Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Page 7
24
•» helgina
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
25
VEITINGASTAÐIR
A, Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
1693. Opið 11.30-22.30 alla daga.
Amigos Tryggvagötu 8, s. 551
1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd.,
17.30- 23.30 fd.ogld.
Argentína Barónsstíg Ua, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd„
11.30- 23.30 fd. og ld.
Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld.
Austur Indía fjjelagið Hverfisgötu
56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
A næstu grösum Laugavegi 20, s.
552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
v.d., 18-22 sd. og lokað ld.
Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
Op. 18r22 md.- fid. og 18-23 föd.-sd.
Café Ópera Lækjargötu 2, s. 552
9499/562 4045. Opið 18-1 fd. og ld„
11.30- 1 v.d.
Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562
3350. Opið 11-23 alla daga.
Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
og ld. 12.-2.
Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21
og sd. frá 16-21.
Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld„
12-23.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, s. 551
3340. Opið 11-23.30 alla daga.
Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
568 9509. Opið 11-22 alla daga.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug-
velli, s. 552 2322. Opið í Löninu
5-23, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„
12-15 og 18-23.30 fd. og ld.
Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d„
Súlnasalur 19-3 ld.( Skrúður 12-14
og 18-22 a.d..
Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. Opið 10-23.30 v.d., 10-1
ld. og sd.
Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399.
Opið 11.30-22.30 aUa daga, ld. frá
11.30- 23.30.
Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Mávur
Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
17.30- 23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45
fd„ ld. og sd.
Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551
1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„
17.30- 23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
2258. Opið fd„ ld„ sd. 11-23,
md.-fid. 11-22.
Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2,
s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
11- 03 fd. og Id.
Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553
1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, s.
551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
fid.-sd. 11-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562
6766. Opið a.d. nema md.
17.30- 23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551
7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„
12- 14 og 18-03 fd. og ld.
Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499.
Op. 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
3131. Opið virka daga frá 11.30 til
I. 00 og um helgar til 3.00.
Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið
18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
Primavera Austurstræti, s. 588
8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„
18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9,
s. 588 0222. Opið alla daga frá ki.
II. 30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
Lokað á sd.
Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Singapore Reykjavlkurvegi 68, s.
555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
Sjö rósir Sigtúni 38, 8. 588 3550.
Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
11.30- 23.30 fd. og ld.
Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
Opið 11-23 alla daga.
Við Tjörnina Templarasundi 3, s.
551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
562 1934. Opið fid.- sud„ kaffist. kl.
14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
7200. Opið 15-23.30,v.d„ 12-02 a.d.
Þrír Frakkar hjá Ulfari Baldurs-
götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
og 18-23.30 ld. og sd.
Lúsíuhátíð í Norræna húsinu í kvöld:
Friður jólanna nálgast
segir Ardís Sigurðardúttir hjá Norræna húsinu
Þrátt fyrir að íslendingar tengi
þrettánda dag desembermánaðar ekki
endilega við jólin er hann mikilvægur
hlekkur í keðju jólahaldsins í Svíþjóð.
Þá er hin svokallaða Lúsiuhátíð hald-
in um allt landið, jafnt í skólum sem
á vinnustöðum. Á íslandi verður líka
Lúsíuhátíð í kvöld en sænska félagið
á íslandi og Norræna húsið standa í
sameiningu að henni.
„Vissulega hefur fólk fyrir löngu
orðið vart við að jólin séu að koma.
Jólaskreytingar eru komnar út um
alit, verslanir búnar að lengja agf-
reiðslutíma og fólk farið að huga að
bakstri og gjöfum. Lúsíuhátíðin er
hins vegar fyrsta vísbending þess að
friður jólanna sé í nánd,“ segir Árdís
Sigurðardóttir hjá Norræna húsinu.
Lúsía var kaþólskur
dýrlingur
„Þetta er upphaflega kaþólskur sið-
ur en einhverra hluta vegna hefur
hann færst yfir til Svíþjóðar og er nú
ómissandi þáttur þar. Lúsía var dýr-
lingur í kaþólskri trú, ljúf, falleg og
óendanlega góð. Hún gaf meira að
segja úr sér augun af eintómri gæsku.
Hátíöin er þannig að Lúsía gengur
inn í sal meö nokkur kerti í kransi á
höfðinu íklædd hvítum serk. A eftir
henni ganga þemur hennar, einnig í
hvítum serkjum, og halda á einu kerti
hver. Frá hópnum heyrast svo fagrir
tónar þegar Lúsía og þemur hennar
syngja Lúsíusöngvana. Stundum era
þernumar karlkyns og kallast þá
stjörnustrákar. Þeir hafa kramarhús
á höfðinu og halda á stjömu. Þetta er
yndislega falleg uppákoma," segir Ár-
dís.
Jólasveinar koma í
Aðgöngumiðar verða seldir við inn-
ganginn og kosta 200 krónur fyrir
böm og 500 fyrir fúllorðna en veiting-
amar era innifaldar í verð-
inu.
Ef fslendingar vilja
kynna sér þennan
sænska sið og upp-
lifa fegurðina
og friðinn
sem
fylgja
jólunum ættu þeir að mæta í Nor-
ræna húsið í kvöld. Allir eru vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir en að
sögn Árdísar hefur húsið
iðulega verið fullt af
fólki á Lúsíuhátíðum
undanfarinna ára.
-ilk
heimsókn
Dagskráin í Norræna húsinu í
kvöld verður með hefðbundu Lúsíu-
hátíðarsniði. Lúsia og þemur hennar
syngja sænsk og íslensk jólalög undir
stjóm Mariu Cederborg. Þær munu
koma tvisvar fram um kvöldið, í byrj-
un dagskrár klukkan 19.00 og aftur
klukkan 21.30. Jólasveinar koma í
heimsókn og dansa með bömunum í
kringum jólatréð í fundarsal hússins
og deila út smápokum til yngri kyn-
slóðarinnar.
í kaffistofu Norræna hússins verð-
ur boðið upp á svokallaða „lúsíuketti"
(lussekatter) og piparkökur auk safa
fyrir bömin og kaffi eða glögg fyrir
fullorðna.
Lúsía undirbýr sig fyrir hátíðina með aðstoð þerna sinna. Frá Lúsíuhátíð í Norræna húsinu fyrir tveimur árum.
DV-mynd GVA
Myndir eftir börn
Það er ekki nóg með að í Norræna
húsinu verði haldin Lúsíuhátíð í kvöld.
Þar hefur einnig verið komið á fót mynd-
listarsýningu bama og mun hún standa
út desembermánuð.
í anddyrinu hafa verið hengdar upp
litrikar myndir sem eru sýnishom af
verkum nemenda á námskeiðum á
haustönn Myndlistarskólans í Reykja-
vík. Bömin eru á aldrinum 6 til 11 ára og
viðfangsefnið er fjölbreytt og sköpunar-
gáfan og litagleðin fær að njóta sín í
verkunum. í sýningarsal í kjaUara húss-
ins getur að líta afrakstur jólalista-
smiðju í Norræna húsinu um síðustu
helgi. Þar vann hópur bama á aldrinum
6 tii 12 ára að myndum sem tengjast jól-
unum.
Allir era velkomnir í Norræna húsið á
aðventunni.
-ilk
Hafnarfjörður:
Sálin hans Jóns míns:
ólaljósin tendruð
Það verður ekki leiðinlegt
í Hafnarfirði á morgun. Þá
verða ljósin tendruð á jóla-
trénu sem vinabær Hafnar-
fjarðar, Cuxhaven í Þýska-
landi, gaf bænum. Dagskrá-
in byrjar klukkan 13.15
þegar Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar hefúr leik sinn en
það verður dr. Alexander Olbrich, sendi-
fulltrúi og starfandi sendiherra Þýska-
lands á Islandi, sem flytur ávarp og
tendrar ljósin.
Að athöfn lokinni ætlar lúðrasveitin
að ganga fylktu liði sem leið liggur að
Thorsplani. Þar mun sveitin halda
áfram leik sínum og Henning Olsen,
sendiráðsritari í Danska sendiráðinu,
ætlar að tendra ljósin á jólatrénu frá
vinabæ Hafnarfjaröar í Danmörku,
Frederiksborg. Karlakórinn Þrestir mun
einnig syngja nokkur lög.
Að öllum jólatrjáaskreytingum lokn-
um verður jólaball í iþróttahúsinu við
Strandgötu. Þar verður boðið upp á
kaffisopa, ávaxtasafa og piparkökur.
Auk þess munu bömin fá sælgætispoka
ef þau veröa stillt. Hljómsveitin Fjörkall-
ar sér um að koma ballgestum í
jólastemningu og öraggt er að jólasvein-
amir láta sig ekki vanta. -ilk
sin heyra, slíkar hafa vinsældir sveitarinnar verið i
gegnum árin. Nú hefur verið ákveðið að Sálin haldi
nokkra dansleiki í desember. Yfirreið Sálarinnar um
landið hefst í kvöld en þá mun sveitin spila fyrir Norð-
lendinga. Dansleikur verður haldinn í félagsheimilinu
Miðgarði í Varmahlíð en sérstakar sætaferðir verða
famar frá Akureyri. Sálin hefur lengi átt sér dyggan að-
dáendahóp fyrir norðan og því er lítil hætta á öðra en
fjölmenni verði í Varmahlíð i kvöld. Laugardaginn 14.
desember verður Sálin enn á mikilli siglingu. Ætlunin
er að heiðra sunnanmenn með Sálarballi og ber sveitin
niður i félagsheimilinu Borg í Grímsnesi. Boðið verður
upp á sætaferðir frá helstu þéttbýlisstöðum sunnan-
lands.
Að sjálfsögðu er ætlun sveitarinnar að halda fleiri
dansleiki og verða þeir haldnir í Njarðvík, Vestmanna-
eyjum, á Selfossi og ísafirði. Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Sálinni er líklegt að fleiri staðir bætist við.
Það er kannski rétt að láta fljóta með að slóðin á vef-
síðu Sálarinnar er www.mmedia.is/salin en Stefán
Hilmarsson er einnig með síðu og er hún á slóðinni
www.mmedia.is/stefanhilmars
-JHÞ
Jólavaka
Þeir ieika sér eins og strákar, hegöa sér eins og herrar og syngja eins og englar.
Jólatónleikar
drengjakórs
Á íslandi er tO einn drengjakór.
Það er drengjakór Laugameskirkju
og státar hann af 36 drengjum á
aldrinum 8 til 14 ára. Einkunnarorð
drengjanna í kómum era: „Syngja
eins og englar, hegða sér eins og
herrar og leika sér eins og strákar.“
Á undanfömum árum hefur kór-
inn komið fram við margvísleg tæk-
ifæri, meðal annars í jólamessu
biskups í sjónvarpi á aðfangadags-
kvöld og að Bessastöðum hjá forseta
íslands. Kórinn gaf út fyrsta
geisladiskinn sinn haustið 1994 eftir
glæsilega söngfór til Bandaríkjanna
en þcir vann kórinn til þriggja verð-
launa á alþjóðlegu drengjakóramóti
í Tampa á Flórída.
í vetur hefur verið starfandi kór
fyrrum félaga drengjakórsins en
eins og gefur að skilja syngja þeir
dýpri raddir en þeir gerðu á sínum
tíma.
Á sunnudaginn ætlar kórinn að
halda glæsilega jólatónleika í Lang-
holtskirkju sem bera munu yfir-
skriftina: „Nú gjaldi Guði þökk“.
Þar koma fram, auk kórsins, undir-
búningsdeild og eldri kórfélagar.
Stjómandi er Friðrik S. Kristinsson
og einsöngvari Signý Sæmundsdótt-
ir. Miðar era seldir i Kirkjuhúsinu
og við innganginn. Allir era hvattir
til að koma og sjá eina drengjakór
landsins framkalla frábæra tóna.
-ilk
Cheo Cruz sýnir á
Sóloni
Madonnur Cheo Cruz verða á Sól-
oni íslandus við Bankastræti frá og
með morgundeginum til 6. janúar.
Cheo mun sýna 12 olíumálverk í
galleríi Sólons, á annarri hæð stað-
arins. Þetta eru meðal annars
myndir af konum eða gyðjum. Þær
era í sambandi við himin og jörð og
öflin allt um kring. Þannig sér lista-
maðurinn myndirnar á þessari
sjöttu sýningu sinni á íslandi.
Hann bjó í Reykjavík frá 1989 til
1992 og fékk þá íslenskt ríkisfang og
nafnið Sindri Þór Sigríðarson. Kól-
umbía er annars ættarland Cheos
og þar stundaði hann listnám. Síðan
lærði hann á Spáni og hefúr starfað
í Hollandi. Cheo er nú búsettur í
París. Hann sýndi þar síðastliðið
sumar og vann í nóvember til verð-
launa fyrir málverk sín. Það var í
opinberri samkeppni 300 lista-
manna í borginni Rennes í Frakk-
landi.
Sýningin á Sóloni er opin alla
daga frá klukkan 12.00 til 19.00.
Verk eftir listamanninn Cheo Cruz.
í Norska húsinu
DV.Vesturiandi
Norska húsiö í Stykkishólmi.
Fréttir herma að þeir félagar Stekkjarstaur og
Giljagaur komi í heimsókn í Norska húsið í Stykkis-
hólmi á morgun. Þar verður jólavaka þar sem boðið
verður upp á kaffi og smakkað á jólahangikjötinu.
Einnig verður lesið upp úr jólabókum bókasafnsins,
sungin jólalög og leikið á hljóðfæri. Auk alls þessa
verður opnuð myndlistarsýning þar sem heimamenn-
irnir Jón Svanur Pétursson og Atli Már Ingvarsson
sýna verk sín
-DVÓ
helgina
SÝNIHGAR
Deiglan. Snorri Ásmundsson. „Lát
sæng þína ganga“. Opnuð 13. des. kl.
20.30. 30% af ágóða sýningarinnar
fara í fíkniefnaforvamir.
Gallerí Borg, Aðalstræti 6. Sýning
Karólínu Lárusdóttir. Opið virka
daga kl. 12-18 og kl. 14-18 um helg-
ar. Lýkur 15. des.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg. Olíu-
og akrýlmálverk nokkurra þekktra
núlifandi listamanna. Opið fram yfir
hátíðamar.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15.
Ella Magg (Elín Magnúsdóttir) sýnir
verk sín. Opið til 30. des. alla daga
kl. 11-23.30 utan aðfangad. og jólad.
Annan í jólum kl. 14-18.
Gallerí Jörð, Reykjavíkurvegi 66,
Hafnarfirði. Fimm listamenn
standa fyrir sýningu á smámyndum.
Stendur til 22. des. Opið mán.-fós.
kl. 11-18. lau. og sun. kl. 12-16.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70.
Jólasýningin Ljós, 13 listakonur
sýna. Opið á verslunartíma og á
sunnud. frá 13-18.
Gallerí Sýnirými. Þijár sýningar,
Sýnibox: Lýður Sigurðsson. í Barmi:
Vilhjálmur Vilhjálmsson, berandi er
Gera Lyn Stytzel. í Hlust: Haraldur
Jónsson.
Gallerí Úmbra. Fyrri sýnendur
gallerísins ásamt Guðnýju verða með
verk sín til sölu og sýnis til áramóta.
Gerðuberg. Guðrún Kristjánsdóttir,
valin verk. Stendur til 15. des.
Einnig myndskreytingar úr norræn-
um bamabókum. Opið frá 10-21
mán.- fim„ 12-17 fos.-sim.
Gullsmiðja og listmunahús
„Ófeigur", Skólavörðustíg 5.
Frank Reitenspiess sýnir húsgögn úr
íslenskum rekavið. Sýningu lýkur 23.
des.
Kaffi Mflanó, Faxafeni 11. Alda
Ármanna Sveinsd. er með sýningu á
verkum sínum í nóvember og des-
ember.
Kjarvalsstaðir. Ný aðfóng, kaup og
gjafir slðustu fimm ára, til jóla. Sýn-
ingin er opin daglega frá kl. 10-18.
Listacafé, Listhúsi Laugardal.
Magdalena Margrét Kjartandsóttir
sýnir verk sín.
Listasafn íslands. Sýning á verkum
Edvards Munch stendur til 19. jan.
Opið frá 11-17 alla daga nema mán.
Á laugardag verður opnuð sýningin
Milli tveggja heima. Myndlist Eiríks
Smith 1963-68. Til 2. febrúar 1997.
Listasafh Kópavogs. Alistair
Maclntyre, afmælissýning Ljósmynd-
arafélags Islands og skúlptúrsýning
Guðbjargar Pálsdóttur. Sýningamar
standa til 15. desember. Safnið er
opið alla daga nema mán. frá kl.
12-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnesi. Sýning 91 á völdum
verkum hans. Opið er lau. og sun.
milli kl. 14 og 17.
Listahornið, Akranesi, Ragnheiður
Bjamadóttir sýnir hannyrðir til 6.
janúar.
Listasetrið Kirkjuhvoll, Akranesi.
Sýning þriggja listamanna, Friðþjóf-
ur sýnir svart/hvítar ljósmyndir,
Helgi sýnir Ijósmyndir í lit og Hrönn
sýnir málverk. Opið er frá kl. 15-18
til 15. des.
Listhús 39, Strandgötu 39, Hafn-
arfirði. Samsýningin „Dýr - Gripir“
í Listhúsi 39. Stendur til 24. des„
opin á verslunartíma.
Listhúsið í Laugardal, Engjateigi
17. Verk eftir Sjöfn Har. Opið virka
daga kl. 13-18 og lau. kl. 11-14.
Listþjónustan, Hverfisgötu 105.
Gunnar Öm með sýningu í nýrri sýn-
ingaraðstöðu. Opið virka daga frá
12-18 og um helgar frá 14-18. Lokað
á mán.
Menntamálaráðuneytið, Sölv-
hólsgötu. Daði Guðbjartsson sýnir
olíumálverk.
Mokka, Skólavörðustíg 3a. Sýning
Ara Alexanders Ergis Magnússonar,
Hlé, stendur til 6. janúar.
Norræna húsið. I anddyri: litríkar
myndir, unnar af nemendum Mynd-
listarskóla Reykjavíkur, á aldrinum
6-11 ára. I sýningarsal í kjallaranum
sýna börn myndir, tengdar jólunum.
Sýningar standa út des.
Ráðhús Reykjavíkur. Anna Leós
með myndlistarsýningu. Opið virka
daga frá 8-19 en um helgar frá
12-18.
Sjónarhóll, Hverfisgötu 12. Guð-
rún Kristjánsdóttir með málverka-
sýningu til 15. des. Opið alla daga
frá kl. 14-18 nema mán.
Skruggusteinn, Hamraborg 20a,
Kóp. Daglega bætist við nýr listmun-
ur eftir einhvem listamannanna sem
að galleríinu standa. Opið alla daga
vikunnar fram að jólum.
Sólon Islandus, Bankastræti.
Cheo Cmz sýnir 12 olíumálverk á
annarri hæð staðarins. Opið alla
daga frá 12-19 til 6. janúar.
Sparísjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Álfabakka 14. Sýning á
verkum Vignis Jóhannssonar. Stend-
ur til 8. apríl.