Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Síða 24
32
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996
Fréttir
DV
Getur ekki
sungið
Leikararnir, sem tóku aö sér
hlutverk í nýjustu mynd Woddys
Allens, Everyone Tells Me I Love
You, urðu heldur betur hissa er
þeir mættu á tökustað og komust
að því að um dans- og söngva-
mynd var að ræða.
Leikararnir Drew Barrymore,
Alan Alda, Julia Roberts, Tim
Roth og Ed Norton leika aðalhlut-
verkin. Drew Barrymore ætlaði að
draga sig í hlé þegar hún komst að
því að sönghæfileika var krafist en
Allen ákvað að fá unga skóla-
stúlku til að syngja fyrir hana.
Stjómar sjón-
varpsþætti
Leikarinn Tom Hanks hefur
tekið að sér að stjórna sjónvarps-
þætti á ABC sjónvarpsstöðinni
þar sem fyrstu þrjú árin í ævi
bama verða í brennidepli.
Nýlegar rannsóknir sýna að
fyrstu þrjú árin móta líf fólks
hvaö mest og verður í þættinum
litið á hvað samfélagið gerir og
þarf að gera til að styðja foreldra.
Forráðamenn ABC sjónvarps-
stöðvarinnar em í sjöunda himni
yfir þvi að Tom Hanks ætli að
stjóma þættinum en Rob Reiner
mun hafa yfirumsjón með honum.
Söngkonan Withney Houston
mun að öllum líkindum koma
fram í þættinum.
Gamalt kærustu-
par í heitum
ástarsenum
- varð að spyrja eiginkonuna fyrst
Leikararnir Julia Roberts og
Liam Neeson vom ekki alveg óvön
því að láta vel hvort að öðru þegar
þau þurftu að leika í ástríðufullum
ástarsenum í kvikmyndinni Mich-
ael Collins sem fjallar um írska
frelsishetju. En Liam Neeson þurfti
að fá leyfi eiginkonunnar, Natasha
Richardson, til að leika í ástarsen-
unum á móti Juliu. Ástæðan var sú
að hann átti eitt sinni í ástarsam-
bandi við leikkonuna. Eiginkonan
var skilningsrík og gaf samþykki
sitt.
Julia Roberts.
Leikstjórinn Neil Jordan segir í
viðtali við breskt blað að það hafi
verið mikill kostur að Julia og Liam
hafi áður verið í nánu sambandi.
„Þau leika elskendur og sluppu þess
vegna við vandræðin sem leikarar
lenda oft í þegar þeir eru að kynn-
ast.“
Liam, sem er 44 ára, varð ástfang-
inn af Juliu þegar þau voru bæði að
hefja feril sinn. Hún var þá 19 ára
og hafði enn ekki leikið í Pretty Wo-
man á móti Richard Gere en það
hlutverk gerði hana að stjörnu á
Liam Neeson.
Geena Davis og eiginmaðurinn Renny Harlin.
Liam ásamt eiginkonu sinni, Natasha Richardson.
einni nóttu. Liam hafði yfirgefið
Bretland, ákveðinn í að gera það
gott í Hollywood. Hann og Julia hitt-
ust 1988 við gerð kvikmyndarinnar
Satisfaction sem ekki gekk vel. Sam-
band þeirra varaði stutt. Julia fékk
fleiri og fleiri hlutverk og hún féll
fyrir mörgum mótleikurum sinum.
En Julia og Liam eru enn vinir.
Hún segir að það hafi ekki verið
óþægilegt að leika á móti Liam í ást-
arsenunum fyrmefndu. Hún segist
þó hafa beðið leikstjórann að kanna
hvort Liam væri mótfallinn því að
hún léki á móti honum í kvikmynd-
inni þar sem hann væri núna
kvæntur og tveggja bama faðir.
„Það sem hjálpaði var að við
Natasha erum góðar vinkonur. Mér
finnst þau hið fullkomna par,“ segir
Julia.
Liam þótti heldur ekki erfltt að
leika í ástarsenunum. „Við Julia er-
um leikarar og það vill til að við
vorum eitt sinn i ástarsambandi,"
leggur hann áherslu á. Hann segir
að sér hafl tekist að vera áfram vin-
ur flestra þeirra kvenna sem hann
hefúr átt vingott við en meðal nokk-
urra þeirra eru Barbra Streisand,
Helen Mirren og Sinead O’Connor.
Geena leikur sjálf
í áhættuatriðunum
Geena Davis, sem sló í gegn í
myndinni Thelma og Louise, leikur
nú venjulega konu sem gerist hasar-
hetja í myndinni Long Kiss
Goodnight undir leikstjórn eigin-
mannsins Renny Harlin sem er
finnskur. Ýmsir efast þó um að kon-
ur þyrpist á myndina vegna þess
eins að hún fjalli um venjulega
konu, eins og Geena er sögð vonast
til, því mikill hasar þykir ekki
raunverulegur.
í myndinni leikur Geena á móti
Samuel Jackson og bæði heimtuðu
þau að gera öll áhættuatriðin sjálf.
En þau voru í öruggum höndum.
Leikstjórinn sá um að ekkert gæti
komið fyrir eiginkonuna.
Geena leikur heimavinnandi hús-
móður sem þjáist af minnisleysi og
uppgötvar að hún er háttsettur
leyniþjónustumaður. Samuel
Jackson leikur leynilögreglumann
sem aðstoðar hana við að grafa upp
fortíðina.
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
Hjónaband
Jaggers
ogHall
á brauð-
fótum
Samkvæmt breskum slúðurblöðum stendur
hjónaband fyrirsætunnar Jerry Hall og söngvar-
ans Micks Jaggers á brauðfótum. Jerry hefur leit-
að til lögfræðings en sá vildi ekkert láta uppi um
það hvort skilnaður væri í aðsigi.
„Ég hef skýr fyrirmæli frá skjólstæðingi mínum
um að segja ekkert í tengslum við mál fyrirsæt-
unnar," sagði lögfræðingurinn Anthony Julius.
Jerry Hall og Mick Jagger hafa verið gift í sex ár
og eiga saman þrjú böm en Jagger hefur undanfar-
ið verið orðaður við flestar aðrar konur en eigin-
konu sína. Hann sást t.d. á næturklúbbi fyrir
stuttu í fylgd leikkonunnar Umu Thurman og
einnig náði Ijósmyndari einn að festa á filmu unga
fyrirsætu er kom morgunn einn út úr hótelbergi
Jaggers í Los Angeles.
Það nægir líklega ekki fyrir Mick Jagger að setja
stút á munninn til að fá eiginkonu sína til að fyr-
irgefa sér í þetta sinn en honum tekst enn að fylla
heilu íþróttavellina af fólki sem kemur til að sjá
hann sveifla hljóðnemanum og hrista sig og skekja
á alla kanta með hljómsveit sinni, Rolling Stones.
Sú saga gengur nú fjöllunum hærra að fyrirsætan Jerry Hall
ætli að sækja um skilnað frá söngvaranum Mick Jagger. Hún
hefur leitað til lögfræðings en hann neitar að gefa nokkuð upp
um það hvort skilnaður sé í aðsigi.