Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1997, Page 24
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
Sviðsljós
Kynningarfundur
verður í Sálarrannsóknarskólanum í kvöld kl. 20.30,
í kennsluhúsnœði skólans að Vegmúla 2.
Húsið stendur á horni Vegmúla
og Suðurlandsbrautar (16).
• Á kynningarfundinum er öllu áhugafólki um
sálarrannsóknir og handanheimafræði boðið að koma og
skoða skólann og að hlusta á stutta samantekt um hvað kennt
er þar og hvemig námi við skólann er almennt háttað.
• Á sjötta hundrað nemendur hafa sótt nám við skólann frá
upphafi hans. Kennsla er aðeins eitt kvöld í viku eða eitt
laugardagssíðdegi í viku í hverjum bekk í skólanum.
• Kynningarfundurinn verður endurtekinn fyrir þá sem
ekki komast í kvöld á laugardaginn kemur, kl. 14.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Nýr Bond aftur
orðinn pabbi
Enginn maður er ánægðari með
lífið nú en Pierce Brosnan, betur
þekktur sem hinn nýi James
Bond. Engin furða, þar sem hann
var að verða faðir á ný. Kærastan
hans, hin gullfallega Keely Shaey-
Smith, 61 son á mánudag og var
sveininum gefíð nafnið Dylan
Thomas Brosnan. Það mætti
halda að foreldramir hefðu dálæti
á skáldskap.
Sólarrannsóknarskólinn
- Mest spennandi skótinn i bænum -
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050
Margrét Þórhildur Danadrottning gengur hér fram hjá lífveröi sínum á leið til hátíöarkvöldverðar í Kristjánsborgar-
höll í tilefni þess aö aldarfjóröungur er síðan hún varö drottning. Símamynd Reuter
Léttð Lýs*n9ar bf-
■ iik ■ -/
aðferð
— Létt^
LBID LÝSINGAR HF
sem
Dæmi
léttir
einstaklinqum bílakaup
í boði hjá öllum bílaumboðunum
FYRSTIR MEÐ NYJUNGAR
SUÐURIANDSBRAUT 22, 108 REYKJAVÍK
SlMI5331S00,FAX 533 1505
Verð bils
Útborgun
Láns- / leigutími
Hefðbundið bilalán
Lokaafborgun
Létta leiðin
Lokaafborgun
1.000.000 kr.
250.000 kr.
36 mán.
24.600 kr. á mán.
Okr.
10.600 kr. á mán.
550.000 kr.
I báðum tilvikum er greiðslugjald,
7,8% vextir og verðtrygging inni-
falið i mánaðarlegu greiðslunni.
Depardieu í
megrun
Franska kvikmyndaleikaranum
Gérard Depardieu hefur tekist að
létta sig um 25 kíló í ströngum
megrunarkúr. Er kappinn nú kom-
inn niöur í 89 kíló og orðinn nokk-
uð rennilegur. Það var hins vegar
alls ekki ástkona Depardieus frá
Senegal sem þoldi ekki hvað hann
var orðinn þungur heldur var það
hið ástkæra mótorhjól hans, að því
er gárungamir segja.
Erfiðar ákvarðanir teknar í Buckinghamhöll yfir hátíðarnar:
Karl lofar mömmu
að eiga ekki C amillu
Karl Bretaprins er búinn að lofa
mömmu sinni, henni Elísabetu Eng-
landsdrottningu, að ganga aldrei að
eiga hjákonu sína til margra ára,
Camiilu Parker Bowles. Það loforð
var þó gefið með trega í hjarta en
prinsinum voru nánast allar bjargir
bannaðar vegna mikillar andúðar
almennings í garð ástkonunnar.
Karl gerði móður sinni þó ljóst að
hann hefði alls ekki í hyggju að láta
vinkonuna sigla sinn sjó, heldur
mundi hann halda áfram að eiga
vingott við hana, án þess að láta of
mikið á því bera. Margir mektar-
menn innan hirðarinnar vilja
einmitt að prinsinn láti konuna
fjúka en hann er fullur fyrirlitning-
ar í garð slíkra manna.
Það var ekki fyrr en eftir langar
og miklar samræður yfir jólin að
Karl komst að niðurstöðu í málinu
og viðurkenndi fyrir sjálfum sér að
hann gæti líklega aldrei gengið að
eiga hana Camillu sína. Hann hafði
þó gert sér vonir um það í einhveiju
bjartsýniskastinu fljótlega eftir lög-
Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles, ástkona hans, fá ekki aö eigast
sökum andstööu bresks almennings viö ráöahaginn. Þau veröa þvt að halda
áfram aö hittast svo lítib ber á og stela kossum viö hvert tækifæri sem gefst.
skilnað hans og Díönu og til voru
meira að segja áætlanir um hvernig
best væri að fá almenning til að
taka „hjónadjöfulinn“, eins og
Camilla var oft kölluð, í sátt. En það
hefur ekki gengið eftir.
Einn ráðgjafa prinsins segir að
loforð hans til drottningar sé alls
ekki til merkis um að ástin milli
Karls og Camillu sé farin að kulna.
Karl sé hins vegar staðráðinn í að
gera skyldu sína og taka við kon-
ungdæmi þegar þar að kemur. Það
er númer eitt. Hann er líka jafn
staðráðinn í að henda út á kaldan
klakann konuimi sem hann elskar.
Camilla skilur vel aðstöðuna sem
ástmaður hennar er í, þrátt fyrir að
ýmsir fjölmiðlar segi nú annað, og
hefúr ekki þrýst á hann að ganga í
hjónaband.
„Já, prinsinn er vonsvikinn yfir
því að þjóðin skuli ekki hafa verið
fúsari til að fyrirgefa eða sýna til-
finningum hans skilning,“ segir
heimildarmaðurinn úr innsta hring
konungdæmisins.