Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Page 7
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 7 Flugeldabann: Nánast úti- lokað - segir Björn Friöfinnsson „Ég tel það nánast útilokað að hægt sé að túlka efhi EES-samn- ingsins með þeim hætti að bann- að sé að skjóta upp flugeldum. Ég hef verið í viðræðum við þá aðila í umhverfisráðuneytinu sem m.a. stóðu að samningnum og þar könnuðust menn ekki við neitt slíkt og töldu ekki ástæöu til að hafa áhyggjur af þessu,“ sagði Björn Friðfínnsson, sérfræðingur í málefnum EES, með þeim fyrir- vara þó að hann hafi ekki lesið allar þessar reglur og hafi ekki verið með í samningsgerðinni. Erlendur leiðsögumaður, skjól- stæöingur Jóns Oddssonar lög- manns, hefúr lýst yfir áhyggjum af því að íslenska ríkið hafi und- irritað samning Evrópubanda- lagsins um umhverfisvernd sem m.a. bannar notkun flugelda vegna hættu á umhverfismengun. í kjölfarið skrifaði Jón Ferða- málaráði bréf og bað um að þetta yrði kannað því öll hótel og veit- ingahús eru þegar fullbókuð fyrir áramótin 2000. „í viðauka 20 við EES-samning- inn eru ákveðin hámörk fyrir út- blæstri á koldíoxíði og brenni- steinsdíoxíði en þar er ekki átt við eitthvað sem gerist í nokkrar klukkustundir heldur er átt við langtíma útblástur frá iðnaði eða einhverju slíku. Slík gildi miðast alltaf við varanlegt ástand. Ég á því ekki von á því að erlendir að- ilar geri neinar athugasemdir við flugeldanotlnm okkar um áramót sem stendur yfir í 4-5 klukku- stundir," sagði Bjöm. -ingo Fiskveiðiheimildir Færeyinga og íslendinga: Færeyingar fá 30 þúsund lestir af loðnu á vorvertíð - samkvæmt ráðherrasamkomulagi Ríkisstjórnin fjallar í þessari viku um samkomulag Johns Peter- sons, sjávarútvegsráðherra Fær- eyja, og Þorsteins Pálssonar sjávar- útvegsráðherra um gagnkvæmar veiðiheimildir Færeyinga og Islend- inga í lögsögu beggja á þessu ári og því næsta. í framhaldinu verður formlega gengið frá fiskveiðisamn- ingi milli landanna Samkvæmt samkomulagi ráð- herranna verða botnfiskveiðiheim- ildir Færeyinga í íslenskri lögsögu óbreyttar frá síðasta ári eða um 5 þúsund tonn. Hámarksafli einstakra tegunda er óbreyttur að öðru leyti en því að Færeyingar mega veiða 200 tonnum meira af keilu. í upp- sjávarfiskafla eru gagnkvæmur heimildir óbreyttar frá síðasta ári. íslendingar fá að veiða kolmunna, 2 þúsund lestir af annarri síld en norsk-íslenskri og 1000 lestir af makríl í færeyskri lögsögu. Færeyingar fá að veiða kolmunna og 30 þúsund lestir af loðnu í ís- lenskri lögsögu. Þá er lagt til að Færeyingar megi veiða allan loðnu- aflann á vorvertíð en óheimilt verði að frysta þann afla um borð eða landa honum annars staðar en á ís- landi nema til bræðslu. -SÁ Peningavandi LR: LR baö um 15 millj- ónir en borgarráð reiðir fram fimm - samstarfssamningur endurskoðaður Borgarráð Reykjavíkur sam- þykkti í gær að veita Leikfélagi Reykjavíkur sérstaka 5 milljóna króna fjárveitingu í tilefni af aldar- afmæli Leikfélagsins á þessu ári en Þórhildur Þorleifsdóttir leikhús- stjóri hafði farið fram á það i bréfi til borgarstjóra að fjárframlag borg- arinnar á fjárhagsáætlun yrði hækkað um 15 milljónir króna. Jafnframt því að samþykkja fyrmefnt framlag til LR minnir borgarráö á það að samstarfssamn- ingur borgarinnar og LR sé fallinn úr gildi síðan um síðustu áramót. Viðræðunefnd um nýjan samstarfs- samning, sem skipuð var í júlímán- uði sl., hafi enn ekki lokið störfum og mikilvægt sé að hún hraði störf- um sínum svo gera megi nýjan samning hið fyrsta. -SÁ Samúðarbók vegna prins Bertils Vegna fráfalls hans hátignar heimili sendiherra Svíþjóðar að prins Bertils þann 5. janúar 1997 Fjólugötu 9 dagana 7.-10. janúar liggur samúðarbók frammi fyrir þá klukkan 11-14. sem óska að rita nafn sitt i hana á Neyðaráætlun: Aðeins tilbúin á Flateyri Sigríður Hrönn Elíasdóttir, svæð- issfjóri Rauða krossins á Vestfjörð- um, vill taka fram, vegna fréttar í DV, að neyðaráætlun sé aöeins til- búin á Flateyri en unnið sé að gerð neyðaráætlana annars staðar á Vestfjöröum. Hún segir að gert sé ráð fýrir að þær verði tilbúnar alls staðar á næstunni. Fréttir Mikifl þorskur á stóru svæði á Vestfjarðamiðum: Það er gnótt fiskjar og stanslaus flótti - segir Bjarni Viggósson, skipstjóri á togaranum Stefni „Það er þorskur hér á geysilega stóru svæði. Það er fiskur nánast alls staðar í köntimum þar sem bor- ið er niður. Það er ekkert skip á þorskveiðum eins og stendur enda hafa menn ekki úr neinum kvóta að spila,“ segir Bjami Viggósson, skip- stjóri á togaranum Stefni ÍS frá ísa- firöi, þar sem hann var við veiðar í Víkurál. Bjarni segir helsta vandann vera að forðast þorskinn og finna aðrar tegundir. Hann segir nánast sama hvar borið sé niður á svæöinu frá Víkurál í vestri og að Reykjafjarðar- ál; alls staðar sé þorskurinn að þvæl- ast fyrir. „Það lóöar ekkert á fiski hér og ég get nefnt sem dæmi að ég dró i tvær klukkustundir án þess að sjá neitt en það voru tonn af góðum þorski þegar ég hífði. Það er óhætt að segja að komið hafi á óvart að fá slíkan feng. Við höfúm það lítinn kvóta að þetta var í fuliri óþökk,“ segir Bjami sem má veiða hátt í 25 tonn af þorski á viku. Hann fékk því vikuskammtinn á tveimur klukkustundum. „Það er mjög erfitt að forðast þor- skinn og þetta er alltaf að versna. Þetta ástand er mjög öfugsnúið. Gnótt fiskjar og stanslaus flótti und- an bjargræðinu," segir Bjami. -rt Kennarafélag Vélskólans: Telur að stefni í óefni í menntamálum Kennarafélag Vélskóla íslands sendi frá sér ályktun á aðalfundi fé- lagsins þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum vegna þróunar mennta- mála á íslandi og þá sér í lagi verk- menntunar. Kennarafélagið telur að ýmis at- riði valdi því að í óefni stefni í menntamálum á íslandi. í ályktun frá félaginu segir að það sé afar brýnt að allir sem málið snertir, yf- irvöld menntamála og skóla, kenn- arar og þjóðin öll, taki höndum sam- an um að snúa þessari þróun við. -RR UTSALAN HEFST í FYRRAMÁLIÐ KL. 10:00 0 R I G I N A L Levrs \m MIKILL AFSLÁTTUR - í nokkra daga - LEVI’S BÚÐIN - LAUGAVEGI 37 - REYKJAVÍK - S. 561 8777 - RÁÐHÚSTORGI 9 - AKUREYRI - S. 461 1858

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.