Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Síða 7
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 7 Fréttir Titringur víða um land vegna formannskjörs í Alþýðuflokknum: Sighvatur sagður njóta stuðnings Jóns Baldvins - menn ættu ekki að útiloka að fleiri gefi kost á sér, segir Sigbjörn Gunnarsson Eftir að hafa rætt við fjöl- mcirga krataforingja út um allt land er ljóst að titringur er kominn í menn vegna for- mannsslagsins í Alþýðuflokkn- um. Það er einnig ljóst að þing- mennirnir Rannveig Guð- mundsdóttir, Sighvatur Björg- vinsson, Guðmundur Árni Stef- ánsson og Össur Skarphéðins- son eru fyrir allnokkru byrjuð að plægja jarðveginn fyrir sig til formannsframboðs. Af viðtölum við flokksmenn að dæma virðist Sighvatur Björgvinsson njóta stuðnings Jóns Baldvins Hannibalssonar í formannskjörinu. Þar af leið- ir að sterkustu stuðningsmenn Jóns Baldvins eru farnir að vinna fyrir Sighvat út um allt land. Menn tala enn þá afar varlega opinberlega en eru opn- ari í einkasamtölum. Margir halda því fram að það geti aldrei gerst að Guð- mundur Ámi Stefánsson, nú- verandi varaformaður flokks- ins, verði áfram varaformaður ef Sighvatur verður formaður flokksins. Fleiri nöfn „Enda þótt þetta sé allt hið besta fólk ættu menn ekki að útiloka að fleiri gefi kost á sér til formanns. Menn vita nefni- lega ekkert hvernig hjólin muni snúast þegar þau taka að snúast. En að öðru leyti er ef til vill of snemmt að spá fyrir um hver verður sigurvegarinn," sagði Sigbjörn Gunnarsson, krataforingi og fyrrverandi al- þingismaður á Akureyri. Sigurður R. Ólafsson, bæjar- fulltrúi krata í ísafjarðarbæ, tók í sama streng. „Menn ættu ekki að útiloka að fleiri gefi kost á sér,“ sagði hann. Guömundur Árni Stefánsson. Rannveig Guömundsdóttir. Sighvatur Björgvinsson. Össur Skarphéöinsson. Formannsslagur af hinu góöa „Ef þessi fjögur gefa öll kost á sér tel ég útilokað að spá um hver muni sigra. Ég hygg að það yrði jafn slagur," sagði séra Gunnlaugur Stefánsson, fyrrverandi alþingismaður í Austurlandskjördæmi. Hann sagðist aftur á móti telja að for- mannsslagur nú væri af hinu góða fyrir flokkinn. Hann mundi fá blóðið til að renna svolítið örar hjá mönnum og það væri gott. Sverrir Ólafsson í Hafnar- firði sagðist veðja á sinn mann, Guðmund Áma, og að Össur Skarphéðinsson yrði varafor- maður með honum. Hann sagð- ist óttast að til átaka kæmi á flokksþinginu. Kristján Gunnarsson, verka- lýðsforingi og bæjarfulltrúi í Keflavík, sagði erfitf að spá um hver yrði næsti formaður flokksins. Það væri greinilegt að nokkrir væru tilkvaddir. Hver sigurvegarinn yrði ætlaði hann ekki að spá um strax. Eiríkur Stefánsson, verka- lýðsleiðtogi á Fáskrúðsfirði, sagði þetta allt hið ágætasta fólk og mjög erfitt að spá um úrslit færu þau öll fjögur fram. Hann sagðist þó telja Sighvat sigurstranglegastan, enda hafi hann komiö sterkur út þegar mest mæddi á honum sem ráð- herra. Hann sagði að mikil eft- irsjá væri að Jóni Baldvin fyr- ir flokkinn. Skarð hans yrði seint fyllt. -S.dór SVARTI SVANURINN 10ÁRA AFMÆLISTILBOÐ: Hamborgari m/sósu og káli + franskar 250 kr. SVARTISVANURINN Októbertilboð Fyrir aðeins kr. 4.000 færðu myndatöku af bömunum þínum og eina stækkun, 40x50 sentimetra innrammaða. Að auki áttu þess kost á að velja úr 10-20 öðmm myndum af bömunum og þær færðu með 50% afslætti frá gildandi verðskrá ef þú pantar strax. Úrvals jólagjöf Hringdu og láttu senda þér frekari upplýsingar en bíddu ekki of lengi, tilboðið gildir aðeins ákveðinn tíma. Ljósmyndastofa Kópavogs Sími 554 3020 staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi A birtingarafsláttur oM mM hbriin* Smáauglýslngar DV 680 5000 'lfítöf góöur’ PANTAÐU HANA HEIN ©568 4848 ALLAR STffRÐIR A 1.000 KR. 9" pizza m/4 áleggsteg. +1/2 Itr. coke kr. 1.000.- 12" pizza m/3 áleggsteg. kr. 1.000.- 16" pizza m/2 áleggsteg. kr. 1.000.- 18" pizza m/1 áleggsteg. kr. 1.000.- Munið einnig okkar frábæru tilboð ef þú kemur og sækir TILBOÐ Aðeins fáanlegt ef keypt er pizza 11tr. coke og 9"hvítlauksbrauð kr. 350.- OPIÐ virka daga kl. 11.30-23.30 UM HELGAR kl. 11.30-01.00 2 Itr. coke og 12" hvítlauksbrauð kr. 500.- Notum aðeins besta fáanlegt hráefni Berðu saman verð og gæði Pizzahöllin Dalbraut 1, Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.