Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Qupperneq 28
 36 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 * rm íslenski þjóösöngurinn er enn einu sinni orðinn að umræðuefni manna á milli. Nokkrir laglausir þingmenn ' „Það þarf bara að kenna söng- inn og alveg fáránlegt að gefast upp bara af því að nokkrir þing- menn eru laglausir." Einar Vilhjálmsson í Viðskipta- blaðinu. Engin skipti „Ég sé ekki ástæðu til að skipta um þjóðsöng frekar en Heklu eða Vatnajökul.“ Árni Johnsen í Viðskiptablað- inu. Ummæli Frekar kennara en prest „Það á að eyða stórpeningi í að senda prest til okkar en það vantar miklu frekar kennara til að kenna þessum ungu islend- ingum sem þar búa íslensku." Valgeir Sigurðsson, veitinga- maður í Lúxemborg, i DV. Frjálshyggjugauramir „Meira að segja formaður Framsóknarflokksins er að verða frjálshyggjugaur í saman- burði við formann Sjálfstæðis- flokksins." Tryggvi Harðarson bæjarfull- trúi í Alþýðublaðinu. Borgardætur syngja í Hafnar- borg í kvöld. Djass fyrir alla Eldri skátar í Hafnarfirði kalla Borgardætur til leiks í fjórða áfanga Djass fyrir alla sem verður í Hafnarborg í kvöld, kl. 21. Borgardætur hafa á und- anfomum árum fært gömul lög millistríðsáranna í íslenskan búning á skemmtilegan hátt. Borgardætur munu flytja sveiflandi söngdagskrá í anda söngtríóa svingáranna. Þeim til Tónleikar fulltingis verða Eyþór Gunnars- son, píanisti og útsetjari, og Þórður Högnason kontra- bassaleikari, en Borgardætur eru Andrea Gylfadóttir, Berglind Björk Jónasdóttir og EOen Krist- jánsdóttir. Kynnir kvöldsins verður sem fyrr Jónatan Garðarsson en hann hefur glatt áheyrendur á síðustu djasskvöldum skátanna með einfóldum skýringum og frásögnum um djassinn. á suðvesturhominu Bjartviðri Nærri kyrrstæð 985 mb lægð er um 500 km suður af Homafirði, en mdli Norðaustur-Grænlands og Svalbarða er 1028 mb hæð sem þok- ast austur. Veðrið í dag í dag verður austan- og norðaust- an átt, víðast kaldi eða stinnings- kaldi. Rigning eða súld með köflum norðan- og austanlands, en víða bjartviðri á Suðvestur- og Vestur- landi. Hiti 2 til 7 stig. Á höfuðborgarsvæðinu er austan- og síðar norðaustankaldi. Léttskýj- að. Hiti 2 tO 7 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.00 Sólarupprás á morgun: 08.27 Síðdegisflóð í Reykjavik: 21.28 Árdegisflóð á morgun: 09.57 Veörið kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjaö 5 Akurnes rigning á siö. kls. 8 Bergstaöir léttskýjaö 5 Bolungarvík rigning 5 Egilsstaöir þoka 4 Keflavíkurflugv. hálfskýjaö 4 Kirkjubkl. skúr 6 Raufarhöfn þoka 5 Reykjavík léttskýjaö 3 Stórhöfói . skýjaö 6 Helsinki léttskýjaö 0 Kaupmannah. rigning 12 Ósló rigning 9 Stokkhólmur þokumóöa 10 Þórshöfn skúr á síö. kls. 9 Amsterdam þokumóöa 5 Barcelona léttskýjaö 11 Chicago skýjaö 16 Frankfurt alskýjaö 8 Glasgow hálfskýjaö 8 Hamborg alskýjaö 11 London skýjaö 7 Los Angeles mistur 16 Madrid þokumóöa 9 Malaga hálfskýjaö 16 Mallorca Paris rigning 8 Róm skýjaö 15 Valencia léttskýjað 14 New York heiöskírt 19 Nuuk léttskýjaö -3 Vín skýjaö 12 Washington Winnipeg heiöskírt -2 Guðrún Árdís Össurardóttir, besta saumakona í Evrópu: Draumurinn er að starfa við fatahönnun „Mamma saumaði mikið á mig þegar ég var lítil og má segja að ég hafi eiginlega tekið við af henni. Hún er hætt að sauma og kenndi mér í staðinn þegar ég var lítil þannig að ég held að áhuginn fyrir saumaskap sé í fjölskyldublóðinu," sagði Guðrún Árdís Össurardóttir, 21 árs stúlka, mjög hress og með skemmtilega framkomu, þegar hún kom til landsins eftir að hafa sigrað í keppni þýska tískublaðsins Burda um titilinn besta saumakona Evr- ópu í Baden-Baden á laugardags- kvöldið. Guðrún Árdís fékk Aenne Burda verðlaunin fyrir kjól sem hún hannaði og saumaði. Hann er síður, Maður dagsins úr dökkbláu polyester og organza, og svo notaði hún gardínugorm til að halda ytra pilsinu út. Á kjólnum voru 147 mósaíkflísar, eða 0,3 fer- metrar, og þurfti hún ekki að sækja þær langt þar sem faðir hennar flyt- ur inn flísar. Með flísunum er kjóll- inn tæp 3 kíló. Verðlaunin voru ekki af verri endanum og meðal þeirra var- rauður blæjubíll, Fiat Punto, og kynstur af snyrtivörum, auk medalíunnar. Guörún Árdís Össurardóttir. „Þetta er fyrst og fremst mikil hvatning fyrir mig að halda áfram því sem ég er að gera. Ég byrjaði í síðustu viku í námi í fatahönnun í The Art Institute of Fort Lauder- dale á Flórída sem er meðal þeirra fremstu í fatahönnuðamámi. Skól- inn er 2 ára nám i 12 mánuði á ári og ekkert sumarfri." Guðrún lauk námi við Verslun- arskóla íslands um sl. áramót og út- skrifaðist á vorönn. Þar notaði hún verðlaunakjólinn sem útskriftar- kjól. Guðrún tók síðan eina önn á handíðabraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti til að búa sig undir fatahönnuðarnámið í Bandaríkjun- mn. Guðrún á framtíðardraum eins og flestir íslendingar. „Draumurinn er að geta starfað við fatahönnun í framtíðinni. Mig langar að koma heim til íslands þegar náminu lýk- ur og vera hjá fólkinu mínu hér og geta unnið hérna sem fatahönnuð- ur.“ Guðrún átti 21 árs afmæli á flmmtudaginn í síðustu viku og fékk því skemmtilega og eftirminni- lega afinælisgjöf. Hún stoppaði stutt hér á landi eftir keppnina, aðeins einn sólarhring, og flaug til Banda- ríkjanna á þriðjudaginn til að hitta kærasta sinn, Örvar Þór Ólafsson, sem einnig er í námi í Bandaríkjun- um, í markaðsfræði. Foreldrar Guðrúnar eru Össur Sigurður Stefánsson, eigandi Álfa- borgar í Reykjavík, og Ásdís Samú- elsdóttir. Þau voru með dóttur sinni í keppninni, henni til halds og trausts. „Það var mjög gott að hafa þau með.“ Guðrún Árdís á einn eldri bróður, Kolbein, sem tók á móti henni með risastórum blóm- vendi þegar hún kom heim. -ÆMK Óviðfeldin Myndgátan hér aö ofan lýsir lýsingarorði var Török sýnir í Galleríi Sævars Karls. Ný verk Um síðustu helgi var opnuð sýning í GaUerii Sævars Karls á nýjum verkum eftir ívar Török. Hafa verkin ekki verið sýnd áður. ívar Török er fæddur í Búdapest árið 1941. Hann stund- aði nám og vann í Búdapest þar til hann flutti til íslands árið 1969 og íslenskur ríkisborgari varð hann árið 1974. Sýningar ívar Török hefur starfað við leikmyndahönnun og hannað yfir 100 leikmyndir, meðal ann- ars fyrir Leikfélag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyrar og ung- verska og íslenska Þjóðleikhús- ið. Ásamt þessu hefur hann starfaö við útlitshönnun og graf- íska hönnun, hefur kennt leik- mynda- og þrívíddarhönnun við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og jafnframt stundað einkakennslu hér á landi og er- lendis. ívar hefur haldið nokkrar einkasýningar á íslandi, Noregi og Hollandi og það sem af er ár- inu hefur hann einnig haldið tvær samsýningar ásamt konu sinni Magdalenu M. Hermanns, aðra í Reykjavík og hina í Amsterdam. Bridge Sú óskráða regla er yfirleitt í notkun í bridge að sá sem kemur inn á hindrunarsögn segir yfirleitt ekki aftur á spilin sín i óþvingaðri stöðu. Sá sem hindrunarsegir lætur félaga sinn oftast um framhaldið. Engin regla er þó án undantekn- inga. Um síðustu helgi var spilað æfingamót fyrir landsliðið sem er á leið til Rhodos á ólympiumót um komandi helgi. Spil dagsins kom fyrir á æfingunni. Sagnir gengu þannig, AV á hættu og norður gjaf- ari: 4 Á52 44 G1053 ♦ D2 * K962 4 10 44 Á76 ♦ G1093 * DG1085 * 4 DG9643 44 -- ♦ ÁK65 * 743 Norður Austur Suður Vestur pass 1 * 2 4 3*4 pass pass dobl pass 4 4 p/h pass pass dobl Margir hefðu heldur kosið að koma inn í sagnir á einum spaða á suðurhöndina en suður valdi frekar hindrunarsögnina 2 spaða. Þriggja hjarta sögn vesturs var í veikari kantinum en þrír tíglar (Rubensohl yfirfærsla) hefði lofað betri spilum. Norður ákvað að segja ekki yfir þremur hjörtum en þegar suður doblaði sá hann í hendi sér að allir punktarnir voru gulls ígildi. Vestur gat ekki stillt sig um að dobla fjóra spaða en samningurinn stendur alltaf með réttri spilamennsku. Vestur hóf reyndar vömina á því að spila út spaðatíu og austur fékk fyrsta slaginn á kóng. Hann lagði niður laufásinn og spilaði tígli í þeirri von að fá laufstungu en ekk- ert varð af henni. Sagnhafi tromp- aði tígul einu sinni áður en hann tók trompin af austri. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.