Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1996, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1996, Side 1
MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1996 25 IÞROTTIR Getraunir: Enski boltinn xxx 22x x22 2111 Lottó 5/38: 1 491338(24) Haraldur með góðan leik Haraldur Ingólfsson átti góðan leik með Aberdeen i skosku úr- valsdeildinni í knattspyrnunni um helgina er liðið sigraði Hi- bernian á heimavelli sínum, 1-0. Haraldur þótti standa sig vel í leiknum en hann var í byrjunar- liði Aberdeen í fyrsta skipti. Hann fékk tvö góð marktækifæri og átti skot sem smaug í stöng- ina. Á 60. mínútu var Haraldi síðan skipt út af en þá var stað- an 1-0 fyrir Aberdeen. Sjá umfjöllun um skosku knattspyrnuna á bls. 30. -SE Eyjólfur rek- inn í sturtu Eyjólfúr Sverrisson kom nokkuð við sögu í 1. deild þýsku knattspyrnunnar um helgina er lið hans, Hertha Berlín, sigraði lið Stuttgarter, Kickers, 2-1. Eyjólfur fékk að líta gula spjaldið hjá dómara leiksins. Það var síðan tíu mínútum fyrir leikslok að Eyjólfur fékk rauða spjaldið og varð að yfirgefa völl- inn. Kaiserslautem er efst í 1. deildinni með 30 stig en Hertha kemur næst með 25 stig. Mannheim, lið Bjarka Gunn- laugssonar, sigraði efsta liðið, Kaiserslautem, um helgina, 2-0. Bjarki átti góöan leik en tókst ekki að skora að þessu sinni. Mannheim er sem fyrr í 14. sæti deildarinnar með 17 stig. Lið Helga Sigurðssonar, Tebe Berlín, gerði um helgina marka- laust í 3. deildinni og er í 7. sæti deildarinnar með 23 stig. -SK Glíma: Þingeyingar í fyrsta sæti Þingeyingar náðu um helgina forystunni í stigakeppni Lands- glímunnar. Annað mótið af fjórum fór fram á Húnavöllum um helgina. Amgeir Friðriksson, HSÞ, sigr- aði I flokki fullorðinna. Ingibergur Sigurðsson, Vík- verja, varð annar og Helgi Bjamason, KR, þriðji. Þess má geta að Orri Bjömsson, KR, varð að hætta keppni vegna meiðsla sem hann varö fyrir. HSÞ er nú efst í stigakeppn- inni meö 14 stig en KR kemur næst meö 12 stig. Ólafur Kristjánsson, HSÞ, vann með nokkrum yfirburðum í unglingaflokki og þingeysku unglingamir hafa örugga for- ystu. -SK Enski boltinn: Arsenal í annað sæti Arsenal skaust í gær í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspymu með því að sigra Tottenham í Lundúnaslagmnn, 3-1. Arsenal er með jafnmörg stig og Newcastle en markatala Newcastle er betri. Sjá allt um ensku knatt- spymuna á bls. 30. -SK „Stefnan sett á titilinn“ - Herbert Arnarsyni gengur allt í haginn í hollenska körfuboltanum Herbert Amarsyni landsliðs- manni og félögum hans í hollenska liðinu Donar frá Groningen gengur allt í haginn í 1. deildinni þar í landi um þessar mundir, Liðið hefúr unnið hvem leikinn af fætur öðrum og er komið í þriðja sæti. Um helgina sigraði liðið Voor- burg, 72-86, og skoraði Herbert 8 stig og lék í 35 minútur. Hann var ánægður með frammistöðu sína og lætur vel af veru sinni hjá félaginu. Herbert er búinn að leika sjö leiki með liðinu síðan hann gerði Scimn- ing sem gildir út þetta tímabili. „Við erum búnir að tapa einum leik síðan ég kom til félagsins. Þjálf- arinn hefur sýnt mér mikið traust en ég er að leika að jafnaði um 37 mínútur í leik. Ég vissi ekki hvert hlutverk mitt yrði hjá liðinu áður en ég fór utan en ég fór strax í byrj- unarliðið. Það kom mér mikið á óvart. Það hafa margir af bestu leik- mönnum Hollands farið til Þýska- lands og Belgíu síðan úrskurðurinn í Bosman-málinu féll. Meginástæð- an fyrir því að ég fór til Donar var að nokkrir leikmenn duttu úr leik vegna meiðsla. Reglur í hollenska körfuboltanum leyfa 3 Bandaríkja- menn í hverju liði og það nýtir Don- ar sér til fulls. Meginmuniu-inn á hollenska körfuboltanum og þeim bolta sem leikinn er á íslandi liggur í stærri leikmönnum og sterkari sem leika hér. Þjálfarinn leggur mest upp úr því að boltanum sé komið inn á stóru leikmennina og í æ ríkari mæli keynnn við nú orðið mikið á hraðaupphlaupum," sagði Herbert í samtali við DV. Herbert segist hafa náð sér vel á strik og er kominn í toppform. Hann hefur í fjórum leikjum verið að skora upp undir 20 stig í leik. „Það er mat okkar hér hjá Donar að við eigum mannskap til að verða meistarar. Deildin er skipt hvað styrkleika varðar en átta lið eru sterk en fjögur þó nokkuð lakari. Við eigum tvo leiki inni á neðstu liðin þannig að dæmið lítur vel út á næstunni. Þjálfarinn hefúr ákveöið að æfa ekkert um jólin og þess í stað verður leikmönnum gefið tveggja vikna jólafrí. Ég kem heim 22. des- ember en fer síðan út aftur 7. janú- ar. Það er gaman að geta einbeitt sér eingöngu að körfuboltanum," sagði Herbert Amarson í samtalinu við DV. -JKS HM í golfi: S-Afríka meistari Kylfingamir Emie Els og Wayne Westner tryggðu S-Afríku heims- meistaratitilinn í golfi tveggja manna landsliða í gær. Els lék á 272 högg- inn en Westner á 275 höggum, samtals 547 höggum. Bandaríkin urðu í öðra sæti á 565 höggum. Tom Lehman lék á 283 höggum og Steve Jones á 282 höggum. Skotar urðu þriðju á 566 höggiun. Rangers deildameistari Glasgow Rangers varð í gær skoskur deildameistari í knattspyrnu er liðið sigraði Hearts í úrslitaleik, 4-3. Þessi lið mættust einnig í úrslitaleik í fyrra en þá sigraði Hearts. Rangers komst í 2-0 með mörkum frá Ally McCoist. Þeir Fulton og Ro- bertson jöfiiuðu fyrir Hearts en síðan komu tvö mörk frá Paul Gascoigne. Weir minnkaði svo muninn fyrir Hearts á lokamínútu leiksins. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.