Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Síða 7
]D"V FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
helgina *
ÞjóaieMMs
Kennarar óskast
föstudagur kl. 20.00
Nanna systir
sunnudagur kl. 20.00
Hamingjuránið
föstudagur kl. 20.00
Þrek og tár
laugardagur kl. 20.00
Kardemommubærinn
sunnudagur kl. 14.00
Leitt að hún skyldi vera
skækja sminudagur kl. 20.30
í hvítu myrkri
föstudagur kl. 20.30
laugardagur kl. 20.30
Borgarleikhúsið
Stone Free
föstudagur kl. 20.00
Trúðaskólinn
sunnudagur kl. 14.00
Ef ég væri gullfiskur
laugardagur kl. 20.00
Svanurinn
föstudagur kl. 20.00
sunnudagur kl. 20.00
Largo Desolato
laugardagur kl. 20.00
sunnudagur kl. 16.00
Barpar
föstudagur kl. 20.30
laugardagur kl. 20.30
@.mfyr:Hafnarborg
Grísk veisla
föstudagur kl. 20.30
Kaffileikhúsið
Spænsk kvöld
föstudagur kl. 21.00
laugardagur kl. 21.00
sunnudagur kl. 21.00
Skemmtihúsið
Ormstunga
föstudagur kl. 20.30
sunnudagur kl. 20.30
Hermóður og Háðvör
Birtingur
föstudagur kl. 20.00
laugardagur kl. 20.00
Leikfélag Akureyrar
Sigrún Ástrós
laugardagur kl. 20.30
Dýrin í Hálsaskógi
laugardagur kl. 14.00
sunnudagur kl. 14.00 og 17.00
Ég bið að heilsa
laugardagur kl. 17.15
Loftkastalinn
Á sama tíma að ári
föstudagur kl. 20.00
laugardagur kl. 20.00
Sirkús Skara skrípó
laugardagur kl. 15.00
íslenska óperan
Master Class
föstudagur kl.20.00
Höfðaborgin
Safnarinn
sunnudagur kl. 20.30
Rúi og stúi
1
■—WiMiM
Rangárvellir:
Heimur Guðríðar
í Oddakirkju á Rangárvöllum
verður á sunnudaginn sýnt leik-
ritið Heimur Guðríðar - síðasta
heimsókn Guöríðar Simonar-
dóttur í kirkju Hallgríms.
Leikritið hefur nú verið sýnt í
á annað ár í fjölmörgum kirkj-
um víða um land en upphaílega
var ætlunin að sýna það tvisvar.
Sýningunni hefur alls staðar
verið vel tekið og gagnrýnendur
hafa farið um hana lofsamlegum
orðum. Á áhrifamikinn hátt er
rakin ævi- og píslarsaga Guðríð-
ar Símonardóttur sem var ein-
stök fyrir margar sakir en lík-
lega frægust fyrir að hafa verið
rænt í Tyrkjaráninu 1627 og að
vera ástin í lífí Passíusálma-
skáldsins Hallgríms Pétursson-
ar.
Með helstu hlutverk fara Mar-
grét Guðmundsdóttir, Helga El-
ínborg Jónsdóttir og Þröstur Leó
Gunnarsson. Leikstjóri er Stein-
unn Jóhannesdóttir.
Sýningin hefst kl. 21.00 og er
aðgangseyrir 1.000 krónur. -ilk
Stöðlakot
Vatnslitamyndir Gunnlaugs Scheving
Á morgun verður
opnuð í Stöðlakoti
við Bókhlöðustíg
sýning á vatnslita-
myndum eftir
Gunnlaug Scheving
en hann var einn af
fremstu listmálur-
um okkar á þessari
öld. Verk þessi eru
öll úr einkasafni dr.
Gunnlaugs Þórðar-
sonar og hafa ekki
verið sýnd áður. Nú
í ár eru liðin sjötíu
ár frá fyrstu sýn-
ingu Gunnlaugs
Scheving hér í borg
en myndirnar sem
sýndar verða í
Stöðlakoti voru flestar málaðar á
fyrstu árum listferils hans, árunum
1933 til 1943.
Hús og úfið haf (frá Grindavík).
Gunnlaugur Scheving fæddist
árið 1904 og lést árið 1972. Hann
lærði hjá Guðmundi Thorsteinssyni
listmálara og
Einari Jónssyni
myndhöggvara
en hélt svo til
Danmerkur og
fór þar í teikni-
skóla og Kon-
unglega Lista-
háskólann.
Verk eftir
Gunnlaug eru
m.a. í Listasafni
íslands, ýmsum
virtustu lista-
stofnunum
Norðurlanda,
Colby College
Art Museum i
Maine í Banda-
ríkjunum og í
opinberum byggingum í Reykjavík.
Sýningin verður opin daglega frá
M iann+iii7nn -ilk
Gerðuberg:
Sjónþing
Guðrúnar Kristiánsdóttur
Guðrún Kristjánsdóttir er vönduð og sjálfstæð listakona.
Sjöunda og síðasta Sjónþing
ársins fer fram í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi á sunnudag-
inn. Þá mun Guðrún Kristjáns-
dóttir sitja fyrir svörum og rekja
feril sinn í máli og myndum.
Likt og áður verða eldri verk eft-
ir listamanninn til sýnis á fyrstu
og annarri hæð Gerðubergs.
Strax að Sjónþingi loknu verður
svo opnuð sýning á nýjum verk-
um Guðrúnar á Sjónarhóli,
Hverfisgötu 12. Spyrlar að þessu
sinni verða Guðbjörg Lind Jóns-
dóttir myndlistarmaður og
Eyjólfur Kjalar Emilsson, heim-
spekingur. Báðar sýningarnar
standa fram til 15. desember.
Sjónþingið hefst kl. 17.00 og
eru áhorfendur hvattir til að
mæta stundvíslega til að tryggja
sér sæti. Aðgangseyrir er 300
krónur.
-ilk
Garðaskóli á afmæli
Garðaskóli í Garðabæ er orðinn 30
ára gamall. Afmælisveislan er
búin að standa nokkra daga og
ýmsar uppákomur hafa einkennt
skólastarfíð. í vikunni hefur hluti
af kennslunni farið fram í miðbæ
Garðabæjar á Garðatorgi og
þannig hefur bæjarbúum gefist
kostur á að sjá hvernig fróðleikn-
um er miðlað til unga fólksins.
Þessar fjallmyndarlegu náms-
meyjar voru í leikfimitíma á
Garðatorgi í vikunni.
DV-mynd BG
Á morgun býður skólinn fyrr-
verandi nemendum og bæjarbúum
í heimsókn á milli kl. 13.00 og 16.00
í þeim tilgangi að endurnýja göm-
ul kynni og kynna skólastarfið
enn frekar. Gamlir nemendur
munu flytja ávörp og ýmsir tón-
listarmenn troða upp. Boðið verð-
ur upp á veitingar og eru allir vel-
komnir.
-ilk
Síðastasýningar-
helgi Önnu Jóa
Nú fer hver að verða síðastur
að sjá sýningu Önnu Jóa á mál-
verkum og teikningum í listhúsi
Höfðaborgarinnar í Hafnarhús-
inu við Tryggvagötu. Sýningin
er opin daglega frá klukkan 14.00
til 18.00. -ilk
„Ég bið að heilsa"
- hátíðardagskrá í Samkomuhúsinu
Leikfélag Akureyrar og Tónlistarskólinn í bænum
hafa tekið höndum saman um undirbúning hátiðar-
dagskrár sem flutt verður í Samkomuhúsi bæjarins
nk. laugardag kl. 17.15. Dagur íslenskrar tungu verður
haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn þann dag en 16. nóv-
ember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar
skálds.
Dagskráin í Samkomuhúsinu á Akui'eyri hefur hlot-
ið yfírskriftina „Ég bið að heilsa". Þar er um að ræða
tilvísun í alkunna sonnettu Jónasar Hallgrímssonar en
efiii dagskrárinnar verður að meginhluta eftir hann,
ljóðaperlur hans og náttúrulýsingar. „Yfirskriftin er
valin þar sem dagskráin er hugsuð sem kveðja Jónas-
ar til okkar nútímamanna sem enn fáum að njóta
á Akureyri á Degi íslenskrar tungu
þeirra dýrgripa sem hann skapaði,“ segir í fréttatil-
kynningu Leikfélags Akureyrar.
Leikaramir Amar Jónsson, Marta Nordal og Þráinn
Karlsson flytja ljóð og laust mál á sviði Samkomuhúss-
ins og Trausti Ólafsson leikhússtjóri, sem hefur um-
sjón með dagskránni, kemur einnig fram.
Auk ljóðalesturs og flutnings á lausu máli verður
gesfiim boðið að hlusta á nýjar útsetningar Guðmund-
ar Óla Gunnarssonar á lögum við ljóð Jónasar. Útsetn-
ingamar era fyrir strengjakvartett og það era félagar
úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem leika. Kvar-
tettinn skipa Anna Podhajska, Gréta Baldursdóttir,
Guðrún Þórarinsdóttir og Stefán Öm Amarson.
-gk
I SÝNINGAR
Ari í Ögri, Ingólfsstrœti 3. Kitta
sýnir gifsgrímur á veggjum Ara í Ögri.
Eden, Hveragerði. Gunnar Guðjóns-
son sýnir landslags- og fantasíumyndir
Fangelsið, Síðumúla 28.16. nóvem-
ber verður opnuð samsýning 16 mynd-
listarmanna í fangelsinu. Opið frá
16-20 virka daga en 14-18 um helgar.
Aðgangseyrir 200 kr.
Fríkirkjuvegur 11. Um helgina sýnir
! Ketill Larsen 100 olíu- og akrýlmyndir.
f Opið frá kl. 14-22 alla helgina.
S Gallerí Birgir Andrésson, Vestur-
götu 20. Gunnar M. Andrésson sýnir
| ný verk. Opið kl. 14-18 á fimmtudög-
um en aðra daga eftir samkomulagi.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg. Harald-
ur (Harry) Bilson er með málverkasýn-
| ingu sem hann nefnir ,.Æ\intýri an-
| dans“. Opið daglega frá kl. 10-17 og
' sunnudaga frá kl. 14-17.
Gallerí Greip, Hverfisgötu 87.130
t; manns, eða allir þeir sem hafa sýnt í
I galleríinu, sýna nú um helgina. Opið
| frá 14-18.
j Gallerí, Ingólfsstræti 8. Sýning
; listamannsins Pekka Niskanens.
Gallerí Höfðaborg, Hafnarhúsinu.
i Síðasta sýningarhelgi Önnu Jóa á mál-
| verkum og teikningum.
ý Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15.
j Benedikt Kristþórsson er með sýningu
sem ber yfirskriftina „Kyrralífsteikn-
ý ingar“. Síðasta sýningarhelgi.
Gallerí Jörð, Reykjavíkurvegi 66,
Hafitarfirði. Sigurbjöm Ó. Kristins-
1 son sýnir tússteikningar. Sýningin
í verður opin mánud.-föstud. kl. 11-18
og laugard. kl. 12-16.
Gallerí List, Skipholti 50b. Guðrún
Indriðadóttir leirlistakona listamaður
8 mánaðarins. Galleríið er opið frá kl.
11-18 alla virka daga og frá kl. 11-14
1 á laugardögum.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70.
! Sýning Margrétar Guðmundsdóttur
„Haustsýning". Opið virka daga frá kl.
; 12-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Gallerí Míró, Fákafeni 9. Ingó er
I® með einkasýningu á ljósmyndum. Opið
á verslunartíma.
Gallerí Regnbogans, Hverfisgötu
54. Sýning á verkum Astu Sigurðar-
dóttur.
Gallerí Smíðar & skart, Skóla-
vörðustíg 16a. Nú stendur yfir kynn-
ing á speglum Kristínar Þóru Guð-
bjartsdóttur.
Gallerí Sýnirými. f Sýniboxi: Ragna
Hermannsdóttir. I Barmi: Karl Jóhann
Jónsson, berandi er Frímann Andrés-
son, útfararþjónustumaður og plötu-
snúður. í Hlust: Hljómsveit Kristjáns
Hreinssonar og hundurinn Gutti.
Gallerí Sævars Karls. Ivar Török er
með verk sín til sýnis. Galleríið er opið
frá ki. 10-18 virka daga.
Gerðuberg. Sjónþing Guðrúnar Krist-
jánsdóttur verður á sunnudaginn. Að-
gangseyrir 300 kr.
Gallerí Úmbra, Amtmannsstíg 1.
Sýning myndlistarkonunnar Sari
Ttervaniemi. Opið þriöjudaga til laug-
ardaga frá kl. 13-18 og sunnudaga frá
14-18.
Hlaðvarpinn, Vesturgötu 3. Ragna
Róbertsdóttir myndlistarkona er með
sýninguna „Tehús“. Opin á laugardög-
um milli 14 og 17.
Höfðaborgin, Hafnarhúsinu
;| v/Tryggvagötu. Anna Jóa stendur
jj fyrir málverkasýningu í Höfðaborg-
J inni. Opið daglega kl. 14-18 til 24.
| nóvember.
Jómfrúin, Lækjargötu 4. Dilli sýnir .
í „portrett-myndir". Sýningin stendur til
| 21. nóvember. Opið frá kl. 11-19.
Kaffi Mflanó, Faxafeni 11. Alda Ár-
| manna Sveinsdóttir heldur sýningu á
I verkum sínu. Sýningin stendur yfir í
I nóvember og desember.
Kjarvalsstaðir. Nú stendur yfir sýn-
| ing á málverkum og skúlptúrum
Matta. Opin daglega frá kl. 10-18.
Kjarvalsstaðir, austursalur. Sýning
J á verkum Jóhannesar Kjarvals.
Listasafti Akureyrar. Sýning Þor-
| valds Þorsteinssonar, Eilíft líf. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 14-18. ,
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7.
I Sýning á verkum Asgríms Jónssonar
" stendur yfir í Listasafni íslands.
Listasafn Kópavogs. Laugardaginn
16. nóvember kl. 15 verður opnuð í
| austursal 70 ára afmælissýning Ljós-
; myndarafélags íslands.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
í Laugarnesi. I Listasafni Siguijóns
l stendur yfir sýning á völdum verkum
:: hans. Opið er laugardaga og sunnu-
| daga milli kl. 14 og 17.
Listgallerí. Guðrún Lára Halldórs-
| dóttir kynnir verk sín, en hún vinnur
: ýmist með vatns- eða olíulitum.
: Listhús 39, Strandgötu 39, Hafnar-
firði. Sigríður Ágústsdóttir sýnir |
1 handmótaða reykbrennda leirvasa. i
' Listhúsið í Laugardal, Engjateigi
I 17. Þar stendur yfir myndlistarsýning
| á verkum eftir Sjöfh Har. Opið virka
| daga kl. 13-18 og l.d kl. 11-14.
: Listmunagalleríið Skruggusteinn,
Hamraborg 20a, Kópavogi. Dósla
j opnar sýningu sína 16. nóvember kl.
15. Opið daglega frá 12-18, laugar-
; daga frá 11-16 og s.d frá 13-18.
Mokkakaffi. Jón M. Baldvinsson list-
| málari sýnir til 5. desember.
; Norræna húsið. í andyri stendur yfir
I sýning á leirverkum eftir finnska lista-
manninn Roger Westerholm.
S Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b. Stein-
grímur Eyfjörö og Margrét Sveinsdótt-
ir, tvær einkasýningar í forsal safns-
I ins. Opið daglega frá kl. 14-18. í
j Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6. Vatns-
g litamyndir eftir Gunnlaug Scheving
| úr einkasafni dr. Gunnlaugs Þórðars-
f sonar. Opið alla daga nema mánudaga
Í kl. 14-17 og lýkur 1. des.