Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
7
DV Sandkorn
Afmælisgjöfin
í síöasta hefti af Austra eru þrjár
góðar gamansögur af læknum. Ein
þeirra segir trá
augnlækni á Ak-
ureyri sem átti
merkisaftnæli og
hélt upp á það
með bravúr. Af
þvi tilefhi gáfu
starfsbræður
hans honum
málverk, þar
sem stórt auga
var mjög áber-
andi á miðjum
myndfletinum.
Meðal sam-
kvæmisgesta var Bjami Raftiar kven-
sjúkdómalæknir og var farið að stytt-
ast í næsta merkisafmæli hans. Þeg-
ar Bjami sá málverkið með auganu 1
miðjunni hnippti hann í konu sína
og sagði. „Jæja, Begga mín, þá vitum
við hvað ég fæ i afmælisgjöf."
Og stóð við það
Sigurbjöm Hilmarsson í Vest-
mannaeyjum er sögumaður í nýlegu
tölublaði af bæj-
arblaðinu Frétt-
ir. Þar segir
hann meðal ann-
ars góða sögu af
móður sinni á
þessa leið: „Þeg-
ar mamma var
að vinna í
Vinnslustöðinni
í bónusi gekk oft
mikið á. Þannig
var að þegar við
komum heim úr
skólanum þurft-
um við að kveikja undir soðningunni
því mamma hafði svo nauman tima I
mat. Hún hafði þann ávana að eiga
aldrei eldspýtur. Þess vegna þurfti
hún oft að kveikja i sigarettunni á
brauðristinni. Þennan dag var hún
eitthvað óvenju sein fyrir og mikið
að gera. Hún var að drifa sig af stað
í vinnuna en ætlaði að kveikja sér í
sígarettu áður. Rýkur aö vaskinum,
skrúfar frá vatninu og stingur sígar-
ettunni undir: „Nei, nú hætti ég að
reykja," sagði hún og stóð við það!“
Fimm örbylgju-
ofnar
Og áfram er vitnað í Fréttir. 1 síð-
asta blaði er frétt um að tvö blóð-
sýni, sem tekin
voru úr mönn-
um grunuðum
um ölvun við
akstur á Þor-
láksmessu, hafi
reynst skemmd
þegar þau komu
til Rannsókna-
stofnunar Há-
skólans. Taliö er að þeim hafi verið
stungið inn i örbylgjuofn. Málið er
litið alvarlegum augum og margir
liggja undir grun. Síðan segir blaðið:
„Samkvæmt heimildum blaðsins
voru sýnin ekkert lengur á leiðinni
til Rannsóknarstofhunar Háskólans
en venja þykir. Málinu var strax vís-
að til RLR sem fer með rannsókn
málsins. Á leið sýnanna frá lögreglu-
stöðinni í Eyjum til Rannsóknar-
stoftiunar Háskólans eru að minnsta
kosti flmm örbylgjuofnar sem koma
til greina, samkvæmt heimildum
blaðsins meðal annars á flugvellinum
í Eyjum og í Reykjavík. RLR verst
allra frétta en málið þykir hið vand-
ræðalegasta fyrir lögregluna..." Segir
ennfremur að talið sé að þeir grun-
uðu fái sekt en missi ekki ökurétt-
indin.
Hvannarót
í Lindum
í Austra er birt skemmtileg
brennivins- og ferðavísa eftir Hrafii
Sveinbjamarson
á Hallormsstað.
Hrafh er kunnur
ferðamaður sem
unir sér vel á
öræfum i góðum
félagsskap. Hon-
um þykir ekkert
verra að hafa
eitthvað með-
ferðis til að lífga
upp á sálartetr-
ið. Og því orti
hann eitt sinn:
Tindavodka taka skal
til dæmis undir felli,
gamla lautin í Gæsadal,
ég gjaman í mig helli.
Finnst ykkur ekki fyrirtak
að fastmælum það bindum
i Kverkfjöllum sé koníak
og hvannarót í Lindum?
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Fréttir
Mokveiði við Garðskaga:
Fiskifræðingarnir
ættu að vera hér
DV, Suðurnesjum:
„Trossan er varla komin í botn
þegar hún er orðin full af fiski.
Þannig er fiskiríið nú og það væri
gaman að hafa fiskifræðinga hér til
að fylgjast með þessu,“ sagði Öm
Hólm, stýrimaður á Ágústi Guð-
mundssyni GK, þar sem hann var að
landa 15 tonnrnn af fiski í Njarðvík-
urhöfn á mánudagskvöld. Veiðin var
15 tonn - mestmegnis þorskur sem
fór allur í salt. Margir bátar á Suður-
nesjum hafa verið að fá góðan afla að
undanfömu og útlitið er bjart.
Öm segir að trossumar hafi legið
fimm klukkustundir í sjó og úr
hverri þeirra drógu þeir upp þrjú
tonn. AUa jafna hafa þeir trossumar
í sjó í sólarhring. Þeir era með 10
trossur og segir Öm það mikla vinnu
að draga þær inn. Veiðin er á stóra
svæði norður af Garðskaga. -ÆMK Örn aö landa oa borskurinn er vænn. DV-mynd ÆMK
Borgarbyggð:
Forðast
innheimtu
lögfræðinga
í lengstu iög
DV, Vesturlandi:
Tillögu Jenna R. Ólasonar
bæjarfulltrúa um að fenginn
yrði óháður aðili og þá lögfræð-
ingur til að iimheimta útistand-
andi kröfur Borgarbyggöar var
vísað frá f bæjarstjóm Borgar-
byggðar nýlega.
„Menn höfnuðu alfarið aö
setja þetta í framkvæmd. Það
hefði haft í for með sér mikinn
aukakostnað fyrir sveitarfélagið.
Þó skuldimar fari eitthvað fram
yfir eindaga þá ætlum viö í
lengstu lög að forðast að setja
þær í innheimtu lögfræðings.
Auðvitað viijum við ná inn öll-
um þeim skuldum sem við eig-
um útistandandi. Við höfum
beitt okkur vel í innheimtunni
en við ætlum okkur ekki aö
setja þetta í innheimtu lögfræð-
inga fyrr en allar leiðir hafa ver-
ið kannaðar niður í kjölinn og
ekki annað hægt,“ sagði Óli Jón
Gunnarsson, bæjarstjóri í Borg-
arbyggð, við DV. -DVÓ
Dansleikur í af-
mali Alla rika
DY Esldfiröi:
Fimmtudaginn 30. janúar verður
hinn landskunni athafnamaður, Að-
alsteinn Jónsson á Eskifirði eða Alli
ríki, 75 ára. Af því tilefni hefur
stjórn Hraðfrystihúss Eskifjarðar
ákveðið að efna til veglegs afmælis-
fagnaðar kl. 20 á afmælisdaginn í fé-
lagsheimilinu Valhöll á Eskifirði.
Starfsfólk Aðalsteins svo og vinir
og kunningjar munu eflaust fjöl-
menna í Valhöll til að samfanga Að-
alsteini. Að lokinni afmælisdagskrá
verður dans stiginn fram eftir nóttu
og sér hljómsveit Geirmundar Val-
týssonar um stuðið. Regina
Engin loðna
DV, Eskifiröi:
„Hér hefur ekki fundist arða,“
sagði Grétar Rögnvarsson, skipstjóri
á loðnuskipinu Jóni Kjartanssyni, í
samtali við DV í gær. Miili 20 og 25
skip hafa verið að leita að loðnu á
svæðinu frá Seyðisfjarðardjúpi og
suður í Lónsdýpi en ekkert hefúr
fundist.„Nú er komin bræla og sum-
ir famir í land til að skipta yfir á
grunnnótina," sagði Grétar og bætti
við: „Ég reiloia með að loðnan gjósi
svo upp einhvem næstu daga uppi í
fjörunum. Þannig finnst mér útlitið
vera nú.“ Emil
Akranes:
Fleiri stúlkur
fæðast á sjúkra-
húsinu
DV, Akranesi:
Fæðingar á Sjúkrahúsi Akraness
hafa nokkurn veginn staðið í stað ef
miðað er við fjölda fæðinga síðustu
tvö árin - 1995 og 1996.
1995 bættust við 82 drengir i
knattspymulið Skagamanna í fram-
tíðinni og 83 stúlkur. Alls vora fæð-
ingar það ár 165. Á árinu 1996 vora
fæðingar alls 166. Þar af voru 77
drengir og 89 stúlkur. Ef miðað er
við bæði árin hafa 159 drengir fæðst
og 172 stúlkur.
Það er því Jjóst að Akumesingar
og Borgfirðingar verða að taka sig
verulega á í að fjölga mannfólkinu.
„Árið í ár byrjar þokkalega. í lok
janúar vora komnar 12 fæðingar og
það var jafhmikið af stúlkum og
drengjum eða 6 af hvora kyni. Mað-
ur vonar samt að fæðingum fjölgi
miðað við síðasta ár því það er
alltaf gaman að taka á móti nýjum
einstaklingum. Þetta skýrist á
næstu mánuðum," sagði Jónína Ing-
ólfsdóttir, yfirljósmóðir á Sjúkra-
húsi Akraness. -DVÓ
W
w
PANTANA A AUGLYSINGUJ
ÍSÍMASKRÁ1997ER I
31.JANUAR
Laufásvegi 49-51
Sími 511 4330
Fax 5114333