Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1997 menning u 1 I i < < i ( i i i i Í i í i i Langar þig í mest spennandi skólann íbœnum? Langar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn hugsanlega og líklegast eru í dag og hversu öruggt meint samband við þá og þessa undarlegu heima er með aðstoð miðla? Langar þig að vita hvað eru afturgöngur, líkamningar, álfar, huldufólk, fjarskynjun, fyrirboðar, berdreymi svifjógar, ærlsa- draugar, eða bara hvers vegna skilaboð koma að handan? Og langar þig að setjast í skemmtilegt og svo sannarlega spennandi skóla í glaðværum og jákvæðum hópi nemenda eitt kvöld í viku eða eitt laugardagseftirmiðdegi í viku, þar sem farið er ítarlega í máli og myndum sem og í námsefni yfir allt sem lýtur að framhaldslifi okkar jarðarbúa eins og mest og best er vitað um það á hnettinum í dag, fyrir hófleg skólagjöld? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfir ftmm hundruð ánægðum nemendum sl. fimm misseri. Þrír byrjunarbekkir hefja brátt nám í sálarrannsóknum I nú á vorönn ’97. Skráning stendur yfir. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um mest spennandi skólann sem í boði er í dag. Yfir skáningardagana er svarað í síma Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar kl. 14 til 19. Vala einleikur á ný Á laugardaginn kl. 21 hefjast sýningar á tveim einleikjum Völu Þórsdóttur, leikkonu og leikskálds, í Kaffi- leik- húsinu í Hlað- varpan- um. Þann fyrri, Eða þannig, sýndi Vala á sama stað í fyrravor við góðar undirtektir en þann seinni, Kíki, súkkulaði, fýlugufu og rusl, sýndi hún í dagskrá sem hún var meö í Kaffileikhúsinu í nóvember ásamt hinum óvið- jafnanlega dúett Súkkati. Vala hefur síðastliðið sumar og haust sýnt Eða þannig á ítal- iu á ítölsku og í Kaupmanna- höfh og London á ensku við prýðilegar undirtektir. í bígerð eru sýningar í öðrum leikhús- um í London og leikferð um Bretlandseyjar. Næstu sýningar Völu í Kafii- leikhúsinu eru 11., 17. og 18. janúar. Mímir kveikti í krökkunum í nóvember síðastliðnum var haldin samnorræn lestrarkeppni nemenda í grunnskólum með stuðn- ingi norrænu ráðherranefndarinn- ar. Keppnin hlaut nafnið Mímir - enda til þess ætlast að börnin yrðu margs vísari þegar henni lyki. Öll- um grunnskólum á Norðurlöndum var boðið að vera með en ekki gátu allir þegið boðið. Þátttakendur lásu norrænar bók- menntir af kappi i tvær vikur og að loknum lestrinum voru unnin vegg- spjöld í hverjum bekk þar sem áhrif bókmenntanna voru táknuð á mynd. Hver skóli mátti senda þrjú veggspjöld til sérstakrar dómnefnd- ar ásamt meðfylgjandi lista yfir lesnar bækur og nú hafa verið valin veggspjöld úr íslenska bunkanum til að setja á sýningu sem verður opnuð á morgun í anddyri Norræna hússins. DV hafði samband við Garðar Gíslason, verkefnisstjóra Mímis, um árangur af keppninni. „Okkur bárust 425 veggspjöld frá 143 skólum hvaðanæva af landinu,“ segir Garðar, „og getum ekki sýnt nema litinn hluta þeirra á sýning- unni. Sjálf keppnin var í þrem hóp- um eftir aldri. í fyrsta aldurshópi var 1. til 4. bekkur, 6-9 ára börn, í öðrum hópi var 5. til 7. bekkur, 10-12 ára, og loks elsti hópurinn, 8.-10. bekkur eða 13-15 ára krakkar. Tæplega 75% af skólum landsins tóku þátt í keppninni, þar af lang- flestir stóru skólarnir, þannig að tæplega 90 af hverjum 100 íslensk- um grunnskólanemendum tengdust keppninni. Við erum að tala um al- veg rosalega þátttöku. Félagar mínir annars staðar á Norðurlöndum eru líka ánægðir með þetta framtak og þátttökuna hjá sér en við veitum þeim algert rothögg með þátttökunni hjá okkur. Norðmenn fengu til dæmis um 450 veggspjöld og eru alveg í skýjunum, Svíar fengu 350 og Danir og Finnar eitthvað álíka. Það þýðir að mun færri skólar hlutfallslega hafa verið með þar. Á veggspjöldunum túlka krakk- amir upplifun sína af lestrinum og þau eru metin sem myndlist, þannig að ekki voru endilega send inn þau spjöld sem lengstir lestrarlistar fylgdu. En það mesta sem ég hef séð á lista frá einum bekk voru 2.400 blaðsíður á nemanda að meðaltali. Það er gríðarlega mikill lestur og þó getur verið að einhver bekkur hafi lesið ennþá meira en veggspjaldið ekki þótt nógu gott til að senda það inn.“ - Heldurðu að svona keppni hafi áhrif? „Ég er ekki í nokkrum vafa um það. Þetta þjálfar krakka sem voru duglegir fyrir og kveikir í þeim sem vissu ekki hvað það getur verið gaman að lesa bækur. Eftir lestrar- keppnina, sem var haldin hér á landi 1993, jukust útlán á bókasöfn- um umtalsvert, segja mér bókaverð- ir, og núna er til að bókasöfn hafi hreinlega sprungið vegna álags. Keppnisandinn er svo skemmti- legur núna að viða á Norðurlöndum vilja menn halda áfram og margir hér heima lika, gera þetta að árleg- um viðburði innan skóla eða i stærra samhengi. Áhuginn er ótrú- lega mikill. Ég frétti af heilu stiga- göngimum þar sem krakkar sátu í tröppunum og kepptust um að lesa! Verðlaunin verða fyrir veggspjald og lestur sameiginlega og þrjú spjöld verða verðlaunuð í hverjum aldurshópi. Allir í verðlaunabekkj- unum fá boli og bækur og bekkimir sem fá fyrstu verðlaun fá 90 þúsund krónur í sameiginlegan sjóð. Svo verða veggspjöldin þrjú sem hljóta fyrstu verðlaun send áfram til Stavanger í Noregi. Þar verður stór bókmenntahátíð fyrir börn og ungl- inga 9.-12. febrúar og einn liður á dagskránni er að velja úr verð- launaspjöldum alls staðar af Norð- urlöndum. Einum nemanda úr hverjum bekk sem hlýtur fyrstu verðlaun verður boðið þangað ásamt fylgdarmanni. Þetta verður mikil hátið fyrir þá heppnu.“ Sýningin í Norræna húsinu verð- ur opnuð klukkan 14 á morgun og hún stendur til 29. janúar. Orðstöðulykill Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, veitir árlega viður- kenningu að upphæð 400 þúsund kr. fyrir merkt fræðirit eða kennslu- gögn. í gær var þessi viðurkenning veitt i tíunda sinn og hlaut þau hóp- ur fjögurra fræðimanna fyrir útgáfu á geisladiski fyrir PC-tölvur meö texta allra íslendingasagna ásamt orðstöðulykli. Þau sem viðurkenn- inguna hlutu eru Eiríkur Rögnvalds- son málfræðiprófessor, sem var aðal- ritstjóri verksins, Bergljót Kristjáns- dóttir, Guðrún Ingólfsdóttir og Öm- ólfur Thorsson. „Þetta er verkefni sem byrjað var á fyrir mörgrnn árum," segir Ömólf- ur. „Allur texti Islendingasagna var greindur í orðfiokka með styrk frá Vísindaráði. Þetta er ekki vélrænn orðstöðulykill eins og tölvurnar búa til heldur er til dæmis búið að setja á sinn stað orðmyndir sem líta eins út en eru í ólíkum flokkum. Eins og hið fræga dæmi „á“! í útprenti er þetta nokkuð þykk bók, milli sjö og átta þúsund blaðsíð- ur miðað við 100 línur á siðu, og ekki var talið að útgefendur myndu slást um að gefa hana út. Því þótti skyn- samlegra að koma þessu öllu fyrir á einum geisladiski. A einum diski em 650 megabæt en svo dæmi sé tekið er Njála aðeins hálft megabæt." - En til hvers er svona diskur og hverjum gagnast hann? verðlaunaður „Á diskinum er ekki bara orð- stöðulykillinn heldur líka texti sagn- anna, ekki stafréttur texti heldur á nútimastafsetningu. Axel Gunn- laugsson hefur smíðað leitarforrit til að vinna með þetta mikla efni, ann- ars vegar að leita í sögum og úr þeim yfir í orðstöðulykil eða fara frá lykli yfir í sögur. Við létum fylgja merk- ingarflokkaða skrá yfir öll nafnorð í sögunum. Ef þig langar til dæmis til að skoða böm og uppeldi í íslend- ingasögum þá er búið að grófgreina öll nafnorð í sögunum í efnisflokka, og einn af tuttugu yfirflokkum er börn og uppeldi. Þar eru talin þau nafnorð sem okkur sýndist falla á það svið. Þú tekur þau orð, leitar þau uppi í orðstöðulyklinum, velur þér dæmi og færð yfírsýn yfir þennan merkingarflokk. Allir áhugamenn um sögurnar geta notað efnið á þessum diski, jafnt málfiræðingar sem eru að rannsaka stíl og orðaforða íslendingasagna, og skólanemendur. Þetta er öflugt tæki fyrir skólakerfið, bæði grunnskóla og framhaldsskóla, kennara í leit að hentugum viðfangsefnum handa nemendum og krakka sem langar til að gramsa sjálfir i sögunum. Diskurinn er sem sagt fyrir alla sem vilja skoða sögurnar og flýta fyr- ir sér ef þeir kunna þær ekki alveg utanbókar." Á myndinni eru Garðar Gíslason og Nína Dögg Filippusdóttir með vegg- spjöld frá Hallormsstaðaskóla og Álftanesskóia. Spjöld frá Víðistaða- skóla, Snælandsskóla og Kirkju- bæjarskóla á Síðu liggja á borðinu. DV-mynd Pjetur Vegmúla 2 s. 561 9015 & 588 6050 ^\NGA «5. V * <-7 Fallegir silfurskartgripir og keramikvörur Silfurskemman Skólavöröustíg 12 - Sími 552-2840 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.