Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
5
Fréttir
Lítið talið liggja að baki ákærunni á hendur Sigurði Arngrimssyni, skipstjóra á Tiu:
írska lögreglan lagði
ekki fram sannanir
fór fram á „rannsóknarfrest“ fram í apríl en fékk aðeins til 13. febrúar
Lögreglunni á írlandi hefur ekki
tekist að leggja fram sannanir gegn
Sigurði Amgrímssyni, skipstjóra og
eiganda flutningaskipsins Tia, í máli
ákæruvaldsins gegn honum þar sem
Sigurði er gefin að sök tilraun til
innflutnings á miklu magni af kóka-
íni. Ákæruvaldinu á írlandi var i
réttarhaldi þann 17. janúar gefmn
frestur til 13. febrúar til að leggja
fram gögn í málinu. Farið var fram
á frest fram í apríl en því hafnaði
dómari. Jósafat Amgrímsson, at-
hafnamaður á írlandi og bróðir Sig-
urðar, sagði í samtali við DV í gær
að hann reiknaði með að málinu
yrði vísað frá. Síðan væri ætlunin að
vinna að því að leggja fram stefhu í
skaðabótamáli gegn írska ríkinu.
Jósafat sat sjálfúr í gæsluvarðhaldi
nokkra daga en bróðir hans, sem síð-
an var ákærður, sat í haldi í einn
mánuð. Við svo búið var fallist á að
láta hann lausan gegn rúmlega 2ja
mifljóna króna tryggingu sem Jósa-
fat ábyrgðist.
í nýliðnu réttarhaldi var trygging-
ampphæðin lækkuð niður í rúmar
500 þúsund íslenskar krónur. Veij-
andi Sigurðar óskaði eftir því við
dómarann að það yrði bókað að ef
ákæruvaldið gæti ekki lagt fram
neinar sannanir þann 13. febrúar
yrði því vísað frá dómi. Dómarinn
tók ekki afstöðu til kröfunnar.
Fram að þinghaldinu þann 17. jan-
úar hafði lögreglan ekkert viljað láta
uppi á hverju hún byggði ákæm
sína á hendur Sigurði - það yrði
haldið leyndu fram að réttarhöldum.
Talsmenn hennar sögðu á sínum
tíma að rannsókn myndi halda
áfram en ekkert fannst í skipi Sig-
urðar sem benti til að fíkniefni hefðu
komið þar um borð. -Ótt
ísafjarðarstrætó:
Kallaður húsvagninn
hjá gárungunum
„Bæjarbúar gera nú góðlátlegt
grín að þessu en ég held að húseig-
endunum sé ekki skemmt eins mik-
ið. Það var ágætur punktur sem var
i DV fyrir helgi að ísafjarðarstrætó
væri með heimsendingarþjónustu.
Nú er bara spumingin í hvaða hús
hann fer næst,“ segir ísfirðingur,
sem ekki vill láta nafn síns getið, en
strætisvagninn á ísafirði hefur
keyrt á tvö íbúðarhús með aðeins
rúmu árs millibili.
I síðustu viku lenti strætisvagn-
inn í mikilli vindhviðu og keyrði
inn í eldhúsið á íbúðarhúsinu
Hreggnasa 3 í Hnífsdal. Bílsljórinn
var einn í vagninum og slasaðist
hann sem betur fer ekki. Eigandi
hússins segir að húsið sé óíbúðar-
hæft eftir óhappið. 15. janúar í fyrra
ók sami strætisvagn á íbúðarhús í
Sundstræti á ísafirði og skemmdist
húsið mikið.
Hjá gámngunum gengur ísafjarð-
arstrætó nú undir nafninu húsvagn-
inn. -RR
Frá ohöppunum þegar ísafjaröarstrætó ók á tvö húsin með rúmu ársmillibili.
Á annarri þeirra sést hann meö framendann inn f húsinu á Hnífsdal og á
hinni myndinni sést húsiö í Sundstræti á ísafirði sem skemmdist mikið í
fyrra. DV-myndir Höróur
• Black Line myndlampi þarsem
svart er svart og hvítt er hvítt
• Nicam Stereo
• íslenskt textavarp
• Alíar aogeröir á skjá
• Sjálfvirk stöövaleitun
• 40 stööva minni
• íenging fyrir auka hátalara
• Svefnrofi 15-120 min.
• 2 Scart-tengi
• Fullkomin fjarstyring
IWulsitna o. lanl allc VESIURIMO: HljóasÝi. Akraoesl Htlig Itnliliim Bonarntsi Blósnstunrellir. HellissandL tcln Nillgsiosstn Emdailiili KSIIUBI: laltíl Jónasai «a Patrtkslirði. Póllinn. isalirllL IDRÐIIRIAIO: ti Sttiimiiisfiailai. HíMl tl V Humetningi.
Hnnmstanga. D Hánwminia, BlóadiiósL Skagfiióingabúð. Sanlárkióói liUaliiL Hliómti. UmtnL OnmgL HisaiiL Uid. Riiafarhöln. AUSIIIBIAID: II Héiaisbúa. iiilsstiliii. II VapnNiliiiga. i/ognafitii. K Héiaðsbúa. Strlisliili. If listiilsliaiiai, Fásktiðsfiiii. USL Djiitaioii.
lASLHóln Hnalitli. SUBUBIUD: II Anesitga .Hnlsnlli. UtslelL Hellg. Sneit. Selltssi. Biliiiós. Stllissi. II Anesinga. Sillissi. lis. Miistila liines.Vestmannaevium. BEVLIAIfS: Rafbotg. GiiiW. Billagiaviiiusl. Sig. Iigvarssoiai. Earfii. BalunL Hatnaifisti.
Kr. 59.9DD stgr.
TVL2B3
ít KCL5TEF
Sýnilegir
ufirburða .
3 kastir
gtsm
mm
m
Litasjánvarp
Black Line myndlampi
IXIicam itereo iurround