Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Page 11
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 11 Fréttir Gengu út af aðalfundi Alþýðuflokksfélags Hafnaríjarðar: Höfum sætt ofsókn- um ákveðinna manna í langan tíma - segir Magnús Hafsteinsson, fráfarandi formaður „Það er einfaldlega ekki hægt að starfa með þessu fólki sem stendur að meirihlutasamstarfínu í bæjar- stjórn. Alveg síðan við byrjuðum að gagnrýna samstarf flokksins með Jóhanni Bergþórssyni og Ellerti Borgari Þorvaldssyni hefur allt ver- ið gert til að gera okkur lífið brog- að. Við höfum hreinlega sætt of- sóknum. Meira að segja hefur síma- ónæði verið stundað. Við vissum að andstæðingar okkar í félaginu ætl- uðu að koma því þannig fyrir á að- alfundinum að enginn úr okkar hópi næði kjöri á flokksþingið. Þannig átti að reyna að koma i veg fyrir að staðan í Hafnarfirði yrði rædd á flokksþinginu. Þess vegna var ekki um annað að gera en að ganga af fundi, segja sig úr félaginu og stofna nýtt Alþýðuflokksfélag. Við ætlum svo sannarlega að taka málið upp á flokksþinginu,“ sagði Magnús Hafsteinsson, fráfarandi formaður Alþýðuflokksfélags Hafn- arfjarðar.í samtali við DV. Magnús og nokkrir félagar hans í fráfarandi stjóm gengu af aðalfundi Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar ásamt um helmingi fundarmanna á þriðjudagskvöld. Magnús segir að næstkomandi mánudag verði stofnað nýtt Alþýðu- flokksfélag í Hafnarfirði og það megi senda fulltrúa á flokksþingið í nóvember. Þar segir hann að staðan í Hafnarfirði verði rædd. Hann seg- ir mikinn fjölda Hafnarfjarðarkrata fylgja þeim að málum sem ætla að stofna félagið á mánudaginn. Magnús var spurður hverjir það væra sem staðið hefðu fyrir ofsókn- um á hendur þeim sem barist hefðu gegn meirihlutasamstarfinu. „Ég veit hverjir það eru en ég vil ekki nefna þá. Þetta er bara mafía sem erfitt er við að eiga og vill að núverandi meirihlutasamstarf haldi áfram,“ sagði Magnús Haf- steinsson. -S.dór Frumvarp: Lágmarks- laun verði 80 þúsund á mánuði „Þetta frumvarp verður ein- faldara en frumvarpið sem ég var með í fyrra. Nú er aðeins ein grein í því sem segir að lág- markslaun skuli ekki vera lægri en 80 þúsund krónur frá og með 1. febrúar næstkom- andi. Ég held að þetta sé skil- virkara og komist mun nær því sem verið er að leita eftir, sem er að koma á sáttum um lág- markslaun," sagði Gísli S. Ein- arsson alþingismaður í gær. Hann mun í vikunni leggja fram á Alþingi frumvarp um lágmarkslaun öðru sinni. Gísli segir að forkólfar verkalýðs- hreyfíngarinnar viti af þessu og hafi hvorki lagt frumvarp- inu lið né lagst gegn því. -S.dór Vinnuslys í Kópavogi: Maður undir timburbúnti Alvarlegt vinnnuslys varð i Kópavogi í gær þegar maður varð undir timburbúnti við Gullsmára. Maðurinn hlaut töluverða áverka á höndum og fótum og grunur lék á að hann hefði einnig slasast innvortis. Mað- urinn var lagður inn til frekari rannsóknar á spítala. -RR Eymundur bóndi skoðar hafrana og hveitið. DV-mynd Sigrún Hafrar, hveiti og bygg uppskorið á Héraði DV, Egilsstööum: Þau hjón í Vallanesi á Fljótsdals- héraði, Kristbjörg Kristmundsdóttir og Eymundur Magnússon, eru löngu orðin þekkt fyrir sína lífrænu ræktun. í vor sáði Eymundur bóndi hveiti og höfrum auk byggs, en bygg hefur hann raunar ræktað í mörg ár með góðum árangri. Nú er uppskeru lokið og fékk Ey- mundur þrjú tonn af höfrum af ein- um hektara og um 12 tonn af byggi af fimm hekturum en hluti af því fauk út í veður og vind tveimur dög- um áður en þreskt var. Hveitið var tilraunaræktun og ekki vel þroskað enda vorið óvenju kalt. Þó náðust 300 kg af einum hektara. Eymundur sagði mestu skipta fyrir hveitiræktun að vorið væri hagstætt. Það verður því hægt að kaupa ís- lensk hafragrjón í grautinn í vetur og meðlætið gæti verið brauð úr byggi og hveiti, hvort tveggja alís- lenskt. Þá sáði Eymundur í vor vetr- arrúgi í allstórt stykki. Auk komræktar eru þau Krist- björg og Eymundur með stórfellda grænmetisrækt eða alls á þremur hekturum. Þar var vöxtur með ágætum enda síðari hluti sumars langt yfir meðallag hvað hita snerti. Vallanesbúið fékk i sumar vottun frá Túni hf. um lífræna ræktun. Áður var það með vottun frá breskri vottunarstofu en slík vottorð eru gef- in út árlega fyrir hvert býli. -SB Blandgræðsluferð Hin árlega landgræðsluferð (bagga- ferð) Ferðaklúbbsins 4x4 í samvinnu við Landgræðslu ríkisins verður farin í ár verður farið á svæðið við Skarðstanga sunn- an Þjórsár. Kaffi að verki loknu. Hvetjum bæði nýja og eldri félaga að taka þátt í ferðinni. Lagt verður upp frá Mörkinni 6 kl. 10.00 laugar- daginn 19. október 1996. Umhverfisnefnd Feröaklúbbsins 4x4 Við bjóðum allt sem þig vantar INNRÉTTINGAR OG RAFTÆKI í eldhúsið, barnaherbergið, þvottahúsið og að auki fataskápa í svefnherbergið, bamaherbergið og anddyrið. Vönduð vara á afar hagstæðu verði. Ókeypis teikningar og tilboðsgerð. Góður magn- og staðgreiðsluafsl. Nettof^ ELDHUS - BAÐ - FATASKAPAR /rOniX HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV a\\t mil n hit •nv„Sa Smáauglýsingar 550 5000 Hlustaðu á Rósu Ingólfs Rósa Ingólfsdóttir ræðir af hispursleysi um hjónabandiö, ástina og kynlífiö. Gagnleg og kitlandi skemmtun fyrir fullorðið fólk. 66,50 mínútan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.