Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Blaðsíða 17
16
Iþróttir
Kristín Rós íþróttamaður ársins
Kristin Rós Hákonardóttir var í gær útnefnd íþróttamaður ársins 1996 úr
röðum fatlaöra. Hún keppti í fimm sundgreinum á Ólympíumóti fatiaðra í
Atlanta í sumar, sigraöi í þremur þeirra og setti Ólympíu- og heimsmet í
öllum. Kristín Rós er 23 ára gömul og lamaöist vinstra megin þegar hún
var 18 mánaöa og hefur veriö spastísk síöan. DV-mynd BG
SIMALEIKUR
Jólagjafahandbókarinnar
904 1750
Hafðu
jólagjafa-
handbók
sem kom út
4. desember
við höndina
og taktu
þátt í
frábærri
verðlauna-
getraun.
Þú
getur
unnið
þessi
glæsilegu
tæki
hér til
hliðar.
AKAI
SJÖNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
Síðumúla 2 - sími 568 9090
m
iii*
Einar
Farestveit&Cohf.
[kifKinám 2K Ó 562 2WI oe 562 2900
ATV
MMÚLA 38 SM 5631133
SiMATORG
DV
9 0 4 • 1 7 5 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Eyjapeyinn af-
greiddi ÍBV
- HK í 7. sæti eftir
Hlynur Jóhannesson, Eyjapeyinn
í marki HK, átti enn einn stórleik-
inn í gærkvöldi þegar HK lagði
Eyjamenn, 20-19, í hörkuleik í
Digranesi. Hann skákaði þar læri-
fóður sínum, Sigmari Þresti hjá
ÍBV, sem einnig varði oft af snilld í
leiknum.
„Já, ég lærði mest af Sigmari,
hann er sá besti en ég ætla að ná
honum. Þessi sigur er gífurlega mik-
ilvægur fyrir okkur og sýnir best
hvað deildin er jöfn. Við hefðum
verið í fcillsæti með tapi en nú erum
við í 7. sætinu. Það er engin spurn-
ing að nú setjum við stefnuna á að
komast í 8-liða úrslitin. Vömin var
frábær hjá okkur, sérstaklega Jón
Bersi, og áhorfendurnir hérna í
Digranesinu voru stórkostlegir í
kvöld,“ sagði Hlynur við DV eftir
leikinn.
HK (11) 20
ÍBV (11) 19
3-2, 4-5, 6-5, 7-8, 8-10, 10-10, (11-11),
11-13, 14-13,15-15, 18-15, 19-16, 19-18,
20-18, 20-19.
Mörk HK: Sigurður V. Sveinsson
6/3, Hjálmar Vilhjálmsson 4, Már
Þórarinsson 4, Óskar Elvar Óskars-
son 3, Gunnleifur Gunnleifsson 3.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson
20/1.
Mörk ÍBV: Zoltán Belánýi 10/6,
Svavar Vignisson 2, Arnar Pétursson
2, Guðfinnur Kristmaimsson 1, Sig-
urður Friðriksson 1, Haraldur Hann-
esson 1, Daði Pálsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur 17.
Brottvísanir: HK 8 min., fBV 4
mín.
Dómarar: Egill Már og Öm Mark-
ússynir, leyfðu mikla hörku og réðu
ekki nógu vel við hana.
Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Hlynur Jóhann-
esson, HK:
sigur á IBV, 20-19
Leikurinn einkenndist af gífur-
legri baráttu, sterkum varnarleik
beggja liða og frábærri markvörslu.
Það sem skildi á milli var að sigur-
vilji HK-inga var meiri og hann hef-
ur fleytt liðinu, sem spáð var botn-
sæti í deildinni, langt í síðustu leikj-
um. Sóknarleikur Kópavogsliðsins
var mistækur og lykilmennirnir
léku talsvert undir getu. Már Þórar-
insson kom hins vegar skemmtilega
á óvart.
Eyjamenn virtust ekki vera lentir
eftir risasigurinn á KAá dögunum
og þeir létu vöm HK og Hlyn slá sig
út af laginu. Línumaðurinn Svavar
Vignisson var sá eini sem náöi sér á
strik í sókninni, skoraði tvö mörk
og fiskaði þrjú vítaköst. Vömin og
Sigmar voru í góðu lagi en það var
ekki nóg. -VS
Grótta (16) 26
KA (12) 30
l-0„ 3-1, 64, 8-7, 10-8, 13-11, (16-12).
17-13, 17-15, 16-16, 23-20, 24-24, 26-26,
26-30.
Mörk Gróttu: Jens Gunnarsson 6,
Róbert Rafnsson 6, Guöjón Sigurðs-
son 5, Hafsteinn Guðmundsson 3,
Juri Sadovski 3, Jón Kristinsson 3.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson
10.
Mörk KA: Róbert Duranona 8/4,
Heiðmar Felixsson 4, Leó Öm Þor-
leifsson 3, Halldór Sigfússon 3, Sverr-
ir Björnsson 3, Sergei Siza 3, Jóhann
G. Jóhannsson 2, Jakob Jónsson 2,
Sævar Ámason 1, Alfreð Gíslason 1.
Varin skot: Guðmundur A. Jóns-
son 2, Hermann Karlsson 4.
Brottvlsanir: Grótta 2 mín., KA 4.
min.
Dómarar: Bjarni Viggósson og
Valgeir Ómarsson, þokkalegir.
Maöur leiksins: Heiðmar Felix-
son, KA.
Olafur til East Fife
Ólafur Stígsson, knattspymumaður úr Fylki og 21-árs landsliðinu, fór
í gær til Skotlands þar sem hann verður til reynslu hjá 1. deildar liðinu
East Fife. Ólafur var fyrir skömmu hjá St. Mirren í sömu deild og áhugi
East Fife kom í framhaldi af því.
„Ég reikna með því að spila þrjá leiki, jafnvel með aðalliðinu, og síðan
kemur framhaldið í ljós. Ef allt fer að óskum leik ég með liðinu til
vorsins en ég verð með Fylki næsta sumar að öllu óbreyttu," sagði Ólafur
við DV í gærkvöldi.
East Fife hefur gengið illa í vetur og er neðst í 1. deild, sex stigum á
eftir Stirling Albion, sem Sandgerðingurinn Grétar Hjartarson leikur
með, en á þó þrjá leiki til góða á hin liðin. -VS
Aberdeen í annað sætið
Aberdeen gerði góða ferð til Edin-
borgar i gærkvöld þegar liðið sigr-
aði Hearts á Tyncastle Road, 1-2, í
skosku úrvalsdeildinni. Það vom
þeir Duncan Shearer og Dean
Wandass sem skoraðu mörk liðsins
en áður hafði Colin Cameron komið
Hearts yfir.
Með sigrinum komst Aberdeen í
annað sætið, hefur 28 stig úr 16
leikjum, en Celtic er í þriðja sætinu
með 27 stig úr 14 leikjum. Rangers
er efst með 35 stig eftir 15 leiki.
Leik Celtic gegn Kilmamock var
frestað.
Haraldur Ingólfsson lék ekki með
Aberdeen í Edinborg í gærkvöld.
Úrslit í öðmm leikjum urðu þau
að Dunfermline sigraði Hibemian,
2-1, og Motherwell tapaði á heima-
velli fyrir Raith, 0-1, sem virðist
vera að rétta úr kútnum eftir afleita
byrjun.
-JKS
Allt hárrétt I DV
- segir formaður handknattleiksráðs ÍBV
Magnús Bragason, formaður handknattleiksráðs ÍBV, hafði samband
viö DV vegna ummæla Rögnvalds Guðmundssonar, formanns handknatt-
leiksdeildar HK, í DV í gær. Leikur liðanna var sem kunnugt er flautað-
ur af á mánudagskvöld en síðan settur á að nýju og leikinn í gærkvöldi.
„Þaö sem haft var eftir mér í þriðjudagsblaði DV var allt hárrétt. Sig-
urður Bjami Richardsson, sem á sæti í handknattleiksráði ÍBV, var
staddur í Digranesi klukkan 19 á mánudagskvöld og hringdi til Eyja
klukkan 19.30 og fékk þær upplýsingar að liðið hefði ekki komist í land
vegna ófærðar. Þá gerðum við þau mistök að láta HSÍ ekki vita. Málið
fór hins vegar í gang þegar Hlynur Jóhannesson, leikmaður HK, hringdi
til Eyja klukka 17 og fékk þær upplýsingar að Fokker Flúgleiða væri að
lenda þar. Þar með fór misskilningurinn allur af stað en vélin gat aldrei
lent og við komumst ekki frá Eyjum,“ sagði Magnús. -VS
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
25
DV I>V
Erlingur Kristjánsson tekur Róbert Rafnsson úr Gróttu engum vettlingatökum í leik liöanna á Nesinu í gærkvöldi. Róbert var
samt iðinn viö kolann og skoraöi fimm mörk . Þaö dugöi ekki til því KA fór meö sigur af hólmi í leiknum eftir að hafa veriö
lengstum undir í viöureigninni. DV-mynd Brynjar Gauti
Gróttuliðið brotnaði
á lokakaflanum
- og KA tryggði sér sigur á Nesinu, 26-30
Það var greinilegt í upphafi leiksins
á Seltjamarnesi í gærkvöld að Gróttu-
menn ætluðu að selja sig dýrt gegn KA.
Þessi kröftuga mótspyma sló KA-liðið
út af laginu. Grótta lék mjög vel í fyrri
hálfleik á meðan fátt gekk upp hjá KA.
Ekki bætti úr skák að Róbert Dura-
nona fór meiddur af leikvelli eftir að-
eins fimm mínútna leik en þá tóku sig
upp gömul meiðsli.
Segja má að leikurinn hafi verið í
jámum lengst af en það var ekki fyrr
en þremur mínútum fyrir leikslok sem
leiðir skildi og KA-liðið sigldi fram úr
og tryggði sér sigur með 30 mörkum
gegn 26. Grótta var búiö að vera fram
að þessum tímapunkti ávallt með for-
ystu en liðið brotnaði og tapaði fyrir
vikið leiknum.
„Við höfum verið að leika illa að
undanfómu en reynt eftir bestu getu að
vinna okkur út úr þeim vandamálum.
Það sem ég var hvað ánægðastur með í
þessum leik var að sjá hvað ungu
strákamir skiluðu hlutverki sínu vel.
Unglingastarfiö hjá félaginu er farið að
skila sér. Af þessum leik að dæma
stendur okkar leikur til bóta,“ sagði Al-
freð Gíslason. þjálfari KA, eftir leikinn
viö DV.
Lið Gróttu stóð sig í heild nokkuð
vel í leiknum. Lokakaflinn reyndist lið-
inu dýrkeyptur. Sigtryggur Albertsson,
Jens Gunnarsson og Róbert Rafnsson
stóðu sig allir vel. Sadowski hefur oft
leikið betur og var mistækur.
Ungu strákamir Heiðmar Felixsson,
Halldór Sigfússon og Sverrir Bjömsson
komust mjög vel frá leiknum. Dura-
nona lék vel þegar hann kom inn á í
síðari hálfleik. Alfreð Gíslason styrkti
liðið undir lokin. -Hson
1. DEILD KARLA
Afturelding 11 10 0 1 294-270 20
KA 11 7 1 3 299-289 15
Haukar 10 6 2 2 253-238 14
ÍBV 11 6 0 5 269-254 12
Fram 11 5 2 4 254-244 12
Stjaman 10 5 0 5 265-253 10
HK 11 4 1 6 251-262 9
Selfoss 11 4 1 6 281-301 9
Valur 11 3 2 6 244-254 8
FH 11 4 0 7 260-293 8
ÍR 11 3 1 7 267-270 7
Grótta 11 2 2 7 261-270 6
Stjaman og Haukar leika í kvöld
klukkan 20 1 Ásgarði. Siðan verður
heil umferð 27. desember.
HK vann í gærkvöldi sinn þriðja
sigur i röð í 1. deild, í fyrsta skipti í
sögu félagsins.
Gunnleifur Gunnleifsson
tryggði HK sigurinn á ÍBV í gær-
kvöldi þegar hann köm liðinu í 20-18
þegar 38 sekúndur voru eftir. Eyja-
menn svöruðu strax en tíminn var of
naumur fyrir þá til að jafna.
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, tók
fram skóna á ný og lék með á
lokamínútunum gegn Gróttu. Inná-
koma hans var liðinu dýrmæt og Al-
freð skoraði mikilvægt mark sem
nánast réð úrslitum.
ÍH sigraði Fylki, 20-19, í 2. deUd í
gærkvöldi.
Mælt með knattspyrnu-
húsi af stærstu gerð
DV, Suöurnesjum:
íþróttaráð Reykjanesbæjar ákvað í
gærkvöldi að mæla með því við bæjar-
stjóm að byggt yrði knattspymuhús af
stærstu gerð, svokallað A-hús. Það var
gert í framhaldi af fundi ráðsins með
mannvirkjanefnd KSÍ sem kynnti þá
kosti sem fyrir hendi eru en bæjarstjóm-
armenn og fulltrúar íþróttafélaganna,
Keflavíkur og Njarðvíkur, sátu einnig
fundinn.
Eins og áður hefúr komið fram er
stefht að því að knattspymuhús verði
komið í notkun í Reykjanesbæ á árinu
1998 og bæjarstjóm fól íþróttaráði á dög-
unum að gera úttekt á þeim möguleikum
sem fyrir hendi era. A-hús er með lögleg-
um keppnisvelli, gervigrasi, og rými fyr-
ir 1.000 áhorfendur. Það kostar 450 millj-
ónir en sams konar hús, án áhorfenda-
stæða, kostar 340 milljónir.
Húsið á fyrst og fremst að vera fyrir
knattspymu en á einnig að geta hýst
fleiri íþróttagreinar og annars konar við-
burði, svo sem tónleika. -ÆMK
Juventus skaust á toppinn
Juventus tókst með sigri, 1-4, á Udinese í gærkvöld að komast í toppsætið í
ítölsku 1. deildinni. Liðið fór upp fyrir Vicenza sem síðustu tvær vikumar hefur
verið í efsta sætinu.
Juventus lék stórvel gegn Udinese og er liðið greinilega í feiknagóðu formi um
þessar mundir. Alen Bocksic gerði fyrsta mark leiksins á 23. mínútu eftir að hafa
fylgt vel eftir stangarskoti sínum. Síðan fylgdu í kjölfarið tvö mörk frá Alessandro
Del Piero, bæði úr vítaspymum, og lokaorðið átti Didier Deschamps. Eina mark
Udinese skoraði Cappioli.
„Við áttum að mínu mati ekki minna í leiknum fram að fyrsta marki Juventus.
Eftir það virtist allur vindur úr minum mönnum og Juventus vann sanngjaman
sigur,“ sagði Oliver Bierhoff, skærasta stjama Udinese sem nú er fjarri góðu gamni
vegna meiðsla. Allt bit vantar í sóknarleik Udinese og er Birhoffs sárt saknað.
Staða efstu liða er sú að Juventus hefur 22 stig, Vicenza 21 stig, Inter og Bologna
20 stig.
-JKS
Bjarni Guðjónsson:
Skoraði
tvö fyrir
Liverpool
- og lagði upp eitt fyrir Dalglish
Skagamaðurinn Bjami Guðjóns-
son skoraði tvö mörk í æfingaleik
sem settur var á fyrir hann hjá
Liverpool í fyrrakvöld. Bjami dvel-
ur sem kunnugt er hjá Liverpool
þessa vikuna við æfingar og keppni.
í umræddum leik í fyrrakvöld lagði
Bjarni að auki eitt mark upp fyrir
son Kenny Dalglish sem er einnig
að þreifa fyrir sér hjá félaginu.
„Ég spila ekki meira í dvölinni
hjá Liverpool. Ég æfði með aðallið-
inu í gær og svo aftur í dag þannig
að mér gefst kostur á að fara á leik
Liverpool og Middlesbrough á laug-
ardaginn og svo kem ég heim á
sunnudag. Ég er ánægður með æf-
ingarnar hjá Liverpool, sem em
góðar og skemmtilegar," sagði
Bjami í samtali við DV í gær.
Bjami sagði að sér hefði verið vel
tekið hjá Liverpool eins og reyndar
Wallau Massenheim, sem Krist-
ján Arason þjáifar, og Kiel skildu
jöfn, 26-26, í þýska handboltanum í
gærkvöld. Eftir þennan leik em lið-
in jöfn í 2.-3. sæti i deildinni með 15
stig en Kiel er ofar á betra marka-
hlutfalli. Lemgo hefur trausta stöðu
á toppnum með 20 stig.
Schútterwald tapaði á heimavelli
fyrir Flensburg og skoraði Róbert
einnig hjá Newcastle og Grasshopp-
ers. Hann sagði erfitt að gera upp á
milli þessara félaga því þetta væri
allt saman góðir klúbbar.
„Ég ræddi við Roy Evans, fram-
kvæmdastjóra Liverpool, í gær og
þetta virtist vænsti maður. Það hafa
ekki verið fleiri félög í sambandi
við mig en orðið er. Við getum sagt
að þetta sé orðið gott í bili. Það
styttist óðum til jóla,“ sagði Bjami.
Bjami sagði ekkert ákveðið hvert
yrði næsta skref í sínum málum.
Hann sagðist samt vona að eitthvað
skýrðist í þeim á næstunni.
„Liverpool er mitt uppáhaldslið í
ensku knattspymunni og það er
bara vonandi að liðið vinni Middles-
brough á laugardaginn," sagði
Bjami Guðjónsson í spjallinu við
DV.
-JKS/DVÓ
Sighvatsson þrjú mörk fyrir Schútt-
erwald í leiknum. Róbert og félagar
eru í 14. sætinu með 6 stig en
Fredenbeck er í neðsta sætinu meö
4 stig. Héðinn Gilsson leikur með
liðinu.
Þriðja viðureigninni í gærkvöldi,
á milli Niederwúrsbach og Hameln,
lauk með sigri fyrmefnda liðsins,
21-17. -JKS
Dean Martin
á leið til
Stjörnunnar
Allt hendir tU þess að Dean
Martin, enski knattspymumaður-
inn sem hefúr leikið með KA í 2.
deUdinni undanfarin tvö ár, spUi
með Stjömunni í 1. deild næsta
sumar.
Martin, sem spUar í Hong Kong
í vetur, hefúr verið í viðræðum
við Stjömuna að undanfornu og
samkvæmt heimUdum DV er afar
líklegt að hann gangi tU liðs við
Garðabæjarliðið. Hann kemur þá
tU landsins um miðjan aprU.
Martin er mjög öflugur kant-
maður og hefur verið í lykilhlut-
verki hjá KA. Hann yrði eflaust
góður styrkur fyrir Stjörnuna. Þá
má geta þess að Martin á íslenska
unnustu og hefur mikinn hug á
að setjast að hér á landi. -VS
Róbert og félagar töpuðu
íþróttir
iiikmanha- mm
KYNNIN6 [ u
8Gary
Payton
Seattle SuperSonics
Fæddur: 23. júlí 1968 í
Oakland í Kalifomíu.
Hæð: 1,93 m.
Þyngd: 86 kg.
Staða: Bakvörður.
Númer á treyju: 20.
NBA-leikir: 574 með Seattle,
þar af 62 í úrslitakeppni.
Meðalskor í NBA: 14,7 stig.
Flest stlg í leik: 38.
Flest fráköst: 11.
Flestar stoðsendingar: 17.
Ferill: Valinn númer tvö í ný-
liðavalinu 1990 af Seattle.
Uppáhaldsleikmaður: Geor-
ge Gervin.
Ýmislegt: Ólympíumeistari
með „Draumaliðinu" í Atlanta
1996.
Lék með Seattle tU úrslita um
NBA-titUinn 1996.
„Stal“ flestum boltum í NBA
tímabUið 1995-96.
Valinn varnarmaður ársins í
NBA 1995-96 og hefur verið val-
inn í „vamarlið ársins" í NBA
undanfarin þrjú ár.
Valinn í úrvalsliö nýliða i
NBA 1990-91.
Er í þriðja sæti yfir flestar
stoðsendingar í sögu Seattle með
3.118 og einnig í „stolnum bolt-
um“ með 1.112.
Hefur sett persónuleg met í
stigaskorun og stoðsendingum á
þessu ári og jafnframt náð sinni
íjórðu „þreföldu tvennu.“
Stigahæsti leikmaður í sögu
Oregon State háskóla og valinn
háskólaleikmaður ársins í
Bandaríkjunum af tímaritinu
Sports IUustrated 1989-90.
íþróttir eru
einnig á bls. 26
NBA í nótt á bls. 2
Ronaldo tryggður
Fréttir frá Barcelona herma að
félagið hafa endumýjað samn-
inginn við Ronaldo og laun hans
verið tvöfölduð. Nýi samningur-
inn á að gUda tU 2006 og gefur
Ronaldo yfir tvo miUjarða.
Strandaglópar
VerkfaU bænda í Grikklandi
hefur víöa áhrif. Tveir albanskir
landsliðsmenn, sem leika með
gríska liðinu Kalamata, komust
ekki til Aþenu tU aö fá vega-
bréfsáritun tU Belfast þar sem
bændur loka öUum vegum. Al-
banía mætir N-írum í HM á
sunnudag. -JKS
NISSAN DEILDIN í KVÖLD
kl. 20.00 í íþróttahúsinu Ásgarði
Stuðningsmenn
Stjörnunnareru
hvattirtil að mæta
og styðja Stjörnuna
til sigurs.
Stjarnan Haukar
BILfiSPRfi(JT(JN Nýbýlavegi 10
MRéTTINGflR 200 Kópavogi
auðuns Sími554 2510
Athygli er vakin á lágu miðaverði:
Fullorðnir: 400 kf. - Börn: 200 kl\