Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1997, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997
23
idfai helgina
Mikið um
að vera
í Hafnarborg
LEIKHÚS
Þjóðleikhúsið
Litli Kláus og Stóri Kláus
sunnudag kl. 14.00
Kennarar óskast
laugardag kl. 20.00
Villiöndin
sunnudag kl. 20.00
Þrek og tár
föstudag kl. 20.00
Leitt hún skyldi vera
skækja
laugardag kl. 20.30
í hvítu myrkri
föstudag kl. 20.30
Borgarleikhúsið
Fagra veröld
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Trúðaskólinn
sunnudag kl. 14.00
Dómínó
laugardag kl. 20.00
Svanurinn
sunnudag kl. 17.00
sunnudag kl. 20.00
Barpar
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
Leikfálag Akureyrar
Kossar og kúlissur
laugardag kl. 20.00
Undir berum himni
föstudag kl. 20.30
Hermóður og Háðvör
Birtingur
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Loftkastalinn
Áfram Latibær
sunnudag kl. 14.00
sunnudag kl. 16.00
Á sama tíma að ári
laugardag kl. 20.00
Sirkús Skara skrípó
föstudag kl. 20.00
Nemendaleikhúsið
Hátið
laugardag kl. 20.00
föstudag kl. 20.00
Skemmtihúsið
Ormstunga
föstudag kl. 20.30
Höfðaborgin
Gefin fyrir drama ...
laugardag kl. 20.30
Kaffileikhúsið
Einleikir Völu Þórs
föstudag kl. 21.00
laugardag kl. 21.00
Tjarnarbíó
Poppleikurinn Óli n
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
Möguleikhúsið
Einstök uppgötvun
sunnudag kl. 14.00
Hafnarborg er menningar- og
listastofnun Hafnarflarðar. Á morg-
un verður opnuð þar sýning á verk-
um Einars Baldvinssonar listmál-
ara auk samsýningar stórs hóps
listamanna úr Hafnarfirði.
Einar Baldvinsson er íslenskum
myndlistarunnendum vel kunnur
enda hefur hann haldið fjölda
einkasýninga frá því að hann sýndi
fyrst í Bogasal Þjóðminjasafnsins
árið 1958. í sýningarskrá ritar Aðal-
steinn Ingólfsson listfræðingiu og
segir þar meðal annars:
„Einar G. Baldvinsson hefur nán-
ast alla starfsævi sína málað til-
brigði um þann veruleik sem blasti
við honum á þroskaárum hans,
þorpsstemninguna í Reykjavik,
andrúmsloftið við höfnina, sambýli
þorps og hafs. Einar er maður
formfestu, skipulegrar myndbygg-
ingar og samræmdra lita. Hann er
staðfastur í trúnni á listrænt sann-
leiksgildi þessara þátta og unir sér
sjaldast hvíldar fyrr en þeim hefur
verið haldið til skila. En hann er
líka ljóðskáld og músíkant í litum -
tónlistin var enda hans fyrsta ást -
og fetar í myndum sinum mjótt ein-
stigið milli angurværðar og gleði.
Umfram allt er Einar heill og sann-
ur í öllu sem hann tekur sér fyrir
hendur."
Á fjórða tug listamanna
Hafnarborg hefur einnig boðið
stórum hópi listamanna, sem flestir
starfa í Hafnarfirði, til sýningar
sem verður einnig opnuð á morg-
un. Ekki er um temasýningu að
ræða heldur er ætlunin að þetta
verði sýning þar sem gestum gefst
kostur á að sjá sitt af hverju og
fylgjast með því sem listamenn eru
að gera.
Sýningar af þessu tagi voru al-
gengar hér á árum áður og voru þá
kallaðar salon-sýningar en hafa að
mestu leyti legið niðri síðustu ár. Á
meðal þeirra sem sýna munu núna
eru listamenn sem löngu eru orðn-
ir þjóðkunnir og svo aðrir sem
minna hefur borið á.
Salon-sýningin og sýning Einars
Baldvinssonar munu báðar standa
til 17. febrúar. -ilk
Tónlistarhátíðin í Garðabæ:
Sólrún syngur á morgun
Fyrir nokkrum dögum hófst tón-
listarhátíð í Garðabæ í tilefhi af
því að í dag, 31. janúar, eru 200 ár
liðin frá fæðingu austurríska tón-
skáldsins Franz Schuberts. Á há-
tíðinni er flutt mikið úrval söng-
ljóða og kammerverka eftir tón-
skáldið. Listrænn stjómandi henn-
ar er píanóleikarinn og hljómsveit-
arstjórinn Gerrit Schuil en allir
tónleikamir era haldnir í safnað-
arheimilinu Kirkjuhvoli við
Vídalínskirkju i Garðabæ.
Aðrir tónleikar Schubert hátíð-
arinnar verða haldnir á morgun
kl. 17.00. Þar mun Sólrún Braga-
dóttir sópran flytja sönglög eftir
Schubert. Við hljóðfærið verður
sem áður Gerrit Schuil en hann
hefur átt náið samstarf við ís-
lenska tónlistarmenn á liðnum
árum, ekki síst söngvara okkar.
Afrakstur þeirrar vinnu má að
nokkra leyti sjá á umræddri Schu-
bert-hátíð.
íperuhlutverkin um
irjátíu talsins
Sólrún Bragadóttir hóf söngnám
undir handleiðslu Elísabetar Er-
lingsdóttur en árið 1982 hélt hún til
náms við Tónlistarháskólann í
Bloomington, Indiana í Bandaríkj-
unum, og lauk þaðan meistara-
prófl í einsöng og kennslufræðum.
Síðan lá leið hennar til Þýskalands
þar sem hún var fastráðin söng-
kona við óperana í Kaiserslautern
í þrjú ár. Á þeim árum söng hún
mörg aðalhlutverk. Árið 1990 var
hún fastráðin við óperuhúsið í
Hannover þar sem hún starfaði í
fjögur ár og hlaut jafnframt fastan
gestasamning við óperana í
Dússeldorf. Sólrún hefur ferðast
víða og sirngið en alls eru ópera-
hlutverkin orðin um þrjátiu tals-
ins. Þá hefur Sólrún alla tíð lagt
ríka áherslu á Ijóðasöng og haldið
fjölmarga tónleika víða um lönd.
Miðasalan á tónleikana verður
opin á milli kl. 15.00 og 17.00 á tón-
leikadaginn í Kirkjuhvoli við
Vídalínskirkju í Garðabæ. Miða-
verð á einstaka tónleika er 1.400
krónur en ennþá er hægt að kaupa
áskriftarkort á þá átta tónleika
sem eftir eru og kostar það 9.500
krónur. -ilk
Misstu ekki af spennandi
aukablöðum
í febrúar og mars:
Aukablöð DV eru löngu orðin
landsþekkt. Blöðin eru bæði fræðandi
og skemmtileg og fjalla um margvísleg
og gagnleg sérsvið.
5 . febrúar
Tækni og tölvur
Spennandi blað um
tölvur og intemetið.
Fjallað verður um þróun
í tölvumálum og flest það
er viðkemur tölvum og
tölvunotkun.
12. febrúar
Bílar '97
í blaðinu er að finna
heildstætt yfirlit yfir þá
fólksbfla og jeppa sem
bflaumboðin hafa í
boði á árinu 1997.
Blað sem enginn bfla-
eigandi má láta fram
hjá sér fara.
19. febrúar
Feröir til útlanda
ítarlegar upplýsingar um
þá ferðamöguleika sem
í boði á árinu 1997 hjá
ferðaskrifstofunum, ásamt
ýmsum hollráðum varð-
andi ferðalög til útlanda.
26. febrúar
Hljómtæki
Efmsmikið blað um allt
sem viðkemur hljómtækj-
um. Þar verður meðal ann-
ars fjallað um helstu nýj-
ungar á markaðnum.
12. mars
Fermingargjafa-
handbók
Nauðsynleg upplýsinga-
og innkaupahandbók fyrir
alla þá sem eru í leit að
fermingargjöfum.
19. mars
Matur og kökur
Lystaukandi blað þar
sem fjallað verður um
flest það er viðkemur
matartilbúning fyrir páskana.