Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996
Lesendur
Samruni gjaldmiðla Evrópu:
Hvað verður um
íslensku krónuna?
Sameining gjaldmi&ia Evrópu staöreynd aö tveimur árum liönum?
Spurningin
Finnst þér drykkjusiöir ís-
lendinga hafa breyst frá því
aö bjórinn kom?
Auður Hildibrandsdóttir veit-
ingastjóri: Já, drykkjan er meiri.
Anna Bjarkan, starfsmaður Hag-
kaups: Ég veit það ekki. Ætli bjór-
inn dragist ekki bara frá annarri
drykkju.
Harpa Þorláksdóttir nemi: Nei, ég
held ekki.
Sigurjón Gunnarsson nemi: Já,
tvímælalaust til betri vegar.
Jón Skaptason kennari: Þeir hafa
breyst eitthvað en hvort það er
bjórnum að þakka veit ég ekki.
Örn Valberg byggingaverktaki:
Nei, þeir eru alveg eins.
Hólmgeir skrifar:
Alltof margir telja að hagsmunum
okkar yrði borgið með samningnum
við Evrópska efnahagssvæðið.
Margcir reglugerðir sem gilda í Evr-
ópusambandinu gilda ekki fyrir
EES (Evrópska efnahagssvæðið).
Nú brennur hvað mest á þjóðunum
í ESB að sameina gjaldmiðlana í
einn. Þetta á að vera búið og gert að
tveimur árum liðnum. Þama verð-
ur sterkt myntbandalag frá byrjun.
En hvað vakir fyrir okkur íslend-
ingum? Enginn getur sagt að þetta
komi okkur ekki við, hér verði bara
krónan áfram við lýði og nýtist okk-
ur vel. Eða hvemig ætla íslensk út-
flutningsfyriræki að eiga í sam-
keppni við erlenda keppinauta án
þess að hafa gert sér grein fyrir
hvað þetta þýðir? Ljóst er að enginn
grundvöOur verður fyrir íslenskri
krónu eftir að sameiginlegur gjald-
miðill flestra Evrópuríkja verður að
veruleika.
Það er einfaldlega engin trygging
fyrir okkur að vera aðilar að Evr-
ópska efnahagsvæðinu gagnvart
sterku myntbandalagi flestra ríkja
Evrópu. Staðreyndin er sú að mynt-
bandalag Evrópu gerir álfuna að
sambandsríki Evrópu, líkt og
Bandariki Norður-Ameríku.
Þá er líka komin upp sú spurning
hvort við íslendingar þurfum ekki
að taka afstöðu til þess hvorum
Björn Björnsson skrifar:
Margt breytist á ekki skemmri
tíma en áratug. Nú er svo komið að
Framsóknarflokkurinn er í ýmsum
greinum að taka við sem frjálslynd-
asti flokkurinn í landinu. Þingmenn
hans taka nú hver eftir annan upp
mál sem enginn hefði búist við að
þar ættu þeir innangengt. Ég tek
sem dæmi yfirlýsingu formanns
Framsóknarflokksins um að hann
geti hugsað sér tilslakanir á núver-
andi kvótakerfi - alveg andstætt við
Sjálfstæðisflokkinn sem hengir sig
Einar Magnússon skrifar:
Mér varð hugsað til þess þegar ég
skrifaði í DV fyrir nokkrum mánuð-
um um þá fráleitu reglu sem skikk-
ar ökumenn til að aka með fullum
ljósum um hábjartan daginn þegar
ég hlustaði á Þjóðarsálina sl. mánu-
dag. Þar hringdi inn hlustandi og
spurði hvort EES-samningurinn
tæki ekki af allan vafa um notkun
eða ekki notkun ökuljósa aö degin-
um. Vitnaði hann í reglur ESB-land-
anna þar sem engin reglugerð skip-
ar ökumönnum að aka með fullum
ljósum að degi til.
Þessi maður sem hringdi inn í
Þjóðarsál upplýsti að Svíar væru
hættir við notkun ökuljósa að degi
til og sagði það vera vegna þess að
Svíar væru nú gengnir i Evrópu-
megin við viljum vera, Evrópumeg-
in eða Ameríkumegin.
Hér er ekki verið að ýja að því að
við þurfum að ganga að þeim skil-
yrðum að sameinast Bandaríkjum
Norður-Ameríku eða Evrópusam-
bandinu að fullu og öllu heldur
hinu - að taka ákvörðun um hvoru
myntbandalaginu við viljum til-
heyra, með öllum þeim viðskipta-
fastan í kerfið eins og það er og ber
niður allar tillögur um breytingu á
því.
í annan stað kemur sú tillaga
fram á þingi nú alveg nýverið frá
Unni Stefánsdóttur, varaþingmanni
Framsóknarflokksins, að taka upp
nýjan þjóðsöng í stað þess sem nú
er. Þetta hefur nú verið rætt áður
og mig minnir helst að hugmyndin
hafi komið fram opinberlega í grein
frá Unni í DV fyrir nokkrum mán-
uðum. - Margir munu verða til að
taka undir þessa tillögu Unnar.
sambandið þar sem þetta er ekki
regla.
Nú vík ég aftur að íslensku reglu-
gerðinni eða lögunum sem fyrrver-
andi þingkona í Reykjaneskjör-
dæmi hafði sig mest í frammi um að
festa hér á landi. Þessi regla er satt
að segja hin mestu firn og allsendis
óþörf hér á landi, að ekki sé nú tal-
að um hásumarið þegar sól gengur
ekki til viðar. Það er víðar sól en á
íslandi og heitari og sterkari.
Hvergi í neinu landi sem standa þó
hagsmunum og viðskiptasamning-
um sem þessi tvö bandalög bjóða
upp á. Gerum við ekki upp hug okk-
ar á næstu tveimur misserum eða
svo verður okkur illa stætt á því
sem við teljum svo sjálfsagt um
ókomna framtíð, að vera sjálfstæð
þjóð. Það hafa nefnilega engir hags-
munir verið tryggðir með EES-sam-
komulaginu einu.
Ég vil í leiðinni skora á einhvem
málsmetandi þingmann (þvi þaðan
verður víst slíkt að koma til að
mark sé tekið á) að leggja til að
breytt yerði um nafn á landinu.
Nafnið fsland er orðið til trafala í
flestum samskiptum við erlendá að-
ila - ekki síst með tilliti til kynning-
ar hjá þeim sem ekkert þekkja til
landsins. Mörg nöfn, og það miklu
fallegri, hæfðu landinu okkar betur.
Þetta ætti að tengjast hugmyndinni
að nýjum þjóðsöng.
miklu framar íslandi er það regla að
aka með fullum ljósum allan sólar-
hringinn. Ég tek Þýskaland, Banda-
ríkin og Holland sem dæmi.
Er nú ekki kominn tími til að af-
nema þessa endemis skrípisreglu
um ljósanotkun bifreiða allan sólar-
hringinn? Eða þurfum við alltaf að
vera ýmist úti á þekju borið saman
við aðrar siðmenntaðar þjóðir eða á
skjön við þær í helstu reglugerðum
og lagasetningum sem snúa að dag-
legu lífi almennings?
Fagna nýjum
ökuskírteinum
Þ.K.P. hringdi:
Ég fagna þeirri ákvörðun að
taka upp ný ökuskírteini í svip-
uðu formi og sömu stærð og
greiðslukortin eru. Þessi venju-
legu skírteini okkar passa
hvergi í nein veski og eru hin
óhentugustu í alla staði. Auk
þess sem þau nýju samræmast
reglum sem gilda innan ESB-
svæðisins.
Umsýsla
veiðileyfa
Guðjón Magnússon skrifar:
Mikið hefur verð rætt um
brask við leigu og sölu fiskveiði-
kvóta milli staða í sjávarútvegi.
Ég legg til að í sjávarútvegsráðu-
neytinu verði komið á stofn um-
sýslu veiðileyfagjalda þannig að
ef menn nýti ekki sjálfir veiði-
leyfi sin þá beri þeim að skila
þeim inn aftur og öll sala og
leiga kvóta verði bönnuð. Við
sölu skipa skuli kvóti fylgja skip-
inu, að öðrum kosti fari kvóti
skipsins aftur til ráðuneytisins.
Við úreldingu skipa vegna
kaupa á nýju verði verði þó
áfram heimilt að flytja kvótann á
hið nýja skip. Við útdeilingu
ráðuneytis á þeim kvóta sem
skilað er inn komi svo umsýslu-
gjald, t.d. 20-30 kr. á kg. Þannig
væri komið fast gjald á allan
kvóta í landinu og braskið úti-
lokað. Það getur ekki talist rétt-
látt að menn sitji á friðarstóli
við að hafa veiðiheimildir „sín-
ar“ að féþúfu án þess að sækja
aflann sjálfir. Áðurnefnt um-
sýslugjald myndi renna til
þeirra stofnana sem ríkið rekur
vegna sjávarútvegsmála.
Afnotagjald
RÚV
Magnea skrifar:
Það er meira en tímabært að
fella niður afnotagjald af RÚV í
þeirri mynd sem það nú er, þ.e.
gjald fyrir útvarp og sjónvarp.
Sjónvarpsgjaldið er þó brýnna
að fella niður sem fyrst og gefa
fólki kost á að velja um hvaða
sjónvarpsstöð það greiðir fyrir.
Ríkisútvarpið, hljóðvarp, er ég
ekki á móti að greiða sem
skyldugjald því það er í raun
eina útvarpið sem almenningur
telur vera öryggistæki, hvort
sem það nú er það í reynd eða
ekki þegar á reynir.
Kerfið ver
skúrkana
Kristján Gunnarsson skrifar:
Fréttirnar frá Belgíu um að
háttsettir menn í kerfinu þar
sýnist vilja verja óbótamennina
sem valdir eru að óhæfuverkum
gagnvart börnum og vændi þar í
landi eru lýsandi dæmi um
hvernig kerfið hefur tilhneig-
ingu til að veija skúrkana. Er
ekki sama tilhneiging hér á
landi, beint eða óbeint? Hvað
með biskupsmálið, stendur ekki
kerfið (ráðamenn) með biskupi í
stað þess að krefjast fullnaðar-
rannsóknar í máli hans? Eða í
Guðmundar- og Geirfinnsmálinu
þar sem lagður virðist steinn í
götu allra sem vilja taka málið
til rannsóknar að nýju?
Börnin heim?
Jóhanna skrifar:
Er ekki öllum orðið ljóst að í
Tyrklandi er þannig réttarkerfi
að það er borin von að böm
Sophiu Hansen fái nokkru sinni
að fara frá landinu? í Tyrklandi
standa allir meö Halim A1 og
réttarhöldin eru sýndarmennsk-
an ein. Telpurnar eru orðnar
stálpaðar og líklegt að þær hafi
tengst hinum íslamska heimi. Er
ekki eins gott að gera sér grein
fyrir staðreyndum af þessu tagi
strax? Eða eru yfirleitt nokkur
tiltæk ráð önnur? Mér sýnist svo
ekki vera.
Nýr þjóðsöngur - nýtt
nafn á landið
Dagljósatími ökutækja er fráleitur
Er alveg bráðnau&synlegt aö aka meö Ijósum allan sólarhringinn hér frekar
en annars staöar?