Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Page 26
34 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 Afmæli Hanna Vigdís Siginðardóttir Hanna Vigdís Sigurðardóttir, fyrrv. húsfreyja á Oddsstöðum í Lundarreykjadal, Borgarfirði, varð sjötug í gær. Starfsferill Hanna fæddist á Oddsstöðum og ólst þar upp. Hún gekk í farskóla Lundarreykjadalshrepps og stund- aði síðan nám við Húsmæðraskól- ann á Hallormsstað í tvo vetur og var þar á vomámskeiði í garðyrkju. Hanna var húsfreyja á Oddsstöð- um í Lundarreykjadal 1953-84 en flutti þá í Borgames. Þar hefur hún stundað ýmis störf, m.a. á Hótel Borgamesi en þó einkum hjá Kaup- félagi Borgfirðinga. Hanna er heiöursfélagi i Ung- mennafélaginu Dagrenningu í Lundarreykjadal, tekur virkan þátt í starfi Kvenfélags Lundarreykja- dalshrepps og sat þar í stjóm og var formaður um nokkurra ára skeið. Hún hefur einnig verið virkur þátt- takandi í starfi Skógræktarfélags Borgarfjarðar og verið fulltrúi fé- lagsins á skógræktar- þingum. Fjölskylda Hanna Vigdís giftist 29.1. 1952 Ragnari Sveini Olgeirssyni f. á Skelja- brekku 3.1. 1926, skrif- stofumanni og fyrrv. bónda. Hann er sonur 01- geirs Friðfinnssonar frá Borgum í Vopnafirði, verkamanns í Borg- amesi, og Helgu Finns- dóttur frá Ferstiklu í Hvalfirði, verkakonu í Borgamesi. Þau bjuggu í Borgamesi en eru bæði látin. Synir Hönnu og Ragnars eru Sig- urður Oddur, f. 12.6. 1953, bóndi á Oddsstöðum, búfræðikandítat frá Bændaskólanum á Hvanneyri og stundaði auk þess nám við Land- búnaðarháskólan í Uppsölum í Svi- þjóð í tvö ár, kvæntur Guðbjörgu Ólafsdóttur frá Bámstöðum í Anda- kil og eru höm þeirra Ólafur Ágúst, f. 6.6. 1979, Ragnar Finnur, f. 17.6. 1983, Sigurður Hannes, f. 24.1. 1989, og Sigurborg Hanna, f. 28.2. 1991, en sonur Sigurðar Odds fyr- ir hjónaband er Jörgen, f. 10.5. 1976, og er móðir hans Kristbjörg Jörgens- dóttir frá Vopnafirði; 01- geir Helgi, f. 29.3. 1966, rekstrarfræðingur frá Samvinnuháskólanum á Bifröst, nemi við Rekstr- arfræðadeild II í Sam- vinnuháskólanum, frétta- maður fyrir Dag-Tímann á Vesturlandi og rekur útgáfuþjón- ustu, kvæntur Theodóm Þorsteins- dóttur, skólastjóra Tónlistarskóla Borgarfjarðar og söngkennara, og em dætur þeirra Sigríður Ásta, f. 15.4. 1994, og Hanna Ágústa, f. 18.6. 1996. Systur Hönnu Vigdísar: Ástríður, f. 9.12.1913, húsmóðir á Oddsstöðum D, gift Krisljáni Davíðssyni, bónda á Oddsstöðum, og eru höm þeirra Sig- urður, f. 2.12. 1949, og Sigrún, f. 24.12. 1955; Ingibjörg f. 29.4. 1919, d. 8.2. 1987, verkakona á Akranesi, en eftirlifandi eiginmaður hennar er Guðjón Bjamason, bifreiðastjóri á Akranesi, og era böm þeirra Sig- urður, f. 17.3. 1942, Vigdís Hallfríð- ur, f. 27.10. 1946, Bjami, f. 7.8. 1954, og Ástríður Lilja, f. 15.11. 1955. Uppeldissystir Hönnu Vigdísar var Ástríður Torfadóttir, f. 18.8. 1905, d. 6.7. 1996, lengi húsfreyja á Akranesi, var gift Hannesi Jónassyni, sem einnig er látinn, en synir þeirra eru Sigurður Ástvaldur f. 22.1. 1938, d. 3.8. 1990, Birgir Vikt- or f. 29.9. 1941, og Jón Kristján, f. 10.11. 1947. Ástriður og Hanna Vig- dís voru einnig systradætur. Foreldrar Hönnu Vigdísar voru Sigurður Bjarnason, f. á Hömrum í Reykholtsdal í Borgarfirði 28.7.1883, d. 22.7.1960, bóndi á Oddsstöðum, og Vigdís Hannesdóttir, f. í Deildar- tungu í Reykholtsdal í Borgarfirði, 18.7. 1882, d. 25.9. 1977, húsfreyja á Oddsstöðum. Hanna Vigdís er að heiman. Hanna Vigdís Sigurðardóttir. Ásgeir S. Ásgeirsson Ásgeir S. Ásgeirsson fram- kvæmdastjóri, Hliðarvegi 51, Ólafs- firði, varð sextugur á sunnudaginn var. Starfsferill Ásgeir fæddist í Ólafsfirði og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Bama- og unglingaskólann í Ól- afsfirði, við Héraðsskólann á Laug- arvatni og lauk verslunarprófi frá VÍ 1959. Ásgeir hóf ungur sjósókn á sumr- in, einkum á síldveiðum með föður sínum sem var fengsæll skipstjóri í Ólafsfirði. Eftir verslunarskólapróf hóf Ásgeir störf á bókhaldsdeild Flugfélags íslands. Hann varð fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafs- fjarðar í ársbyijun 1960, varð bæjar- gjaldkeri á Ólafsfirði 1967 og síðar bæjarritari þar en því starfi gegndi hann til 1987. Ásgeir var einn af stofnendum Sæbergs hf. 1972 sem nú starfrækir fjóra skuttogara. Hann hóf störf hjá Sæbergsút- gerðinni 1987 og starfaði þar í fimm ár en hefur síðan starfað við eigið fjölskyldufyrirtæki, Sæ- unni Axels ehf. Ásgeir hefur verið stjórnarformaður útgerðarfélagsins Sæbergs hf. frá upphafi og er enn. Hann starfaði lengi með Leikfélagi Ólafsfjarðar og hefur sungið með Kirkjukór Ólafsfjarðar um árabil. Þá hefur hann setið í bæjarstjórn í Ólafs- firði fyrir sjálfstæðismenn og starfað í sjálfstæðisfé- lögum Ólafsfjarðar. Fjölskylda Ásgeir kvæntist 5.1. 1963 Sæunni Axelsdóttur, f. 25.2. 1942, yfirverkstjóra og matsmanni. Hún er dóttir Axels Péturssonar sjómanns, sem er látiim, og Petreu Rögnvaldsdótt- ur, fyrrv. verkakonu og húsmóður. Börn Ásgeirs og Sæunnar em Ás- geir Long, f. 3.6. 1963, kvæntur Kristínu Brynhildi Daviðsdóttur og eiga þau tvær dætur; Axel Pétur, f. 18.5. 1965, kvæntur Auði Eggerts- dóttur; Sigurgeir Frímann, f. 18.3. 1967, kvæntur Ólöfú Stefánsdóttur og eiga þau tvö böm; Kristján Ragn- ar, f. 16.11. 1977. Sonur Ásgeirs er Halldór Ingi, f. 18.2. 1962, og er dóttir Halldórs Inga Elín Inga. Ásgeir á einn bróður á lífi. Sá er Jón Steindór, f. 22.5. 1931, vélstjóri Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar. Systkini Ásgeirs sem eru látin: Sigríður Soffia, f. 23.6. 1923, d. 4.12. 1966; Sigurgeir Frímann, f. 16.8. 1926, d. 20.6. 1940; Hildigunnur, f. 23.4. 1927, d. 20.9. 1989; Kristján, f. 19.4.1929, d. 7.11.1975; Helga Jónína, f. 23.9. 1934, d. 22.2. 1985. Foreldrar Ásgeirs voru Ásgeir Frímannsson, f. 24.9. 1901, d. 2.8. 1973, skipstjóri í Ólafsfirði, og Gunnlaug S. Gunnlaugsdóttir, f. 17.6. 1900, d. 25.8. 1970, húsmóðir. Ásgeir S. Ásgeirsson. Fréttir Eskifjörður: Flugeldum skotið af Hólmatindi úr 985 metra hæð DV, Eskifirði: Nýr aðili hóf sölu flugelda á Eskifirði um þessi áramót, slysavarnadeild Brimrúnar, en áður vora Austramenn með þennan markað einir. Brimrún stóð fyrir brennu á gamlárskvöld og var með stór- glæsilega flugeldasýningu í bænum en lét sér það ekki nægja. Nokkrir félagar gengu upp á Hólmatind, sem er í 985 metra hæð, á þrettándanum og skutu þaðan flugeldum. Ganga á tindinn tekur um 3 tíma hvora leið og þvi góð æfing fyrir strák- ana og góð skemmtun fyrir Esk- firðinga og nærsveitunga því af tindinun sést vítt um Austur- land. Sýningin var kl. 21 við mik- inn fógnuð bæjarbúa sem fylgd- ust vel með. Mjög gott veður var, logn og stjömubjartur him- inn og sást því vel til fjalla. Öfl- ug starfsemi hefur verið í Brim- rúnu undanfarin ár, bæði í björgunarsveitinni og unglinga- starfi. -ÞH Fjölmenni í afmæli Guttormur Óskarsson, fyrrum gjaldkeri Kaupfélags Skagfirðinga, hélt á dögunum upp á áttræðisafmæli sitt. Mætti þar fjöldi gesta enda Gutt- ormur vinsæll maður sem víða hefur komið við sögu. Hann var lengi for- maður kjördæmissambands fram- sóknarmanna í Norðurlandskjördæmi Guttorms vestra og sat í stjóm Framsóknarfélag Skagfirðinga. Var lengi fréttaritari Tímans og hefur látið málefhi æsku- lýðs og hestamanna til sín taka. -MÓ Guðmann Tobiasson, formaður Framsóknarfélags Skagafjaröar, og Herdís Sæmundsdóttir, formaður Framsóknar- félags Sauðárkróks, færðu Guttormi bókagjafir frá félögunum. Guttormur ásamt Ingveldi Rögnvaldsdóttur, eiginkonu sinni, og Páli Péturssyni ráöherra. DV-myndir Magnús Ólafsson # ¥;y y riXijL Vfijjf 1 p ^ JIMB i| ./Mm Til hamingju með afmælið 9. janúar 85 ára Lilja Þorvarðardóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. 80 ára Rannveig Hálfdánardóttir, Háholti 3, Akranesi. 75 ára Haraldur Auðunsson, Hringbraut 50, Reykjavík. Pálmi Karlsson, Lindasíðu 2, Akureyri. Svensína G. Víglundsdóttir, Ólafsvegi 14, Ólafsfirði. 70 ára Ólafúr Bergsson, Laugalæk 46, Reykjavík. 60 ára Snorri Hannesson, Kleppsvegi 40, Reykjavík. 50 ára Þórhallur Aðalsteinsson, Rangárseli 20, Reykjavík. Stefán Jónsson, Garðhúsum 10, Reykjavík. Vigdís A. Jónsdóttir, Heiðnabergi 1, Reykjavík. Amar Guðmundsson, Fýlshólum 7, Reykjavík. Bergur Hólmsteinsson, Silfurtúni, Hólahreppi. Guðleif Sigurðardóttir, Flyðrugranda 18, Reykjavík. 40 ára Kristtn Ingibjörg Gunnars- dóttir, Hvassaleiti 153, Reykjavík. Þuríður Una Pétursdóttir, Víðimýri 7, Neskaupstað. Runóífur Þór Sigurðsson, Esjubraut 30, Akranesi. Ari Sævar Michelsen, Heiðarbrún 54, Hveragerði. Ámi Þorvaldsson bóndi, Bíldsfelli, Grafiiingshreppi. Ámi tekur á móti gestum að heimili sinu, laugardaginn 11.1. eftir kl. 20.00. Martin Guðmundsson, Álfaskeiði 48, Hafnarfirði. Þorsteinn Óli Sigurðsson, Logafold 129, Reykjavík. Líney Soffia Daðadóttir, Melgötu 3, Grýtubakkahreppi. Þorgimur Sverrisson, Skólavegi 16, Fáskrúðsfirði. Kristín Finnbogadóttir, Nesbala 108, Seltjarnamesi. Sigurlína Kristín Magnús- dóttir, Laugarnesvegi 104, Reykjavík. Ólafúr Öm Þorláksson, Hraunbæ 16, Reykjavík. Ingólfur Sigurjónsson, Torfúfelli 46, Reykjavík. Elías Hákonarson, Huldugili 64, Akureyri. Áskrifendur «10% aukaafslátt af smáauglýsingum DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.