Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Side 3
JL) VFÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 19% HLJÓMPUTU &MYjJJ Kula Shaker - K Vel heppnuð Hljómsveitin Kula Shaker skaust nýverið upp á topp breska vinsældalistans með plötu sína, K, og fór þá leið án þess að unna sér hvíldar á leiðinni. Tónlist hljómsveitarinnar minnir um margt á hið svo- kallaða breska popp/rokk (hrit pop) sem er mjög vin- sælt um þessar mundir en einkennist þar að auki af áhrifum frá Pink Floyd og indverskri tónlist (eins og umslagið gefur til kynna). Þessi blanda tekst einstaklega vel á frum- smíð hljómsveitarinnar. Melódíurnar eru óvenjulegar og gripandi og í flutningi sveitarinnar er að finna ferskleikann sem svo oft fylgir ný- liðum i bransanum (enginn útbrunninn hér). Lagasmíðamar verða aldrei einfaldar, þónokkuð oft flóknar, en missa þó ekki niður meló- díur (í velflestum tilfellum). Kula Shaker sækir ekki aðeins áhrif til indverskrar tónlistar heldur notar hún einnig óspart indversk hljóð- færi (ásamt indverskum gestahljóðfæraleikurum) til afspilunar á lög- um sínum. Allt þetta og meira til er að finna á frumsmíð hljómsveitarinnar þó ekki séu öll lögin jafn góð eins og við er að búast hjá jafh ungri sveit. Stefnan er góð og bestu lög plötunnar að mínu mati eru: Tattva, Hey Dude, Govinda, Knight of the Town og Grateful When Your Dead/Jerry Was there (þar sem söngvarinn sýnir einstaklega góða rokktakta). Guðjón Bergmann ★★★ Van Morrison, Georgie Fame, Ben Sidran Tell Me Something ★★★★ Það stafar ekki miklum frægðarljóma af nafni banda- ríska píanóleikarans, laga- og textasmiðsins Mose Alli- sons. En hann á þó sinn sess í hjörtum blús- og djass- geggjara víða um heim. Að sögn bresks heimildarmanns er ávallt þétt setinn bekkur- inn og margt hljómlistar- manna þegar kappinn held- ur tónleika í Bretlandi. Það var því kannski ekki seinna vænna að út kæmi hljóm- diskur honum til heiðurs þar í landi. Það hafa þeir nú gert þrir félagar sem aldrei hafa farið leynt með aðdáun sína á Mose, Eng- lendingurinn Georgie Fame, hinn írski Van Morrison og Banda- ríkjamaðurinn Ben Sidran og útkoman er algjör veisla, a.m.k. fyr- ir aðra aðdáendur slíkrar tónlistar. Fame sér um Hammondorgel- ið, Morrison blæs lítið eitt í munnhörpu og Sidran leikur á flygil og söngnum skipta þeir allir með sér. Sá gamli mætir í heimsókn, raular tvo dúetta með Morrison og tekur í píanóið. All£ir upptök- ur eru gerðar „live“ í hljóðverinu eins og oftast er vaninn hjá þessu kompanii og öll lögin eftir Mose. Virðingin fyrir viðfangs- efninu er augljós meðal flytjenda og þeir virðast skemmta sér hið besta. Enda vart annað hægt því að textar Allisons eru launfyndn- ir en um leið knappir og kjamyrtir og lög hans oft með lúmskum krossgötum. Minna svolítið á sum lög Willie Dixons en teygja meira á blúsforminu. Auk framangreindra aðdáenda og sporgöngumanna Allisons koma við sögu á diskinum trompetleikarinn Guy Barker í miklu stuði og hljómar eins og Lee Morgan sálugi í einleiksköflum, Ralph Salmins á trommur, Alec Dankworth á bassa og Pee Wee Ellis á saxófón. (Líklega hafa þeir ekki náð í Sigurð Flosason.) - Sá sem þetta ritar viðurkennir að hann heldur mikið upp á þessa tegund tónlistar og þá listamenn sem hlut eiga að máli og á það eflaust sinn þátt í veglegri stjömugjöf. Ingvi Þór Kormáksson Simply Red - Greatest Hits Gott safn fyrir aðdáendur ★★* Á þessari plötu er að finna brot af því besta sem hljóm- sveitin Simply Red hefúr sent frá sér á ferlinum sem spannar nú tíu ár. Þegar litið er á um- slagið lítur hins vegar frekar út fyrir að hér sé á ferðinni sóló- plata söngvarans Micks Hucknalls. Hann á flest lögin á plötunni og inni í umslaginu er ekki að finna mynd af neinum öðrum. Simply Red hefur líka þróast út í það síðustu árin að verða eins manns sveit og því byggist dómur á svona plötu mikið á því hvort maður fílar Mick Hucknall eða ekki. Undirritaður viðurkennir að ekki hefúr allt verið gott sem frá honum hefúr komið og margt hvert keimlíkt, en á þess- ari plötu kemur breiddin berlega í ljós og ekki verður annað sagt en Hucknall hafi samið margar perlur í gegnum árin, t.d. Holding Back the Years, Moneys to Tight to Mention, Stars, Something Got Me Started o.fl. Einnig eru lög eftir aðra, eins og If You Dont Know Me by Now og Angel (sem hann flytur ásamt Fugees) vel flutt, það fyrra nán- ast sígilt. Á plötunni hefði samt mátt vera meira efiii frá fyrri árum sveitarinnar enda mælir undirritaður eindregið með fyrstu þrem út- gáfunum. Á heildina litið er þetta gott safii fyrir aðdáendur og einnig þá sem vilja kynnast sveitinni eins og hún kemur fyrir. Guðjón Bergmann r Fyrsta plata Faríseanna: Útgáfutónleikar í kvöld Faríseamir eru ein af fjölmörgum lítt þekktmn hljómsveitum sem gefa út plötu fyrir þessi jól. Þrátt fyrir litla vit- neskju um hljómsveitina kannast lík- lega flestir við forsprakka hennar, Davíð Þór Jónsson. DV kannaði málið og komst að því hvað þessi hljómsveit hefur ffam að fáera á nýrri breiðskífu sinni. Upphafið Lagasmiðurinn, téxtahöfúndurinn og söngvarinn Davíð Þór hefur löngum gert grín að söngrödd sinni. Hefur eitt- hvað breyst? „Nei, nei. Ég viðurkenni það fúslega að ég er lélegur söngvari, en á maður að vera að sefja fyrir sig svoleiðis smáatriði þegar maður hefur eitthvað að segja? Ég held ekki. Efiiið á plötunni hefur orðið til af sjálfu sér á síðustu tveim til þremur árum, ekki endilega samið til plötuút- gáfu. Það gerðist hins vegar þegar við Einar S. Guðmundsson byrjuðum að rækta okkar vináttu aftur og fórum að glamra saman á gítarana okkar að hjá okkur fæddist einlægur vilji til að gera eitthvað við þetta efni sem við áttum og þá stofnuðum við þessa hljómsveit. Einar hringdi í stráka sem hann hafði verið að spila með tveimur árum áður, Sævar, Jón Gest og Ragga, og úr urðu Faríseamir." Faríseamir em hins vegar langt frá því að vera fyrsta hljómsveitin sem Davíð Þór Jónsson leggur nafn sitt við. „Árið 1980 var ég fimmtán ára, en þá kom út ísbjamarblús með Bubba Morthens og hann sló í gegn. Upp frá því fór hver einasti maður sem ein- hvem tíma hafði spilað á hljóðfæri í bílskúrshljómsveit. Ég var búinn að vera í mörgum bílskúrshljómsveitum í Hafnarfirði áður en ég byijaði í Kátum piltum." I þessum hijómsveitum spil- aði Davíð aðallega á píanó en hann spilar einnig á gítar. Á sínum tíma spilaði hann líka á blokkflautu þótt hún hafi aldrei komist í hljóðfæraskip- an bílskúrshljómsveitanna. Tréð sem fellur í skóginum... „...býr ekki til neitt hljóð ef enginn heyrir það.“ Davíð segir þetta meginá- stæðuna fyrir útgáfunni. Fyrir mér em lagasmíðar tæki tjáningar og stundum em tilfmningar mínar og hugmyndir ekki skýrar fyrr en þær eru orðnar að lögum og textum. Ég hef einfaldlega mikla þörf fyrir að semja tónlist. Þú getur ort ódauðleg kvæði ofan í skrif- borðsskúffúna þína en ef skrifborðið brennur og enginn hefur séð þau gætu þau alveg eins aldrei hafa verið til.“ Davíð fékk mikið hrós fyrir þýðingu sína á söngleiknum Hárinu og hefúr síðan tekið að sér að semja texta fyrir hljómsveitir eins og Reggae on Ice og SSSÓL. Þessa dagana er hann einnig að semja texta fyrir bamaleikrit. En Davíð segir textana á nýju plötunni vera mun persónulegri en þá sem hann semur fyrir aðra. Á plötunni má líka frnna ýmis yrkisefiii. Ástin, ástarsorg- in, fyllirí, kvennafar, guð, ísland, Fjall- konan og trú em meðal málefiia á plötu Faríseanna. Sálmur og ofstækishæðni „Allt sem mér er hugleikið getur orðið að yrkisefiii,“ segir Davið um þá fjölbreytni sem platan býður upp á í textasmíðum. Tvö dæmi sem undirrit- aður tekur snúast bæði um trú. Davíð segist trúaður maður en bætir við „...eins og Guð skapaði manninn, þá skapaði maðurinn trúarbrögðin...," og viil ekki blanda trúnni og trúarbrögð- unum saman. í laginu Friður sé með yður má hins vegar finna hæðnistón gagnvart trúarbrögðum hér á landi. „I því lagi set ég mig i spor trúarfik- ilsins og læt hann tjá sína skoðun á trúmálum en dreg sérstaklega fram all- ar þær mótsagnir sem mér finnast ein- kenna hans skoðanir til þess að hæðast að viðkomandi. Lagið er sprottið upp úr geðvonsku. Ég var staddur á gatna- ljósum í mikilli umferð og var að hlusta á trúarfíkil sem þennan í Þjóð- arsálinni. Ég slökkti í snarhasti og þeg- ar ég kom heim fimmtán mínútum síð- ar var textinn nánast tilbúinn." Á plötunni er einnig að finna annan tón trúarinnar þar sem Davíð Þór hef- ur samið sálm sem ber nafnið Kyrie. Heldur Davíð að hann verði einhvem tíma fluttur í kirkju? „Það er ekkert sem mælir gegn því, nema fólki finnist eitthvað óguðlegt við rafmagnsgítar. Ef við lítrnn t.d. á sálmana sem við erum að syngja við texta Lúters þá voru þetta popplög síns tíma, drykkjulög sem hann samdi texta við tii að ná til eyrna fleiri manna. Textinn í okkar lagi er byggður upp eins og miskunnarbæn sem er hund- rað ára gamalt bænaform. Þetta er þrí- eind bæn þar sem ég þríeini drottin skaparann, soninn og hinn heilaga anda og bið um miskunn. Síðan er millistefið Kyrie eleison, eða Kristur, miskunna þú oss. Rafmagnsgítar í kirkjuna? Amen.“ Tónleikar í Loftkastalanum Á miðnætti í kvöld halda Farísearn- ir útgáfútónleika sína í Loftkastalan- um. Nýjung er að þeir sem hafa þegar keypt diskinn geta notað hann sem að- göngumiða. Auðvitað viljum við helst spila fyrir þá sem finnst gaman að okk- ar tónlist," segir Davíð. Fyrir hina sem eru forvitnir en hafa ekki fest kaup á diskinum enn kostar aðgöngumiðinn 750 krónur en húsið er opnað klukkan ellefú. Gítarrokk fyrir þenkjandi hlust- endur? Þitt að dæma. -GBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.