Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
Fréttir__________________________________ pv
Mengun frá Grundartanga:
Umhverfisráðuneytið kref-
ur Hollustuvernd skýringa
- vill vita til hvaða aðgerða Hollustuvernd hefur gripið vegna mengunar frá járnblendinu
„í framhaldi af umræðu um
mengun frá starfsemi Jámblendi-
verksmiðjunnar og ályktun um það
frá íbúum Kjósarhrepps hefur um-
hverfisráðuneytið óskað eftir grein-
argerð frá Hollustuvemd ríkisins
um eftirlit með útblæstri verksmiðj-
unnar,“ segir Magnús Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri umhverfisráðu-
neytisins, í samtali við DV.
Magnús segir að Hollustuvemd
ríkisins sé eftirlitsaðOi með því að
framkvæmdaaðilar, svo sem stór-
iðja, fari að ákvæðum laga og
ákvæðum og skilyrðum starfsleyfis.
„Ef framkvæmdaaðili sinnir ekki
tilmælum eða fyrirmælum eftirlits-
aðila innan tiltekins frests má beita
dagsektum, allt að 100 þús. kr. á
dag, þar til úr hefur verið bætt,“
Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga.
segir ráðuneytisstjóri umhverfis-
ráðuneytisins.
Mjög mikill hiti er nú kominn í
umræðuna um nýtt álver á Grund-
artanga en hreppsnefnd og íbúar á
Kjalamesi hafa snúist í harða and-
stöðu gegn því að það rísi á þessum
stað vegna mengunar sem frá því
muni stafa. Andstaðan er að nokkru
byggð á þeirri reynslu sem er af
rekstri Jámblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga en mengun frá henni
hefur verið talsverð, ekki síst vegna
tíðra bilana undanfarin tvö ár í
tækjum sem hreinsa eiga útblástur
frá verksmiðjunni.
Jón Gíslason, bóndi á Hálsi í
Kjós, segir í samtali við DV að ná-
grannar Jámblendiverksmiðjunnar
beggja vegna Hvalfjarðar hafi ítrek-
að vakið athygli á ástandinu í Járn-
blendiverksmiðjunni og því stór-
fellda mengunarslysi sem þar hefur
átt og á sér stað, en án þess að við-
bragða yfirvalda hafi orðið vart.
Engar refsileiðir virðist vera færar.
Ráðuneytisstjóri umhverfisráðu-
neytisins segir við DV að ef kært er
þá beri Hollustuvernd að athuga
málið og grípa til aðgerða, eigi kær-
ur við rök að styðjast. Komi í ljós að
framkvæmdaaðili sé að koma sér
hjá ákvæðum í starfsleyfinu beri að
áminna fyrirtækið og krefjast úr-
bóta. Verði stjómendur verksmiðj-
unnar ekki við því hafi Hollustu-
vemd heimild til að ákveða viður-
lög, m.a. í samræmi við 28. grein
laga um hollustuhætti og heilbrigð-
iseftirlit. -SÁ
Hermann Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri HoHustuverndar:
Meiri sjónmengun en
bein eiturmengun
- unnin veröur greinargerö fyrir umhverfisráðuneytið
„Umhverfisráðuneytið hefur beðið
um álit Hollustuvemdar á efnasam-
setningu útblásturs frá Jámblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga og við
munum svara því með greinargerð,
en því er ekki lokið. Jafnframt verða
gefnar tölfræðilegar upplýsingar um
þessi tilfelli sem hafa verið, en allt er
þetta til skráð hjá stofnuninni,“ segir
„Tilgangur minn með fundinum
var að menn fengju ljósar upplýs-
ingar um faglega hluti hjá Hollustu-
vemd og væm ekki að deila um
staðreyndir," segir Ólafur Ólafsson
landlæknir en hann fundaði með
hreppsnefnd Kjósarhrepps og full-
trúum Hollustuvemdar vegna fyrir-
hugaðs álvers á Grundartanga.
Hermann Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Hollustuverndar, í sam-
tali við DV.
Hermann segir að það hafi verið
miklu meira um bilanir í hreinsibún-
aði Jámblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga sl. tvö ár en áður, svo
þurft hefur að hleypa fram hjá
hreinsivirki verksmiðjunnar meng-
Fundurinn fór fram í húsakynnum
Hollustuvemdar í gærmorgun.
Landlæknir er læknisfræðilegur
ráðgjafi Hollustuverndar og um-
hverfísráðuneytis.
„Hreppsnefndarmenn vildu ræða
um háa bilanatíðni í járnblendi-
verksmiðjunni sem ekki hafa verið
gefnar nægilegar upplýsingar um.
uðu lofti, aðallega af kísilryki og gufu.
Af þessu hafi verið meiri sjónmengun
en bein eiturmengim, að hans sögn.
Hermann var spurður hvort Holl-
ustuvemd hafi gripið til aðgerða
gegn Járnblendiverksmiðjvmni
vegna þessa, eins og stofnunin hefur
heimild til samkvæmt lögum. Hann
sagði að til ýtrustu aðgerða hefði
Þeir vildu fá tryggingu fyrir því að
slíkt yrði ekki við hina nýju verk-
smiðju. Þá var einnig spurt um
hversu stór verksmiðjan yrði. Ljóst
er að það er ekki reiknað með 60
þúsund tonna heldur 180 þúsund
tonna verksmiðju.
Þeir hafa aðaláhyggjumar af því
að þarna á að reisa stórt iðnaðar-
ekki verið gripið, en stjómendur
hennar hefðu jafhan tilkynnt stofn-
uninni þegar orðið hafi að hleypa
menguðu lofti fram hjá hreinsivirk-
inu, en þegar slíkt gerðist oft væri
álitamál hvort ekki ætti að draga
menn til ábyrgðar um viðhald og
endurbætur. Það hefði á þessu stigi
ekki verið gert. -SÁ
svæði sem er á við miðborg Reykja-
vikur. Við munum hittast aftur og
ræða þessa hluti nánar. Landlækni-
sembættið ræður hins vegar engu
um staðsetningu þessa álvers. Ef
allt fer fram sem horfir og menn
standa við sin loforð þá er líklegt að
mest verði um sjónmengun að
ræða,“ segir Ólafur. -RR
Stuttar fréttir
Slæm samkeppni
Samkeppni um mjólkurkvóta
sprengir upp verðið og skoða þarf
hvort halda eigi áfram frjálsu
framsali á kvótanum, segir fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna
í Degi-Tímanum.
Tæknival bæiir viö
Tæknival hf. hefur eignast
helmingshlut í tveimur hugbún-
aðarfyrirtækjum sem sérhæfa sig
í hugbúnaði í upplýsingatækni og
fyrir Intemetið.
Ferðalán Flugleiða
Flugleiðir bjóða nú greiðslu-
kortahöfúm upp á að greiða flug-
far og ferðir í heild með rað-
greiöslum til allt að tveggja ára
með 2500 króna lágmarksgreiöslu
og engri sérstakri innágreiðslu
við pöntun.
Sjúkraþjónusta flutt út
Heilbrigðisráðherrar íslands og
Grænlands hafa samið um sam-
starf um að koma á útflutningi á
heilbrigðisþjónustu frá íslandi til
Grænlands.
Eimskip og Jöklar
Eimskip og SH hafa samið um
flutninga á afurðum til Ameríku
og hefur Eimskip jafnframt keypt
skipið Hofsjökul af Jöklum hf.,
dótturfýrirtæki SH.
Reglum breytt
Ætlunin er að breyta reglum
um bílainnflutning þamiig að vél-
arstærð ráði álögum ríkisins en
ekki innkaupsverð bílanna eins
og nú er. Hyggst fjármálaráðu-
neytið með þessu stöðva innflutn-
ing notaðra bila á tilbúnu lágu
innkaupsverði. Morgunblaðið
segir frá.
Alþýðublaö í óvissu
Framtíð Alþýðublaðsins er
óráðin enn og óvíst um útgáfu
þess eftir mánaðamótin. Bylgjan
sagði frá.
FÍB-Trygging víkkar sviðið
Alþjóðleg miðlun, sem rekur
FÍB-tryggingu, hyggst fljótlega
bjóða upp á húsatryggingar og
innbústryggingar, en fyrirtækið
er í viðræðum við tryggingaaðila
innan og utan Lloyd’s sam-
steypunnar. Morgunblaðið segir
frá.
-SÁ
Fulltrúar Ibúa í Kjósarhreppi áttu í gær fundi meó Hollustuvernd, landlækni og fleiri yfirmönnum heilbrigðismála. Pað eru þeir Hermann Sveinbjörnsson,
framkvæmdastjóri Hollustuverndar, og Ólafur Ólafsson landlæknir sem eru til vinstri á myndinni. í kvöld gangast heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna í næsta
nágrenni við Grundartanga fyrir almennum fundi um stóriðju. DV-mynd GVA
Ólafur Ólafsson landlæknir fundaði með hreppsnefnd Kjósarhrepps:
Líklegt að mest verði um sjónmengun