Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Page 15
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
15
Hefja þarf biskupsval
Kristján Björnsson vill láta hefja biskupsval sem
fyrst þar sem biskup íslands, herra Ólafur Skúlason,
hafi þegar tilkynnt hvenær hann hyggist láta af emb-
ætti.
Það er nauðsyn-
legt að hefja undir-
búning að biskups-
vali á allra næstu
vikum. Við síðasta
vígslubiskupsval
komu í ljós veru-
legir vankantar á
reglugerð kirkju-
málaráðherra um
biskupsval þar
sem óvissa ríkir
um hverjir það
eru sem taka eiga
þátt í valinu. Um
þetta atriði fjallaði
umboðsmaður Al-
þingis á sínum
tíma og benti á
nauðsyn þess að
endurskoða reglu-
gerðina. Ráðuneyt-
ið þarf því að
vinna heimavinnu sína til að eyða
óvissu um kjörmennina en þetta
varðar einkum þá presta sem
sinna sérþjónustu á stofhunum.
Sjálft biskupsvalið verður ekki af-
greitt á einni nóttu en fyrir liggur
að það þarf að fara fram á þessu
ári. Eftir að reglugerðaróvissu hef-
ur verið eytt getur framkvæmd
kosninganna tekið nokkrar vikur
enda er biskupsval skriflegt.
Kjörseðlar eru sendir til kjör-
manna í pósti og hefur hvert skref
kosninganna sinn fyrirvara í tíma.
Ef ekki næst afdráttarlaus meiri-
hluti um einn mann í kosningunni
er gert ráð fyrir annarri umferð í
biskupsvali og tekur það jafnlang-
an tíma í framkvæmd. Það er því
ekki óeðlilegt að áætla að það geti
tekið allt að þremur til fjórum
mánuðum að ljúka biskupsvali
vegna þessara sérstöku aðstæðna
sem nú eru uppi.
Ekki eftir neinu aö bíöa
Annars vegar snýst undirbún-
ingur að biskupsvali um þessa
lagalegu framkvæmd sem að
mestu leyti er 1 höndum kirkju-
málaráðherra og kallar á frum-
kvæði hans. Ekki er eftir neinu að
bíða þar sem biskup íslands, herra
Ólafur Skúlason, hefur þegar lýst
þvi yflr frá hvaða tíma
hann muni biðjast lausn-
ar frá embætti. Jafhvel
þótt ekki lægi fyrir skrif-
leg lausnarbeiðni nú
hafa opinber og afdrátt-
arlaus orð svo háttsettra
manna formlegt gildi
samkvæmt gamalli hefð.
Það eykur gildi þessarar
yfirlýsingar að hún kom
fram í opinberri setning-
arræðu prestastefnu og
vísaði biskup þar til þess
að kirkjumálaráðherra
hefði fallist á þessa áætl-
un um starfslok.
Hins vegar snýr þetta að
hópi kjörmanna sem
þurfa að gera upp hug
sinn á þessu misseri og
velja eftir bestu sam-
visku þann sem best er
til þess fallinn að gegna þessu háa
embætti. Okkur kjörmönnum er
nokkur vandi á höndum, þótt
hann sé léttvægur samanborið við
þann vanda sem lagður verður á
herðar næsta biskupi. Sá maður,
karl eða kona, fær það verðuga
verkefni að leiða þjóðkirkjuna inn
í 21. öldina. Það mun sannarlega
reyna á brjóstvit og þekkingu þess
er valinn verður til forystu. í
kirkjulegu embætti mun þó ætíð
reyna mest á trú þess einstaklings,
vitnisburð og þjónustu. í bisk-
upsvali er enginn í framboði en
allir í kjöri sem rétt hafa til að
gegna embættinu samkvæmt lög-
um. Þetta kerfi kallar á menn til
að gegna þjónustunni þannig að
óeðlilegt er að einhver geti sóst
eftir að sitja á biskupsstóli. Til að
auðvelda kjörmönnum að kynnast
þeim mönnum vel, sem þeir vilja
treysta til þessarar upphefðar og
vandastarfa, er
nauðsynlegt að
efna til formlegra
funda um þær
áherslur og leiðir
sem yfirstjóm
kirkjunnar þarf
að halda á lofti í
framtiðinni.
Óæskileg
spenna
Kjörmannahópur-
inn er að vísu samsettur úr ýms-
um áttum og þeir safnast að jafn-
aði ekki saman á einum fundi eða
ráðstefnu. Stærstur meirihluti
kjörmanna er þó
úr einni stétt,
sem er presta-
stéttin. Prestafé-
lag íslands er
því best fallið til
að standa fyrir
slíkum málfund-
um þar sem öll-
um kjörmönn-
um yrði boðin
þátttaka en get-
ur auðvitað vís-
að því til deilda
Prestafélagsins
er starfa í land-
inu. Það er skoð-
un mín að þessi
hluti undirbún-
ingsins þurfi að
eiga sér stað á
þessu misseri og
fyrir vorið.
Ég hvet þvi til
þess að starf
þetta fari af stað
sem fyrst því all-
ir atburðir eiga
sinn aðdrag-
anda. í flestum
kirkjudeildum,
þar sem biskup
er kosiim, er
það gert með
góðum fyrir-
vara. Það er
ekki óalgengt að
sá tími sé heilt ár en mjög víða er
stefnt að þvi að niðurstaða liggi
fyrir um val á eftirmanni biskups
að minnsta kosti hálfu ári áður en
skiptin verða. Það er vissa mín að
slíkt muni valda minnstri röskun
og draga úr óæskilegri spennu.
Það er mikilvægt að næsti biskup
fái nokkurra mánaða undirbún-
ingstíma til að taka við biskups-
embættinu og því verði stefnt að
þvi að niðurstaða liggi fyrir strax
i sumar. Slíkur var kristinna
manna háttur í þessu landi áður
fyrr. Er þaðan komið orðið bisk-
upsefni um mann sem valinn
hafði verið biskup en beið þess að
taka við embætti.
Kristján Björnsson
Kjallarinn
Kristján
Björnsson
sóknarprestur og rit-
stjóri Kirkjuritsins
„Sjálft biskupsvalið verður ekki af■
greitt á einni nóttu en fyrir liggur
að það þarf að fara fram á þessu
ári. Eftir að reglugerðaróvissu hef-
ur verið eytt getur framkvæmd
kosninganna tekið nokkrar vikur
enda er biskupsval skriflegt.u
Stuðningur við samruna
- innanlands sem utan
Margir hafa furðað sig á því
hvemig eini flokkurinn sem opin-
berlega styður aðild íslands að
Evrópusambandinu geti ætlað sér
að sameinast svörnum andstæð-
ingum sínum á því sviði. Ef litið
er á flokkaflóruna hefur Fram-
sóknarflokkurinn ítrekað lýst and-
stöðu sinni við aðild íslands að
Evrópusambandinu. Kvennalist-
inn er meira á gráu svæði: tökum
- ekki - afstöðu - heldur - bíðum
- og - sjáum. Alþýðubandalag og
Sjálfstæðisflokkm virðast eiga
fulla samleið hvað þetta mikilvæg-
asta utamíkismál okkar varðar:
Ríkið og þjóðin hvorki á né má
ræða kosti og
galla ESB-aðild-
ar. Núverandi
ríkisstjóm hefur
til að mynda
stöðvað þá at-
hugun sem sett
var af stað að til-
hlutan Alþýðu-
flokksins í síð-
ustu rikisstjórn
á kostum og
ókostum aðildar
íslands að ESB.
Hvers vegna í ósköpunum ættu þá
allir þessir hörðu Evrópusinnar
að vilja sameinast ákveðnum
hluta þessara andstæðinga sinna í
einum flokki þegar útséð er um að
samstaða næst í þessu máli?
Ekki þarf annað en að líta til
hinna margumtöluðu nágranna-
þjóða okkar til að sjá svarið. Þær
em allar búnar að ganga i gegnum
umræður, baráttu og kosningar
um ESB. Þar hafa flokkar verið
klofnir fram og til baka í afstöðu
sinni, þar á meðal jafnaðarmanna-
flokkamir. í Noregi barðist meiri-
hluti AUF, hinnar gríðarsterku
xmgliðahreyfingar jafnaðarmanna
þar í landi, gegn meirihluta
flokksforystimnar sem studdi að-
ild. Og hafði betur, Norðmenn
sögðu nei.
Lýöræöiö njóti sín
En það datt engum í hug að
standa upp og segjast ekki sjá
hvemig þetta fólk ætti heima í
sama flokki vegna þessa ágrein-
ings. Hvorki innanflokks né utan.
Klofhingur, út af ESB? Aldrei.
Enda væri það fáránlegt - jafn fá-
ránlegt og að láta samvinnu jafn-
aðarmanna hér uppi
á íslandi stranda á
því.
Hin nýju samtök
jafnaðarmanna hafa
það á stefnuskrá
sinni að þjóðin gefi
álit sitt á aðildarum-
sókn í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, að
undangenginni viða-
mikilli, upplýstri um-
ræðu og skilgrein-
ingu samningsmark-
miða. Þannig fær lýð-
ræðið að njóta sín og
þetta er raunar
einnig sú leið sem
Evrópusambandið
hefur lagt til að verði
farin hjá þeim ríkj-
um sem sækja um héðan í frá svo
minni líkur séu á að áralöng
samningavinna fari í súginn eins
og gerðist í tilfelli NorðmEuina.
Síðan fer að sjálfsögðu einnig fram
þjóðaratkvæðagreiðsla um samn-
inginn þegar hann liggur fyrir ef
niðurstaða fyrri kosninga leiðir til
þeirrar niðurstöðu að þjóðin kýs
að sækja um.
Hrópa á samvinnu
Það eru hin's vegar mörg brýn
verkefhi sem hrópa á samvinnu
jafnaðarmanna hér heima fyrir og
samviska Evrópusinnaðra alþýðu-
flokksmanna getm ekki leyft þeim
að standa í vegi fyrir
því í krafti þeirrar
sannfæringar sinnar
að íslandi sé best
borgið innan raða
ESB- ríkja. Hér þarf
bara góðan slatta af
umburðarlyndi og
virðingu fyrir skoð-
unum annarra.
Vissulega er málefna-
ágreiningur milli
hinna ólíku stjórn-
málaflokka á vinstri
væng, yfir það er ekki
verið að reyna að
breiða fjöður. En það
er i fyrsta lagi ekkert
sem ekki má jafna og
í öðru lagi er hluti
hans þess eðlis að það
ber ekki nauðsyn til og er í raun
ómögulegt að ná samstöðu um.
Þar á meðal eru mál eins og ESB
og NATO. Upplýst umræða er hins
vegar nauðsynleg. Ekkert ríki
gengur inn í paradís við að verða
hluti af ESB. Þar leika heldur ekki
logar helvítis. Eitthvað þarna mitt
á milli bíður okkar og ég treysti
mér fyllilega til að vera í sama
flokki og Hjörleifur Guttormsson
þegar kemur að ESB. Hann hefur
bara eitt atkvæði eins og ég.
Þóra Arnórsdóttir
„Það eru hins vegar mörg brýn verk-
efni sem hrópa á samvinnu jafnaðar-
manna hér heima fyrir og samviska
Evrópusinnaðra alþýðuflokksmanna
getur ekki leyft þeim að standa i
vegi fyrir því í krafti þeirrar sannfær-
ingar sinnar að íslandi sé best borg-
ið innan raða ESB-ríkja.
Kjallarinn
Þóra Arnórsdóttir
háskólanemi
Með og
á móti
Bergmálsmælingar á
þorskstofninum
Góðar upplýs-
ingar um hegð-
un þorsksins
Páll Reynisson,
leiöangursstjóri hjá
Hafrannsókna-
stofnun.
„Markmið
fyrirhugaðs
leiðangurs er
að kanna
möguleika á
bergmálsmæl-
ingu á þorski á
Vestfjarðamið-
um. Svæðis-
bundnar at-
huganir af
þessu tagi
geta, þar sem
aðstæöur
leyfa, komið að gagni á ýmsan
hátt. I fyrsta lagi fæst hugmynd
um útbreiðslu og magn á tilteknu
svæði. I öðru lagi fást góðar upp-
lýsingar um hegðun þorsksins og
hugsanlegt göngumynstur. Einnig
gætu árlegar athuganir af þessu
tagi, og hugsanlegt samhengi
þeirra við aðrar upplýsingar sem
fyrir liggja, orðið gagnlegar er
fram líða stundir. Um það ér ekki
ágreiningur að trúlega verður
seint hægt að beita bergmálsað-
ferðinni til þess að meta þorsk-
gengd á öflúm íslandsmiðum,
m.a. vegna þess hve fiskurinn er
að öllú jöfnu botnlægur og dreifð-
ur. Væntanlega munu athuganir
með botnvörpu og greining á
lönduðum afla úr mismunandi
veiðarfærum gegna áfram lykil-
hlutverki í * þorskrannsóknum
okkar um ókomin ár. Hins vegar
er bergmálsmæling kjörin til þess
að afla viðbótarupplýsinga, m.a. í
þeim tilvikum þegar hluti stofns-
ins er ekki aðgengilegur til mæl-
inga með öðrum aðferðum og þeg-
ar aðstæður eru eins og þær voru
á Halamiðum i janúar 1966.“
Gefur engar
vísbendingar
„Veiðiskip-
in eru með
sömu græjurn-
ar sem Haf-
rannsókna-
stofnun ætlar
að nota en það
er bara þannig
að það er oft
ekki fræðileg-
ur möguleiki
að sjá á dýpt-
Grétar
Kristjánsson, skip-
stjóri á Dagrúnu IS.
armælum
hvar fiskurinn
er. Oft sjáum við ekki fiskinn á
mælum fyrr en innkomumælar
gefa til kynna að fiskur sé að fara
inn I troll. Einnig er hægt að
lenda í dúndrandi lóðningum en
fá engan fisk. Fiskurinn er oft svo
botnlægur að þaö er enginn leið
að sjá hann á dýptarmælum. Það
er ósjaldan sem maður er alveg
viss um aö það sé enginn fiskur á
því svæði sem verið er að veiða á
en svo reynist bara vera kúffullt
af fiski. Ég hef enga skýringu á
því af hverju þetta er svona. Við
teljum að þessar bergmálsmæl-
ingar gefi enga hugmynd um
ástand stofnsins. Ég vildi hafa þá
hæfileika sem þeir hjá Hafrann-
sóknastofnun hafa. Það væri gott
að geta stímt af stað og ákveðið
hvar sé fiskur og hvar ekki. Það
myndi spara mikinn tíma og
mikla fjármuni."
-JHÞ
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum í blaðið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á netinu.
Netfang ritstjómar er:
dvritst@centrum.is