Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Qupperneq 6
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 T>V
rna helgina
wmmmmm
A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
g 1693. Opiö 11.30-22.30 alla daga.
Amigus Tryggvagötu 8, s. 551
i 1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd.,
| 17.30-23.30 fd. og ld.
Argentína Barónsstíg lla, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
i Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
f 11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd„
I 11.30-23.30 fd. og ld.
Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
I Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld.
, Austur Indía fjelagið Hverfisgötu
I 56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
A nœstu grösum Laugavegi 20, s.
í 652 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
j v.d., 18-22 sd. og lokað ld.
Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
,• Op. 187-22 md.- fid. og 18-23 föd.-sd.
Café Ópera Lækjargötu 2, s. 552
I 9499/562 4045. Opið 18-1 fd. og ld„
11.30- 1 v.d.
Carpe Diem Rauðarárstig 18, s. 562
i! 3350. Opið 11-23 alla daga.
Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
1 7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
i og ld. 12.-2.
» Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
t 552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21
| og sd. frá 16-21.
Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
1 9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld„
12-23.30 sd.
Homið Hafnarstræti 15, s. 551
3340. Opið 11-23.30 alla daga.
i Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
;'í 1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
:> 568 9509. Opið 11-22 alla daga.
: Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
f; 552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
| v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
* Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug-
velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu
|: 5-23, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
í 5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„
I 12-15 og 18-23.30 fd. og ld.
I Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
í' Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d„
í Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður 12-14
;; og 18-22 a.d..
I Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1
ld. og sd.
Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399.
Opið 11.30-22.30 alla daga, ld. frá
J 11.30-23.30.
: Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
« Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Mávur
! Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
17.30- 23 v,d„ 17.30-23.30 fd. og ld.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
| 5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45
fd„ ld. og sd.
Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551
| 1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„
17.30-23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30,
sd.-fid. 11.30-22.30.
Kofi Tómasar fi-ænda Laugavegi 2,
i s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
I 11-03 fd. og Id.
5 Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
t 0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553
í 1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, s.
551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
| fid.-sd. 11-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562
6766. Opið a.d. nema md.
S 17.30-23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551
k 7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„
J 12-14 og 18-03 fd. og ld.
f Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499.
Op. 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
I Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
3131. Opið virka daga frá 11.30 til
I. 00 og um helgar til 3.00.
Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið
18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
j Primavera Austurstræti, s. 588
8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„
18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
j Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9,
;í s. 588 0222. Opið alla daga frá kl.
II. 30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
S Lokað á sd.
: Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
j 7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Singapore Reykjavíkurvegi 68, s.
ij 555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
j fd.—sd.
s Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
J Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
j Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550.
» Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
; Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
I 551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
•1 11.30-23.30 fd. og ld.
Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
j Opið 11-23 alla daga.
» Við Tjörnina Templarasundi 3, s.
I 551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
J md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
; Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
I 562 1934. Opið fid.- sud„ kaffist. kl.
j 14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
■; 7200. Opið 15-23.30,v.d„ 12-02 a.d.
» Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldurs-
götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
I og 18-23.30 ld. og sd.
Tvö dansverk frumsýnd í Borgarleikhúsinu:
Um samskipti mannsins
við fíflið í sjálfum sér
- fjallar annað verkið sem samið er sárstaklega fyrir Islenska dansflokkinn
Einn af fremstu danshöfundum
Evrópu, og þótt víðar væri leitað,
hefur samið dansverk sérstaklega
ætlað íslenska dansflokknum.
Danshöfundurinn heitir Jochen
Ulrich og kom hingað til lands til
að fylgjast með æfingum á verki
sínu, La Cabina 26, og samdi svo
nýja verkið sem kallast Ein. Allt
er þetta gert í tilefni af fyrstu
frumsýningu Katrínar Hall sem
listdansstjóra íslenska dansflokks-
ins en verkin verða sýnd í kvöld á
stóra sviði Borgarleikhússins.
Koma Jochens Ulrich er ekki
einungis hvalreki fyrir íslenskan
dansheim heldur íslenska leikhús-
heiminn í heild. Einn helsti dans-
gagnrýnandi Evrópu, Jochen
Schmidt, segir í dóm sínum um
verkið:
„La Cabina 26 er sniUdarlega
samið verk með fallegum erótísk-
um undirtóni. Verkið endurspegl-
ar tæknilega fullkomnun með
miklum hraða, sem dansararnir
dansa af þvílíkri innlifun og krafti
að halda mætti að líf þeirra lægi
við.“
Færri munu komast að
en vilja
Ulrich er ekki með öllu ókunn-
ugur íslensku leikhúsfólki. Hann
hefur komið hingað til lands
tvisvar sinnum áður. í fyrra skipt-
ið setti hann upp verkið Blindings-
leik sem unnið var upp úr þjóðsög-
unni um Gilitrutt við tónlist eftir
Jón Ásgeirsson. Síðara verkið var
Ég dansa við þig en sú uppfærsla
fékk einróma lof gagnrýnenda og
áhorfenda og er án efa mest sótta
sýning íslenska dansflokksins á 24
ára ferli hans. Þrettán þúsund
áhorfendur sáu þá sýningu sem
því miður þurfti að hætta vegna
þessa að gestadansararnir gátu
ekki dvalið lengur á íslandi. Bæði
verkin voru sett upp í
Þjóðleikhúsinu.
Hið nýja verk Ul-
rich, Ein, fjallar
um samskipti
mannsins við
fiflið í sjálfum sér.
Tónlistin er hönd-
um hljómsveitarinn
ar Skárren ekkert og
mun hljómsveitin koma
fram í sýningunni ásamt ís-
lenska dansflokknum.
Sýningin er haldin í samvinnu
við Leikfélag Reykjavíkur, Tanz-
Forum Köln og Agence Artist-
ique. Alls dansa í upp-
færslunni ellefú
manns. Eins og áður
segir verður frum-
sýningin í kvöld en
aðeins eru fyrir-
hugaðar sex sýn-
ingar vegna anna
gestadansara ís-
lenska dans-
flokksins. Það er
því ljóst að færri
munu komast að
en vilja til að sjá
þessa einstöku
uppfærslu ís-
lenska dans-
flokksins.
-ilk
Dansinn er glæsileg list og í Borgarleik-
húsinu í kvöld verður sannkölluö veisla
fyrir leikhús- og dansáhugafólk.
DV-mynd Hilmar Þór
Árnesingakórinn
á afmæli
Stöðlakot
í Langholtskirkju verður veisla á
morgun. Þar mun Ámesingakórinn
halda upp á 30 ára afmæli sitt með
tónleikum sem hefjast klukkan 16.00.
Að sjálfsögðu syngur sjálfur af-
mæliskórinn á hátíðinni og þá undir
stjórn Sigurðar Bragasonar. Þau
Signý Sæmundsdóttir sópran og Þor-
geir Andrésson tenór munu syngja
einsöng en undirleikari verður Bjami
Þ. Jónatansson. Karlakórinn Fóst-
bræður, Selkórinn, Skólakór Kársness
og kór Kvennaskólans í Reykjavik
munu einnig koma við sögu. Allir
þessir kórar syngja sameiginlega og
einnig hver í sínu lagi.
Ámesingakórinn í Reykjavík var
stofnaður 14. febrúar árið 1967 að til-
hlutan söngáhugafólks innan Ámes-
ingafélagsins í Reykjavík og var fýrsti
stjórnandi kórsins Jónas Ingimund-
arsson. Frá þeim tíma hefur kórinn
starfað samfellt og sungið víða um
land en flestar söngskemmtanimar
hafa verið haldnar í Reykjavík og Ár-
nesþingi.
Kórinn hefur átt gott samstarf við
Samkór Selfoss, Ámeskórinn og hin
síðari ár Vörðukórinn. Hafa þeir hald-
ið sameiginlega tónleika, ýmist fyrir
austan fjall eða í Reykjavík.
Ljóst er að um virtan og vel æfðan
kór er að ræða svo að það ætti ekki að
verða leiðinlegt í Langholtskirkju á
morgun. -ilk
Hvernig tíminn
gengur á
alla hluti
Myndirnar tala eigin máli
Kór þessi er talinn vera hinn prýöilegasti.
Sigurborg Stefánsdóttir heitir lista-
kona ein. Hún hefur hugsað sér að
opna sýningu á verkum sínum í dag í
galleríi Sævars Karls. Um sýningu
sína segir hún:
„Það er oft erfitt að útskýra mynd-
verk með orðum, ekki síst ef mynd-
irnar era „ekki af neinu sérstöku“
heldur vilja aðeins vera þær sjálfar;
tala eigin máli. Þetta er svipað með
tónlistina, sem er ævinlega abstrakt.
Ég held líka að óhlutstæð myndlist sé
að ýmsu leyti skyld tónlist, í stað tóna
koma litir og form. í báðum greinum
er leitast við að skapa samræmi, eitt-
hvað sem hrífur hug áheyrandans eða
áhorfandans.......“
Sigurborg er fædd árið 1959. Hún
stundaði nám hjá Hans Cr. Höier list-
málara í Kaupmannahöfn og Skolen
for Brugskunst (Danmark Design
skole) í sömu borg og lauk þaðan prófi
úr teikni- og grafíkdeild árið 1987.
Hún hefur víða haldið sýningar og
starfað sem kennari í Myndlista- og
handíðaskóla íslands.
Sýningin hjá Sævari Karli verður
opnuð kl. 16.00. -ilk