Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 9
I IV FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 *•» helgina Styrktarfélag íslensku óperunnar: Sannkölluð tónlistarveisla Næstu tónleikar Styrktarfélags íslensku ópenmnar verða haldnir í íslensku óperunni á morgun, laugardaginn 11. janúar kl. 14.30. Þar koma fram Sigurbjörn Bem- harðsson, fiðluleikari, og John Howsmon, píanóleikari. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sigurbjörn Bernharðsson getið sér gott orð sem afburða fiðluleikari. Hann hóf fiðlunám sex ára og stundaði nám við Tónlistarskól- ann í Reykjavík hjá Guðnýju Guð- mundsdóttur. Þaðan lauk hann einleikaraprófi aðeins nítján ára gamall og hélt síðan til Bandaríkj- anna þar sem hann er í masters- námi við tónlistarskólann í Illino- is. Sigurbjörn hefur unnið til gölda verðlauna og viðurkenninga hér- lendis og í Bandaríkjunum þar sem hann hefur einnig hlotið styrki til náms. Hann hefur tekið þátt í ýmsum tónlistarhátíðum og nú síöasta sumar var hann ráðinn við Bowdoin tónlistarhátíðina við tónleikahald og sem aðstoðarkenn- ari. Hann var einn af þeim sem fóm fyrir strengjasveitinni ESTA í Englandi undir stjórn Y. Menhuin og í haust starfaði hann sem að- stoðarkonsertmeistari Sinfóniu- hljómsveitar South Bend borgar. Sigurbjörn hefur geflð út einn Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleikari og John Howsmon pianóleikari munu kæta tonlistaraödá- endur meö tónleikum sín- um i íslensku óperunni á morgun. geisladisk ásamt píanistanum John Howsmon, sem er meðleikari hans á tónleikum Styrktarfélags- ins. John Howsmon kemur nú í fyrsta skipti fram á íslandi. Hann er prófessoru við meðleikaradeild- ina í tónlistarháskólanum í Oberl- in. Hann er meðlimur í Cleveland kvartettinum og hefur komið fram á yfir fimm hundruð tónleikum í Evrópu og N- Ameríku. Á efnisskrá tónlistarmannanna er sónata eftir Brahms og verk eft- ir Paganini, Webern, Ravel og Þor- kel Sigurbjömsson. Kaffileikhúsið: Einieikir Völu Þórs Richard Wagner félagið á Islandi: Niflungahringurinn í Norræna húsinu LEIKHÚS Þjóðleikhúsið Villiöndin sunnudag kl. 20.00 Kennarar óskast föstudag kl. 20.00 Þrek og tár laugardag kl. 20.00 Leitt hún skyldi vera skækja föstudag kl. 20.30 Borgarleikhúsið Fagra veröld laugardag kl. 20.00 Dómínó föstudag kl. 20.00 BarPar fostudag kl. 20.30 Loftkastalinn Áfram Latibær sunnudag kl. 14.00 Á sama tima að ári laugardag kl. 20.00 Kaffileikhúsið Einleikur Völu Þórs laugardag kl. 21.00 Hermóður og Háðvör Birtingur fostudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Nemendaleikhúsið Hátlð í Lindarbæ föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Á morgun, 11. janúar, kl. 21.00 hefjast sýningar á tveimur ein- leikjum Völu Þórsdóttur leikkonu og leikritahöfundar í Kaffileikhús- inu í Hlaðvarpanum. Þann fyrri, „Eða þannig", sýndi Vala í Kaffi- leikhúsinu síðastliðið vor við mjög góðar undirtektir og þann síðari, „Kíkir, súkkulaði, fýlugufa og rusl“, sýndi Vala þrisvar í dag- skrá sem hún og dúettinn Súkkat settu saman fyrir Kaffíleikhús- ið í nóvember. í smnar og haust sýndi Vala „Eða þannig" í Napólí á Ítalíu á ítölsku og í Kaup- manna- höfn á ensku auk þess sem hún hefur sýnt einleik- lendinga hér heima. Viðbrögð á þessum sýningum urðu til þess að hún ákvað í desember síðastliðn- um að sýna báða einleikina á ensku í „The Lion and Unicom“ leikhúsinu í Ketish Town í Lund- únum. Gengu þær sýningar mjög vel og fengu mjög góöa gagnrýni. Þess má geta að í framhaldi af sýn- ingunum í Lundúnum var Völu boðið að sýna einleikina í tveimur öðrum leik- húsum í borginni og verða þær sýningar í apríl og maí á þessu ári. Auk þess fyrirhugar Vala leikferð um Bret- landseyjar. Næstu sýningar verða föstudag- inn 17. janúar inn 18. januar. mn fyrir ýmsa hópa út- Á sunnudaginn kl. 15.00 mun Richard Wagner félagið á íslandi hefja sýningar á Niflungahring Richards Wagner í Norræna hús- inu. Við samningu Niflungahrings- ins leitaði Richard Wagner mjög fanga í íslenskum fornbókmennt- um svo sem Eddukvæöum, Snorra- Eddu og Völsungasögu. Útkoman varð lengsta verk óperasögunnar sem í raun er fjórar óperur: Rínar- gullið, Valkyrjan, Sigurður Fáfnis- bani og Ragnarök, og taka þær samanlagt um 16 tíma í flutningi. Ein sýning í mánuði Sýnd verður ein ópera í einu með mánaðar millibil og verða sýningarnar annan sunnudag hvers mánaðar frá janúar fram í apríl og hefjast alltaf á sama tima. Á undan hverri sýningu munu þau Anna M. Magnúsdóttir og Reynir Axelsson halda stuttan fyrirlestur með tóndæmum þar sem leiðsögu- stef (Leitmotiv) óperanna eru kyxmt. Á undan sýningunni á Rín- argullinu á sunnudaginn kemur munu þau auk þess rekja í stuttu máli ferilinn að samningu þessa meistaraverks. Uppfærsla frá Bayreuth Sýnt verður af leysidisk á stór- um sjónvarpsskermi og verður enskur skjátexti. Uppfærslan, sem sýnd verður, gekk í Bayreuth á áranum 1988-92 undir stjóm hinna þekktu listamanna Daniels Baren- boims og Harrys Kupfers. í helstu hlutverkum í Rínargullinu era John Tomlinson, Gúnter von Kannen, Graham Clark, Helmut Pampuch, Linda Finnie og Eva Jo- hannsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.