Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
  • Qaammatit siuliiJanuary 1997Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1997, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1997, Qupperneq 5
Jj’\F FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 nlist I9 Höxudsmadurinn Ix allirmlxrál „Höfuðsmaöurinn“, Colonel Tom Parker, umboðsmaður Elvis Pres- leys frá 1955 til 1977, er látinn. Hik- laust má telja hann þekktasta um- boðsmann tuttugustu aldarinnar, harðsviraðan nagla sem sveifst einskis þegar fjárhagslegir hags- munir skjólstæðings hans voru ann- ars vegar. Parker tók að sér að ann- ast mál Elvis Presleys um það leyti sem söngvarinn var að slá í gegn, þá tvítugur sveitastrákur sem hafði óafvitandi dottið niður á að syngja rytmablús með sama hætti og svert- ingjar. Thomas Andrew Parker öðlaðist ekki höfuðsmannstign í bandaríska hernum. Þaö var Jimmie Davis, fylkisstjóri í Louisiana, sem gaf honum nafnbótina árið 1948. Sjö árum síðar tók Parker að sér að annast fjármál Elvis Presleys sem var á mála hjá Sun útgáfunni í Memphis. Sam Philips, eigandi fyr- irtækisins, gerði sér grein fyrir að söngvarinn ungi væri svo eftiilegur að fyrirtækið gæti ekki ráðið fjár- hagslega við að standa við bakið á honum eins og nauðsyn krefði. Presley var því settur á sölulista og Parker hafði milligöngu um að RCA Victor-útgáfan gerði við hann plötu- samning og greiddi fyrir það 35 þús- vmd dollara. Parker sá einnig um að ðíJBaíJjJðJDí ★★★ Live á Dubliner - Papar Allt viröist vera látiö vaöa, tönlistin hrá og óhefluö. Hljómleikarnir á Dubliner viröast hafa veriö hin besta skemmtun og hún kemst vel til skila niöursoöin á diski. -ÁT ★★★ Stoosh - Skunk Anansie Stoosh er allt öðruvísi hljómplata en Paranoid and Sunburnt, virkar kraft- minni viö fyrstu hlustun en verður betri því meira sem er hlustaö. Lagasmíöar sveitarinnar eru mjög góöar. -GBG ★★★ Entroducing - DJ Shadow; Aö baki þessari plötu liggur gífurleg vinna, stórt plötusafn og hugmynda- auögi sem á ekki sína líka. -GBG ★★★ Snörumar-Snörumar í aöalatriöum hefur tekist vel meö lagaval á plötuna. Hér eru nokkrir áheyrilegir kántríslagarar. -ÁT ★★★★ Mermann - Emilíana Torrini Þótt innlendu lögin séu vel samin og þau erlendu vel valin standa þau og falla meö einstaklega áheyrilegri söng- rödd Emilíönu. Hún er eöalsteinn. -ÁT ★★★Í Kolrassa krókríðandi - Köld em kvennaráð Þaö fer ekki fram hjá neinum sem leggur viö hlustir aö mikil vinna hefur veriö lögö í þessa plötu; hljóöfæraleik- urinn er fágaöur, hljómurinn góöur og lögin stórgóö. -MÞÁ ★★★ Völlurinn - söngleikur eftir Hrafn Pálsson Þetta er músfk í anda Jóns MOIa og fleiri góöra og gegnra dægurlaga- og söngleikjasmiða. Vel er vandaö til verka og útkoman hin prýöilegasta. ÁT ★★★ Perlur og svín - Todmobile Gamlir aödáendur ættu aö geta vel unaö viö plötuna. Og ættu aörir aö finna eitthvaö viö sitt hæfi. -ÁT koma Elvis Presley í sjónvarpið, þar á meðal þrívegis í skemmtiþátt Eds Sullivans á árunum 1956 og 57. Það flýtti mjög fyrir því að söngvarinn ungi varð skjótt frægur um öll Bandaríkin og skömmu síðar um allan heim. Harður fjármálamaður Col. Tom Parker, eins og hann var ávallt nefndur, fékk að sjálf- sögðu talsvert fyrir sinn snúð. Fjórðungur af tekjum Presleys rann um skeið í vasa umboðsmannsins og síðar átti hlutur hans eftir að hækka í fimmtíu prósent. Þetta þótti ýmsum bera vott um græðgi en Elvis Presley virtist láta sér í réttu rúmi liggja hvemig Parker lið- þjálfi verðlagði þjónustuna og kall- aði hann iðulega aðmírál. Enda sá umboðsmaðurinn um að tekjur söngvarans og þar með þeirra beggja voru með slíkum ágætum að hvorugur þurfti að kvarta. Fyrir nokkrum árum þegar Parker var sakaður um græðgi svaraði hann því til að ýmsir hefðu sýnt enn meiri ágimd eftir að Presley lést með því að reyna að græða sem allra mest á minningu hans. Eftir að Elvis Presley lést sumar- ið 1977 úrskurðuðu dómstólar að Parker skyldi ekki fá laun úr dánar- búi söngvarans og að hann ætti ekki tilkall til neins fjár úr því. Sex ámm síðar seldi hann RCA eigi að síður fjöldann allan af upptökum með söng Presleys fyrir tvær millj- ónir dollara. Þessi sala kom í kjölfar fjölda málaferla fólks sem taldi að karlinn væri enn að græða á sínum gamla skjólstæðingi. Meðal þeirra sem höfðuðu mál á hendur honum var fjárhaldsmaður Lisu Mariu Presley, dóttur söngvarans. En þrátt fyrir fégræðgi gamla mannsins hafnaði hann öllum tilboðum frá bókaútgáfum sem vildu að hann léti rita endurminningar sínar þar sem fram kæmi samstarfið við Elvis Presley. „Þeir vilja bara fá að heyra um subbuskap. Ég er ekkert fyrir slíkt,“ sagði hann við eitthvert tæki- færi. Fortíðin á huldu Tom Parker var 87 ára þegar hann lést. Hann fullyrti alla tíð að hann væri frá Huntington í Vestur- Virginíu í Bandaríkjunum en fúll- yrt var að hann væri ólöglegur inn- flytjandi, fæddur í borginni Breda í Hollandi og hefði komið til Banda- ríkjanna þegar hann var um tvítugt. Elvis Presley fór aldrei í hljómleika- ferðir út fyrir Bandaríkin á ferli sínum. Skýringin á því er talin vera sú meðal annars að Tom Parker átti ekki vegabréf og hefði því ekki kom- ist til Bandaríkjanna aftur hefði hann farið með Presley út fyrir landsteinana. Fyrr á öldinni vann Parker fýrir sér í sirkusum og á skemmtimörk- uðum ýmiss konar en um miðjan fimmta áratuginn tók hann að sér að annast fjármálin fyrir kántrí- söngvarann Eddy Amold. Síðar tók hann að sér söngvarana Hank Snow og Gene Austin. Um miðjan sjötta áratuginn opnuðu Parker og Hank Snow umboðsskrifstofú í Nashville, háborg kántrítónlistarinnar. Skömmu síðar varð Elvis Presley skjólstæðingur þeirra og þegar Parker gerði sér grein fyrir framtíð- armöguleikum Presleys sneri hann sér alfarið að rekstri hans með slík- um árangri að enginn umbi hefur komist með tæmar þar sem hann hafði hælana. Samantekt: ÁT tónlistargagnrýnenda i Oútgáfuhæf ★ Slæm ★i Slök ★★ í meðallagi ★★i Sæmileg ★★★ Góð ★★★i Frábær ★★★★ Meistaraverk n i ~i Um þessar mundir á hljómsveitin Lúdó og Stefán 35 ára afmæli og fostudaginn 31. janúar verður hald- ið upp á þetta merkisafmæli á Hótel íslandi. Laugar- daginn 1. febrúar verður lokasýning á sýningunni Bítlaárin 1960-1970. Galað um nætur Tónatríóið spilar á Næturgalanum í Kópavogi fostudaginn 31. janúar og laugardaginn 1. febrúar. Tónatríóið skipa þeir Jakob Magnússon bassaleikari, Magnús Einarsson, gítarleikari og söngvari, og Haf- þór Guðmundsson trommuleikari. Sýn á Kringlukránni Föstudaginn 31. janúar, laugardaginn 1. febrúar og sunnudaginn 2. febrúar mun dúettinn Sýn skemmta gestum Kringlukrárinnar. í Leikstofúnni mun Rúnar Þór leika fýrir gesti og gangandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar: Fjörkálfurinn (31.01.1997)
https://timarit.is/issue/197233

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

Fjörkálfurinn (31.01.1997)

Iliuutsit: