap. Þórólfur segir að áhersla sé lögð á að menn fari hægt af stað og umsetji sig ekki mikið. Síðustu tvö árin hefur mjólkur- framleiðsluréttur í Skagafirði auk- ist úr 8 í um 9 milljónir lítra. Mestu skiptir að kaupfélagið hefur aðstoð- að bændur við að kaupa fram- leiðslurétt inn í héraðið. Með ýms- um hætti hefur kaupfélagið beitt sér á öðrum sviðum til að halda atvinnu í héraði og efla hana. Meðal annars með sameiningu vöruflutninga- deild kaupfélagsins við fyrir- tæki Magnúsar Svavarsson- ar. „í þessum blandaða rekstri er alltaf eitthvað sem gengur vel og annað miður. Við höfum, líkt og aðrir, orðið varir við sam- drátt í landvinnslu á bolfiski sökum minnkandi kvóta. Þar er mikilvægt að grípa til aðgerða til að rétta stöðu land- vinnslunnar í frystihúsunum," seg- ir Þórólfur en kaupfélagið er aðal- eigandi Fiskiðjunnar Skagfirðings, fjórða stærsta útgerðarfyrirtækis landsins. Þórólfur, sem verið hefur kaupfé- lagsstjóri frá 1988, er bjartsýnn á framtíðina fyrir hönd fyrirtækisins. Verkefnin hafi verið næg og von- andi verði svo áfram. Að raungildi hefur velta kaupfélagsins aukist um nærri 100 prósent frá því hann tók við starfínu. „Við vonum að með nýrri öld verði Kaupfélag Skagfirðinga í stakk búið til að taka myndarlega á og leysa ný verkefni vel af hendi. Félagið, sem er 106 ára, verður að aðlagast nýjum aðstæðum og vera opið fyrir því sem er að gerast í um- hverfinu. Það er mikilvægt að félag- ið sé vel rekið og með langtímahags- muni héraðsins í fyrirrúmi," segir Þórólfur Gíslason. -bjb Þórólfur Gíslason hefur stýrt Kaup- félagi Skagfirðinga frá árinu 1988 en félagið er það annað stærsta að um- fangi á eftir Kaupfélagi Eyfirðinga, með 5,5 milljarða veltu og um 500 manns í vinnu. DV-mynd ÞÖK Ómar Bragi Stef- ánsson, vöruhús- stjóri Skagfirð- ingabúðar, með 7 punda ferskan lax úr kæliborð- inu í annarri hendinni og stöng í hinni. Hann segir að í sjálfu sér geti menn sleppt því að kaupa stöng- ina og fengið sér ferskan lax í staðinn, að minnsta kosti áreynslulaust og án veiðileyfis! DV-mynd ÞÖK Fjölbreyttvöruurval í Skagfirðingabúð Beinn innflutningur skilar sér í hagstæðara verði - verðum að standa okkur, segir Úmar Bragi Stefánsson Skagfirðingabúð Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki er eitt af stærri vöruhúsum utan höfuðborgarsvæðisins með 3 þúsund fermetra gólfflöt, þar af 2 þúsund fermetra undir versl- unarpláss. Fyrir 5 árum byrjaði Skagfirðinga- búð að flytja vörur inn beint frá Danmörku og nú er svo komið að verslunin tekur á móti nokkrum gámum á mánuði. Að sögn Ómars Braga Stefánssonar vöruhússtjóra hefur inn- flutningurinn skilað sér i hagstæðu vöru- verði. Skagfirðingabúð hafi komið mjög vel út í verðkönnunum að undanfömu. „Að- sjálfsögðu þjónustum við Sauðkræk- inga og Skagfirðinga fyrst og fremst en leggj- um einnig áherslu á að koma til móts við þarf- ir ferðamanna, sem við vonum að verði alltaf fleiri og fleiri. Við þurfum að sinna þeim kröf- um að geta boðið upp á allt. Þá erum við að tala um alla matvöru, fatnað, búsáhöld, snyrti- vörur, leikföng, byggingavörur, raftæki og ýmislegt fleira. Þannig að vöruúrvalið er gríð- arlegt,“ sagði Ómar Bragi í samtali við DV. Ómar sagði það ljóst að Skagfirðingabúð væri í samkeppni við verslanir bæði í Reykja- vík og á Akureyri. Samgöngur væru orðnar það góðar að fólki munaði ekki um að fara til þessara staða í verslunarleiðangra. í raun væri orðið algengara að Skagfirðingar, ef þeir á annað borð færu að versla annars staðar, færu til Reykjavíkur fremur en Akureyrar. Þýðingarlaust að grátbiðja fólk „Við þurfum einfaldlega að standa okkur og vera með samkeppnishæfar vörur. Það þýðir lítið að grátbiðja fólk að versla heima. Við þurfum að vera með rétta verðið og þá náum við fólki í verslunina. Enda hefur salan hjá okkur verið að aukast," sagði Ómar en þess má geta að salan í Skagfirðingabúð í fyrra var í kringum 500 milljónir króna. Það nálgast söluverðmæti steinullarinnar í fyrra, svo dæmi sé tekið. Aðspurður um nýjungar á næstunni sagði Ómar Bragi að m.a. væri fyrirhugað að breyta til í matvörudeildinni, skipta um kæliborð undir kjöt og fisk og hressa upp á umhverfið. Til að standast samkeppni þyrfti Skagfirðinga- búð stöðugt að vera vakandi fyrir því sem er að gerast í kringum okkur. Ómar Bragi hefur verið vöruhússtjóri í Skagfirðingabúð í 7 ár. Áður starfaði hann í 5 ár hjá IKEA í Reykjavík og Svíþjóð, þar af fyrst í eitt ár hjá Svíum. Að loknu námi í í Osló bauðst honum starfið í Svíþjóð og sagði Ómar dvöl sína hjá IKEA hafa verið góðan grunn fyrir annasamt og krefjandi starf í Skagfirðingabúð. Um 30 manns starfa þar undir hans stjórn og sagði Ómar verslunina ávallt hafa getað státað af góðu starfsfólki. -bjb Fiskiðjan Skagfirðingur, fjórða stærsta útgerðarfyrirtæki landsins: Fyrirtækið hefur aldrei verið sterkara - segir Einar Svansson, fráfarandi framkvæmdastjóri Einar Svansson á þeim stað þar sem hann hóf störf hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi sem verkstjóri fyrir 15 árum. Nú er hann að hætta sem framkvæmdastjóri og mun næstu árin stýra stærstu útgerð Húsvík- DV-mynd ÞÖK „Eins og staðan er í dag hefur fyrirtækið sennilega aldrei verið sterkara, sér í lagi hvað eigna- og kvóta- stöðu varðar og möguleika til framtiðar. Hins vegar er það svo að þegar möguleik- arnir eru margir þá er erf- iðara að velja á milli þeirra kosta sem í boði eru. Mikil- vægast núna er að finna út hvernig landvinnslunni reiðir af á næstu árum. Það er gert ráð fyrir að þorsk- veiðar aukist en enginn veit hversu hratt. Breyting- ar í fiskvinnslu hafa orðið miklar á síðustu árum. Það eru færri hendur að vinna þau störf sem áður voru unnin í frystihúsum lands- . ins, sérstaklega þegar m^a' þorskveiðar voru gríðarlegar og mikið fór í saltfisk og skreið. Með auknum þorskveiðum á nýjan leik sé ég fyrir mér að þessar greinar, saltfiskur og skreið, dafni að nýju,“ sagði Ein- ar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings, í samtali við DV, síðasta daginn í því starfi en hann tekur í haust við starfi framkvæmdastjóra Fiskiðjusamlags Húsavík- ur. Einar segir að menn hafi einnig verið að skoða vinnslu á humar og uppsjávarfiski, s.s. síld og loðnu, og niðurstöðu þeirra athugana sé fljótlega að vænta. Að þessum fisktegund- um frátöldum þá veiði og vinni fyrirtækið nær allar tegundir sem hægt sé að vinna. Styrkleiki fyrirtækisins felist í þessari fjöl- breytni, sem um leið megi kannski flokka sem veikleika þar sem vitanlega sé erf- ið@.mfyr:Starfsemi í þremur sveitarfélögum Eftir að Fiskiðjan Skagfirðingm: sameinað- ist Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar um síðustu áramót og Skildi á Sauðárkróki í fyrra er hún orðin fjórða stærsta útgerðarfyrirtæki lands- ins. Fyrirtækið gerir út 5 togara og rekur fisk- vinnslu í tveimur sveitarfélögum auk Sauðár- króks, þ.e. á Grundarfirði og Hofsósi. Velta fyrirtækisins er í kringum 3,5 milljarðar á ári og starfsmenn í það heila um 400. Einar hefur starfaö hjá Fiskiðjunni Skag- firðingi frá 1981, fyrst sem verkstjóri. Nú þeg- ar hann hættir störfum segist hann eiga sér þá ósk að Skagfirðingar haldi áfram að vinna saman í því sem þeir séu að gera. „Þegar ég kom hingað var útgerðinni hátt- að þannig að þrjú frystihús skiptu með sér afl- anum upp úr hverjum togara. Það samstarf var til fyrirmyridar. Eftir að spilin voru stokk- uð upp fyrir nokkrum árum hafa menn staðið þétt saman, bæjarfélagið, hluthafar og starfs- menn. Það er min ósk og von að menn haldi áfram að standa saman um hag fyrirtækisins. Við erum á stóru atvinnusvæði með sterkan bakhjarl í sveitunum og höfum aldrei þurft að flytja inn vinnuafl. Okkur hefur tekist að manna störfin með heimamönnum og það er gríðarlega mikilvægt. Ég tel að menn hafi van- metið þennan þátt,“ sagði Einar Svansson, skömmu áður en hann kvaddi starfsmenn sína. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.