Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Síða 12
26 myndbönd
MYNDBAm
JjJj^
Bio-Dome:
Umhverfisvænir hálfvitar ★*
Það virðist vera komið í tísku í Hollywood að gera
grínmyndir þar sem tveir hálfvitar reyna hvað þeir
geta að slá hvor annan út i heimskunni. Bill & Ted riðu
á vaðið ásamt Wayne og Garth í Waynes World, og há-
marki náðu vinsældir heimskugrinsins í Dumb and
Dumber. Bio-Dome er í sama dúr og kynnir til sögunn-
ar Bud og Doyle. í myndinni eru nokkrir visindamenn
um það bil að fara að loka sig inni i eins konar lifhvolfl
í eitt ár, þar sem meiningin er að halda lífkerfi gang-
andi allan tímann án utanaðkomandi áhrifa. Bud og Doyle viilast óvart inn
rétt áður en hvolfmu er lokað og vísindamennimir neyðast til að umbera
þá. Þeir rústa auðvitað allt með heimskupörum sínum en sjá svo að sér og
redda öllu í lokin. í hlutverkum aulanna eru Pauly Shore og Stephen Bald-
win. Sá síðamefndi er ágætur lúði en Pauly Shore er fremur ófyndinn. Grín-
ið er upp og ofan, oft bara heimskulegt en ekki fyndið, en myndin nær sér
líka oft á skrið með nokkuð fyndnum atriðum.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Jason Bloom. Aðalhlutverk: Pauly
Shore og Stephen Baldwin. Bandarísk, 1996. Lengd: 91 mín. Leyfð öllum
aldurshópum. -PJ
Last Dance:
Dauðarefsing ★★
Last Dance segir frá kvenfanga sem bíður dauðarefs-
ingar og baráttu lögmanns nokkurs við að fá dauða-
dómnum hnekkt eða frestað. Rick Hayes er af ríku fólki
kominn og hefur varla unnið handtak um ævina þegar
hann er ráðinn í vinnu sem fúlltrúi fyrir náðunarnefnd
borgarinnar. Cindy Ligget, sú dauðadæmda, er fyrsta
verkefni hans, en í fyrstu vill hún ekkert á hann hlusta.
Eftir 12 ára þjark er hún búin að gefast upp og vill helst
bara ljúka þessu af, en hann lætur ekki segjast og fer
langt út fyrir sitt verksvið til að reyna að hjálpa henni.
Með þeim þróast síðan vináttusamband, nánast ástar-
samband, jafnhliða baráttunni við kerfið. Þessi mynd kemur í kjölfar hinn-
ar feikigóðu Dead Man Walking, en er af ýmsmn ástæðum ekki nema hálf-
drættingur á við hana. í fyrsta lagi eru leikaramir mun síðri. Rob Morrow
er að vísu ágætur í sínu hlutverki, en Sharon Stone skýtur yfir markið og
nær ekki að fylgja eftir góðri frammistöðu í Casino. Persónusköpun er yfir-
borðskennd og melódrama tröllríður öllu. Cindy Ligget er látin vera hálf-
gerður engill en fólkið sem hún drap (í augnabliks æðiskasti í dópvímu) var
óþokkar og sömuleiðis allir þeir sem vilja sjá dauðarefsingunni fullnægt.
Hins vegar er tilraunin til að vekja athygli á óhugnaði dauðarefsingarinnar
virðingarverð og sú mynd sem gefin er af sambandinu sem skapast milli
Ligget og Hayes áhugaverð. Sennilega er ósanngjarnt að bera myndina sam-
an við Dead Man Walking. Það er ekki leiöum að líkjast.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Bruce Beresford. Aðalhlutverk:
Sharon Stone og Rob Morrow. Bandarísk, 1996. Lengd: 100 mín. Bönnuð
börnum innan 16 ára.-PJ
The Final Cut
icki Sprengingar og læti
Brjálæðingur gengur laus og kemur sprengjum fyrir
hér og þar í Seattle. Sprengjusérfræðingar lögreglunn-
ar mega sín lítils og hrynja eins og flugur í misheppn-
uðum tilraunum til að aftengja sprengjurnar. Fyrrum
liðsmaður sprengjusveitarinnar John Pierce (Sam
Elliot) er því kallaður til og hann kemur fram með þá
kenningu að brjálæðingurinn sé ekki að stunda venju-
leg hryðjuverk heldur sé hann að veiða sprengjusér-
fræðingana i gildrur. Brátt fellur grunur á John Pierce
sjálfan og hann neyðist til að fara huldu höfði og rann-
saka málið upp á eigin spýtur. Handritið er sæmilega
skrifað þótt það sé reyndar nokkuð fyrirsjáanlegt, sem er landlægt vanda-
mál í bandarískum myndum, og þá eru leikaramir í skárri kantinum mið-
að við framleiðslu af þessu tagi. Sam Elliot er orðinn ansi afalegur en virð-
ist þó halda sér í formi og leikur í hverri spennumyndinni á fætur annarri
um þessar mundir. Þá eru miklar og flottar eldsprengingar í myndinni og
háhýsi hrynja eins og spilaborgir. Myndin tapar síðan dampi í stöðluðu
lokaatriði.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Roger Christian. Aðalhlutverk: Sam
Elliot. Bandarísk, 1996. Lengd: 100 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára.
-PJ
The X-Files: Tunguska
Þættirnir að þynnast irk
X-Files þættimir hafa um nokkurt skeið verið með
vinsælasta sjónvarpsefni sem um getur og hafa valdir
þættir verið steyptir saman í kvikmyndarlengd og gefh-
ir út á myndbandi. Þessi mynd er samansett úr þáttun-
um Tunguska og Terma, sem verða væntanlega á dag-
skrá sjónvarpsins einhvem tíma næsta haust eða vetur.
Hér eru Mulder og Scully að rannsaka dularfullt efni úr
geimnum sem virðist breytast í orma, grafa sig inn í
fólk og gera það stjarft. Oft tekst ágætlega að skapa
óhugnað, en þættirnir virðast hins vegar vera að þynn-
ast allmikið. Sögupersónurnar Mulder og Scully eru
orðnar mjög staðlaðar og allt er gegnumsýrt af melódrama. Samsæriskenn-
ingamar tröllríða öllu og allt er þetta einfaldlega orðið of ólíkindalegt og
hreinlega asnalegt til að hægt sé að hafa mikið gaman af. David Duchovny
og Gillian Anderson era orðin það fræg að þau hljóta að fara að láta til sín
taka í kvikmyndum og þá er stutt í að þessi þáttaröð leggi upp laupana, enda
búið að mjólka það sem mjólkað verður. Þeir sem hafa enn þá gaman af þátt-
unum verða sjálfsagt ánægðir með þessa mynd og ég hef heyrt því haldið
fram að þetta sé með því betra sem X-Files hefur upp á að bjóða.
Útgefandi: Skífan. Leikstjórar: Kim Manners og Rob Bowman. Aðalhlut-
verk: David Duchovny og Gillian Anderson. Bandarísk, 1996. Lengd: 92
mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ
I H I Ú) I I L E S
■ ■■ 1 i t ty G1.1 r> ►. A
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
28.jan. til 2.feb.
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 2 1 2 Mission Impossible ClC-myndbönd Spenna
5 3 SpyHard Sam-myndbönd Gaman
3 3 3 Fargo Háskólabíó Spenna
4 2 5 Rock Sam-myndbönd Spenna
5 7 3 : Truth about Cats and Dogs Skrfan Gaman
6 4 4 ' Cable Guy Skífan . Gaman
7 6 5 Happy Gilmore ClC-myndbönd Gaman
8 8 2 The Quest V Myndform " t Spenna
SJ NÝ 1 Bio-Dome Sam-myndbönd Gaman
10 9 4 Mullholland Falls Myndfarm Spenna
[n NÝ 1 Last Dance Sam-myndbönd Drama
12 11 8 Kingpin Sam-myndbönd Gaman
13 12 8 Copycat Warner-myndir Spenna
14 ■■■ 10 7 Trainspotting Warner -myndir Spenna
15 15 10 Sgt. Bilco ClC-myndbönd Gaman
||||» 1 £ NÝ * í X-Files: Tunguska Skffan Spenna
NÝ i : Final Cut Háskólabíó Spenna
18 ■ 10 , Juror ! Skífan Spenna
19 14 3 White Man i Sammyndbönd Spenna
20 Ai \ 11 1 Executive Desision - Warnermyndir <J Spenna
Þær tvær myndir sem eru í efstu sætum myndbanda-
listans þessa vikuna eiga þaö sameiginlegt að fjalla
um njósnara, en þá er líka upptaliö þaö sem er sam-
eiginlegt meö þeim. Spy Hard er nánast farsi þar sem
ekkert er heilagt en Mission: Impossible hátækni
njósnamynd meö alvarlegu yfirbragði. Þaö eru ekki
miklar hreyfingar á listunum þessa vikuna. Fjórar nýj-
ar myndir koma inn á listann en engin þeirra er iíkleg
til mikilla vinsælda en þó má búast við aö The Last
Dance meö Sharon Stone í aöalhlutverki eigi eftir aö
hækka sig eitthvaö. Á myndinni eru aöalleikararnir í
The Truth about Cats & Dogs, sem er í fimmta sæti
listans: Uma Thurman, Ben Chaplin og Janeane
Garofalo.
Mission: Im-
possible
Tom Cruise og Jon
Voight
Um skeið hefur
CIA haft grun um að
einhver innan leyni-
þjónustunnar sé að
selja hátæknileynd-
armál. Njósnarinn
Ethan Hunt er að
undirbúa að afhjúpa
bæði svikarann og
kaupandann. Allt
gengur samkvæmt
áætlun þar til að-
gerðinni er að ljúka.
Fljótlega áttar Hunt
sig á að hann er sjálf-
ur er orðinn hinn
grunaði i málinu,
enda sá eini sem eft-
irlifandi er sem vissi
um aðgerðina.
jggjl Tuprirmily SMf"
Spy Hard
Leslie Nielsen og
Nicolette Sheridan
Njósnaranum WD-
40 er falið að stöðva
grimmileg áform
handalausa hryðju-
verkamannsins
Rancors sem í brjál-
semi sinni ætlar sér
eigi minna en heims-
yfirráð. í myndinni
er einnig komið inn
á persónuleg tengsl
WD-40 við hinar og
þessar persónur inn-
an og utan leyniþjón-
ustunnar, tfi að
mynda er hulunni
svipt af dulargervi
yfirnjósnarans í CIA
og yfirmanns WD-40,
en eins og allir vita
var hann gæddur
þeim hæfileika að
geta dulbúið sig sem
húsgagn.
PÍRGO
Fargo
Frances McDorm-
and og Steve
Buscemi.
Uppburðarlitill
bílasali hefur komið
sér í skuldafen. Til
að bjarga málum fær
hann tvo krimma til
að ræna eigin-
konunni og eiga þeir
að krefja forríkan
tengdaföður hans um
lausnarfé. Þegar þeir
drepa lögreglumann
og tvo saklausa veg-
farendur fer málið út
fyrir það sem bílasal-
inn ætlaði. Það kem-
ur í hlut lögreglu-
stjórans í Fargo,
hinnar kasóléttu
Marge, að rannsaka
málið og tekst henni
að átta sig á teng-
ingu milli morðanna.
The Rock
Sean Connery og
Nicolas Cage
Snjöllum her-
manni tekst ásamt
mönnum sínum að
ná völdum í Alcatr-
az- fangelsinu. Hann
hótar að varpa öfl-
ugu efnavopni á San
Francisco þar sem
fimm milljónir
manna búa. Eina
færa leiðin virðist sú
að senda menn inn í
Alcatraz og freista
þess að aftengja
sprengjumar og ráða
niðurlögum óvinar-
ins og er ákveðið að
kalla til aðstoðar
eina manninn sem
hefur tekist að brjót-
ast út úr fangelsinu.
The Thruth
About Cats &
Dogs
Janeane Garofolo og
Uma Thurman.
Abby er dýrasál-
fræðingur sem
stjórnar útvarps-
þætti og hefur sér-
hæft sig í að gefa
dýraeigendum góð
ráð. Dag einn hringir
ljósmyndarinn Brian
sem á i vandræðum
með.bolabít á hjóla-
skautum. Ben hrífst
af rödd og fasi Abby-
ar og býður henni út.
Abby hefur ekki ver-
ið við karlmann
kennd í langan tíma
og þiggur boðið og
lýsir sér sem hárri,
grannri og ljós-
hærðri.