Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
Wnlist„
Tónleikaferð um Bretland:
Hitar upp fyrir Blur
Rokksveitin Botnleðja blandaði sér kannski
ekki í toppslag jólasölunnar á síðasta ári en
hún náði þó þeim merka áfanga að selja tvöfalt
meira af plötunni Fólk er fífl en hún seldi af
plötunni Drullumall eða rúmlega þrjú þúsund
eintök. Botnleðja var þó vinsaelasta upphitun-
arhljómsveitin fyrir erlendar sveitir á síðasta
ári ef marka má nýjustu fréttir úr sístækkandi
íslenskum tónlistarheimi. Liðsmenn hljóm-
sveitarinnar Blur voru nefnilega svo yfír sig
hrifnir af frammistöðu Botnleðju í Laugardals-
höllinni í sumar að þeir eru búnir að bjóða
strákunum með sér í tónleikaferðalag um Bret-
land daganna 20.-28. janúar nk.
„Þeir höfðu samband við okkur í gegnum
Rabba fyrir jól, að frumkvæði Damons sem hef-
ur verið boðinn og búinn til að aðstoða okkur
og verið mjög vingjarnlegur," segir Heiðar, gít-
arleikari og söngvari hljómsveitarinnar Botn-
leðju, sem mun nefnast Silt á erlendri grund en
það er bein þýðing á íslensku nafíii sveitarinn-
ar yfir á ensku. Umboðsmaðm- sveitarinnar
staðfesti síðan tilboðið milli jóla og nýárs og
tríóið heldm því út 19. janúar. Fyrstu tónleik-
amir verða daginn eftir i Cambridge Junction
og verða síðan sem hér segir: 22. jan. -
Newcastle Mayfair, 23. jan. - Glasgow Bar-
rowlands, 24. jan. - Liverpool Royal Court, 26.
jan. - Nottingham Rock City, 27. jan. - Leeds
Town and Country Club og 28. jan. - Southend
Pavillions. Tíu lög verða á upphitunar-
prógrammi Silt, 2 á íslensku en unnið hefur
verið að enskri textagerð við 8 lög síðan mn
miðjan desember. Þessa dagana er hljómsveitin
í hljóðveri ásamt Ken Thomas og Rafni Jóns-
syni (útgefanda) við upptökur á efhinu á ensku
en það er tekið tiltölulega jafnt af báðum plöt-
um sveitarinnar.
Framkvæmdarstjórar tónleikaferðarinnar
tóku það sérstaklega fram að það þýddi ekkert
fyrir okkur að reyna að syngja á íslensku segir
Heiöar, sem er ekki að svíkja lit enda báðar
plötur sveitarinnar sungnar á íslensku. Hvaða
þýðingu hefur þetta fyrir Botnleðju? Fyrir utan
að vera mjög góð byrjun á nýju ári gefur þessi
tónleikaferð hljómsveitinni ýmsa möguleika.
Hún verður að sjálfsögðu ekki heimsfræg á
einni nóttu en fleiri ferðir gætu fylgt þessari og
hver veit. Kannski þeytir hljómsveitin Silt
Super Furry Animals út af kortinu líkt og hún
gerði í Tunglinu um daginn? Það væri gaman
að sjá. Botnleðja fær alla vegana hugheilar
heillaóskir frá DV með von um rokkandi ríkt
ár.
GBG
Botnleöja fer í tónleikaferð með Blur.
Islensku tónlistar-
verðlaunin
Uppskeruhátíð tónlistariðnar-
ins, íslensku tónlistarverðlaunin
1997, verður haldin um miðjan
febrúar á Hótel Borg. í fyrra bar
mest á Björk og Páli Óskari Hjálm-
týssyni. Björk var valin söngkona,
flytjandi og lagahöfundur síðasta
árs en Páll Óskar hlaut titilinn
söngvari ársins. Einnig má geta
þess að Botnleðja var valin
bjartasta vonin í fyrra og eins og
kemur fram aimars staðar hér á
tónlistarsíðum DV virðast þeir
piltar hafa staðið vel undir þeim
titli.
Lesendur DV geta haft áhrif á
valið með því að fylla út atkvæða-
seðla sem birtast í blaðinu á næstu
vikum. í fyrra var afar góð þátt-
taka meðal lesenda og er vonast til
þess að þeir láti ekki sitt eftir
liggja í ár. -JHÞ
The Platters á
Hétel íslandi
Unnendur bandaríska sönghóps-
ins The Platters hafa svo sannar-
lega dottið í lukkupottinn. Hópur-
inn mun leika á Hótel Islandi
fostudaginn 10. janúar og laugar-
daginn 11. janúar. Eftir tónleika
The Platters bæði kvöldin mun
hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar leika fyrir dansi.
Það eru orðnir rúmlega fjórir
áratugir síðan The Platters slógu í
gegn með laginu Only You. Lagið
seldist í 10 milljónum eintaka og
hefur síðan verið hljóðritað á 20
tungumálum. Paul Robi stjórnaði
flutningi og útsetningu á Only You
og hann stofnaði söngsveitina. í
kjölfarið fylgdu lögin Smoke Gets
in Your Eyes, The Great Pretend-
er, The Magic Touch, Harbour
Lights, Remember when, Twilight
Time, My Prayer, You’ll never
Know, Red Sails in the Sunset og
Enchanted. Tónlist Platters hefur
eins og flestir vita komið við sögu
í mörgmn þekktum bandarískum
kvikmyndum en sennilega er
American Graffiti þeirra frægust.
Árið 1990 vann söngflokkurinn
höfundaréttarmál gegn umboðs-
manni sínum til margra ára en
hann hafði árum saman gert út
fjölda Platters-sönghópa og þannig
féflett hin upprunalega Platters-
hóp illilega. Með sigri sínum í rétt-
arsölum tryggði hópurinn, sem nú
skemmtir á Hótel íslandi, einka-
rétt á Platters-nafninu.
Þeir sem skipa Platters núna
eru þau Fransesca Robi, en hún er
dóttir Pauls Robi; Ritchie Jones,
en hann er fyrsti tenór og aðal-
söngvari; Charles Granst, en hann
er annar tenór, og Mario Kinsley
sem er frægur fyrir djúpa bassa-
rödd. Stjómandi Platters er John
Ray Gomez
-JHÞ