Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1997, Qupperneq 32
Vinningstölur miðvikudaginn 15.1.’97
f
*
33
13128X31
35
36I%
23Y40Y4fl
Vlnnlngar Fjöldl vinnlnga Vlnnlngsupphæð
l.laft 2 20.824.000
2. S afó 2.072.730
3.S aft 2 124.070
4.taft ,202 1.950
S.Saft* ?v>'°735 230
Heildarvinnlnpupphxð
44.531.820
Á Islandl
2.883.820
Vmningstðlur 14,1, '97
Vinningstölur 15,1, '97
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
Stöðvaslagurinn:
Á ekki von á
öðru en
kærunni verði
vísað frá
- segir Magnús E.
„ Við spáðum því strax á fóstu-
daginn að til þess gæti komið að
þeir myndu kæra okkur og þá til
þess að sverta okkur og ekki síður
til að tryggja það að aðrir starfs-
menn færu ekki. Þessi kæra á hend-
ur okkur er leiðinlegur endir á ann-
ars ánægjulegu samstarfi við yfír-
menn og aðra starfsmenn Stöðvar 2.
Auðvitað hefði ég viljað sjá þetta
mál leyst í góðu og það hefði verið
hægt að gera það,“ segir Magnús E.
■-* Kristjánsson, nýráðinn sjónvarps-
stjóri Stöðvar 3, en hann ásamt
þremur öðrum fyrrum yfirmönnum
á Stöð 2, voru yfirheyrðir af Rann-
sóknarlögreglu ríkisins í fyrradag.
Magnús, Thor Ólafsson, Jón Axel
Ólafsson og Magnús Víðir Sigurðs-
son voru kærðir af íslenska út-
varpsfélaginu sl. laugardag fyrir
þjófhað og auðgunarbrot, daginn eft-
ir að þeir létu af störfum hjá fyrir-
tækinu.
Samkvæmt heimildum DV hafa
i ^lögfræðingar Stöðvar 3 íhugað kæru
á hendur forsvarsmönnum Stöðvar
2 fyrir rangar sakargiftir vegna
þesscuar kæru. Magnús vildi ekki
tjá sig um það í gærkvöld. Hjá RLR
fengust engar upplýsingar um vænt-
anlegar niðurstöðu rannsóknarinn-
ar.
„Ég á ekki von á öðru en þessari
kæru verði vísað frá hjá RLR enda
höfum við allir hreina samvisku. Ég
hef engin gögn undir höndum frá
Stöð 2 og tók engin gögn þaðan sem
flokka má sem trúnaðargögn. Þetta
gerðist allt mjög hratt og við gátum
ekki staðið að uppsögnunum með
öðrum hætti. Við töldum eðlilegt að
hverfa strax af vettvangi vegna
hagsmuna íslenska útvarpsfélags-
, ins,“ segir Magnús. -RR
Akureyri:
15 innbrot
upplýst
Lögreglan á Akureyri hefur upp-
lýst a.m.k. 15 innbrot sem framin
hafa verið í bænum að undanfómu.
Að sögn Gunnars Jóhannssonar,
rannsóknarlögreglumanns á Akm--
eyri, tengist einn þeirra sem hand-
teknir voru vegna smyglmálsins
innhrotunum. í gær voru fimm
menn yfírheyrðir vegna rannsóknar
. jjá innbrotunum og í kjölfarið var 21
árs gamail maður úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 18. janúar. -RR
Innanlandsflug:
Nýtt flugfélag
í uppsiglingu
- sameining innanlandsflugs Flugleiöa og FN hugsanleg
Þreifíngar hafa átt sér stað und-
anfama mánuði milli innanlands-
flugdeildar Flugleiða annars vegar
og hins vegar Flugfélags Norður-
lands og íslandsflugs og sam-
kvæmt heimildum DV er nýtt inn-
anlandsflugfélag í burðarliðnum.
Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður
forstjóra Flugleiða, staðfestir að
viðræður hafi átt sér stað en eng-
ar ákvarðanir um stofnun nýs
flugfélags um innanlandsflug á ís-
landi hafí verið teknar.
Samkvæmt heimildum DV er
líklegt að stofnað verði nýtt fyrir-
tæki með samruna innaniands-
deildar Flugleiða og Flugfélags
Norðurlands, en Flugleiðir eiga
þegar um 35% eignarhlut í Flugfé-
lagi Norðurlands. Rekstur FN hef-
ur gengið vel undanfarin ár og
skilað hagnaði en sama verður
ekki sagt um innanlandsflugdeild
Flugleiða. Samvinna hefur verið
milli félaganna þriggja á nokkmm
innanlandsflugleiðum og viðræð-
ur um frekara samstarf áttu sér
stað á seinni hluta síðasta árs. Að
sögn Gunnars Þorvaldssonar,
framkvæmdastjóra íslandsflugs,
hefur hans félag ekki tekið þátt í
þeim um nokkurra mánaða skeið.
Verulegur taprekstur hefur ver-
ið á innanlandsflugi Flugleiða um
árabil, en afkoman hefur batnað
vemlega að undanfomu, að sögn
Einars Sigurðssonar sem segir af-
komu rekstrarins mjög endur-
speglast af efnahagsástandi á
landsbyggðinni á hverjum tima.
Um leið og það fór að batna, batn-
aði afkoma innanlandsflugsins
líka.
Fokkerflugvélar Flugleiða era
ekki í eigu félagsins heldur leigðar
og í samningunum um þær eru
ákvæði um kauprétt. Einar segir
að leigusamningm'inn um þær sé í
sjálfu sér ekki óhagkvæmur. Hann
sé miðaður við markaðsverð flug-
vélanna sem hafi verið hátt þegar
samningurinn var gerður en sé
núna lágt þannig að yrði sams
konar samningur geröur í dag
yrði hann leigutaka mun hag-
kvæmari.
-SÁ
Arngrímur Jóhannsson, eigandi Atlanta-flugfélagsins, flaug meö 407 hermenn frá Pakistan um borö í jumboþotu
sinni. Hermennirnir höföu veriö viö friöargæslustörf á Haítí í 10 mánuöi og sótti Atlanta-flugfélagiö þá þangaö og
flaug meö þá heim til Pakistan. Millilent var á Keflavíkurflugvelli þar sem þotan tók eldsneyti og ný áhöfn tók viö.
Feröalagið tók um 20 klukkustundir í þaö heila. Hér sjást flugfreyjurnar Hildur Guömundsdóttir og Ragnheiður Peng-
ilsdóttir í öruggum höndum innan um pakistönsku hermennina. DV-mynd ÆMK
Stóra smyglmálið:
Þrír menn til
viðbótar hand-
teknir í gær
- alls fjórir í gæslu
Þrír menn til viðbótar voru hand-
teknir í gær vegna rannsóknar á
umfangsmiklu smygli og dreifingu á
rúmlega 6 þúsund flöskum af Jenk-
ins vodka. Málið er eitt stærsta
smyglmál sem komið hefur upp hér
á landi í langan tíma.
Áfengið kom til landsins í sl. des-
ember í gámi og er talið að í honum
hafi verið um 10 þúsund flöskur af
Jenkins vodka. Að sögn Harðar Jó-
hannessonar, yfirlögregluþjóns hjá
RLR, hefur lögreglan náð um fjögur
þúsund flöskum en rannsókn stend-
ur yfir á dreifingu og sölu sex þús-
und flaskna af áfenginu. Verðmæti
sendingarinnar er talið nema
rúmum 20 milljónum króna.
Fyrir sátu tveir menn í gæslu-
varðhaldi vegna málsins en þeir
voru handteknir sl. laugardag og úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til 28.
janúar. Höröur staðfesti að einn
þessara manna hefði viðurkennt að
flytja áfengið til landsins frá Banda-
ríkjunum. Þá hafa fjölmargir verið
yfirheyrðir vegna málsins. Sam-
kvæmt heimildum DV tengist toll-
vörður í Reykjavík málinu en Hörð-
ur vildi ekki staðfesta það.
Þetta umfangsmikla smyglmál
teygir anga sína norður í land en
sex ungir menn vom handteknir á
Akureyri í fyrradag vegna aðildar
að því. -RR
Umhverfisráðuneyti:
Erum ekki að
slaka á kröfum
„I starfsleyfistillögum umhverfis-
ráðuneytisins vegna álvers á
Grundartanga eru ákveðnir þættir
úr úrskurði skipulagsstjóra ekki
sérstaklega tilgreindir. Þetta em
þættir sem á samkvæmt mengunar-
vamareglugerð að taka upp í starfs-
leyfinu og við töldum því ástæðu-
laust að hafa í sjálfum texta starfs-
leyfisins á þessu stigi málsins," seg-
ir Magnús Jóhannesson, ráðuneyt-
isstjóri umhverfisráðuneytisins.
DV spurði ráðuneytisstjóra um þá
athugasemd heilbrigðisnefhdar
Kjósarhrepps að umhverfisráöu-
neytið hefði fellt úr starfsleyfistillög-
um sinum skilyrði skipulagsstjóra
um mikilvægar umhverfisrannsókn-
ir á vatnsbólum og vatnsbúskap á og
umhverfis Grundartanga.
Magnús Jóhannesson segir að alls
ekki sé verið að hundsa skilyrði
skipulagsstjóra enda séu þau reglu-
gerðarbundin og verði óhjákvæmi-
lega þáttur af endanlegu starfsleyfi
verksmiðjunnar. -SÁ
L O K I
Veðrið á morgun:
Norðaust-
anátt
Á morgun verður norðaustan
hvassviðri eða stormur og snjó-
koma um landið norðvestan-
vert. Heldur verður hægari
norðaustanátt og éljagangur á
Norðausturlandi en austan-
kaldi og slydduél eða skúrir
syðra. Hiti verður frá 3 stigum
allra syðst í 4ra til 7 stiga frost
á Vestfjörðum.
Veðrið í dag er á bls. 36
ODYRASTI
EINKAÞJÓNNINN
rmrm
BÍLSKÚRSHURÐA-
OPNARI
Verð kr. 21.834,-
lýbýlavegi 28 Sími 554 4443