Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Page 11
Joel og Ethan Coen hcifa átt náið samstarf í rúmlega áratug. Ethan framleiðir og Joel leikstýrir, en þar að auki skrifa þeir handritin saman og klippa myndir sínar sjálfir og hafa þar með mikið sjálfstæði sem kvik- myndagerðarmenn. Þeir eru þekktir fyrir frumleg efnistök og sérstakan stíl í frásögn og kvikmyndun, þar sem myndavélin er gjarnan á mikilli hreyfingu og óvenjuleg sjónarhom notuð. 1985 gerðu þeir fyrstu mynd sína, hina stílíseruðu film-noir glæpasögu Blood Simple, sem vakti strax mikla athygli á þeim og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Tveimur árum síðar gerðu þeir farsagrín- myndina Raising Arizona og 1990 kom Millers Crossing út, glæpona- saga í stíl gömlu bannáramyndanna. 1991 má segja að ferill þeirra hafi náð hámarki með Barton Fink, sem hlaut verðlaun sem besta mynd og fyrir besta leikstjóra og besta leikara á Cannes-kvikmyndahátíðinni, ásamt tvennum gagnrýnendaverðlaunum í New York, þremur óskarsverðlaun- atilnefningum og einni tilnefningu til Golden Globe verðlaunanna. Þeir fylgdu henni eftir með The Hudsuc- ker Proxy, sem hlaut litla aðsókn og slælega dóma, en Fargo hefúr hins vegar hlotið mikið lof gagnrýnenda. Afturhvarf til upprunans Fargo er að tvennu leyti afturhvarf til upprunans fyrir Coen-bræðuma. í fyrsta lagi svipar myndinni til fyrstu myndar þeirra, Blood Simple, að því leyti að græðgi, svik og morð eru ás- amir sem snúa hjólunum í sögu- þræðinum og meginþemu myndar- innar. I öðra lagi er sögusviðið norð- vesturfylkið Minnesota, en þar uxu þeir úr grasi. Coen-bræðumir kann- ast því vel við sig í þessu umhverfi og hafa innsæi í hegðun og talsmáta fólksins, sem leikur stórt hlutverk í sögunni. Minnesota er eitt af nyrstu fylkjum Bandaríkjanna og þekkt þar í landi fyrir snjóhörku, en veturinn 1995, þegar myndin var gerð, var ein- hver sá mildasti sem um getur í Minnesota. Snjóleysið olli því að bræðurnir þurftu að taka sitt haf- urtask og flytja sig um set lengra norður í landið til að fá það umhverfi sem þeir vildu i myndina. Sagan byggir á sönnum atburðum og er þetta í fyrsta skipti sem Coen- bræðumir gera mynd sem ekki er skáldskapur frá rótum. Þeir halda því fram að þeir hafi ekki tekið sér mikið skáldaleyfi í frásögn og per- sónusköpun. Þeir hafi að vísu aldrei hitt raunverulegu persónurnar og ekki orðið vitni að samræðum milli þeirra, en með því að rannsaka mál- ið og nýta sér reynslu sína af íbúum svæðisins hafi þeir getað getið sér til um hegðun, ætlanir, gjörðir og við- brögð þeirra. Þeir segjast ekki hafa breytt neinum persónum frá raun- veruleikanum, heldur aðeins leyft þeim að leika sitt hlutverk í sögunni. Misheppnað mannrán Myndin er glæpasaga sem gerist í Minnesota fyrir tiu árum og segir frá bílasölumanninum Jerry Lundegaard, sem er orðinn svo skuldugur að hann grípur til örþrifa- ráða. Hann fær tvo glæpamenn til að ræna konu sinni og er meiningin að fá lausnargjald frá ríkum föður henn- ar. Glæpamennirnir eiga að fá smá- hluta af lausnargjaldinu að launum, en Jerry ætlar að halda restinni eftir fyrir sjálfan sig. Áætlunin snýst upp í blóðbað þegar glæpamennirnir drepa lögreglumann og tvo vegfar- endur, og þá kemur lögreglustjóri staðarins, hin ólétta Marge Gunder- son, til sögunnar. Frances McDormand leikur Marge Gunderson, en hún er eiginkona Jo- els og hefur m.a. leikið stór hlutverk í myndum hans, Blood Simple og Raising Arizona. Meðal annarra mynda sem hún hefur leikið í eru Chattahoochee, Darkman, Hidden Agenda, The Butchers Wife og Passed Away, en nýjustu myndir hennar eru Short Cuts, Beyond Rangoon og Talk of Angels. í hlutverki bílasölumannsins er William H. Macy, sem hefur leikið í fjölmörgum myndum, ásamt því að leika mikið á sviði og i sjónvarpi. Mr. Hollands Opus, Murder in the First, The Client, Searching for Bobby Fischer, Benny and Joon, Shadows and Fog, Radio Days og Down Periscope era meðal frægustu mynda hans, en hann á einnig feril sem handritshöfundur og leikstjóri og er fastur leikstjóri hjá Atlantic- leikhópnum í New York. Þess má einnig geta að Steve Bus- cemi leikur annan mannræningjann og er þetta í fjórða skipti sem hann leikur fyrir Coen-bræðurna. Áður hefur hann leikið í Millers Crossing, Barton Fink og The Hudsucker Proxy. Steve Buscemi sló í gegn þeg- ar hann lék i mynd Quentins Tarant- inos, Reservoir Dogs, og hefur átt vinsældum að fagna síðan. Á síðasta ári lék hann í mörgum myndum, þ.á m. Desperado og Things to Do in Denver When You’re Dead. Nýjasta mynd hans er Trees Lounge, sem einnig er frumburður hans sem handritshöfundar og leikstjóra. -PJ Joel og Ethan Coen við tökur á Fargo. Þeir vinna mjög náið saman og þótt annar þeirra sé titlaður leikstjóri þá eru kvikmyndir þeirra yfirleitt taldar þeirra verk í sameiningu. UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT Jóhann Sigurðarson leikari „Eg var að horfa á kvik- myndina Juror með Demi Moore í gærkvöld. Hún var mjög fin, enda er ég hrifinn af Demi Moore. Myndin fjallar um konu sem tekur þátt í kviðdómi og er kúguð til að tala þvert um hug sér vegna þess að henni og syni henn ar er hótað lífláti ella. Mjög spenn andi mynd. Ríkharður þriðji er í miklu uppá- haldi hjá mér. Leikritið er gott og stykkið mjög vel skrif- að. Ég er búinn að sjá myndina 7-8 sinnum og er þá að velta i mér hvemig m: in er leikin, hvemig hún er uppbyggð og hvernig mynd- vinnsla, klipp- ing og tónlist vinna saman. Það er hluti af starf- inu að spá í kvikmyndun, leik, leikstjóm, tónlist, leikmynd, bún- inga og allt sem því fylgir. Silence of the Lamb er einnig mjög eftirminnileg mynd en svo er ég líka hriftnn af evr- ópskum myndum. Ég leigi mér mjög oft myndir, þó mest yfir vetr- armánuðina. Stundum tek ég mér mynd 2-3 í viku yfir dimmustu mánuðina. Ég er hrifinn af öll- um vel gerðum myndum sem haia eitthvað að segja manni og fjalla um örlög fólks, hvort sem það eru söngleikjamynd- ir, gaman- myndir, drama eða annað.“ Flipper Flipper er sannkölluð ljúflings- mynd og er hún byggð á sjónvarps- seríu sem naut mikilla vinsælda í Bandaríkjun- um á sínum tíma. Aðal- persónan er táningurinn Sandy sem er ekki par ánægður með að þurfa að eyða sumrinu hjá frænda sínum á afskekktri eyju fyr- ir utan Florida-strendur þannig að þegar hann kemur á staðinn getur hann ekki ímyndað sér neitt annað en að framundan sé stórt leiðinda- sumar. Það kemur þó á daginn að frændinn er alls ekki svo slæmur en það sem bjargar sumrinu er þegar Sandy tekst fyrir tilviljun að bjarga lífi fiögurra mánaða höfrungskálfs sem upp frá því verður besti vinur hans og félagi. í stað ömurlegheit- anna, sem Sandy bjóst við, upplifir hann ævintýri lífs sins með höfr- ungnum Flipper. í aðalhlutverkum era Elijah Wood, sem leikur Sandy, og ástr- alski leikarinn Paul Hogan sem leikur frændann. ClC-myndbönd gefa út Flipper og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfudagur er 14. janúar. Mulholland Falls Mulholland Falls fiallar um hóp lögreglumanna og er sögusviðið Los Angles á fimmta ára- tugnum. Hópurinn hafði fengið viðurnefnið Hattadeildin þar sem þeir voru allir með hatta og ávallt vel klæddir. Þetta eru hörkutól sem veigra sér ekki við að fara aðeins á bak við lögin ef málstaðurinn er fyr- ir hendi. Tilveru Hattadeildarinnar er ógnað einn daginn þegar það kemur í ljós að einn þeirra, sjálfur foringinn, er á einkennilegan hátt bendlaður við alvarlegt morðmál sem þeir eru að rannsaka. Úrvalsleikarar eru í flestum hlut- verkum, sjálfar hattalöggurnar leika Nick Nolte, Chazz Palmintieri, Michael Madsen og Chriss Penn en aðrir leikarar era Melanie Griffith, Treat Williams, John Malkovich, Daniel Baldwin og Jennifer Conn- elly. Myndform gefur út Mulholiand Falls og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 14. janúar. In the Bleak Mid- winter Eftir aö hafa leik- stýrt og leik- ið í stór- myndunum Much ado about Not- hing og Franken- stein sló Kenneth Brannagh á léttari og ódýrari strengi í In the Bleak Midwinter, sem er gamanmynd um uppsetn- ingu á Hamlet eftir Shakespeare. Aðalpersónan er atvinnulaus leik- ari sem unnustan hefúr nýlega sagt upp. Hann ákveður að setja upp Hamlet í niðurníddri kirkju sem á að fara að rífa. Hann auglýsir eftir leikurum og velur sex til að fara með 24 hlutverk, fiögur hlutverk á mann. Æfingatíminn er hálfur mán- uður og það gengur á ýmsu í sam- skiptum leikaranna, enda ólíkir sauðir í hópnum, þá þarf líka að finna áhorfendur. Ekki leikur Kenneth Brannagh sjálfur í myndinni en meðal leikara eru Richard Briers, Joan Collins og John Session. Skífan gefur út In the Bleak Mid- winter og er hún leyfð öllum ald- urshópum. Útgáfudagur er 15. jan- úar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.