Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 12
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 TfrXy
26
MYHDBAm
ÍDl
The Incredibly True Adventure of
2 Girls in Love.
Rómantísk gamanmynd ★★■*★
Eins og nafnið gefur til kynna er þetta mynd um
tvær ástfangnar stelpur. Randy Dean er hvít lágstéttar-
stelpa sem býr hjá frænku sinni og kærustunni hennar. Hún kynnist Evie
Roy, sem er svört hástéttarstelpa og býr i risastóru húsi með móður sinni.
Hún er að mörgu leyti andstæða Randy, gengur vel í skóla og er vinsæl með-
al samnemenda sinna. Þær verða ástfangnar hvor af annarri, flestum vin-
um þeirra og vandamönnum til mikils ama. Þetta er einhver best heppnaða
mynd um samkynhneigð sem ég hef séð. Hún reynir ekki að leysa öll vanda-
mál samkynhneigðra, er hvorki subbuleg né uppfull af háleitum boðskap.
Myndin leggur upp með að vera rómantísk og fýndin, mannleg og skemmti-
leg og tekst ætiunarverk sitt fullkomlega. Stígandin í frásögninni er góð og
nær hámarki í óborganlegu lokaatriði þar sem hér mn bil allar sögupersón-
umar koma saman í farsakenndri allsheijarkrísu. Leikarar standa sig flest-
ir vel og þá sérstaklega Laurel Holloman sem Randy en næmur leikur
Nicole Parker (Clueless) kemur einnig skemmtilega á óvart. Það er afar
sjaldgæft að rómantískar gamanmyndir nái að stýra fram hjá væmni en
þessi gerir það og er afar smekkleg og vel heppnuð.
The Incredibly True Adventure of 2 Girls in Love. Útgefandi: Skífan. Leik-
stjóri: Maria Maggenti. Aðalhlutverk: Laurel Holloman og Nicole Parker.
Bandarísk, 1995. Lengd: 91 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -PJ
Happy Gilmore
Rustalegur goifleikari ★★
Happy Gilmore er fremur misheppnaður einstakling-
ur. Hans æðsta takmark er að verða atvinnumaður í ís-
hokkí. Því miður er hann afar lélegm- íshokkíleikmað-
ur - hann getur að vísu slegið pökkinn fastar en flestir
aðrir en hann kann nánast ekkert á skautum og missir
þar að auki stöðugt sfjórn á skapi sínu. í byrjun mynd-
arinnar mistekst honum enn einu sinni að komast að
hjá atvinnumannaliði staðarins og til að bæta gráu ofan
á svart missir hann vinnuna og kærustuna og að lokum
tekur skatturinn húsið af ömmu hans. Þegar Happy
kemst að því að hann getur slegið golfkúlu lengra en
nokkur gotfleikari tekur hann þátt í áhugamannamóti og vinnur sér keppn-
isrétt í röð atvinnumóta þar sem hann reynir að safna verðlaunafé tU að
kaupa húsið hennar ömmu aftur. Hann er vægast sagt skrautlegur golfleik-
ari, sérstaklega þegar illa gengur en þá fleygir hann kylfum og lemur keppi-
nauta sína. Grínið í myndinni gengur að mestu leyti út á einkennilega til-
burði aöalsöguhetjunnar við golfið og tekst bærilega upp. Adam Sandler er
kjörinn í hlutverkið og sýnir oft skemmtilega takta en aðrir eru varla með.
Christopher McDonald nær litlum dampi sem vondi, snobbaði atvinnugolfar-
inn. Myndin stendur sig betur en flestar aðrar íþróttagrinmyndir sem ég hef
séð og er oft nokkuð fyndin.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Dennis Dugan. Aðalhlutverk: Adam
Sandler. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -PJ
H«ipp> Gilmorc
/ /s
The Crossing Guard
★★★ fltakasaga
Sean Penn er hér á ferð með aðra mynd sína sem leikstjóri. Sú fyrri var
The Indian Runner, mjög persónuleg átakasaga þar sem samskipti tveggja
mjög ólíkra einstaklinga tengdra sterkum böndum er drifkrafturinn í sög-
unni. The Crossing Guard er lík hinni fyrri að þessu leyti en hér takast á
John Booth og Freddy Gale sem tengjast í gegnum dóttur Freddys Gales
sem John Booth varð að bana þegar hann keyrði hana niður drukkinn. Við
upphaf myndarinnar er John Booth að sleppa úr fangelsi og Freddy hefst
handa við ætlunarverk sitt - að drepa hann. Freddy er tómur maður sem
sækir huggun í klámbúllur og getur ekki sætt sig við missinn. Hann hefur
ekki aðeins misst dóttur sína því konan hans gafst upp á honum, enda tekst
hún á við sorgina með öðrum hætti. John Booth er hin hliðin á peningn-
um. Hann verður að eiga við sektarkennd sina og finna hjá sér tilgang og
lífslöngun. Hann fmnur einhvem skilning hjá ástkonu sinni en þegar allt
kemur til alls getrn- hún ekki losað hann við drauga fortíðarinna. Að lok-
um hlýtur að koma að uppgjöri milli þessara manna. Þetta er afar „djúp“
mynd og heimspekileg. Sagan er mjög vel skrifúð af Sean Penn sjálfum og
fiallar um viðfangsefnið af miklu innsæi. Öflugur leikhópur tryggir trú-
verðugleika persónanna en Jack Nicholson skortir að vísu nokkra næmni
í mestu tilfinningaatriðunum. David Morse er frábær en hann virðist i
miklu uppáhaldi hjá Penn og var einnig í aðalhlutverki í The Indian Runn-
er.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Sean Penn. Aðalhlutverk: David Morse og
Jack Nicholson. Bandarísk, 1995. Lengd: 110 mín. Bönnuð börnum yngri
en 12 ára. -PJ
The Rock
Gíslataka
CUNNHKY 1.01,1. IIAKHIt,
"'j-iwi:”
%
p *
U •-•1^«««^ o
Alcatraz. Þegar inn er komið ganga hermennimir í gildru og sérsveitinni er
stútað en sérfræðingarnir tveir komast undan og taka höndum saman um
að bjarga málunum. Hér er enn farin sú leið að fá auglýsinga- og tónlistar-
myndbandaleikstjóra til að leikstýra hasarmynd og gengur vel upp. Hann
notar gjaman mörg sjónarhom í sama atriðinu ásamt snöggum klippingum
og skiptir hratt milli nærmynda og fjarlægari sjónarhoma. Sagan er
heimskuleg eins og vanalega en persónusköpunin er sterk og skemmtileg
þótt einfóld sé. Þá em góðir leikarar i aðalhlutverkum. Sean Connery og
Nicolas Cage em gott tvíeyki og traustir leikarar (Ed Harris, William For-
sythe, Michael Biehn) sinna aukahlutverkum af festu.
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Michael Bay. Aðalhlutverk: Sean
Connery, Nicolas Cage og Ed Harris. Bandarísk, 1996. Lengd: 130 mín.
Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ
w
v * ,
í Alcatraz ★★★
Hershöfðinginn Hummel fær nóg af óréttlæti í hem-
um og ákveður að gera eitthvað 1 málunum sjálfur. Harrn
rænir stórhættulegum efnavopnum og tekur 81 túrista
sem gísla á Alcatraz-eyjunni og beinir eldflaugum, hlöðn-
um efnasprengjum, að San Fransisco. Ákveðið er að
senda sérsveit til eyjunnar og tveir sérfræðingar eiga að
vera henni til fulltingis. Annar er efnavopnasérfræðing-
ur alríkislögreglunnar og hinn er gamall, breskur njósn-
ari, sem hefur verið haldið í fangelsi án dóms og laga í 30
ár og er sá eini sem nokkm sinni hefúr tekist að flýja frá
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA t-e' ... TITILL ÚTGEF. TEG.
1 10 2 Trainspotting Warner-myndir Spenna
2 2 3 From Dusk till Dawn Skrfan Spenna
3 1 3 Copycat Warner -myndir Spenna
4 3 3 .i1 Kingpin ' í Sam-myndbönd Gaman
5 4 5 Sgt. Bilco ClC-myndbönd Gaman
6 5 6 s Primal Fear ClC-myndbönd Spenna
7 6 5 Juror Skrfan Spenna
8 7 W/KBSS&i 8 Executive Decision Warner-myndir Spenna
9 8 7 ! Money Train Skífan Spenna
10 12 ‘ 6 : ^m Down Periscope Skífan Gaman
11 11 3 ! Agnes Myndform Drama
12 ! 13 4 : i Dont be a Menace Skffan Gaman
13 ; 9 io : Birdcage Warner-myndir Gaman
14 NÝ ! 1 i Crying Freeman Myndform Spenna
i5 i6 ; 5 ; Before and After Sam-myndbönd , Spenna
16 18 7 Nick of Time ' ClC-myndbönd Spenna
17 ! 19 ! 4 . American Quilt ClC-myndbönd < Drama
>» NÝ 1 Girl 6 ■hhhk Skífan Gaman
19 ! 17 - 3 : II Postino Sam-myndbönd 1 Drama
20 14 7 Santa Clause Sam-myndbönd > Gaman
Trainspotting tekur undir sig stórt stökk þessa vik-
una, fer úr tíunda sæti yfir í það fyrsta og Copycat
veröur aö gera sér aö góöu aö fara í þriöja sætiö eft-
ir aö hafa veriö í efsta sætinu aöeins eina viku. Aö
ööru leyti eru ekki miklar sviptingar á iistanum og
veröur aö fara alla leiö niöur í fjórtánda sætiö til aö
finna nýja mynd en þaö er spennumyndin Crying
Freeman. Sjálfsagt á hún eftir aö hækka sig eitthvaö
og þaö sama má segja um aöra nýja mynd, Girl 6,
sem er í átjánda sæti en stormandi inn á listann
næstu viku kemur The Rock og leggur örugglega
undir sig eitt af efstu sætunum.
Trainspotting
Ewan McGregor
og Johnny Lee
Miller.
I þessari frægu
bresku kvikmynd
kynnumst við
nokkrum mismgluð-
um persónum sem
búa í Edinborg og
eiga það sameigin-
legt að hafa farið út
af sporinu í lífinu.
Þetta eru dópistinn
Mark Renton og vin-
ir hans, kvennamað-
urinn Sick Boy, hinn
vonlausi Spud, hinn
glataði Tommy og
mgludallurinn geð-
veiki, Begbie. Þeir
lifa í veröld eitur-
lyfia og bíða allir eft-
ir dóplyftunni sem
sífellt er á ferðinni -
á leiðinni upp.
From Dusk
till Dawn
Quentin Tar-
antino og Geor-
ge Clooney.
Hinir hættulegu
Gecko- bræður era á
flótta. Á leiðinni
taka þeir Fuller-fiöl-
skylduna í gíslingu
og ætla að freista
þess að nota húsbíl
fiölskyldunnar til að
komast yfir landa-
mærin til Mexíkó.
Þeir komast yfir
landamærin og þar
verður fyrir þrim
barinn Titty Twister
sem er sá alvilltasti
sem þeir hafa kynnst
enda kemur í ljós
þegar nátta tekur að
sumir gestir og
starfsfólk er blóð-
þyrst í meira lagi.
Copycat
Sigourney Wea-
ver og Holly
Hunter
Sigourney Wea-
ver leikur afbrotasál-
fræðing sem fékk
taugaáfall eftir að
hafa orðið fyrir árás
morðingja og hefur
lokað sig inni í íbúð
sinni mánuðum sam-
an. Þegar hrottaleg
morð eru framin
stendur lögreglan á
gati yfir því hver
morðinginn er. Af-
brotasálfræðingur-
inn lætur vita af því
að hún geti sagt hver
morðinginn er og fer
lögreglukona á fund
hennar. Þessar tvær
konur stilla saman
strengi sína eftir
stirða byrjun í leit að
morðingjanum.
Kingpin
Woddy Harrelson
og Randy Quaid.
Roy hefði getað
orðið stórt nafn í
keilu. En frá því
hann varð meistari
árið 1979 hefur aUt
gengið á afturfótun-
um. Dag einn hittir
hann furðulegan ná-
unga, Ishmael, sem
virðist fæddur til að
spila keilu. Eina
vandamálið er að
hann er Amishtrúar,
klæðist svörtum
jakkafótum og er
með hatt. Það er því
erfitt fyrir Roy að
sannfæra hann um
að hann geti orðið
góður atvinnumaður
í keilu en Roy er
vanur að beita brögð-
mn og hefur sitt
fram.
STEVEMAKnN
SGŒBHJÍ)
Sgt. Bilko
Steve Martin og
Dan Aykroyd.
Bilko liðþjálfa hef-
ur á einhvern óskýr-
anlegan hátt tekist
að koma sér fyrir
innan hersins á allt
annan hátt en aðrir
liðþjálfar. Hann hef-
ur safnað um sig liði
sem hefur lært veð-
mála- og fiárhættu-
spilaklæki og listina
að skjóta sér undan
ábyrgð í stað þess að
læra herkúnstir. í
herskálanum hefur
verið komið upp
þægilegri aðstöðu tO
að reka spilavíti. Dag
einn er öllu stefiit í
voða þegar gamall
„kunningi" Bilkos,
Thom major, kemur
í skoðunarferð.