Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Side 5
*■*
- sagan til þessa
Árið 1984 stofnuðu Bryan Hol-
land og Greg Kriesel hljómsveit
sem gekk undir nafninu Manic
Subsidal. Báðir höfðu heillast af
pönkbylgjunni sem þá gekk yfir, en
hvorugur þeirra átti hljóðfæri og
hvorugur kunni að spila. Bryan
keypti gítar, Greg keypti bassa og
við tóku þrotlausar æfingar. Tveim
mánuðum síðar voru þeir famir að
spila lög...
í dag gengur Bryan Holland und-
ir nafninu Dexter og Greg er kailað-
ur Greg K. Þeir eru meðlimir i Off-
spring ásamt Ron Welty trommu-
leikara og Kevin Wasserman gítar-
leikara, sem er betur þekktur sem
Noodels. Hér á eftir kemur saga
hijómsveitarinnar Offspring.
Dr. Holland og húsvörðurinn
Manic Subsidal var undanfari
hljómsveitarinnar Offspring.
Fyrstu hljómleikar sveitarinnar
voru heima hjá Greg K, en heimili
hans varð annað heimili sveitarinn-
ar framan af. Þess má geta að á
þeim tíma var Dexter Holland fyrir-
myndamemandi, sonur læknis og
vonaðist að verða einn slíkur síðar.
Eins og stendur er hann Ph.D. í
sameindalíffræði og Greg K er meö
BA-próf í fjármálum. Það vom sem
sagt engir hálfvitar sem stofnuðu
Offspring. 1984 bættist síðan Kevin
Wasserman, þá húsvörður í skóla
Dexters (aðeins 21 árs gamall), í
hópinn og smám saman kom mynd
á sveitina. Ron Welty bættist síðan
i hópinn aðeins 16 ára að aldri eftir
að hafa flust um öll Bandaríkin
★★★
Live á Dubliner - Papan
Allt virðist vera látið vaða, tón-
listin hrá og óhefluð. Hljómieik-
amir á Dubfiner virðast hafa ver-
ið hin besta skemmtun og hún
kemst vel til skila niðursoðin á
^ At
Stoosh - Skunk Anansie
Stoosh er allt öðruvísi hljómplata
en Paranoid and Sunbumt, virk-
ari kraftminni viö fyrstu hlustun
en verður betri eftir því sem
meira er hlustað. Lagasmíðar
sveitarinnar em mjög góðar.
-GBG
Entroducing - DJ Shadow:
Að baki þessari plötu liggur gíf-
urleg vinna, stórt plötusafh og
hugmyndaauðgi sem á ekki
marga sína líka. -GBG
★★★
Snörumar - Snörumar
I aðalatriðum hefur tekist vel
með lagaval á plötuna. Hér em
nokkrir áheyrilegir Kántrýslagar
★★★★ ^
Mermann - Emiliana Torrini
Þótt Innlendu lögin séu vel samin
og þau erlendu vel valin standa
þau og falla með einstaklega
áheyrilegri söngrödd Emiliönu.
Hún er eðalsteinn. -AT
★★★★
Kolrassa krókríöandi - Köld em kvennaráð
Það fer ekki fram hjá neinum
sem leggur við hlustir að mikil
vinna hefur verið lögð í þessa
plötu; hljóðfæraleikurinn er fág-
aður, hfjómurinn góður og lögin
stórgóð. -MÞÁ
★★★
Völlurinn - Söngleikur eftir Hrafn Pálsson
Þetta er músík í anda Jón Múla
og fleiri góðra og gegnra dægur-
laga- og söngleilqasmiðja. Vel er
vandað til verka og útkoman hin
prýðilegasta. -ÁT
★★★
Pertur og svín - Todmobile
Gamlir Todmobile-aðdáendur
ættu að geta vel unað við plöt-
una. Og eflaust ættu aðrir að
finna eitthvað við sitt hæfi. -ÁT
íslensku tónlistarverðlaunin 1997:
með móður sinni sem hafði þaö víst
aö tómstundaiðju að skipta um
maka.
Nafnið Offspring varð síðan til
árið 1987 og í kjölfarið fylgdi útgáfa
á 7 tommu sem var gefin út í 1000
eintökum. Það tók sveitina tvö og
hálft ár að losa sig við útgáfuna.
Tveim árum síðar komst hijóm-
sveitin á einnar plötu samning hjá
hljómplötuútgáfúnni Nemesis. Þeir
náðu sér í uppáhaldsupptökustjór-
ann sinn, Thom Wilson (the
Vandals, Dead Kennedys o.fl.) og
tóku upp nýja 7 tommu sem fékk
nafhið Baghdad og fyrstu breiðskíf-
una sem fékk nafn hljómsveitarinn-
ar. „Árið 1984 simgu allar pönk-
hijómsveitimar um löggjafarvaldið,
dauða, trúmál og stríð. Við gerðum
slíkt hið sama,“ segir Holland. Plat-
an gerði þá ekki vinsæla, en þegar
hljómsveitin var að taka upp lag á
safhplötuna Flipside hjá Brett
Gurewitz, eiganda Epitaph útgáfu-
fyrirtækisins, sá Offspring fyrir sér
bjartari framtíð. Gurewitz neitaði
liðsmönnum hennar hins vegar þá,
en tók við þeim árið 1992 þegar plat-
an Ignition kom út.
Smash ...
... var síðan platan sem kom Off-
spring á toppinn. Platan hefur nú
selst í rúmlega 9 milljónum ein-
taka, ekki síst vegna vinsælda lag-
anna Self Esteem og Come out and
Play. Eftir velgengni Smash ákvað
Offspring að gefa á ný út fyrstu
plötu sína vegna þess hve margar
lélegar útgáfur af henni voru komn-
ar á markaðinn. Hljómsveitin stofn-
aði til þess sitt eigiö útgáfúfyrir-
tæki, Nitro, sem gefur meðal ann-
ars út plötur með The Vandals og
Guttermouth.
Nú er hins vegar komin út fjórða
platan með þessari lífseigu hljóm-
sveit og má segja að hún marki
tímamót í sögu hljómsveitarinnar.
Til þessa hafa þeir nefnilega streð-
að eftir vinsældum, nú þurfa þeir
hins vegar að halda þeim. Hægara
sagt en gert.
Nýja platan ber þann skrítna tit-
il Ixnay on the Hombre og er gefin
út af Epitaph. Nýja platan verður
engu að síöur sú síðasta sem hfjóm-
sveitin gefur út hjá því fyrirtæki
því hún er búin að gera útgáfú-
samning við Columbia og gefúr því
næstu plötu sína út þar (gamla góða
útgáfurifrildið). Svo virðist sem
þeir hjá Epitaph séu frekar óánægð-
ir með þetta fyrirkomulag og sem
dæmi má nefna að Epitaph hefur
ekki sent dreifingaraðila sínum hér
á landi neinar upplýsingar eða
myndir samhliða útgáfu þessarar
nýju plötu eins og vaninn er (per-
sónulega myndi ég nú reyna að
græða smá pening á þeim áður en
þeir hverfa). Upplýsingar þessar
eru því fengnar af veraldarvefnum,
vefnum sem allt veit og aldrei sefur,
srnfey on the netsay.
-GBG
Góð þátttaka lesenda DV
Það er farið að styttast í að ís-
lensku tónlistarverðlaunin verði af-
hent í fjórða skipti. Afhendingin fer
fram 20. febrúar á Hótel Borg og þar
munu margir kunnir tónlistarmenn
koma fram. Meðal þeirra verða
Botnleðja, Emiliana Torrini og
hljómsveit, Todmobile og Anna
Hcilldórsdóttir. Enn frernur mun
Tríó Guðmundar Steingrímssonar
spila á afhendingarhátíðinni en
hann hlaut heiðursverðlaim þegar
íslensku tónlistarverðlaunin voru
afhent í fyrra. Kynnir verður Helgi
Pétursson.
Lesendur DV hafa getað tekið
þátt í valinu og þótt þátttakan hafi
verið afar góð í fyrra var hún enn
betri í ár.
í tilefhi af þessum merkisvið-
burði í íslensku tónlistarlífi hefur
Spor hf. gefið út geisladisk sem kall-
ast einfaldlega íslensku tónlista-
verðlaunin 1997. Diskurinn inni-
heldur þau fimm lög sem tilnefhd
eru sem besta lagið 1997 og ellefu
önnur lög sem tengjast tónlistar-
mönnum sem hafa verið tilnefndir
til verðlauna í ár. „Við erum í raun
að gera svipað og er gert í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Vestanhafs
er gefinn út sérstakur Grammy-
diskur en i Bretlandi kemur út disk-
ur tileinkaður Brit-verðlaununun,“
segir Jónatan Garðarsson, formaður
framkvæmdastjómar íslensku tón-
listaverðlaunanna. Eins og gefur aö
skilja er diskurinn afar fjölbreyttur
enda mikil gróska í íslensku tónlist-
arlifi.
Þeir sem flytja tónlist á diskinum
íslensku tónlistaverðlaunin 1997 em
Stefán Hilmarsson (Eins og er),
Emilíana Torrini (The Boy Who
Giggled so Sweet), Páll Óskar
(Stanslaust stuð), Todmobile
(Voodooman), Botnleðja (Hausverk-
un), Quarashi (Switchstance), Kol-
rassa krókríðandi (Opnaðu augun
þín), Jóhann Helgason (Bid Me to
Live), Anna Halldórsdóttir (Villtir
morgnar), Bjami Arason (I örmum
þér), Fabula (Heavy Secrets), KK og
Magnús Eiríksson (Ómissandi fólk),
Páll Rósinkrans (I Believe in You),
Dead Sea Apple (Sick of Excuses),
Slowblow (Sack the Organist) og
Mezzoforte (Monkey Fields) -JHÞ
Rúnar þór skemmtir
Rúnar Þór og hljómsveit munu
leika fyrir gesti og gangandi á Café
Royal í kvöld og laugardaginn 15.
febrúar veröur hann með hljómsveit
sinni á Langasandi á Akranesi.
Papar halda afmæli
Papamir héldu upp á tíu ára af-
mæli sitt í gær og þeir munu halda
áfram að fagna á Dubliner í kvöld
og laugardagskvöldið 15. febrúar.
Rafmaanað stuð á
Sauðárkróki og Húsavík
Hljómsveitin Volt leikur á Mæli-
felli, Sauðárkróki fóstudaginn 14.
febrúar og Hlöðufelli Húsavík
úí
-J J J J _l
laugardaginn 15. febrúar.
Hljómsveitarmeðlimir em þeir
Guðlaugur Falk gítarleikari, Frið-
rik Halldórsson bassaleikari, Birg-
ir Haraldsson söngvari og Heiðar
Kristinsson trommuleikari.