Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Síða 10
af forsíðum tískublaða í kvikmyndirnar
í efsta sæti myndbandalistans
þessa vikuna er gamanmyndin Get
Shorty með John Travolta, Gene
Hackman, Danny DeVito og Rene
Russo í aðalhlutverkum. Sjálfsagt er
Rene Russo minnst þekkt þessara
leikara, enda á hún stystan feril að
haki í kvikmyndum. Þegar John
Travolta var að leika undir áhrifum
frá tónlist Bee Gees í Saturday
Night Fever, Gene Hackman að gera
garðinn frægan í The French Conn-
ection og Danny De Vito að skamm-
ast út í leigubílstjóra í sjónvarps-
þáttaseríunni Taxi var Rene Russo
á forsíðum tískublaða á borð við
Vouge, Glamour og Cosmopolitian.
Tilboðin freistuðu ekki
Rene Russo er ekkert unglamb
þótt hún hafi ekki leikið í sinni
fyrstu kvikmynd fyrr en 1989, hún
er orðin fjörutíu og tveggja ára en
heldur vel glæsileika þeim sem
gerði hana að einni eftirsóttustu
fyrirsætu í heimi á áttunda áratugn-
um. Russo hafði hvað eftir annað
fengið tilboð um að leika í kvik-
myndum þegar hún var á hátindi
ferils síns en alltaf neitað. Það var
ekki fyrr en hún hætti alveg í tísku-
bransanum að hún sneri sér að
kvikmyndaleik og þá með hálfum
huga: „Það voru aðallega pen-
ingarnir sem mér voru boðnir. Ég
var hætt að sitja fyrir og þó ég væri
ekki beint blönk voru peningarnir,
Nýjasta kvikmynd Rene Russo er Tin Cup. Hér er hún ásamt með-
leikurum sínum; Don Johnson og Kevin Costner.
sem boðnir voru, freistandi þannig
að það má segja að byrjunin hafi
verið eingöngum fjármálalegs eðlis,
ég hafði enga sérstaka löngun til að
leika en sagði við sjálfa mig að það
sakaði ekki að reyna og sjá hvernig
árangurinn yrði.“
Rene Russo kom vel fyrir í kvik-
myndum og fékk strax tilboð um
fleiri myndir en hún hefur samt
ekkert verið að flýta sér og hefur
leikið í einni mynd á ári þar til nú
síðustu tvö árin að hún hefur leikiö
í hverri myndinni á fætur annarri.
Nýjasta kvikmynd hennar, Tin Cup,
móti Kevin Costner og
brátt má einnig sjá hana í
Ransom, nýjustu kvik-
mynd Mels Gibsons, sem
Ron Howard leikstýrir, en
það var einmitt á móti
Mel Gibson í Lethal Wea-
pon 3 sem Russo sló fyrst
í gegn.
Varð sýningarstúlka
sextán ára
Rene Russo er Kaliforn-
íubúi og ólst upp í
mynd
sem
nýtur
mikilla
vin-
sælda
um
þessar
mund-
ir, það
leikur
hún á
Rene Russo ásamt Dustin Hoffman
í Outbreak.
Burbank. Hún var enn í mennta-
skóla þegar hún vakti athygli tísku-
ljósmyndara og upp úr því fékk hún
atvinnutilboð og með skólanum
starfaði hún sem ljósmyndafyrir-
sæta. Þegar skólanámi lauk fór hún
til New York þar sem hún varð fljótt
vinsælasta fyrirsætan hjá Ford
Agency og þegar hún var hvað vin-
Rene Russo ásamt meðleikurum sínum f Get Shorty; John Tra-
voita, Gene Hackman og Danny DeVito.
sælust var hún á forsíðum allra
helstu tískublaða í heimi.
Fyrsta kvikmyndin, sem Rene
Russo lék í, var Major League þar
sem hún lék á móti Tom Berenger
og Charlie Sheen. Siðan hefur hver
myndin á fætur annarri komið en
yfirleitt er hún á annarri fiðlu
þannig að það hefur ekki reynt mik-
ið á leikhæfileika hennar. Það er
kannski helst henni sjálfri að
kenna, hún segist hafa ósköp lítinn
metnað í starfi
sínu og enga sér-
staka löngun til að
takast á við hlut-
verk sem krefjast
mikillar tækni og
innlifun í leik.
Russo hefur þó far-
ið fram með hverju
árinu og komist vel
frá ólíkum hlut-
verkum, sem þó öll
eru á léttari nótum.
Má nefna hlutverk
B- myndaleikkon-
unnar í Get Shorty
og vísindamanns-
ins í Outbreak.
Aðrar kvikmyndir,
sem hún hefur leik-
ið í, eru Mr.
Desteny, One Good
Cop, Leathal Wea-
pon og In the Line
of Fire þar sem
hún lék á móti
Clint Eastwood.
-HK
Teiknimyndafígúran Jim Carrey
Þannig iíta þeir út í teiknimynd, Jeff
Daniels og Jim Carrey.
Útgáfa á teiknimyndum á mynd-
bandi er mikil og nú er svo komið
að farið er að taka vinsælar gaman-
myndir og gera þær að teikni-
myndaseríum sem síðan eru
gefnar út á myndbandi.
Nýjustu teiknimyndaseríurnar í
þessum flokki eru The Mask og
Dumb and Dumber. Það er skiljan-
legt að myndir Jims Carrey skuli
verða fyrir valinu, sjálfur er hann
oft líkur teiknimyndafigúru þegar
hann er að fetta sig og bretta. Það
þykir hafa tekist vel að gera The
Mask og Dumb and Dumber að
teiknimyndaseríum og má kannski
segja að í raun hafi það ekki verið
erfitt verk þar sem myndirnar eru í
miklum farsastíl.
Það hefur sjálfsagt ekki verið
erfitt að gera The Mask að teikni-
mynd, þar sem myndin sjálf með
Jim Carrey var byggð á teikni-
myndaseríu sem að vísu hafði ekki
verið til í sjónvarpi. Einnig hefur
tekist vel með Dumb and Dumber
og ættu allir krakkar að hafa gaman
af. Þeir eldri sem hrifust af mynd-
inni eiga sjálfsagt erfitt með að
sætta sig við þessar útgáfur, enda
mikill munur á, en meðan teikni-
myndaseríumar em góð söluvara
þá verður útgáfunni haldið áfram.
Þess má að lokum geta að tvær sög-
ur eru á hverri spólu.
-HK
Rene Russo er ekkert
unglamb þótt hún hafi
ekki leikið í sinni
fyrstu kvikmynd fyrr
en 1989, hún er orðin
fjörutíu og tveggja ára
en heldur vel glæsi-
leika þeim sem gerði
hana að einni eftirsótt-
ustu fyrirsætu í heimi
á áttunda áratugnum.
íris Elfa Þorkelsdóttir: Clockers.
Hún var ekkert sérstök.
Guðmundur Gfslason: Leaving
Las Vegas. Hún var mjög fræð-
Nína Sif Pétursdóttir: Net, hún
var góð.
Guðný Pálsdóttir. Kryddlegin
hjörtu. Hún er yndisleg, með
þeim bestu.
I TÆKINU