Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1997, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
7
Fréttir
Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða:
Úthluta á kvótanum til
sjómanna og verkafólks
„Ég hef lengi haldið því fram að
úthlutun aflaheimilda, eins og hún
hefúr verið, sé óeðlileg. Menn skulu
athuga að það eru ekki bara útgerð-
armenn og ættingjar þeirra sem
hafa aflað veiðireynslunnar. Það
eru fyrst og fremst sjómennimir
sem veitt hafa fiskinn og fisk-
vinnslufólkið í landi, sem tók við
honum og vann dag og nótt við að
gera úr honum verðmæti, sem skap-
að hafa aflareynsluna. Án þessa
fólks hefði aflareynslan aldrei safn-
ast upp,“ segir Pétur Sigurðsson,
formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða, i samtali við DV.
Hann segir að auðvitað sé hægt
að teygja þetta lengra því í íslensku
sjávarþorpi er um eina keðju í
þessu sambandi að ræða. Þar hafi
allir sitt viðurværi af sjónum.
„Ég geri mér grein fyrir því að
ekki væri rétt að afhenda hveijum
og einum einhver kíló af þorsk-
kvóta. Og til þess að gera ekki upp
á milli manna í þessum byggðarlög-
um væri eðlilegast að til kæmi
byggðarkvóti. Ábyrgir sveitar-
stjómarmenn myndu síðan úthluta
honum til skipa með það fyrir aug-
um að skapa sem allra mesta at-
vinnu í landi því líf fólksins byggist
á því sem dregið er úr hafínu."
Pétur segir að þegar hann hafi
hreyft þessum skoðunum sinum
Guðbjörg ÍS:
Rekstrargrundvöll-
urinn brast en
verðið hækkaði
- vegna rækjukvóta
Ásgeir Guðbjartsson, skipstjóri
og einn aðaleigandi Guðbjargar ÍS,
sagði við fféttamenn þegar útgerð-
arfélagið Hrönn hafði sameinast
Samheija, að rekstrargrundvöllur
Guðbjargarinnar væri brostinn. Á
siðasta ári hefði Guðbjörgin ÍS veitt
1600 lestir af rækju utan kvóta á
Flæmingjagmnni og staðið undir ?
sér. Nú væri kominn kvóti á rækju-
veiðamar á þessu svæði og Guð-
björgin mætti ekki veiða nema 360
lestir í ár. Þar með væri rekstrar-
grundvöllurinn brostinn.
„Þama afhjúpaði Ásgeir eitt
mesta óréttlætið og einn stærsta
veikleika kvótakerfisins. Um leið og
rekstrargrundvöllur skipsins brast
hækkaði verð þess því það fékk 360
lesta kyóta sem fyrirtækið má eign-
færa. Áður átti það engan rækju-
kvóta á Flæmingjagrunni. Það að
verð skipsins skuli hækka við það
að rekstrargrundvöllurinn brestur
er svo öfugsnúið að engu tali tek-
ur,“ sagði Sighvatur Björgvinsson
alþingismaður í samtali við DV.
Ekki liggur fyrir hvert verður
kvótaverð á rækju á Flæmingja-
grunni á þessu ári. Heyrst hefur tal-
an 140 krónur fyrir varanlega sölu.
Þess má geta að í nóvember var
verð á rækjukvóta hér á heimamið-
um 400 krónur fyrir kílóið af varan-
legri sölu. Allir em sammála um að
verðið á rækjukvóta á Flæmingja-
grunni verði mun lægra. -S.dór
Maðurinn enn
meðvitundarlaus
Maður á fertugsaldri, sem lenti I
alvarlegu slys þegar bíll hans valt
niður Vattamesskriður, liggur enn
meðvitundarlaus á gjörgæsludeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Að sögn Kristins Sigvaldasonar,
læknis á gjörgæsludeild, er maður-
inn með mjög alvarlega höfúðá-
verka. -RR
hafi mörgum blöskrað og kallað
þetta sósíalisma og jafhvel þjóðnýt-
ingu.
„Ef svo er þá er það allt í lagi. Ég
er alveg sannfærður um að ef menn
ætla að tryggja lífæðar sjávarplás-
sanna og byggð í þessu landi þá
verður heildin að fá umráð yfir afla-
heimildunum. Ef kvótinn á að vera
eingöngu í útgerðarfyrirtækjunum
verður eignaraðild að þeim að
breytast frá því sem nú er. Ég held
að ÚA á Akureyri hafi sannað
þetta,“ segir Pétur Sigurðsson.
-S.dór
Fárántegur
í tilefni 25 ára afinælis okkar bjóðum við mikið úrval af vörum
með fáránlegum afslætti.
Ferðatæki með geislaspilara -
útvarpi - segulbandi og fjarstýringu,
Verð áður 33.300
Verö nú 19.995
stgr.afsl. 40%
SC-100 reiknivél fyrir framhaldsskóla
með alm. brot og brotabrot
Verð áður 3.495
Verö nú 1.995
stgr.afsl. 42%
ATV W-6973 29" breiðtjaldstæki með
nicam stereo og ísl. textavarpi
Verð áður 144.500
Verö nú 89.900
stgr.afsl. 37%
81006B vandað úr
með leðuról
Verð áður 5.900
Verð nú 1.995
stgr.afsl. 66%
Z-1500 hljómtæki með 3 diska geislaspilara,
front surround hátalara, tvöf. segulb., útvarp
með stöðvaminni, fullkomin fjarstýring
Verð áður 88.880
Verö nú 59.900
stgr.afsl. 32%
HPA 171 heyrnartól
Verð áður 1.295
Verö nú 795
stgr.afsl. 38%
81019W úr með stálkeðju
Verð áður 8.200
Verð nú 2.990
stgr.afsl. 63%
VH231RC þægilegt og vandað 2 hausa
myndbandstæki, fullkomin fjarstýring
Verðáður 33.300
Verð nú 25.900
stgr.afsl. 22%
Y122AA fjölsviðsmælir
Verð áður 2.995
Verö nú 1.995
stgr.afsl. 33%
Z-2300 heimabíóhljómtæki með öllu - 3 disk geislaspilara,
tvöfalt segulb. útvarp með minnum, fullkomin fjarstýring.
Verö áður 133.380
Verð nú 89.900
stgr.afsl. 32%
og heilu haugarnir af vörum meö 30-70% afslætti
Spirit AF myndavél
fyrir 35 mm filmur
Verð áður 3.995
Verð nú 2.295
stgr.afsl. 42%
ÁRMÚU 38 SÍMI5531133
PR-10 reiknivél með
strimli
Verð áður 2.980
Verð nú 1.995
stgr.afsl. 33%