Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Side 5
I>!# FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
19
Minningartónleikar um Ingimar Eydal:
Kvöldið er okkar
- fjöldi tónlistarmanna kemur saman á Akureyri
*.
*
★
*
tónlist
* *
Margir af þekktustu tónlistarmönnum þjóðarinnar taka þátt f minningartónleikum um Ingimar Eydal sem
haldnir verða í íþróttahöllinni á Akureyri sunnudaginn 20. október.
„Það stefnir í þriggja tíma tónlist-
arveislu með mörgum af bestu tón-
listarmönnum þjóðarinnar," segir
Þórgnýr Dýrfjörð um minningar-
tónleika um akureyrska tónlistar-
snillinginn Ingimar Eydal í íþrótta-
höllinni á Akureyri sunnudaginn
20. október. Þann dag hefði Ingimar
orðið sextugur en hann lést í árs-
byrjun 1993. Að tónleikunum
standa ættingjar, vinir og aðdáend-
ur Inghnars, auk tónlistarmanna á
Akureyri, Tónlistarfélag Akureyr-
ar, Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
og fleiri. Um 200 manns koma að
tónleikunum og gefa allir vinnu
sína.
Fjölbreytt tónlist
„Áðaláherslan verður á þá tónlist
sem Ingimar sjálfur hafði áhuga á
enda er á dagskrá allt frá poppi til
klassískrar tónlistar. Það er því
ekki verið að einblína á gömlu
Sjallastemninguna þó að auðvitað
verði hún með að einhverju leyti,“
segir Þórgnýr. Að hans sögn er lík-
legt að um 800 manns sæki tónleik-
ana. „Það er mikill áhugi hér á
Akureyri en fólk úr nágranna-
byggðunum og Reykjavík hefur
einnig verið duglegt við að panta
miða,“ segir Þórgnýr.
Úrvalstónlístarmenn
Meðal þeirra tónlistarmanna sem
koma fram á tónleikunum eru
Bjöm Thoroddsen, Bubbi Morthens
Daníel Þorsteinsson, Egill Ólafsson,
Finnur Eydal, Helena Eyjólfsdóttir,
Fjórir fjömgir, Gunnar Gunnars-
son, Hljómsveit Ingu Eydal, Jass-
tríóið Skipað þeim, Karlakór Akur-
eyrar-Geysir, Kór Akureyrar-
kirkju, Ómar Ragnarsson, Óskar
Pétursson, Tjamarkvartettinn, Tríó
PKK og Þorvaldur Halldórsson.
Einnig verða Boogie Woogie bræð-
in* með sérstakt atriði en heyrst
hefur að þegar þeir stíga á stokk
verði fjögur píanó og einn flygill á
sviðinu. Kynnir tónleikanna verður
útvarpsmaðurinn Gestur Einar
Jónasson.
Það er því full ástæða fyrir tón-
listarunnendur, hvar sem þeir em
á landinu, að líta inn í íþróttahöll-
ina á Akureyri á sunnudaginn og
kynnast þeirri tónlist sem listamað-
urinn og mannvinurinn Ingimar
Eydal hafði gaman af og gladdi aðra
með. Auk þess að minnast Ingimars
í tali og tónum er tilgangur tónleik-
anna að safna fé í minningarsjóð
um Ingimar og verður honum
væntanlega varið til þess aö kaupa
vandaðan konsertflygil handa Ak-
ureyringum. Þegar hefur verið
stofnaður reikningur í íslands-
banka á Akureyri þar sem þeir sem
vilja geta lagt inn framlög til sjóðs-
ins. Reikningurinn er nr. 1617.
Nýir diskar gefnir út
Sunnudaginn 20. október kemur
út á vegum Spors hf. geisladiskur-
inn Kvöldið er okkar þar sem er að
Finna úrval laga með hljómsveit
Ingimars Eydals. Einnig er væntan-
legur geisladiskur, Skálm, með pí-
anóleikaranum Gunnari Gunnars-
syni en sá diskur er tileinkaður
minningu Ingimars.
-JHÞ
Sigrún
Hjálmtysdótlir
syngur meö
Agli Ólafssyni á
Þegar mamma
var ung.
Þegar mamma var ung
- endurútgáfa með Diddú og Agli
Hljómplötuútgáfan SPOR hef-
ur nýverið endurútgefiö plötuna
Þegar mamma var ung, með Sig-
rúnu Diddú Hjálmtýsdóttur og
Agli Ólafssyni í stafrænu formi.
Platan kom upprunalega út árið
1978 og hefur að geyma 13 lög úr
revíunuir. Halló, Ameríka, Forn-
ar dyggðir, Hver maður á sinn
draum, Nú er það svart, Allt í
lagi, lagsi og Upplyfting.
Leikstjórinn og nú dagskrár-
stjórinn Páll Baldvin Baldvins-
son hefur meðal annars þetta að
segja um efnið á kápu plötunnar:
Lögin á þessari geislaplötu eru
sýnishorn af revíutónlist áranna
milli 1938 og 1946, en á því tíma-
bili reis íslensk revíusmíð hæst
að vinsældum og virðingu. Tíma-
bilið er oft nefnt Gullöld revíunn-
ar. íslenska revían á sér um
hundrað ára sögu. Formið hefur
tekið litlum breytingum. Páll
Baldvin hefur skrifað heilmikinn
pistil um revíur íslendinga, sem
ekki verður allur endurfluttur
hér, en á plötunni er að finna
þverskurð af revíusmíðum ís-
lendinga, jafnt til að rifja upp
gamlar minningar og búa til nýj-
ar.
-GBG
r
mMá
Alhöfnin, nýjasla myiul ( laude Chabrol.,
er hyggö á sögu eftir Ruth Rendell.
Ung kona er fengin til aö halda heiinili fyrir ráöríkt
og snohhaö etnalölk.
Hún ei sei lunduö og linnur ser \ inkonu sern vinnur á n.ikegu
pósthúsi. Saman ákveha |>«er <iö laka til sinna raöa varöandi
ráöiiki ljölskyIdunuar. Sainan eru |».er eins og sljöinlaus
eiinreiö á leiö fil tortiiningar.