Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
HLJÓMPLjlTll
mmírn
Emiliana Torrini - Merman
Eðalsteinn *+*<
Emiliana Torrini er aðal-
lega á rólegu nótunum á nýju
plötunni sinni. Tónninn er
gefinn strax í fyrsta lagi,
hinu engilblíða Blame It on
the Sun eftir Stevie Wonder.
Síðan kemur The Boy Who
Giggled so Sweet eftir Em-
iliönu og hljómsveitarstjór-
ann hennar og upptökustjóra,
Jón Ólafsson. Sama blíðan
heldur áfram í Velvet Und-
erground-laginu Stephanie
Says og það er ekki fyrr en í
hinu furðulega Red Woman
Red sem Emiliana brýnir raustina að einhverju marki.
Helmingur laganna á Merman er ýmist eftir Jón einan eða þau Em-
iliönu saman. Af þeim flestum er einhvers konar leikhúss- eða söng-
leikjakeimur, væntanlega fyrst og fremst vegna þess hvemig þau era út-
sett. Öll eru þau ágætlega áiheyrileg en titillagið sker sig nokkuð úr, sér-
kennileg lagasmíð og fremur óaðgengileg fyrst í stað. Erlendu lögin eru
vel valin, sér í lagi I Hope that I Don’t Fall in Love with You eftir Tom
Waits og I Really Loved Harold, sjálfsagt eitt minnst þekkta lagið sem
Melanie Safka samdi.
En þótt innlendu lögin séu vel samin og þau erlendu vel valin standa
þau þó og falla með einstaklega áheyrilegri söngrödd Emiliönu. Þegar
Time fjallaði fyrir nokkrum misseram um bresku leikkonuna Emmu
Thompson var það gert undir fyrirsögninni Emma Is A Gem. Hana má
auðveldlega heimfæra upp á Emiliönu Torrini: Emiliana er eðalsteinn.
Ásgeir Tómasson
Ýmsir flytjendur - Sönglögin í leikskólanum
Leikskólakrakkasöngvar *++
öang/ocftn t
Leifc&fcó/anum
I ^ % V
•»v.
Sönglögin í leikskólanum
er plata þar sem krakkarnir í
Laufásborg syngja fullt af lög-
mn. Heiðar Steinn, fimm ára
sonur útgefandans, átti upp-
tök að þessari plötu með söng
og rauli úr leikskólanum.
Lögin á plötunni eru fyrir
böm í leikskólum og yngri
krakka í grannskólum. Þar
sem ég er tíu ára finnst mér
gaman að hlusta á gamlar
minningar frá minni
leikskólatíð. Lag nr. 16,
Óskasteinar, er t.d. mjög
fallegt lag og ég verð aldrei leið á því. Það er gaman að vita að krakkar
í öðrum leikskólum era að syngja önnur lög en maður gerði sjálfur. í
söngmöppunni minni er líka fullt af lögum sem era ekki á þessari plötu
og kannski koma þau út á plötu seinna. Að lokum frnnst mér sniðugt að
hafa öll lögin ósungin á seinni hluta plötunnar. Það er gott að hafa svo-
leiðis ef konurnar era slappar á gítar.
Anna Soffia Ásgeirsdóttir
Bergþór Pálsson og Eyjólfur Kristjánsson — Tveir
Fyiir rómantískar sálir
★★
Það er nú varla hægt að
hugsa sér ólíkari söngvara en
Bergþór Pálsson og Eyjólf
Kristjánsson; annar skólaður
óperusöngvari en hinn sjóað-
ur í heimi dægurlaganna á ís-
landi. Þeir eiga þó það sam-
eiginlegt að vera vinsælir
skemmtikraftar sem slíkir við
hin ýmsu tækifæri.
Bergþór og Eyjólfur hafa
nú leitt saman hesta sína í
annað sinn og er Tveir af-
raksturinn, plata á rólegum
og rómantískum nótum þar
sem sjá má titla eins og Eina ástin mín, Einn með þér, í unaðsreit, Sept-
embemótt, Ef ég ætti orð og Dagur sem aldrei dvín. Því miður er inni-
haldið jafn sykursætt og titlamir.
Þeir félagamir hafa leitað í smiðju þekktra söngvara og dægurlaga-
höfunda. Má nefaa lög eftir Neil Diamond (Septembemótt) I will
(Lennon & McCartney), David Gates (Ef ég ætti orð) og Daniel Fogelber
(Dagur sem aldrei dvín) svo að dæmi séu nefad, allt góð lög sem standa
fyrir sínu en henta alls ekki sem dúettar eða einsöngslög fyrir Bergþór
og Eyjólf. í mjög fáum tilvikum heppnast samsöngur þeirra, enda er
ekki mikið um slíkt, mun meira er um að þeir syngi sinn hvort erind-
ið eða sinn hvort lagiö.
Nokkur frumsamin lög er að finna á Tveir og Eyjólfi, sem hefúr í
gegnum tíðina samið ágæt lög, tekst ekki vel upp í sinni lagagerð frek-
ar en Bergþóri í sínum lögum.
Það er Ijóst eftir að hafa hlustað á Tveir að hægt hefði verið að fá
betra út úr Eyjólfi og Bergþóri hefði verið vandað meira við útsetning-
ar og jafavel gerð meiri leit að lögum sem henta þeim betur. Spamað-
arsjónarmiðið er greinilega ríkjandi sem kemur best fram í ofaotkun á
forrituðu undirspili sem aldrei getur komið í stað strengja. Þegar á
heildina er litiö þá er Tveir ófúllnægjandi plata sem þó rennur Ijúflega
í gegn en skilur eftir þá vissu að það hefði verið hægt að gera mun betri
plötu með þeim félögmn. Hilmar Karlsson
Magnús Eiríksson og KK: Ásáttir um aö fínpússa ekkert á nýju plötunni, Ómissandi fólk.
DV-mynd Hilmar Þór
Magnús Eiríksson og KK
leiða saman hesta sína
Leiðir Magnúsar Eiríkssonar og
Kristjáns Kristjánssonar, KK, lágu
fyrst saman fyrir margt löngu þegar
sá síðamefadi kom fram sem gestur
með Blús-kompaníinu. Fyrir svo sem
þremur árum snerist dæmið við og
Magnús gerðist öðra hverju gesta-
spilari með KK-bandinu. Og fljótlega
komst sú hugmynd á kreik að vinna
einhvem tíma saman plötu.
„Við hittumst einhvern tíma i
sumarbústað ásamt Eyþóri Gunnars-
syni og unnum saman lög og texta,“
segir Magnús. „Þegar að því kom að
við réðumst í að taka upp plötu not-
uðum við ekkert frá þessum sumar-
bústaðartíma nema eitt lag, Leyni-
gluggagægi. Hitt varð til á skrifstof-
unni hjá Kristjáni. Við hittumst þar
nokkrum sinnum og rökkuðum nið-
ur það sem hinn hafði verið að
semja. Á endanum vorum við komn-
ir með talsvert af efai. Sum lögin og
textana eigum við saman, annað er
skrifað á hvom um sig. Ég hef aldrei
áður unnið með þessum hætti og það
var bara gaman.
Við urðum ásáttir um að finpússa
ekkert þegar að því kæmi að taka
lögin upp,“ bætir Magnús við. „Upp-
runalegi söngurinn var látinn halda
sér en það er nánast aldrei gert þeg-
ar plötur eru hljóðritaðar. Hljómur-
inn er nánast eins hrár og hægt er að
hafa hann. Fyrir bragðið hljómar
platan vonandi pínulítið öðravísi en
annað sem verið er að gefa út.“
Ómissandi fólk
Platan hlaut na&ið Ómissandi fólk
eftir lagi eftir Magnús sem hefúr við-
lagið:
Ofmetnastu ekki af lífsins móður-
mjólk/kirkjugarðar heimsins geyma
ómissandi fólk.
Hann er fámennur hópurinn sem
vann með þeim félögum að plötunni.
Jón Sigurðsson lék á kontrabassa í
nánast öllum tólf lögum plötunnar.
Ásgeir Óskarsson og Guðmundur R.
Einarsson skiptu trommuleiknum
með sér, Magnús R. Einarsson lék á
banjó og mandólín þar sem það þótti
hæfa, Eyþór Gunnarsson upptöku-
stjóri söng og lék á harmóníum í einu
lagi og sjálfir sáu Magnús og KK um
gítar- og munnhörpuleik auk þess sem
Magnús greip i sög í einu lagi.
Þótt blúsinn sé undirtónn í velflest-
um lögum plötunnar Ómissandi fólk
kemur kántríkeimur fram hér og þar.
Eitt lag er í blúgrassstíl og lagið
Óbyggðimar kalla, sem nokkuð hefúr
hljómað í útvarpi að undanfómu, er í
cajunstíl.
„Það lag er einmitt ágætt dæmi um
samstarfið," segir Magnús. „Ég samdi
lagið og textann og KK ákvað í hvaða
stíl það skyldi vera. Það hafði svo af-
gerandi áhrif á lagið að ég skrifaði
okkur báða fyrir því.“
Þriðja erindið
Þeir sem lagt hafa eyrun við laginu
Óbyggðimar kalla vita að Magnús og
KK syngja við það tvö erindi. Upphaf-
lega voru erindin reyndar þrjú.
„Við tókum eftir því þegar við vor-
um búnir að taka lagið upp að við
höfðum gleymt lokaerindinu," segir
Magnús. „Við töluðum um það við Ey-
þór að við þyrftum að bæta því við.
Hann bjargaði málinu hins vegar með
því að bæta því á diskinn aftan við
síðasta lagið þannig að rúmlega mín-
útu eftir að lagið Ómissandi fólk end-
ar hefjum við upp raust okkar aftur
og syngjum síöasta erindið. Það kem-
ur þvi eins og nokkurs konar bónus ef
fólk lætur diskinn ganga eftir að það
heldur að það sé búið að heyra allt.“
Þeir hafa komið fram á nokkrum
tónleikum til að kynna efni nýju plöt-
Fyrrverandi söngvari hinn-
ar stórfrægu hljómsveitar The
Smiths stendur nú í erfiöum
málaferlum. Fyrrum
trommari Smiths, Mike Joyce,
hefur kært Morrissey og gítar-
leikara Smiths, Johnny Marr,
fyrir að hafa svikiö sig um 115
milljónir króna sem Marr tel-
ur sig eiga aö hafa fengið í
greiöslur vegna spilamennsku
sinnar í The Smiths. Morriss-
ey segist aldrei hafa haft neitt
unnar og ætla að halda því áffarn.
Magnús Einarsson hefúr leikið með
þeim ásamt Jóni Skugga bassaleikara
og Ásgeiri Óskarssyni. Magnús segir
að vel geti svo farið að úr verði hljóm-
sveit sem fái að lifa eitthvað áfram.
Sjálfur er hann hljómsveitarlaus eftir
að Mannakorn fór í frí fyrir um það
bil ári. Hann er því búinn að hvíla sig
vel eftir árshlé. Þá bíður Blús-
kompaníið alltaf eftir því að verða
endurreist og Magnús segist ákveðinn
í að láta verða af því fyrr eða síðar.
„Við vorum byrjaðir á plötu þegar
Karl Sighvatsson dó í bílslysi og við
það datt úr manni loftið," segir hann.
„Karl var stór hluti af Blús-kompaní-
inu en þótt hann sé horfinn verður sú
hljómsveit lífguð við einhvern daginn.
Það er öruggt mál.“
-ÁT
vit á fjármálum og því sé hæp-
iö aö hann hafi svikið ein-
hvem um peninga. Morrissey
neitar einnig þeim ásökunum
lögmanns Joyce aö hann hafi
alla tíö taliö Joyce og bassa-
leikara The Smiths, Andy Ro-
urke, óþarfa. Rourke mun
bera vitni fyrir hönd Marr en
hefur sjálfur samiö um sinn
hluta af gróöanum af veru
sinni í The Smiths. -JHÞ