Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
5
Fréttir
Fráskilin kona fæddi tvíbura eftir tæknifrjóvgun:
Fyrrverandi eiginmaður
úrskurðaður faðir sam-
kvæmt barnalögum
- skriflegt samþykki mannsins lá ekki fyrir
Héraðsdómur Reykjavikur hefur
úrskurðað að maður teljist faðir
tvíbura sem eiginkona hans fæddi
eftir tæknifrjóvgun.
Maðurinn hafði ekki gefið skrif-
legt samþykki fyrir frjóvguninni en
dómurinn taldi að maðurinn hefði
í raun samþykkt hana með því að
afneita ekki börnunum fyrr en
móðirin var komin sjö mánuði á
leið.
Maðurinn höfðaði mál gegn kon-
unni og kröfur hans voru þær að
dæmt yrði að hann skyldi ekki telj-
ast faðir tvíbura, tveggja svein-
barna, sem eiginkona hans ól.
Dómurinn sýknaði konuna af kröf-
um mannsins í málinu og var hon-
um einnig gert að greiða máls-
kostnað konunnar, krónur 350 þús-
und, í ríkissjóð.
Málsatvik
Málsaðilar gengu í hjónaband og
eignuðust dóttur fljótlega eftir það.
Vegna ófrjósemi konunnar var hún
getin með gjafasæði en málsaðilar
höfðu báðir óskað eftir slikri aðgerð
með skriflegri yfirlýsingu frá 18.
apríl 1992. Þcir lýsti maðurinn því
sérstaklega yfir að bam eða börn
sem kona hans fæddi eftir slíka
tæknifrjóvgun myndi hann á allan
hátt og ávallt skoða sem sitt eigið
barn.
í september 1993 flutti fjölskyldan
til London þar sem maðurinn stund-
aði nám. Sumarið 1994 voru málsað-
ilar á íslandi í nokkra mánuði og
kom þá til tals að þau hjónin eign-
uðust annað barn. Þau töluðu m.a.
bæði í síma við lækninn sem fram-
kvæmdi fyrri aðgerðina. Aðilar eru
ekki sammála um hvaða ákvarðanir
voru þá teknar en málsaðilar fengu
þær upplýsingar að ekkert væri því
til fyrirstöðu að framkvæmd yrði
önnur tæknisæðing.
Konan fór í slíka aðgerð í desem-
ber 1994 og eftir áramót kom í ljós
að hún hafði heppnast. Konan fæddi
tvíbura en skömmu áður höfðu
málsaðilar slitið samvistum og skil-
ið siðan að borði og sæng.
Niðurstaöa dómsins
í niðurstöðu dómsins kemur fram
að telja verði sannað að málsaðilar
hafi tekið sameiginlega ákvörðun
um að konan gengist undir tækni-
fijóvgun þá sem framkvæmd var 23.
desember 1994. Stefnandi hafi því í
raun verið samþykkur aðgerðinni
þótt ekki hafi verið gengið eftir því
að hann samþykkti hana skriflega.
Stefnandi telst þvi faðir barna
þeirra sem um ræðir samkvæmt 1.
mgr. 2. gr. bamalaga, nr. 20/1992.
Ber því að sýkna stefndu af kröfum
stefnanda í málinu.
Sigríður Ingvarsdóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn ásamt
meðdómurum sínum, Auði Þor-
bergsdóttur héraðsdómara og Valtý
Sigurðssyni héraðsdómara.
-RR
Svarfaðardalur:
Vallakirkja
endur-
byggð
DV, Dalvík:
Mikill einhugur er ríkjandi
meðal sóknarbarna í Vallasókn í
Svarfaðardal um að endurbyggja
Vallakirkju í upprunalegri
mynd. Þetta kom fram á fundi
sem haldinn var þriðjudags-
kvöldið 7. janúar.
Að sögn Elínborgar Sigurðar-
dóttur, formanns sóknarnefnd-
ar, var fundurinn vel sóttur og
mikillar bjartsýni gætti um að
þetta geti orðið að veruleika.
Gert er ráð fyrir að tryggingafé
nægi til að gera Vallakirkju fok-
helda á ný.
Fundurinn fól síðan sóknar-
nefnd að sækja um fyrirgreiðslu
úr sjóðum og var þá einkum
horft til Húsafriðunarsjóðs og
Jöfnunarsjóðs kirkna.
Elínborg sagði að þess utan
væri vitað að margir væru fúsir
að leggja hönd á plóginn, bæði
með fjárframlögum og vinnu, til
að kirkjan geti risið á ný. Fyrst
er að kanna hve mikið fæst úr
áðurnefndum sjóðum og ef til vill
fleiri. Að því mun sóknarnefnd
einbeita sér á næstu dögum.
Sem kunnugt er gjöreyðilagð-
ist Vallakirkja í eldsvoða á síð-
asta ári. -hiá
Eldri kona í Vogum heiðruð:
Leitar aö dósum og flösk-
um fyrir íþóttafélagiö
DV, Suðurnesjum:
„Ég hef haft mik-
inn áhuga á að
hjálpa unga fólkinu
í félaginu. Þau eru
meðal annars að
safha fyrir áhöldum
til leikja í nýja
íþróttahúsið. Ég fer
víða um og er alltaf
með augun hjá mér
ef ég sé dósir og
plastflöskur sem ég
safha saman til að
gefa félaginu,“ sagði
Sigríður Jakobsdótt-
ir, 73 ára íbúi í Vog-
um í Vatnsleysu-
strandarhreppi, í samtali við DV.
Sigríður hefur í nokkur ár safnað
plastflöskum og áldósum sem hún
hefur gefið Ungmennafélaginu
Þrótti í Vogum. í desember afhenti
Þróttur henni viðurkenningu fyrir
framtak hennar en Sigríður hefur
haft mikinn áhuga á starfi fyrir það.
Faðir hennar, Jakob Sigurðsson,
var einn af stofnendum félagsins. Þá
var Sigríður einnig í félaginu á sín-
um tíma.
Sigríður segist
fara á degi hverjum í
göngutúra ásamt
hundi sínum til að
tína og safna fyrir fé-
lagið. Hún hefur
ekki tölur yfir hvað
hún er búin að safha
en pokamir era all-
margir. Dósimar og
plastflöskurnar
skipta þúsundum.
Ég labba víða um
og fer oft niður á
strönd og upp í heiði.
Ég hef mjög gaman
af því að leita að
flöskum og dósum.
a Göngutúramir halda
mér við. Að geta hreyft sig og andað
að sér fersku lofti er alveg dýrlegt.
Þegar ég og maðurinn minn erum á
rúntinum þá læt ég hann stoppa ef
ég sé dós við veginn," sagði Sigríð-
ur.
Hún er eldhress. Lék meðal ann-
ars oft á þorrablótum í samkomu-
húsinu í Vogum fyrr á árum. Faðir
hennar byggði húsið 1932 og Sigríð-
ur byrjaði strax að leika á sviðinu.
-ÆMK
Sigríður með dósir.
DV-mynd ÆMK
Bónusdagar
Þrír ævintýradagar meöan húsrúm leyfir
Innifalið:
Gisting í 3 nætur, morgunverður af hlaðborði alla
dagana og einn þríréttaður kvöldverður.
Verð kr. 4.950
Upplýsingar og bókanir á Hótel Örk, Hveragerði.
Fyrstur kemur - fyrstur fær
LYKIL
HÖTEL
Lykillinn að íslenskri gestrisni.
Hveragerði - Sími 483 4700 - Bréfsími 483 4775
Egils Kristall
með sítrónubragði hentar Vel
með öiium fiskréttum