Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Qupperneq 3
DV FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 HLJÓMPLjÍTU öiiiímji BossaNova - Laiv Óhætt að óska tíl hamingju *** Hljómsveitin BossaNova er átta manna stórhljóm- sveit sem eingöngu flytur ósungna tónlist. Athygli vekur vmgur aldur hljóð- færaleikaranna en þeir eru á aldrinum 14-17 ára. Samt er hljómsveitin nokkurra ára gömul. Hún á rætur að rekja til Tónlistarskólans á Seltjamamesi og er gott dæmi um hið mikla tóniist- amppeldisstarf sem þar fer fram. Hijómdiskurinn Laiv er að mestu tekinn upp á einum degi í Hljóðveri F.Í.H. en þrjú lög hafa krafist meiri yflrlegu og em tekin upp í hljóðverinu Stöðin. Það em íslensku verkin Á Sprengisandi, Icelandic Rhapsody eftir Ríkharð Öm Pálsson og Jovena Galore e Morena eftir Láms H. Grimsson. Verk Ríkharðs byggist á kunnuglegu þjóðlegu stefi og er einkar vel flutt. Verk Lámsar er í samba- og bossanovastíl og ná piltamir ekki alveg flugi í því enda ekki heiglum hent. Þar kemur fram helsti galli hijómsveitarinnar, sem má kannski skrifa á reynsluleysi, að þessi óútreiknanlega djass- og latínsveifla vill stundum týnast. Salsalög koma hins vegar vel út og kemur þessi diskur á óvart hvað varðar frammistöðu spilaranna og metnaðar- fullt efnisval. Prýðisútsetningar em flestar gerðar af Kára Einars- syni og Gylfa Gunnarssyni. Þorvaldur trommari og Helgi Hrafii básúnuleikari era áberandi bestu spilaramir en hinir síga óðum á og það er óhætt að óska strákunum til hamingju með svo ágæta byrjun. Ingvi Þór Kormáksson Krossgötur - þú lifir Áheyrileg íög *** Útgefandi geislaplötunn- ar Þú lifir em Krossgötur. Innihaldið er tónlist með trúarlegum textum. Ekki sálmalög heldur lög í rokk-, popp- og kántrýstíl, samin af Lofti Guðnasyni sem einnig orti textana. Söngv- arar em meðal annarra Sig- ríður Guðnadóttir, Karl Guðnason, Ingibjörg Guðna- dóttir og höfúndur. Reyndar era fleiri söngvarar þama og Páll Rósinkranz syngur tvö lög sem bæði em með enskum texta. Lög Lofts em áheyrileg og sum nokkuð grípandi. Dæmi er Drottinn fram á foldu gengur. Þó em þau öll frekar fyrirsegjanleg. En þannig er sum tónlist og má jafiivel segja að þannig eigi hún að vera. Sumum finnst ekki við hæfi ?ð hafa trúarlega söngva eins og hver önnur dægurlög. Ekkert orkaöi þó ankannalega í textum Lofts. Þórir Baldursson á heiðurinn af smekklegum og áreynslulausum útsetningum og er söngur og annar flutningur með ágætum. Herbert Guðmundsson - Dawn of the Human Revolution Gamall smellur gengur aftur*** DAVVN ,01 'IHK HU,\f/\X Ki:\oi.i;noý Hhl>Bi:iU' a;miii»jijsso\! É*v p N Ferill Herberts Guð- mundssonar hefur senni- lega gengið meira upp og niður en hjá nokkrum öðr- um söngvara hérlendum og ef til vill lýtur ferillinn sömu lögmálum og hin niu líf kattarins. Einn daginn er Herbert á toppnum, hinn næsta er hann gleymdur og áður en nokkurn varir hef- ur honum skotið upp að nýju. Og hann er einmitt i uppsveiflu núna, þökk sé ungu fólki sem uppgötvaði nýlega meira en áratugargamalt lag hans, Can’t Walk Away. Herbert endurútgaf plötu sína Dawn of the Human Revolution af þessu tilefni og var kannski löngu kominn tími til að hún yrði fáanleg á geisladiski. Platan hefst á Can’t Walk Away sem verð- ur að játast að ber höfuð og herðar yfir aðrar tónsmíðar Herberts (og hefur hann þó samið allnokkrar grípandi laglínur á ferlin- um). Annað sem athygli vekur er hve góður tónninn er á plöt- unni þótt hún sé orðin rúmlega ellefu ára. Þótt ekki sé nema vegna þessara tveggja atriða var það fyllilega réttlætanlegt að gefa Dawn of the Human Revolution út að nýju. Og nú er aö sjá hvemig Herbert tekst að fylgja vinsældunum eftir. Ásgeir Tómasson Hann lét fýrst á sér kræla í söng- leiknum Hárinu, lék síðan Júdas á móti Stefáni Hilmarssyni í Sú- perstar og í sumar þeysti hann um landið með hljómsveit sem heitir Zalka. Hann er með rödd sem fólk tekur eftir og ekki skemmir nafnið fyrir. Þór Breiðfjörð er tuttugu og fimm ára gamall söngvari sem hef- ur nú snúið baki við pöbbaspila- mennskimni á íslandi í bili. Þess í stað nemur hann við The Arts Educational London Schools allt það sem við kemur söng- leikjum, hvort heldur er dans, söngur eða hádramatísk leiklist. leyfi í Bretlandi og segist líklega eiga eftir að reyna fyrir sér þar áöur en hann snýr heim aftur. Að- almarkmiðið með náminu er hins vegar að breikka það hæfileikasvið sem þegar er fyrir. Það era líka fáir íslendingar sérhæfðir í námi sem þessu og vinsældir söngleikja- formsins hér á landi verða sífellt meiri. GBG Þór Breiðfjörö er f söngleikjanámi í Englandi. Inntökupróf... ... í skólann era haldin reglulega en áhugasamir utan Englands- stranda geta sent VHS kynningar- spólu í staðinn fyrir að mæta á svæðið. Þór tók saman helstu upp- tökur af sýningum Súperstar og Hársins, sendi út og komst inn í fyrstu tilraun. Ég var vissulega ánægöur yfir því að hafa komist strax inn, segir Þór, enda er um- ræddur skóli mjög virtur á sínu sviöi. The Arts Educational London Schools era í raun ein stofnun og söngleikjadeildin, sem Þór nemur í, er framihaldsdeild fyr- ir leikara, söngvara og dansara sem vilja verða færir á öllum svið- um. „Leikhúsið er skemmtilegur miðill sem mig langaði að vinna meira við,“ segir Þór. Hann segir ennfremur að meginmvmur á leik- húsinu og pöbbaspilamennskunni sé fjölbreytnin sem leikhúsið býð- ur upp á, jafnt í hlutverkum og hugarheimum, sem er heilmikil til- breyting frá einhæfri ballspila- mennsku. Áhugi Þórs í tónlist beinist þó jafiit að lagasmíðum og söngleikjum. Það er vonandi að hann geti sameinað þetta tvennt í framtíðinni. Erfiðast að dansa Þór er í skólanum frá klukkan níu til sex og tekst á þeim tíma við allar hliðar söngleikjanna. „Ég hef enga hefðbundna mennfim í ballet eða djassballet og því líklega mesta áreynslan fyrir kennara skólans að kenna 25 ára gömlum manni að dansa,“ segir Þór en hann býst þó við að verða svellfær eftir árið. Þegar árs námi í skólanum lýkur síðan fær Þór tveggja ára atvinnu- JJUJJJ 7JJ1UJJJJ Heilir átta mánuðir hafa liðið án þess að nýtt efhi hafi veriö gefiö út með hljóm- sveitinni Blur. Nú hillir hins vegar undir breytingu á þessu og verður smáskifan Beetlebum gefin út 20. janú- ar. Lagiö er af nýrri plötu sem er einfaldlega kölluö Blur og kemur út 10. febrúar næstkomandi. Beetlebum hefur hlotið afar góðar við- tökur á öldum ljósvakans í Bretlandi en þar he veriö mikið spilaö. hafa hlustað á nýju Blur-þ una segja hana lofa góöu. Á henni sé myrkari tónn en á The Great Escape. Eins og vera ber stendur mikið til hjá Blur vegna útkomu nýju plöt- unnar og er sveitin búin að bóka sig á fjölda tónleika og í sjónvarpsþætti eins og Top of the Pops og The Chart Show. -JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.