Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 HLJÓMPljTU umm Bush - Razorblade Suitcase Rokk í anda nýrri meistara ★★* Hljómsveitin Bush er hér á ferðinni með aðra plötu sína sem verður að teljast í það minnsta athyglisverð fyrir áferð og lagasmíðar. Það er heilmikiil kraftur í þessari rokksveit frá Bretlandi sem þurfti að fara alla leið til Bandaríkjanna til þess að land- ar hennar tækju eftir henni. Bush á hins vegar við þann leiða vanda að stríða að líkjast um of fyrirrennurum sínum á sístækkandi rokkmarkaði. Segja má að Bush sé sambland af Nirvana og Smashing Pumpkins, sem er ekki slæmt nema hvað það vantar „nýsköpunarelementið“ sem er svo mikilsvægt í allri listsköpun. Bush fetar troðnar rokkslóðir á plötunni og gerir það vel. Gítarleikur er kraftmikill, hljómsveitin þétt og eins og áður segir smellpassa lagasmíð- amar i það mót sem fyrmefhdar hljómsveitir (o.fl.) hafa skilið þeim eft- ir til sköpunnar. Söngurinn minnir ekki um of á Kurt Kobain eins og erlendir fjölmiðlar hafa haldið fram. Gavin Rossdale hefur kannski ekki mikla rödd, en hún er rám og rokkuð og fellur vel við undirspilið. Hljómsveitin kemst á flug í lögum á borð Personal Holloway, Swall- owed, Greedy Fly og Insect Kin og í laginu Commuicator falla þeir nið- ur á rólega rokkaðar nótur sem fara sveitinni mjög vel. Ef Bush nær að brjóta sig úr mótinu á hún framtíðina fyrir sér í rokkbransanum og jafnvel þó platan Razorblade Suitcase sé ekkert meistaraverk ætti hún að eiga fastan stað í góðu rokksafni, maður veit nefnilega aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Guðjón Bergmann Ýmsir - Sæluvikulög Þakkarvert framtak ★★* í tengslum við Sæluviku Skagfirðinga hefúr um nokkurt skeið verið haldin söngvakeppni og í fyrra kom út geisladiskur með tólf lögum sem komst í úrslit. Það er kven- félag Sauðárkróks sem stendur fyrir keppninni og gefur út um- ræddan geisladisk. Keppnin er öllum opin og er svona framtak þakkarvert á þessum síðustu (og verstu) tímmn, þegar dug- leysi Sjónvarpsins er jafn ræki- legt og raun ber vitni, en engin almenn undankeppni í Evrópu- söngvakeppninni hefur verið haldin þar á bæ árum saman. Má segja að kvenfélagið fyrir norðan geri fjölmiðli allra landsmanna skömm til, bæði með því að halda þessa keppni og einnig með útgáfu laganna. Eins og gefur að skilja eru flest lögin í hefðbundnum popp- og dægur- lagastíl. Ef til vill hafa sum þeirra átt að fara í einhverja Söngvakeppni Sjónvarpsins sem aldrei var haldin. Sveiflan sem stvmdum er kennd við Geirmund Valtýsson er þama til staðar, enda kannski ekki við öðru að búast á hans heimaslóðum. Hann á sjálfúr þrjú lög á diskinum og ann- ar efnilegur laga- og textasmiður, Sigurður Ægisson, á önnm- þrjú. Hún- vetningurinn Bjöm Hannesson og Ingvar Grétarsson frá Akureyri eiga sitt lagið hvor. Aðra smiði laga og texta kannast ég ekki við, en ffarn- lag allra er alveg bærilegt. Söngvarar era flestir þrautreyndir úr söngvakeppnum liðinna ára og atvinnubragur er á hljóðfæraleik og útsetningum, en þar kemur Magn- ús Kjartansson mikið við sögu. Ingvi Þór Kormáksson Keven Mahogany: Lrfsháskann vantar ★★★ Seint á síðasta ári kom út geislaplata með bandaríska söngvaranum Kevin Ma- hogany. Platan heitir engu sér- stöku nafni og ekkert er um manninn að finna í diskabæk- lingi. Það skal þó upplýst hér að Mahogany er fyrrverandi saxófónleikari sem sneri sér að söng ekki alls fyrir löngu og hefur síðan sent frá sér nokkr- ar plötur sem hafa gert hann nokkuð vinsælan í djass- og blúsheiminum. Hann flytur á þessari plötu nokkrar blúsaðar ballöður á borð við Yesterday I did the Blues og I Love You more than Youlll ever know eftir gömlu blúshetjuna A1 Kooper, einn af stofnend- um hljómsveitarinnar Blood, Sweat and Tears. Það era líka héma ívið hressilegri lög eins og Oh! Gee og Ilm Walking eftir Fats Domino. Með söngvaranum leikur prýðissextett en ekki kannast ég við nöfii hljóð- færaleikaranna nema Kirk Whalum saxafónleikara og Larry Golding sem leikur á Hammondorgel. Kevin Mahogany hefur þægilega barítonrödd, kann sitt fag ágætlega og fer vel með ópusana; „skattar" líka svolítið án erfiðismuna. Öll er músíkin hin þægilegasta en heldur of slétt og felld til að hún hreyfi verulega við manni, nema fyrmefiit lag Als Koopers. Lífsháskann vant- ar og óvænta ævintýramennsku en mikið er þægilegt að hafa hana lágt í spilaranum. Ingvi Þór Kormáksson *%ónlist ■ Dúettinn Lamb er um andstæð- ur. Þrumandi ástríðulaus trommutaktur og jarðneskur til- talinu þegar hann spurði Louise hvort hún væri sæt. Þegar þau hittust hins vegar small allt sam- an. Útkoman varð = andstæður. Louise klígjuleg. Millistigið er hins vegar ástríðuþrungin tónlist. Fyrsta plata sveitarinnar hefur fengið mjög góða dóma erlendis og er lesendum DV bent á að fylgjast með dómi um fyrstu plötu sveitar- finningaþrunginn söngur. Mitt á milli LTJ Bukem og Joni Mitchell, útskýrir dúettinn í fréttatilkynningu frá útgáfufyrir- tækinu Fontana. Louise Rhodes og Andrew Bar- low koma líka úr gagnstæðum átt- um. Louise ólst upp í kringum tónlist. „Sumt fólk hlustar aðeins á eina tegund tónlistar nú á dög- um,“ segir hún. „Minn tónlistar- bakgrunnur hefur hins vegar breikkað það tónlistarsvið sem ég hlusta á. Leonard Cohen eina mín- útuna, þrumandi þungan drumbassa hina. Mismunandi tón- listartegundir fyrir mismunandi tilfinningaástand. Aðalatriðið er að tónlistin komi frá hjarta þess er hana samdi.“ Árið 1992 heyrði Louise lag eftir Peter Bouncer, „Love Is All We Need“. Undirspil- ið var brjálað „breakbeat", söng- urinn var sál, greinilega búinn til á staönum. Hún hafði til lengri tima leitað að einhverjum til að vinna með og þama heyrði hún dæmi þess sem hún vildi gera. Það voru andstæðumar sem heill- uðu. Andrew Barlow hefur hins veg- ar aldrei líkað söngur. Hann ólst upp í hip-hop mnhverfi í Phila- delphia í Bandaríkjunum og jafn- vel þó honum líkaði aldrei rappið þakkar hann nú hip-hoppinu: „Þetta snýst allt um taktinn hjá mér,“ segir hann. Andrew kynnt- ist síðan danstónlist þegar hann sneri aftur heim til Bretlands og heillaðist mikið. Eftir heimkom- una tók hann sig til og lærði upp- tökustjóm og fór að fikta sig áfram í taktsköpun undir nafhinu Hip Optimist. Andrew hitti nokkra vini Louise í hljóðveri í London við sköpun á danstakti þegar hann sagðist vilja gera eitt- hvað hægara, þyngra, veigameira. Vinir Louise hringdu í hana: „Þér gæti líkað vel við þennan," sögðu þau. „Hann er aðeins of skrítiim fyrir okkur, svo þið ætt- uð að ná vel saman.“ Andrew var samt næstum bú- inn að eyðileggja allt í fyrsta sím- finnst mikið „techno“ vera eins og kínverskar vatnapyndingar og Andrew finnst „soul“ tónlist innar sem birtist væntanlega á næstu vikum. -GBG •J Bandaríska verið beðin um að man-myndina. írs umar i U2 sömdu ir síöustu Batman ig aö The (frábær garðinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.