Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1997, Síða 12
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997
26
■jit ic
MYNDBMDA
Chasing the Dragon ★★'i
í raunsærri kantinum
Hér segir frá Gwen Kessler, 35 ára gamalli einstæðri
móður sem vinnur við tölvuleikjaframleiðslu. Hún er
ósátt í vinnunni og á i erjum við fyrrverandi eigin-
mann sinn sem er að svíkjast um meðlagsgreiðslur.
Þjökuð af stressi og áhyggjum lætur hún glepjast til
þess að prófa að sniffa heróín eftir að hafa komið að
vini sínum inni á klósetti við slíka iðju. Hún fellur fyrir þeirri fúllyrðingu
að þetta sé hið ágætasta slökunarmeðal og við tekur ömurlegt ferli niður á
við þar sem viðkoma er höfð á flestmn stigum þeirrar mannlegu niðurlæg-
ingar sem dópfíkn fylgja. Svo fer að lokum að hún getur ekki haldið neyslu
sinni lengur leyndri og fær þá hjálp frá sínum nánustu. Myndin á að vera
byggð á sannri sögu og styrkur hennar liggur einmitt í raunsæi en þó hef-
ur maður á tiifinningunni að einhverjir framleiðendaháifvitar hafi komist í
handritið og dramatíserað það því að sum atriðin virka hálfasnalega. Oftar
nær þó myndin að hreyfa við manni og velta upp raunverulegum vandamál-
um. Leikararnir standa sig vel og þá sérstaklega móðir og sonur, Markie
Post og Noah Fleiss.
Úgefandi: Stjörnubíó. Leikstjóri: lan Sander. Aðalhlutverk: Markie Post,
Dennis Boutsikaris og Noah Fleiss. Bandarísk, 1996. Lengd: 98 mín.
Bönnuð börnum yngri en 12 ára. PJ
Fresh
snýr við blaðinu ****
Fresh er tólf ára strákur sem býr í fátækrahverfi
Brooklyn, sem skiptir tíma sínum milli skólans, hestu
vina sinna og jafnaidra og vinnunnar, þar sem hann
sendist með dóp og stundar götusölu fyrir eiturlyfia-
kónga hverfisins. Hann er mjög harður af sér og þykir
efnilegur innan dópheimsins en hefur þó sínar efasemd-
ir um það sem hann er að gera. Þegar stelpan sem hann
er hrifmn af verður fyrir skoti og deyr ákveður hann að
gera eitthvað í málinu og sækir visku sína í taflmennsk-
una sem hann stundar með foður sínum sem kennir
honum að notfæra sér veikleika andstæðingsins og fóma mönnum fyrir
lokamarkmiðið; að ná kóng andstæðingsins. Fresh setur því af stað með ein-
dæmum kaldrifiaða áætlun þar sem hann etur dópsölunum hverjum gegn
öðrum þangað til enginn stendur eftir en til þess verður hann að fóma sum-
um af sínum bestu vinum. Kaldrifiað miskunnarleysið í myndinni er sláandi
fyrir okkur í hinu verndaða umhverfi á íslandi en góður leikur og leikstjóm,
sem leggur áherslu á raunsæi, gerir myndina trúverðuga þrátt fyrir ótrúleg-
an söguþráðinn. Myndin er nánast súrrealísk og dregur vel fram þær að-
stæður í fátækrahverfunum sem breyta öllum siðferðislögmálum. Athafiiir
Fresh, sem í flestum tilvikum mundu kallast ógeðfelldar, gera hann að hverf-
ishetju og við sem búum við allsnægtir (miðað við hann) getum ekki dæmt
hann fyrir þær. Sean Nelson vinnur mikinn leiksigur sem Fresh.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Boaz Yakin. Aðalhlutverk: Sean Nelson,
Giancarlo Esposito og Samuel L. Jackson. Bandarísk, 1994. Lengd: 115
mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. PJ
ItTakesTwo
★ Ungir hjónabandsmiðlarar
Tvíburasysturnar Mary- Kate og Ashley Olsen leika
i þessari mynd allsendis óskyldar stelpur sem búa við
heldur ólíkar aðstæður. Önnm er dóttir margmilljóner-
ans Rogers Calloways (Steve Guttenberg) og heitir
Alyssa. Hin er Amanda, sem býr á munaðarleysingja-
hæli þar sem Diane Barrows (Kirstie Alley) ræður rikj-
mn. Þegar munaðarleysingjarnir fara í sumarbúðir
hinum megin við vatnið frá einu af sveitasetrum Call-
oway-fiölskyldunnar hittast Alyssa og Amanda og
veröa mjög undrandi að sjá að þær líta nánast alveg
eins út. Þær sjá þó strax að slíkt má notfæra sér. Þær
ákveða síðan að Roger og Diane eigi vel saman og leggja á ráðin um að
koma í veg fyrir yfirvofandi brúðkaup Rogers og barbídúkkmmar Clarice
Kensington, sem er hlaðin öllum verstu mannkostum sem hægt er að hugsa
sér. Auðvitað endar allt vel með algjörri niðurlægingu vondu barbí-
dúkkunnar, trúlofun góða fólksins og ættleiðingu þeirrar munaðarlausu.
Tvíburarnir eru skástu leikaramir í myndinni þrátt fyrir barnalegan ofleik
og nánast vangefha dramatíska tilburði. Um Kirstie Ailey og Steve Gutten-
berg er ekki annað að segja en að þau hæfa hvort öðru fullkomlega og eiga
hvort annað skilið.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Andy Tennant. Aðalhlutverk:
Kirstie Alley og Steve Guttenberg. Bandarísk, 1995. Lengd: 97 mín.
Leyfð öllum aldurshópum. PJ
The Babysitters Club.
Sumarbúðir í íbúðahverfi *
Þessi mynd gerir út á mjög afinarkaðan áhorfendahóp,
svona 10-15 ára stelpur, og varla er hægt að ímynda sér
að nokkur annar hafi gaman af þessu. Hún fiallar um sjö
stelpur á hér um bil ofangreindum aldri sem hafa stofti-
að bamfóstruklúbb. Þær fá þá snilldarhugmynd að setja
af stað sumarbúðir fyrir börn (í miðju íbúðahverfi i bæn-
um) og segir myndin ffá þeim tilburðum ásamt nokkrum
aukasögum í kringum lif einstakra klúbbmeðlima. Mest
er fiallað um Kristy, sem er drengjalegur fiörkálfur, og
samband hennar við mannleysuna fóður hennar sem
kemur í bæinn eftir margra ára fiarvistir. Sú saga er líka sú eina sem nær
einhverju flugi í myndinni og Schuyler Fisk, sem leikur Kristy, er sú eina
í leikhópnum sem virðist eitthvað kunna að leika. Restin, sem því miður er
mikill meirihluti myndarinnar, er neyðarleg samsuða óspennandi atriða og
svo leiðinleg að ef ekki væri fyrir þá staðreynd að vondu stelpurnar og at-
hafnir þeirra eru á nákvæmlega sama plani myndi maður halda eindregið
með vondu stelpunum. Myndin er víst byggð á einhverjum merkisbók-
menntum sem ég hef ekki lesið og get því ekki lagt mat á en myndin er alla
vega ómerkilegt rusl þótt hugsanlegt sé að áðurnefndur markhópur hafi eitt-
hvað gaman af.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Melanie Mayron. Aöalhlutverk: Schuyler
Fisk. Bandarísk, 1995. Lengd: 92 mín. Leyfð öllum aldurshópum. PJ
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTCEF. TEG.
1 1 3 Rock Sam-myndbönd Spenna
2 . 2 Vr rr-.£*-.*ð 2 Cable Guy Skífan Gaman
3 3 3 Happy Gilmore ClC-myndbönd Gaman
mmBrn* NÝ 1 ■I . M tmamm ■ H| ■■ Fargo Háskélabíó ^ f „,í Spenna
5 ; 4 5 Trainspotting Warner-myndir Spenna
r 6 7 2 Mullholland Falls Myndform - Spenna
7 6 6 Copycat Warner -myndir Spenna
! 5 6 Kingpin Sam-myndbönd * Gaman
NÝ 1 Spy Hard Sam-myndbönd Gaman
NÝ 1 • - Truth about Cats and Dogs j Skrfan Gaman
9 Sgt. Bilco ClC-myndbönd Gaman
12 10 S j Juror Skrfan Spenna
i3 ; 3 : 6 From Dusk till Dawn Skífan Spenna
I1 NY 1 White Man Sam-myndbönd Spenna
ís ; 13 9 Primal Fear r ClC-myndbönd i Spenna
16 Al ; 10 Executive Descision : Warner-myndir Spenna
17 14 9 Down Periscope , Skrfan Gaman
M NÝ 1 ; It Takes Two r Sam-myndbönd Gaman
NÝ > 1 Freeway Háskólabíó Spenna
20 12 7 Don't be a Menace 1 n Skrfan \ Gaman
The Ftock heldur efsta sæti myndbandalistans þriðju
vikuna í röð og það verður sjálfsagt ekki fyrr en
Mission Impossible kemur stormandi inn á listann aö
hún missir þaö sæti. Ein ný mynd er meðal fimm
efstu, er þaö hin rómaða kvikmynd Coen-bræðra,
Fargo, en þessi ágæta mynd á örugglega eftir að
koma við sögu þegar tiinefningar til óskarsverðlauna
verða kynntar. Á myndinni má sjá leigumorðingjana
tvo sem Steve Buscemi og Peter Stormare leika.
Fimm aörar nýjar myndir koma inn á listann, má þar
nefna farsann Spy Hard með Leslie Nielsen og gam-
anmyndina The Truth about Cats and Dogs, en báð-
ar þessar myndir eiga örugglega eftir að fara ofar á
listann.
The Rock
Sean Connery og
Nicolas Cage
Snjöflum her-
manni tekst ásamt
mönnum sínum að
ná völdum í Alcatr-
az- fangelsinu.
Hann hótar að
varpa öflugu efna-
vopni á San Fran-
cisco þar sem fimm
milljónir manna
búa. Eina færa leið-
in virðist sú að
senda menn inn í
Alcatraz og freista
þess að aftengja
sprengjumar og
ráða niðurlögum
óvinarins og er
ákveðið að kalla til
aðstoðar eina
manninn sem hefur
tekist að brjótast út
úr fangelsinu.
The Cable Guy
Jim Carrey og Matt-
hew Broderick
Steven Kovacs ætl-
ar að múta kapal-
manninum og fá
nokkrar sjónvarps-
rásir fríar inn í íbúð
sína. Kapalmaðurinn
sem hann fær er
ekki rétti maðurinn
til að múta. Þess í
stað gefur hann
sterklega til kynna
að hann hafi ekkert
á móti því að eignast
Kovacs fyrir vin.
Kovacs líst ekkert á
þá hugmynd, enda
finnst honum maður-
inn vera mesti
furðufugl, en hann
kemst fljótt að því að
kapalmaðurinn veit
ekki hvað nei þýðir.
Happy Gilmore
Adam Sandler og
Christopher McDon-
ald
Happy Gilmore er
mikill íshokkíaðdá-
andi og hefur alla tíð
dreymt um að verða
eftirsóttur leikmað-
ur. Það sem hefur
staðið í veginum er
hversu skapstyggur
hann er. Af tilviljun
kemst Happy að því
að með því að nota
íshokkísveiflu sína
getur hann slegið
golfbolta lengra en
aðrir og þar sem
amma hans skuldar
skattinum mikla
peninga ákveður
Happy Gilmore að
skrá sig í röð pen-
ingamóta þar sem
álitlegar peninga-
upphæðir eru í boði.
StíT;l
'UZDKuXZ K. i*ci SSSCjaa
T'ARGO
I 4
Fargo
Frances McDormand
og Steve Buscemi
Uppburðarlítill
bílasali hefur komið
sér í skuldasúpu. Til
að bjarga málum fær
hann tvo krimma til
að ræna eiginkonu
sinni og eiga þeir að
krefia ríkan tengda-
foður um lausnarfé.
Þegar krimmarnir
drepa lögreglumann
og tvo saklausa veg-
farendur fer málið
langt út fyrir það
sem bílasalinn ætl-
aði. Það kemur í hlut
lögreglusfiórans í
Fargo, hinnar kasó-
léttu Marge, að rann-
saka málið. Smám
saman tekst henni að
átta sig á tengingu á
milli morðanna og
eiginkonuhvarfsins.
Trainspotting
Ewan McGregor og
Johnny Lee Miller
I þessari frægu
bresku kvikmynd
kynnumst við
nokkrum misrugluð-
um persónum sem
búa í Edinborg og
eiga það sameigin-
legt að hafa farið út
af sporinu í lífinu.
Þetta eru dópistinn
Mark Renton og vin-
ir hans, kvennamað-
urinn Sick Boy, hinn
vonlausi Spud, hinn
glataði Tommy og
rugludallurinn geð-
veiki, Begbie. Þeir
lifa í veröld eitur-
lyfia og eiga það allir
sameiginlegt að vera
að bíða eftir dóplyft-
unni sem sífellt er á
ferðinni - á leiðinni
upp.