Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 Utlönd Clinton hafði betur í kappræðum við Dole Bob Dole, forsetaframbjóðandi repúblikana, kom Bill Clinton Bandaríkjaforseta ekki úr jafiivægi í gærkvöld þrátt fyrir að hann gerði harða hríð að siðferði hans og aðgerðum sem forseta. Dole þykir ekki hafa bætt stöðu sína því samkvæmt nýjum skoðanakönnun- um stóru sjónvarpsstöðvanna hef- ur Clinton enn gott forskot á and- stæðing sinn eða 9-17 prósent. Kappræður forsetaframbjóðend- anna fóru fram í beinni sjónvarps- útsendingu frá San Diego i gær- kvöld og hafði Dole gefið út þá yf- irlýsingu að hann ætlaði sér ekki að taka á Clinton með neinum silkihönskum. Forsetinn var hinn rólegasti og svaraði vart gagnrýni Doles, en lét þess í stað dæluna ganga um hverju hann hefði áork- að í starfi sínu sem forseti. í lok kappræðnanna skoraði Dole á Clinton að mæta sér í þriðja sinn í beinni útsendingu í sjón- varpi til að ræða um efnahagsmál. „Ég skora á forsetann - mætumst aftur og tölum um efnahagsmál, herra forseti. Segðu okkur sann- leikann - hve slæmt ástandið er, hve margir þurfa að stunda tvær vinnur . . . hve margar fjölskyldur lifa við fátæktarmörk." Mörgum kjósendum fannst Bob Dole vera of grófur í gagnrýni sinni á forsetann. „Eftir hverju man fólk þegar.upp er staðið. Jú, það man að Dole sagði margt slæmt um Clinton, sem svitnaði ekki einu sinni. Clint- on talaði mikið um stefnumál sín en á morgun man enginn hvað hann sagði. Fólk man hins vegar eftir því hve rólegur hann var og yfirvegaður,“ sagði Buddy Wilson, bareigandi í Daytona Beach á Flór- ída. Reuter Bill Clinton Bandaríkjaforseti er enn meö öruggt forskot á Bob Dole, forsetaframbjóöanda repúblikana, samkvæmt nýjustu skoöanakönnunum. Dole réöst harkalega á Clinton í sjónvarpseinvígi í gærkvöldi og skoraði á hann aö mæta sér í þriöja sinn til aö ræöa efnahagsmál. Símamynd Reuter UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Kambsvegur 6, 5 herb. íbúð á 2. hæð og syðri bflskúr, þingl. eig. H. Albertsson hf„ gerðarbeiðendur íslandsbanki hf„ úti- bú 546, og Lífeyrissjóður Tæknifræð- ingafél., mánudaginn 21. október 1996 kl, 13.30._______________________ Síðumúli 21,1. hæð í álmu sem liggur að Selmúla m.m„ þingl. eig. Endurskoð- un/bókhaldsþjónusta hf„ gerðarbeiðend- ur Gjaldheimtan í Reykjavík og Islands- banki hf„ höfuðst. 500, mánudaginn 21. október 1996 kl. 15.30.__________ Síðumúli 21, bakhús, þingl. eig. Endur- skoðun/bóklialdsþjónusta hf„ gerðarbeið- andi íslandsbanki hf„ höfuðst. 500, mánudaginn 21. október 1996 kl. 15.00. Skeifan 5, hluti 01-04, þingl. eig. Baldur S. Þorleifsson, gerðarbeiðendur Gjald- heimtan í Reykjavík, Hilmar Arinbjöms- son, Iðnlánasjóður, íslandsbanki hf„ úti- bú 526, Landsbanki íslands, Austurbæjar, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Tollstjórinn í Reykjavík og Vátryggingafélag fslands, mánudaginn 21. október 1996 kl. 14.00. Vesturás 23, þingl. eig. Baldur S. Þor- leifsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóð- ur ríkisins, Gjaldheimtan í Reykjavík, Hilmar Arinbjömsson, Húsasmiðjan hf„ Sparisjóður Reykjavíkur og nágr„ Toll- stjóraskrifstofa og tollstjórinn í Reykja- vík, mánudaginn 21. október 1996 kl. 16.00.___________________________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Tsjernomyrdin um meint valdaránsáform Lebeds: Nokkur sannleikur í ásökunum Kulikovs Forsætisráðherra Rússlands, Viktor Tsjernomyrdin boðaöi snemma í morgun til skyndifundar með innanríkisráðherra og varnar- málaráðherra landsins. Efnt var til fundarins í kjölfar ásakana Anatolís Kulikovs innanrikisráðherra um að Alexander Lebed, öryggismálastjóri Jeltsíns forseta, væri að undirbúa valdarán. Lebed vísaði ásökunun- um á bug. í morgun hafði Interfaxfréttastof- an rússneska það eftir Tsjernomyr- din að talsverður sannleikur fælist í ásökunum Kulikovs. Jeltsín, sem er á heilsuhæli fyrir utan Moskvu, krafðist þess í gær að Tsjernomyr- din og Kulikov færðu honum öll Alexander Lebed, öryggismálastjóri Jeltsíns. Símamynd Reuter gögn um ásakanir Kulikovs. Kulikov, sem er harðvítugur and- stæðingur Lebeds, kvaðst hafa fyrir- skipað hertar öryggisráðstafanir víðs vegar um Rússland en tilkynnti um leið að þær væru ekki í beinum tengslum við ásakanir sínar. Það var á fundi með fréttamönn- um í gær sem Kulikov sagði að Lebed væri að búa sig undir að komast i æðstu valdastöðu án þess að bíða eftir kosningum. Hann sagði einnig að aðskilnaðarsinnar í Tsjetsjeniu, sem Lebed gerði um- deilt friðarsamkomulag við, hefðu lofað að senda 1500 bardagamenn til að styðja valdarán Lebeds. Reuter Sænsk herþota hrapar í Eystrasalt: Rússnesk þota kom við sögu Svíar segja að rússnesk þota hafi átt þátt í því að sænsk herþota hrap- aði suðaustur af Gotlandi á Eystra- salti í gær. Þotan var aðeins í 200 metra fjarlægð frá rússneska her- skipinu Pjotr Velíki, sem er búið kjarnorkuvopnum, er hún hrapaði. Þotan, sem var af gerðinni AJSH 37 Viggen, var á eftirlitsflugi er slys- ið varð. Að sögn Kent Harrskog, yfir- manns sænska flughersins, var þot- an í lágflugi er hún mætti rúss- neskri þotu. Sænski flugstjórinn reyndi að fljúga vél sinni undir þot- una en missti stjórn á vélinni sem hrapaði í sjóinn. Hann sagði enn fremur að þeir teldu ekki líklegt að um viljaverk hefði verið að ræða heldur slys. Fyrr í mánuðinum fórust tvær þotur af Viggen-gerð er þær rákust á í lofti og í ágúst sl. fórst slík þota í Eystrasalti. Reuter Stuttar fréttir dv Foreldrar reiðir Foreldrar barnanna, sem féllu fyrir hendi fjöldamorðingja í Dunblane í Skotlandi, vilja al- gjört skammbyssubann. Ný lög banna 80 prósent skammbyssna. Búast við fellibyl íbúar á Kúbu búa sig nú und- ir fellibyl og hafa þúsundir ver- ið fluttar frá heimilum sínum í Havana. Selur erfðagripi Erfðagripir, sem Camilla Parker-Bow- les, ástkona Karls Breta- prins, seldi á uppboði, seld- ust fyrir þrefalt hærri upphæð en búist var við. Camilla erfði hlut- ina eftir móðurömmu sína sem í mörg ár var ástkona fyrrum prins af Wales sem síðar varð Játvarður sjöundi. DNA-rannsókn á Peron Argentínsk kona, sem kveðst vera laundóttir Juans Domingos Perons, hefur fengið leyfi til að láta gera DNA-rannsókn á jarð- neskum leifum hans. Konan lög- sækir nú lögmann þriöju konu Perons sem kallaði hana svik- ara. Breytingar á Boeing-737 Bandarískir öryggiseftirlits- menn vilja strax breytingar á stjórnkerfi Boeing-737 þotna. Notuðu fé gyðinga Bandarískur þingmaður sak- ar svissnesk yfirvöld um að hafa notað bankainnstæður gyðinga í þágu eigin þjóðar. Milljarður til ferða John Major forsætisráð- herra smíðar nú áætlun um ferðapeninga handa Elísa- betu Eng- landsdrottn- ingu. Gæti íjárveitingin orðið yfir einn milljarður ís- lenskra króna á ári. Aðrir með- limir konungsfjölskyldunnar munu einnig njóta góðs af. Lausnargjald fundið Lögreglan í Þýskalandi hefur fundið féð sem greitt var í lausn- argjald fyrir þýskan kaupsýslu- mann. Fimm manns hafa verið handteknir en kaupsýslumaður- inn er enn ófundinn. Varar Hong Kong við Kínversk yfirvöld sögðu í morgun að Hong Kong búar ættu ekki að skipuleggja stjórn- málastarfsemi gegn innanríkis- málum á meginlandi eftir að ný- lendan kemst undir yfirráð Kína á miðju næsta ári. Winnie þögul Winnie Mandela, fyrr- um eiginkona Nelsons Mandela, var óvenjuþögul í fjöldagöngu blökkumanna i New York í Bandarikjun- um í gær. Ávarp Winnie var les- ið af öðrum aðila og hún lét heldur engin orð falla á frétta- mannafundi eftir gönguna. Grunur leikur á að hún hafi fengið að koma til Bandaríkj- anna gegn því að tjá sig ekki opinberlega. Barist í Afganistan Talebanar og hermenn fyrr- um stjórnar Afganistans börðust í morgun um yfirráð yfir Bagram nálægt Kabúl sem Tale- banar tóku í gær. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.