Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Síða 9
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
9
Utlönd
Eí þig langar í gott
rúm skaltu koma og prófa
»
Loftbelgur auðkýfingsins hrapaði á fleygiferð:
Branson feginn að vera lif-
andi og það eitt skipti máli
Breski auðkýfmgurinn Richard
Branson sagði í gær að hann væri
himinlifandi yfir að vera enn á lífi
eftir að tilraun hans til að fljúga
umhverfis jörðina í loftbelg endaði
með ósköpum þegar belgurinn skall
á fleygiferð niður í eyðimörkina í
Alsír, aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að lagt var upp frá
Marokkó.
Loftbelgurinn kom niður í eyði-
mörkinni í kolniðamyrkri og var
hraði hans svona tvöfalt meiri en
hraðlyftu. Öðrum aðstoðarmanna
Bransons, Alex Ritchie, tókst þó að
klifra upp á þak belghylkisins og
varpa niður tveimur kjölfestutönk-
um til að létta loftbelginn og hægja
aðeins á ferðinni. Skömmu áður
hafði belgforum tekist að svifa yfir
fjallgarð.
Branson reyndi einnig að hægja á
ferðinni með því að kasta út bæði
mat og eldsneýti.
„Alex er hetja dagsins,“ sagði
Branson við mennina í stjómstöð-
inni í London. „Hann bjargaði lífi
okkar."
Ritchie slóst í hópinn á síðustu
stundu þegar hann kom í staðinn
fyrir Rory McCarthy sem þurfti að
hætta við förina vegna veikinda.
Aðspurður hvort hann væri von-
svikinn sagði Branson í viðtali frá
Alsír: „Það er gott að vera lifandi,
gott að sitja hér í þessu stórkostlega
eyðimerkurlandslagi og það er það
sem skiptir raunverulega máli.“
Hann sagði að lendingin hefði
verið allsvakaleg, miklu líkari geim-
flugi en loftbelgsflugi. „Það er eins
og við séum lentir á tunglinu,“
sagði Branson og gerði að gamni
sínu úti í eyðimörkinni.
Loftbelgurinn lenti nærri bænum
Bechar, um 640 kilómetra frá þeim
stað sem lagt var upp ffá í Marokkó.
Þyrla frá alsírska hernum kom fljót-
lega á staðinn eftir að belgurinn
lenti.
Ekki hefur enn tekist að finna út
hvað varð raunverulega til þess að
belgurinn hrapaði til jarðar.
Reuter
# Ide Box fjaðradýnurnar eru á tréramma og geta staðið
einar sér eða passa ofan í flest öll rúm.
# Hjón geta valið sitthvora dýnugerðina ef vill og eru
þá dýnurnar einfaldlega festar saman.
# Ide Box fjaðradýnurnar hafa leyst málin fyrir þær þúsundir
íslendinga sem kusu betri svefn.
# Ide Box fjaðradýnurnar eru alltaf til á lager
# Ide Box fjaðradýnurnar eru ekki dýrar.
Komdu og prófaðu Ide Box fjaðradýnurnar.
Sérþjálfað starfsfólk okkar tekur vel á móti þér.
É,-'...................'N
/ Munið bara
Ide Box fjaðra- ,
dýnurnar fást /
\ aðeins hjá /
\ okkur. _'
Karólína prinsessa af Mónakó við eina af mörgum hátíöarsýningum sem hófust í gær í tilefni 700 ára afmælis fursta-
dæmisins. Sfmamynd Reuter
# Vandað og margbreytilegt fjaðrakerfi sem tryggir réttan
stuðning, þægindi og endingu.
# Margar gerðir eru til þannig að allir geta fundið dýnu
við sitt hæfi, þungir eða léttir -það skiptir engu máli.
# Margar stærðir eru í boði, allt frá 80 sm.
# Góð yfirdýna fylgir öllum Ide Box fjaðradýnunum.
Þrír morðingjar
teknir af lífi í
einu I Arkansas
Þrír dæmdir morðingjar voru
teknir af lífi í Arkansasfylki í
Bandaríkjunum í nótt. Aðeins
einu sinni áður hafa þrír menn
verið líflátnir á einu bretti frá
því dauðarefsingar voru teknar
upp að nýju vestra árið 1976.
Mönnunum voru gefnar eitur-
sprautur í sama aftökuherberg-
inu en með nokkru millibili þó.
Sá sem var síðastur mannanna
þriggja fékk smáfrest á meðan
hæstiréttur fjallaði um og hafn-
aði beiðni um að stöðva aftök-
una. Þurfti hann að bíða í
klukkutíma á dauðabekknum.
Mannréttindahópar höíðu uppi
hávær mótmæli gegn aftökum
þessum.
Assad Sýrlands-
forseti
heim eftir
skurðaðgerð
Hafez al-Assad Sýrlandsforseti
fór heim af sjúkrahúsi í gær eftir
vel heppnaða aðgerð á blöðru-
hálskirtli, að því er talsmaöur
forsetans skýrði frá.
Hann sagði að forsetinn mundi
sinna öllum skylduverkum sín-
um á ný innan fárra daga.
Ekki var skýrt frekar frá að-
gerðinni á Assad sem er 66 ára.
Botnlangi hans hafði áður verið
fjarlægður og eitthvað hefúr hjart-
að verið að angra hann. Reuter
Margrét Danadrottning.
Sænskur dálkahöfundur gagnrýnir keöjureykingar Margrétar Þórhildar:
Drottningin gangandi
auglýsing fyrir tóbak
- danskir Qölmiðlar í reykstríð við Svía
„Leyfið drottningunni að reykja í
friði“, „Skiptið ykkur ekki af ann-
arra málum“ og „Haltu áfram að
púa, Margrét". Þetta voru fyrirsagn-
ir danskra blaða í gær í kjölfar
gagnrýni sænska sjónvarpsmanns-
ins og dálkahöfundarins Hagges
Geigerts á reykingum Margrétar
Danadrottningar.
í grein sem Hagge skrifaði í dag-
blaðið Göteborg-Posten á laugardag-
inn gagnrýndi hann drottninguna
harkalega fyrir keðjureykingar og
sagði hana vera gangandi auglýs-
ingu fyrir tóbak þótt vitað væri að
það gæti valdið krabbameini.
Drottningin gæfi þannig slæmt for-
dæmi.
„Danska drottningin hefur sér-
stakan þjón sem gengur á eftir
henni með öskubakka. Hún reykir
alls staðar, jafnvel á heilsugæslu-
stöðvum,“ skrifaði Hagge. „Ég tel
það rangt af drottningunni að
reykja á opinberum stöðum þar sem
reykingar eru bannaöar," skrifaði
Hagge einnig. Hann gat þess jafn-
framt að Karl Gústaf Svíakonungur
gætti þess að reykja aldrei fyrir
framan blaðaljósmyndara eða sjón-
varpstökumenn.
Danska pressan brást ókvæða við
athugasemdum Hagges og sakaði
Svía mn tvískinnung, bannhugarfar
í amerískum stfi og hræsni. „Er það
til marks um ábyrgðartilfinningu
að sænski konungurinn læðist inn á
salernin til að reykja í laumi?“
spurði Ekstra Bladet í gær.
Danska hirðin neitaði að tjá sig
opinberlega um málið í gær. Tals-
maður danska krabbameinsfélags-
ins sagði það einkamál drottningar
hvort hún reykti eða ekki.
Reykstríð Dana við Svía hófst
þegar aðeins er vika til hátíðahalda
i Danmörku vegna 25 ára setu
drottningar i hásæti. Verður Svía-
konungurinn meðal annarra tig-
inna gesta drottningar. Reuter
lCpÉflprMfeite