Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
uðárkrókur
Þátttakendur á rei&námskei&i Topphesta voru svo margir aö Ijósmyndara DV þótti rá&legast aö skipta hópnum í
tvennt svo allir kæmust nú þokkalega á mynd. Björn Mikaelsson og Ingimar Pálsson eru á myndinni til vinstri í hópi
efnilegra knapa. DV-myndir ÞÖK
Krakkar á Króknum vilja líka á hestbak:
Til hamingju með afmælið
Sauðárkróksbúar!
Mikil aðsókn
Allir fínir í skóm og fatnaöi frá Spörtu á afmælisárinu.
Lee Cooper gallabuxur, Destroy skór,
Radio City buxur, Rock Bull skór o.m.fl.
Veriö velkomin
reiðskóla Topphesta
smm
SKÓR & FATNAÐU R
Skagfiröingabraut 9a. Sími: 453-5802
Opiö mán.-föst. 10-12 og 13-18, laug. 11-13
Varla þarf að taka fram að hesta-
mennska er Skagfirðingum í blóð
borin og af svæðinu hafa komið
landsins frægustu hestar, knapar og
ræktendur í gegnum tíðina. Vel-
gengnin smitar út frá sér til yngri
kynslóðarinnar og forráðamenn
Topphesta á Sauðárkróki, þeir Ingi-
mar Pálsson og yfirlögregluþjónninn
Björn Mikaelsson, verða mjög varir
við þann áhuga.
Annað sumariö í röð er aðsóknin
mikil í reiðskóla Topphesta en þar
áöur hafði Ingimar verið með reið-
skóla fyrir böm til fjölda ára. í sum-
ar hafa hátt í 50 krakkar verið í reið-
skólanum, þau yngstu um 6 ára og
skipting eftir kynjum verið jöfh. Eft-
ir að grunnkennsla hefur farið fram
taka við lengri og styttri reiðtúrar í
nágrenni Sauðárkróks.
Þegar DV-menn litu við hjá Topp-
hestum á dögunum var einn hópur-
inn að koma úr löngum útreiðartúr.
Þrátt fyrir það var ekki að sjá nein
einustu þreytumerki á knöpunum
ungu. Mömmur, pabbar, afar og
ömmur vom komin til að sækja
krakkana og stoltið leyndi sér ekki
með afkvæmin. Án efa var þama að
fmna landsliðsknapa framtíðarinn-
ar.
Auk reiðskólans hafa Topphestar
tekið á móti krökkum úr skólum ná-
grannabyggðarlaga til að fara hest-
bak. Frá aprílbyrjun fram í júní hafa
Ingimar og Bjöm einnig boðið upp á
hestaferðir í einn dag um Hegranes-
ið að meðtöldu kaffi og gjörningum á
leiöinni. Um mánaðamótin júní/júlí
hafa lengri ferðir hafist, sem tekið
hafa 3 og upp í 12 daga. Ferðimar
hafa m.a. verið upp á hálendið,
Tröllaskagann og fjöllin á milii
Skagafjarðar og A-Húnavatnssýslu.
Að sögn Bjöms hefur aðsókn í
hestaferðimar verið góð miðað við
hversu stutt er síðan Topphestar
hófu þær. Þátttakendur hefðu verið
á öllum aldri, allt frá 8 ára til átt-
ræðs. Ákveðinn tíma tæki að komast
á markaðinn. Áhersla væri lögð á að
ná til innlendra hestamanna. Aug-
lýsingar væra að skila sér og til
marks um það vom þeir Ingimar að
leggja upp í 3ja daga ferð með 22
manns þegar DV ræddi við Bjöm.
-bjb
Gamla
apótekið málað
Það er eins gott að Albert Þórðarson
málarameistari og kollegar hans og
meðeigendur fyrirtækisins BAD, Þórð-
ur Þórðarson og Þórarinn Thorlacíus,
hafi svörin á hreinu ef enskumælandi
ferðamenn eða gestir spyrja þá hjá
hverjum þeir vinna. Ekki kæmi vel út
ef þeir segðu til dæmis: „I’m a BAD
painter." Þegar DV-menn rákust á Al-
bert að störfum fyrir utan gamla apó-
tekið, þar sem nú er verslunin ísold,
sagði hann enga hættu á misskilningi
með nafn fyrirtækisins. Þetta væri
skammstöfun sem stæöi fyrir upp-
nefni þeirra, Brósi, Aþbi og Doddi.
Gamla apótekinu hefur verið vel hald-
ið við en húsið verður 100 ára á næsta
ári. Albert var að mála fyrir Minnu
Bang sem býr enn í apótekaraíbúðinni
en hún kom frá Danmörku til Sauðárkróks ung að árum ásamt manni sín-
um, Ole Bang lyfsala. Þau voru ein fjölmargra Dana sem komu á Krókinn
og göfguðu mannlífiö, sem Minna gerir enn. DV-mynd bjb
Sauðárkrókur í DV:
Meira efni bíður birtingar
Vegna þrengsla komust því mið- aukablaði DV. Meira efni bíður því
ur ekki allar greinar, sem unnar birtingar í blaðinu næstu daga.
vora um Sauðárkrók, að í þessu -bjb
Nafnvextir almennrar Samvinnubókar eru 5,8%
Ársávöxtun 5,88%
Ath. Þessi bók er alltaf laus
Ks-bókin, 5,50% vextir; verötryggö
og hefur tveggja ára binditíma
Innlánsdeild