Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Blaðsíða 18
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 33"V i8 %enning Fegurð á 20. öldinni Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói í gærkvöldi voru leikin þrjú verk, öll eftir viöurkennd stórmenni tónlist- arsögunnar. Þama hljómaöi Harmaforleikur op. 81 eftir Johannes Brahms, þá fiðlukonsert op. 15 eftir Benjamin Britten og loks sjöunda sinfónía Beethovens. Einleikari í konsertin- um var konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar íslands, Guðný Guðmundsdóttir, og stjóm- andi var Sidney Harth frá Bandaríkjunum. Tónlist Sigfríður Björnsdóttír Hljómsveit og hljómsveitarstjóri náðu ekki vel saman í þessum þekkta forleik Brahms. Verkið er vel samið, sterk flétta kannski ekki mjög frumlegra en traustra tónhugmynda. Vel var haldið áfram við flutninginn, en dýpt og vídd skorti í túlkunina á stórum köflum. Samtaka vora menn ekki alltaf og hljóðfæra- leikur jafnvel áberandi óhreinn á stöku stað, t.d. hjá sellóum og lágfiðlum. Ekki þurfti undan neinu slíku að kvarta í næsta verki, fiðlukonserti Brittens. Þvert á móti! Hljómsveitin lék vel. Alvaran og ein- beitnin sem einkenndi leikinn skilaði sér vel út í salinn og fékk menn til að hlusta með sama hugarfari. Allir virtust standa saman um að gera þennan fmmflutning verksins hér Guöný Guðmundsdóttir konsertmeistari: Hrein fegurö hæf- ir henni vel. á landi sem eftirminnilegastan. í stærstu hlutverki var auðvitað Guðný Guðmundsdóttir. Hin hreina fegurð verks- ins, þetta dásamlega frelsi frá tilfinningasem- inni án þess að rómantíkinni sé fómað, virt- ist hæfa Guðnýju vel. Einleikshlutverkið er mjög krefjandi og komst Guðný vel frá öllu. Bestar vom þó langar svifháar strófúr við hinn sérstaka undirleik hljómsveitarinnar svo sem í fyrsta kafla þar sem strengir syngja undir fiðluna og sneriltromma kemur inn. Og ekki var síðra samspil einleikarans og blásara í öðrum kafla. Konsertinn geymir reyndar mörg slík ómetanleg augnablik, verk sem býr yfir sér- stæðri og seiðandi fegurð. Hljómsveitarstjór- inn Sidney Harth leiddi þá sem í salnum vom af öryggi gegnum verkið, tryggði ein- leikaranum ávallt bestu mögulegu skilyrði og mótaði faflega. Þannig var t.d. aðfari nið- urlags annars kafla mjög vel unninn, svo eitt- hvað sé nefnt. Sidney Harth lét þó fyrst verulega til sín taka þegar kom að síðasta verkinu á dagskrá kvöldsins, þeirri sjöundu. Það þarf þó nokk- uð til að fá áheyrendur til að standa og hrópa og stappa í fögnuði sínum eftir flutning á jafh gjörþekktu verki og þessi sinfónía er. En það tókst stjómandanum. Þokkinn og mýktin sem gerði þennan flutning svo góðan og svo eldurinn, í raun hálfgerður eldsvoði, í síðasta kaflanum ærði fjöldann. Harth var þakkað ákaflega og þannig lauk þessum ágætu tón- leikum. Þrír kórar Jólin em timi mikillar hljómdiskaútgáfu eins og kunnugt er. Þótt ef til vill sé of mikið að tala um flóð má áreiðanlega segja að hljómdiskastraumur gangi yfir þjóðina um þessar mundir. Nú hafa okkur borist þrír nýir íslenskir hljómdiskar með kórtónlist. Hamrahlíðar- kórinn, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdótiur, syngur á diski sem nefnist Islenskir jólasöngvar og Maríukvæði. Karlakór Reykjavíkur er á hljómdiski sem nefnist ís- lands lag, stjómandi er Friðrik S. Kristinsson. Þá syngur Karlakór Keflavíkur á diski sem nefnist Suður- nesjamenn. Stjómandi hans er Vil- berg Viggósson. Með hljómdiski Hamrahlíðarkórs- ins fylgir bæklingur þar sem m.a. er að finna ágæta ritgerð eftir Hrafn Sveinbjarnarson um jólasöng á íslandi. Efnisvalið á disknum er athyglisvert. Er þar sótt aftur í aldir og byrjað á Þorlákstíðum. Þá eru allmörg lög úr ritum þeim sem Guðbrandur Hólabiskup lét prenta; Sálmabókinni 1589 og Grallaranum. Því næst fikrast lagavalið fram eftir öldum og til okkar tima. Er þama að finna Maríukvæði og jólalög eftir Þorkel Sig- urbjömsson, Atla Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Jón Þórarinsson, Hróðmar I. Sigurbjömsson, Jónmni Viðar og Sigvalda Kaldalóns. Má segja að á diski þessum sé óvenjulega skemmtileg kennslustund í íslenskri tónlistarsögu auk þess sem tón- listin frá listrænu sjónarmiöi er fyrsta flokks. Flutning- ur Hamrahlíðarkórsins, undir stjóm Þorgerðar Ingólfs- dóttur, er með ágætum. Sama er að segja um upptöku og tæknivinnu þótt fyrir smekk undirritaðs sé eftirómur í upptökunni fullmikill. Að sama skapi sem efnisval Hamrahlíðarkórsins er ferskt verður vart annað sagt en að lagavalið á hljóm- diski Karlakórs Reykjavíkur sé eins venjulegt og hugsast getur. Obbinn af lögunum hefur tilheyrt föstum liðum í verkefnavali íslenskra karlakóra svo lengi sem munað verður. Hins vegar verður ekki mikið fundið að söng kórsins á þessum diski. Margir góðir raddmenn fyfla rað- ir hans og er hljómurinn fallegur, túlkun laganna skýr og væmnislaus og blæbrigði í lit og styrk koma vel fram. Allt em þetta mikilvæg einkenni á góðum karlakórs- söng. Ef til vill má líta á þetta sem endanlega og varanlega afgreiðslu á hinum gömlu karlakórslögum og megi nú leggja þau til hliðar um hríð. Þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristinn Sigmundsson og Sigurður Haukur Gíslason eiga ágætt framlag á diskn- um ásamt píanóleikurunum Önnu Guðnýju Guðmunds- dóttur og Jónasi Ingimundarsyni. Karlakór Reykjavíkur hefur lítt verið gefinn fyrir að skipta um stjómendur. Fyrsti stjórnandinn starfaði í 36 ár, sá næsti í 26 ár. Núverandi stjómandi, Friðrik S. Kristinsson, hefur starfað i sex ár og gæti því átt tuttugu ár eða þrjátíu eftir. Er það vel þvi kórinn blómstrar und- ir stjórn hans, en verður vonandi nýjungagjamari í verk- efnavali í framtíðinni. Hann virðist hafa burði til þess að takast á við nánast hvað sem er. Karlakór Keflavíkur státar ekki af stærð og starfs- aldri á við Karlakór Reykjavíkur. Viðfangsefnin era einnig alþýðlegri og sum með dægurlagakeim, sem vel getur stuðlað að vinsældum svona disks. í flestum lög- unum er píanóundirleikur, sem Ágota Joó leysir vel af hendi, og stundum koma fleiri hljóðfæri við sögu. Stjómandinn, Vilberg Viggósson, hefúr starfað meö kómum undanfarin þrjú ár og er þetta fyrsti geisladisk- urinn sem kórinn gefúr út með söng sínum. Það er lofs- Hljómplötur Hnnur Torfi Stefánsson Þorgerður Ingólfsdóttir: Ferskt efn- isval. vert framtak. Hafi kórinn og stjórn- andinn svipað úthald og kollegar þeirra í Reykjavík munu þeir ná langt er tímar líða. Hamrahlíðarkórinn; íslenskir jóla- söngvar og Maríukvæði, stjórn- andi Þorgerður Ingólfsdóttir, ein- söngvarar Hallveig Rúnarsdóttir og Olafur Rúnarsson. Karlakór Reykjavíkur; íslands lag, stjórnandi Friðrik S. Kristinsson, einsöngvarar Sigrún Hjálmtýsdótt- ir og Kristinn Sigmundsson. Karlakór Keflavíkur; Suðurnesja- menn, stjórnandi Vilberg Viggós- son, undirleikur á píanó Ágota Joó. Vaskur grís Margrét Vilhjálmsdóttir leik- kona hefur lesið inn á snældu söguna um Vaska grísinn Badda eftir Dick King-Smith. Dóra Hvanndal þýddi söguna sem vinsæl kvikmynd hefur einnig verið gerð eftir. Jón Ólafsson gerði tónlist á snæld- una en Jóhann Sigurðarson leikstýrði Margréti Hljóðsetning gefúr út. Smásögur Hljóðsetning gefur einnig út fimm þýddar smásögur á geisla- diski sem heitir einfaldlega Smásögur. Þar les Amar Jóns- son sögu eftir Strindberg, Jó- hann Sigurðar- son smásögu eftir Ingvar Orre, Ragn- heiður Stein- dórsdóttir sögu eftir Vla- dimir Nabokov, Öm Áma- son sögu eftir John O’Hara og Erlingur Gíslason sögu eftir Heinrich Böll. Útgefendur vilja með þessu veita hlustendum innsýn í fjöl- skrúðugan heim erlenda smá- sagna, því sögumar era ólikar og frá ýmsum tímum. Úr höll birtunnar Kristinn Kristjánsson eða Diddi í Bárðarbúð eins og vinir hans kalla hann var að gefa út sina fyrstu ljóðabók, rúmlega sjötugur að aldri. Þó hefur hann lengi fengist við ritstörf og haft viðumefnið Skáldið á Heflissandi. Bók Krist- ins heitir Úr höll birtunn- ar og geymir 44 Ijóð sem mörg eru ort á síðustu árum. Við- fangsefnin era fjölbreytt en snerta þó flest líf og tilvera í grennd við Snæfellsjökul og goðmögn hans: Handan við hafdjúpin blá úr heiðríkju jökullinn rís skínandi bjartur og skær skartar um miðsumarsnótt. Lýsir á leiðimar enn langt inn i ókomna tíð ber sér í fangi bemskuvor brimhljóð frá mannlífsröst. Bjöm Roth myndlistarmaður hefur hannað bókina og gert hana einstaklega vel úr garði og bókaútgáfan Pöpull á Helln- um gefúr hana út í litlu upp- lagi. Hún fæst í helstu bókabúð- um og hjá höfúndi. Hugfróar leitað hjá náttúrunni Mörg Ijóðanna í fjórðu ljóða- bók Jónasar Þorbjamarsonar, Villilandi, eru rabbkenndar hugleiðingar og í þeim gætir ferskrar sýnar og allt að því bamslegrar undrunar þess sem lætur ekki vana eða við- teknar hugmyndir sljóvga skynjunina. Ljóðmælandi er persóna í nær öllum ljóðunum og verður hans eigið sjálf stundum nokkuð fyrirferðar- mikið. Talsvert er um beinar lýsingar hans á eigin högum, og á viðbrögöum við því sem fyrir hann ber, sem sumar hveijar virka ekki mjög skáld- legar. Eftirfarandi línur era úr ólíkum ljóðum: ,já setur að mér nokkur ónot“, „ég fæ snert/ af menningarsjokki...“, „ég sýp hveljur", „ég verð strax dálítið ringlaður“. Lífsafstaða ljóðmælanda einnkennist af Jónas Þorbjarnarson Bókmenntir Kristján Þórður Hrafnsson nægjusemi og æðruleysi og er áhugaverð en rabbkenndur og kumpánlegur stíll á þátt í því að stundum virkar sjálfsskoð- un hans ögn makindaleg. Áhrifamestu kaflar bókar- innar era þeir þar sem hinn rabbkenndi tónn víkur fyrir öðram sárari, meiri hnitmið- unar gætir og vísað er til til- finningalegrar reynslu. Jónas víkur á eftirminnilegan hátt aö sjálfsvígum en eins og hann minnir á eru „ljóðskáld talin veik fyrir slíku - / árátt- an að stytta, stroka út“. í ljóði um Verðandi-mennina ávarp- ar hann Bertel E. Ó. Þorleifs- son sem drukknaði í Kaup- mannahöfn: „Gastu ekki hinkrað ögn við/ á bakkanum (eins og ég) - bölvað lífinu svolítið lengur/ nokkur ljóð í viðbót, já þú . . .“ Dæmi um ljóð þar sem skáldgáfa Jónasar nýt- ur sín mjög vel er „Hafsjór" sem byggist á heild- stæðu en um leið margslungnu myndmáli er sýn- ir hafið sem bók - bókina sem ljóðmælandi myndi taka með sér á eyðiey - himininn sem grúskara og tunglið sem leslampa. Eftirfarandi línur era úr þessu ljóði: . .. því þegar ég er verulega einn finnst mér um að gera að lesa eitthvað mjög stórt í sér og djúpt: alltaf þegar mér líður eins og á eyðiey norður í hafi þá þakka ég fyrir að vera þó með réttu bókina ... Löngun eftir að finna hugarhægð hjá náttúra- öflunum er sterk í þessu verki og víða er eins og ljóðmælandi vilji gleyma mannlifinu og jafnvel sjálfúm sér í tilfinningalegri einingu við náttúr- una. Jónas Þorbjarnarson: Villiland Forlagið 1996 Á vígaslóð Einar Björgvinsson hefur kannað heimildir um íslendinga sem börðust með nasistum í seinni heims- styrjöldinni og skrifað skáld- sögu um hlut- deild þeirra í þeim hildar- leik sem hann nefn- ir íslend- ingur á víga- slóð. Þetta er spennandi *: stríðssaga þar sem því er meðal i;' axmars lýst hvemig Hamborg r; var lögð í rúst í loftárásum. I' Fjölvi gefur út. Umsjón I | Silja Aðalsteinsdóttír

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.