Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Síða 18
26
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996
íþróttir___________________________________________________________________________________i>v
Paö er ekkert gefiö eftir í leikjunum í meistaradeild Evrópu enda eftir miklu aö slægjast. Þessi óvenjulegu tilþrif
sáust í viðureign Rapid Vín og Juventus í Vínarborg. Christian Prosenik skallar boltann frá Vladimir Jugovic í iiði
Juventus. Rapid náöi athyglisveröum úrslitum meö því aö gera jafntefli viö Evrópumeistarana.
Reuter
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu:
Meisturum Juve
ógnað í Vínarborg
- Gautaborg vann glæsilegan sigur á AC Milan
KR-ingar:
Aðeins ósamið
við Heimi
Knattspymudeild KR hefur
gengið frá þriggja ára samning-
um við Þormóð Egilsson og
Kristján Finnbogason. Þar með
er aðeins eftir að semja við
Heimi Guðjónsson.
„Heimir er við æfingar hjá Ör-
gryte fram í næstu viku og þegar
hann kemur heim göngum við
frá málum við hann. Þar með
verða allir okkar leikmenn
komnir á samninga til næstu
tveggja til þriggja ára,“ sagði
Jónas Kristinsson hjá knatt-
spyrnudeild KR við DV í gær.
-VS
Hermann leigður
til Þýskalands
DV, Eyjum:
Hermann Hreiðarsson, bak-
vörðurinn sterki hjá Eyjamönn-
um í knattspymunni, verður
leigður í vetur til 3. deildar liðs í
Þýskalandi. Hann kemur síðan
aftur heim í vor og leikur með
ÍBV næsta sumar.
Einnig er verið að reyna að
koma Kristni Hafliðasyni að hjá
erlendu liði í vetur.
-ÞoGu
Jón Bragi leggur
skóna á hilluna
DV, Eyjum:
Jón Bragi Amarsson, varnar-
jaxl ÍBV, hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna. Jón Bragi á að
baki 137 leiki með ÍBV i 1. deild,
auk fiölda leikja með liðinu þeg-
ar það lék í 2. deild. Hann er
fimmti leikjahæsti leikmaður
ÍBV í 1. deild. Hann skilur því
eftir sig skarð i vöminni þegar
hann hverfur á braut.
Óvíst meö Friðrik
Einnig er óvíst hvort Friðrik
Sæbjömsson leikur með liðinu á
næsta tímabili. Friðrik verður á
sjó í vetur og eftir það er fram-
haldið óljóst hjá honum.
-ÞoGu
Tryggvi spenntur
fyrir Haugasundi
DV, Eyjum:
Eins og DV greindi frá á
mánudaginn er Tryggvi Guð-
mundsson í Noregi þessa dagana
til að líta á aðstæður hjá norska
liðinu Haugasundi sem vann sig
upp í norsku úrvalsdeildina í
haust. Tryggvi segist mjög
spenntur að reyna að komast að
hjá þessu norska liði.
Sigþór Júlíusson úr Val er
einnig hjá Haugasundi með
sama markmið í huga.
-ÞoGu
Handbolti:
Andrea ætlar
til Hauka
DV, Eyjum:
Andrea Atladóttir, landsliðs-
kona ÍBV í handknattleik, hefur
tilkynnt'handknattleiksráði ÍBV
að hún ætli að skipta yfir í lið ís-
landsmeistara Hauka. Andrea
var búin að ákveða að taka sér
frí frá handbolta fram yfir ára-
mót vegna anna við Háskólann
þar sem hún er í námi. Hún ætl-
aði síðan að leika fyrir ÍBV í
vetur.
Ekki hefur enn verið gengið
frá félagaskiptum en Andrea
byijar að leika með Haukum eft-
ir áramót.
-ÞoGu
Línur skýrðust nokkuð í riðlun-
um fiómm í meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu í gærkvöld. Núverandi
Evrópumeistarar í Juventus fengu
svo sannarlega að hafa fyrir hlutun-
um í Vínarborg gegn Rapid. Óvænt-
ustu úrslit kvöldsins vom þegar
sænska liðið IFK Gautaborg vann
glæstan sigur á stórliði AC Milan.
Manchester United gerði einnig
góða ferð til Istanbul þar sem liðið
lagði Ferenbache að velli í yfirveg-
uðum og góðum leik liðsins.
Juventus tapaði sínum fyrstu
stigum í keppninni. Juve byrjaði
betur og náði foryshmni vegna mis-
taka Andrzej Lesiak. Hann bætti
síðan upp mistökin með jöfnunar-
marki skömmu síðar - hörkumarki
beint úr aukaspymu.
IFK Gautaborg hefur oft komið á
óvart í Evrópukeppni í gegnum
árin. í gærkvöld var við því búist að
AC Milan ynni öraggan sigur. Ann-
að kom á daginn því Sviamir voru
síst lakari aðilinn enda fengu þeir
frábæran stuðning frá áhorfendum
sem troðfylltu völlinn í Gautaborg.
Það leit ekki að visu vel út fyrir Sví-
ana því fiótlega í síðari halfleik náði
George Weah forystunni fyrir Mil-
an.
Svíarnir alltaf seigir
Svíarnir vora ekki af baki
dottnir og færðust allir í aukana eft-
ir því sem á leikinn leið. Tvö mörk
á tíu mínútna leikkafla gerðu vonir
Milan aö engu og annað tap þeirra í
riðlinum var staðreynd. Erik Wahl-
stedt hafði aðeins verið inn á i tvær
mínútur þegar hann skoraði jöfnun-
armarkið. Alexandersson gerði sig-
urmarkið og allt ætlaði um koll að
keyra á vellinum. Gautaborg fagn-
aði þarna sínum fyrsta sigri í
keppninni.
Dortmund er með fullt hús stiga
og sótti sigur í erfiðum útileik gegn
Atletico í Madríd. Þýska liðið getur
þakkað markverði sínum hvemig
lyktir leiksins urðu. Stefan Klos
heitir hann og varði nokkrum sinn-
um á undraverðan hátt. Stefan
Reuter skoraði mark Dortmund í
upphafi síðari hálfleiks og eftir það
bakkaði liðið með þeim afleiðingum
að Atletico sótti án afláts það sem
eftir lifði leiksins. Oft skall hurð
nærri hælum upp við mark þýska
liðsins en allt kom fyrir ekki.
Manchester United lék af skyn-
semi gegn Fenerbache og uppskar
samkvæmt því. Tyrkimir sýndu til-
burði í byrjun en fiöraðu smám
saman út. Staða United í riðlinum
er sterk og stefnir allt í að liðið fari
upp úr riðlunum með Juventus.
Hlakkar til framhaldsins
„Liðið lék vel og ég held að strák-
amir hafi lært heilmikið á ósigrin-
um í fyrsta leiknum gegn Juventus.
Liðið er vonandi komið á rétta
braut í keppninni og ég hlakka til
framhaldsins," sagöi Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester
United eftir leikinn.
Hvorki gengur né rekur hjá Glas-
gow Rangers. Nú mátti liðið þola
enn eina útreiöina. Ajax lék skoska
liðið sundur og saman. Leikurinn
var síðan enn auðveldari fyrir Ajax
eftir að Paul Gascoigne var vikið af
leikvelli fyrir brot á 29. mínútu.
Portúgalinn Dani, sem West Ham
seldi til Ajax í haust, átti stórleik.
Rosenborg fór illa að ráði sínu
gegn Porto. Hvert tækifærið af öðra
fór i súginn í síðari hálfleik. Liðinu
var á lokamínútunni refsað þegar
varamaðurinn Jardel skoraði sigur-
markið. Porto hefur unnið alla sína
þrjá leiki til þessa í riðlinum.
-JKS
'1—
£f)MElSlARADEILDIN
A-riöill:
Ajax-Rangers . . . . 4-1
1-0 Dani (25.), 2-0 Dani (41.), 3-0
Babangida (83.), 3-1 Durrant (88.), 4-1
Wooter (90.) 47.000
Auxerre-Grasshoppers . . . . . 1-0
1-0 Deniaud (42.) 19.000
Grasshopp. 3 2 0 1 4-1 6
Ajax 3 2 0 1 5-2 6
Auxerre 3 2 0 1 3-2 6
Rangers 3 0 0 3 2-9 0
B-riöill:
Steaua-Widzew Lodz . . . .... 1-0
1-0 Bogusz (82. sjálfsm.) 9.000
Atletico Madrid-Dortmund . . 0-1
0-1 Reuter (50.) 47.000
Dortmund 3 3 0 0 6-1 9
A.Madrid 3 2 0 1 8-2 6
Steaua 3 10 2 1-7 3
Lodz 3 0 0 3 2-7 0
C-riöill:
Fenerbache-Manch.Utd . .... 0-2
0-1 Beckham (55.), 0-2 Cantona (60.)
28.000
Rapid Wien-Juventus . . .... 1-1
0-1 Vieri (9.), 1-1 Lesiak (20.) 48.000
Juventus 3 2 10 3-1 7
Manch.Utd 3 2 0 1 4-1 6
Rapid Wien 3 0 2 1 2-4 2
Fenerbache 3012 1-4 1
D-riöill:
Rosenborg-Porto .... 0-1
0-1 Jardell (90.) 20.400
Gautaborg-AC Milan . . . .... 2-1
0-1 Weah (52.), 1-1 Wahlstedt (74.), 2-1
Alexandersson (84.) 42.450
Porto 3 3 0 0 6-3 9
AC Milan 3 10 2 7-6 3
Gautaborg 3 10 2 5-6 3
Rosenborg 3102 4-7 3
UEFA-BIKARIHN
2. umferð - fyrri leikur
Hamburg SV-Spartak Moskva 3-0
1-0 Breitenreiter (8.), 2-0 Bearon
(39.), 3-0 Kovacevic (58.) 18.000
|*». EN61AND
1. deild:
Norwich-Oldham................2-0
Port Vale-Crystal P...........0-2
Q.P.R.-Bradford...............1-0
Southend-Grimsby .............1-0
Swindon-Huddersfield..........6-0
W.B.A.-Stoke City.............0-2
Staða efstu liða:
Bolton 12 9 2 1 28-14 29
Norwich 12 8 3 1 19-7 27
Crystal P. 12 5 6 1 25-10 21
Wolves 13 6 3 4 18-13 21
Bamsley 11 6 3 2 17-10 21
Stoke 11 5 4 2 17-16 19
Kvennaknattspyrna:
Ásthildur til
Frankfurt
eða vestur?
Þýska félagið Frankfúrt sækir
hart að fá Ásthildi Helgadóttur
úr Breiðabliki til liðs við sig.
Forráðamenn Frankfurt báðu
Ásthildi að koma til Þýskalands
á laugardag og spila deildaleik á
sunnudag, og óskuðu eftir félaga-
skiptum fyrir hana hjá KSÍ í gær.
Breiðablik skrifaði ekki undir
í gær og samkvæmt heimildum
DV var óljóst í gærkvöld hvort
Ásthildur færi til Þýskalands
eða í skóla í Bandaríkjunum
eins og til stóð. Þar hafa henni
verið boðin ýmis hlunnindi jafn-
framt því að leika með skólaliði
Vanderbilt háskólans.
Þjálfari Vanderbilt mun hafa
mælt með því við Ásthildi að
hún færi til Þýskalands og kæmi
síðan til Bandaríkjanna næsta
haust, reynslunni ríkari, en
beggja vegna Atlantshafsins er
beðið eftir ákvörðun þessarar
snjöllu knattspyrnukonu.
-VS
Ole Gunnar Solskjær hefur hér betur í baráttunni viö Halil Ibrahim Kara hjá
Ferenbache í Istanbúl í gærkvöld. Manchester United hefur góöa stöðu í
riðlinum eftir sigurinn sem var öruggur þegar á heildina er litið. Reuter